Dagur - 05.01.1982, Síða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Ár
fatlaðra
Ári fatlaðra er nú lokið. Að mati forráða-
manna samtaka fatlaðra hefur töluvert
áunnist á þessu ári, einkum þó það að við-
horf almennings og ráðamanna hafa breyst
til hins betra, vegna aukinnar kynningar á
vandamálum fatlaðs fólks. Enn er margt
ógert, en von til þess að áðurnefnd viðhorfs-
breyting geri framhaldið auðveldara.
Ár aldraðra er nú tekið við. Hér á árum
áður voru aldraðir ekki sérstakur þjóðfélags-
hópur eins og nú er litið á, heldur hafa gífur-
legar þjóðfélagsbreytingar með byltingu í
heimilisháttum valdið því, að nú er talin þörf
á að gera sérstakt átak í málefnum þeirra.
Áður dvaldist aldrað fólk í flestum tilfellum á
heimilum afkomenda sinna, en það hefur
sífellt farið minnkandi. Fjölmargir aldraðir
kæra sig ekki um að vera upp á ættingja sína
komnir; — finnst þeir vera fyrir eða að það
samræmist ekki þeim sjálfstæðishugmynd-
um sem þeir hafa öðlast með oftast árang-
ursríkri lífsbaráttu eftirstríðsáranna. Auk
þess gerir uppbygging nútímaheimila í
fæstum tilfellum ráð fyrir stórfjölskyldum,
þó svo að yngra fólk gæti vel hugsað sér að
hafa gamla fólkið hjá sér.
Þessi þróun hefur valdið því að aldraðir
hafa í auknum mæli einangrast og búa því
miður allt of oft við bág lífskjör og einsemd.
Vandamál gamla fólksins verða ekki ein-
vörðungu leyst með auknu fjármagni. Við-
horfið til þeirra þarf að breytast með sama
hætti og til hinna fötluðu í þjóðfélaginu.
Hinu er ekki að neita, að aldraðir eiga vissu-
lega rétt á stærri hlut í kökunni, sem sú
kynslóð er þeir tilheyra, hefur átt hvað stærst
an hlut í að skapa. Stórauka þarf rými fyrir
aldraða og sjúka á sérstökum deildum, þar
sem mannlegi þátturinn má þó aldrei
gleymast. Stórauka þarf möguleika aldr-
aðra, sem hafa til þess heilsu, til að búa í eig-
in húsnæði og njóta heimilishjálpar. Megin-
áherslu á að leggja á að aðstoða gamalt fólk
til að hjálpa sér sjálft og gera því kleift að
sinna einföldum störfum og verða áfram að
gagni í þjóðfólaginu.
Eins og áður sagði þarf viðhorfsbreytingu.
Þeir sem nú eru upp á sitt besta og hinir sem
taka við, þurfa að finna til þess þakklætis til
gamla fólksins, sem það á skilið, og breyta í
samræmi við það. Auðveldast er að hafa á-
hrif á ungu kynslóðina í þessum efnum og því
eiga skólarnir að gera stórátak í fræðslu um
málefni aldraðra.
Starfsmenn Dags og Dagsprents í nýjum húsakynnum á fýrsta starfsdegi eftir áramótin. Sitjandi eru Hermann Sveinbjömsson, Jóhanna
Friðfínnsdóttir og Inga María Sverrisdóttir. Standandi frá vinstrí era Frímann Frímannsson, Jóhannes Mikaelsson, Aðalsteinn Óskarsson,
Ríkharður Jónasson, Gylfi Kristjánsson, Ársæli EUertsson, Áskell Þórisson, Jóhann Karl Sigurðsson og Guðjón Sigurðsson.
Dagur í nýju húsnæði
Dagsprent hf. tekið til starfa
Dagur hefur nú flutt starfsemi
sína í nýtt húsnæði að Strandgötu
31, en þar verður Dagsprent hf.
einnig til húsa og mun það fyrirtæki
annast aila prentun biaðsins. Á
þessum tímamótum flyst ÖU gerð
blaðsins undir eitt þak, sem væntan-
lega mun gera alia vinnslu þess ein-
faldari og hraðari.
Samfara því að blaðið verður nú allt
unnið á einum stað verður útgáfudög-
um fjölgað og jafnframt verður blaðið
stækkað. Dagur mun í framtíðinni
koma út þrisvar í viku, á þriðjudögum,
fimmtudögum og föstudögum. Búast
má við einhverjum byrjunarörðugleik-
um fyrst í stað, en vonandi verður þess
ekki langt að bíða að þessum áformum
verði að fullu komið í framkvæmd.
Starfsmönnum Dags hefur verið
fjölgað, auk þess sem Dagsprent hefur
ráðið nýtt fólk til starfa. Við starfi aug-
lýsingastjóra Dags hefur tekið Frí-
mann Frímannsson. Jóhann Karl Sig-
urðsson, sem áður annaðist þetta starf
mun sjá um framkvæmdastjórn Dags
og Dagsprents. Jóhannes Mikaelsson
hefur verið ráðinn útbreiðslustjóri, en
hann verður einnig að hluta starfs-
maður í prentsmiðju. Jóhanna Frið-
finnsdóttir mun annast almenn skrif-
stofustörf, þ.á m. símavörslu, en einn-
ig auglýsingamóttöku. Aðrir fastráðnir
starfsmenn blaðsins eru Herraann
Sveinbjörnsson, ritstjóri, blaðamenn-
irnir Áskell Þórisson og Gylfi Krist-
jánsson og Aðalsteinn Óskarsson, sem
unnið hefur ýmis störf á skrifstofu og
við útréttingar. Lausráðnir starfsmenn
eru við íþróttaskrif og ljósmyndun,
ræstingu og pökkun. Fjölmargir aðilar
munu rita greinar í föstudagsblaðið,
svipað og verið hefur í Helgar-Degi.
Nýir starfsmenn Dagsprents hf. eru
Ársæll Ellertsson, sem annast rekstur
prentvélar, Guðjón Sigurðsson annast
umbrot og að nokkru setningu, Rík-
harður Jónasson annast filmu- og
plötugerð og Inga María Sverrisdóttir
starfar við tölvusetningu.
Dagur og Dagsprent hf. bjóða þessa
nýju starfsmenn velkomna til starfa.
ÞAKKIR TIL PRENTVERKS
ODDS BJÖRNSSONAR HF.
FYRIR ÁRATUGA SAMSTARF
Mikil umskipti hafa nú orðið
varðandi prentun Dags. Biaðið er
nú í fyrsta sinn unnið og prentað í
eigin prentsmiðju, Dagsprenti hf.
Allt frá árinu 1920 hefur Dagur ver-
ið prentaður í Prentverki Odds
Björnssonar hf. á Akureyri, eða
með öðrum orðum alla sína tíð
nema tvö fyrstu árin, þegar biaðið
var prentað í Prentsmiðju Björns
Jónssonar hf.
Eins og gefur að skilja hefur mikil
breyting orðið á prenttækni á þessum
langa tíma og má raunar segja að
tækni-þróunin og sérstaða blaðaprent-
unar ráðið mestu um þá breytingu sem
nú hefur orðið á högum blaðsins. Þessi
mál hafa haft nokkuð langan aðdrag-
anda og upphafið má rekja til þess, er
Dagur eignaðist eigin prentvél árið
1945, sem Prentverk Odds Björns-
sonar annaðist rekstur á. Árið 1976
eignaðist blaðið svo fullkomna offset-
blaðapressu og það sama ár var fest
kaup á fyrsta húsnæðinu, sem Dagur
eignaðist, Tryggvabrautf 12 á Akur-
eyri. Nýja vélin var, eins og sú gamla,
starfræict í POB. Á miðju ári 1980 var
keypt viðbót við prentvélina, sem gerði
kleift að prenta blaðið í lit og jafnframt
fjölga blaðsíðum þess.
Á síðasta ári gerðist það svo, að
ákvörðun var tekin um að stofnsetja
eigin prentsmiðju til prentunar á blað-
inu. Stofnað var hlutafél. Dagsprent
hf., húseignin að Tryggvabraut 12 seld
og fest kaup á Strandgötu 31, þar sem
bæði blaðið og prentsmiðjan verða til
húsa í framtíðinni. Um síðustu áramót
rann út samningur milli Dags og POB,
en að samráði beggja aðila var prentvél
Dags flutt í nýja húsnæðið og fyrsta
blaðið prentað þar 12. nóvember.
Setning, umbrot og filmugerð var
áfram í POB til áramóta.
En nú hefur sem sagt verið brotið
enn eitt blað í rúmlega sex áratugasögu
Dags með stofnun og starfrækslu Dags-
prents hf., sem Dagur er stærsti hlut-
hafinn í. Blaðið lagði. til hina full-
komnu blaðapressu og Dagsprent hef-
ur keypt tæki til setningar, umbrots og
filmugerðar. Húsnæðið að Strandgötu
31 er í eigu blaðsins, svo og innrétting-
ar, nema þær sem tilheyra prentsmiðju
rekstrinum.
Á þessum tímamótum færa starfs-
menn og stjórnarmenn Dags stjórn-
endum og öllu starfsliði Prentverks
Odds Björnssonar fyrr og síðar þakkir
fyrir vel unnin störf og samvinnu, með
ósk um áframhaldandi velgengni
þessa fyrirtækis, sem með tilvist sinni
og prentgripum hefur lagt drjúgan
skerf til menningarmála landsmanna,
þau 80 ár sem það hefur starfað hér á
Akureyri.
Hermann Sveinbjömsson
rítstjórí.
4-DAGUR5. janúar 1982
KR-sigur í hörkuleik
Fyrstí leikurinn í fyrstu
deild í handbolta á þessu ári
fór fram í íþróttaskemmunni á
sunnudaginn. Þá áttust við
KR-ingar og KA-menn, en
KR-liðið er borið uppi af
bræðrunum Alfreð og Gunn-
ari Gíslasyni sem báðir hafa
gert garðinn frægan með KA.
Leikur þessi var fjörugur og
skemmtilegur ailan tímann,
þrátt fyrir sanngjarnan KR
sigur 25 mörk gegn 21, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 11
gegn 9, KR í vil.
Það voru hátt á fimmta hund-
ruð áhorfendur sem fylltu áhorf-
endabekki skemmunnar, og
hvöttu þeir heimamenn oft á tíð-
um vel. Sérstaklega var það þeg-
ar allt gekk í haginn, en þegar
illa gekk heyrðist lítið í áhorf-
endum, en þá er það sem leik-
menn þurfa hvatningarhrópin!
Alfreð Gíslason gerði fyrsta
markið í þessum leik með hörku
skoti eins og raunar hann gerði
öll sín mörk. Sigurður Sigurðs-
son, sem var marka-kóngur KA
í þessum leik, jafnaði strax með
laglegu skoti. Síðan komst KR í
tvö gegn einu, en aftur jafnaði
Sigurður. Þá fá KA-menn víti
sem raunar var það eina sem
dæmt var í þessum leik og Frið-
jón skoraði örugglega, og kom
KA yfir í leiknum. Þá jafnar
Gunnar Gíslason fyrir KR, en
Sig*urður kemur KA í fjögur
gegn þremur, og skömmu síðar
bætir Jóhann Einarsson fimmta
markinu við fyrir KA. Alfreð
lagar aðeins stöðuna fyrir KR,
en þá komu tvö KA-mörk frá
Sigurði og Friðjóni og staðan
orðin sjö gegn fjórum fyrir KA,
og áhorfendur alveg að tryllast.
Þá gerði Alfreð tvö mörk fyrir
KR og lag*aði stöðuna nokkuð,
og skömmu síðar bætti Þorleifur
áttunda markinu við fyrir KA og
staðan átta gegn sex. Þá kom
leikkafli sem KA-menn gleyma
sennilega seint, því KR-ingar
gerðu fimm næstu mörk, án þess
að KA tækist að skora, og stað-
an orðin ellefu gegn átta. Undir
lok hálfleiksins bætti Sigurður
einu við fyrir KA og lagaði stöð-
una í ellefu gegn níu þegar flaut-
að var til hálfleiks..
KR-ingar gerðu fyrsta markið
í síðari hálfleik en Sigurður og
Jóhann gerðu síðan tvö næstu
fyrir KA. Þá var tveimur KA-
mönnum vísað af leikvelli svo til
samtímis og þá var leiðin í KA-
markið auðveld fyrir þá bræður
Gunnar og Alfreð, en þeir gerðu
þá sitthvort markið. Síðan skor-
uðu þeir sín tvö til skiptis Sig-
urður fyrir KA og Alfreð fyrir
KR. Þegar um það bil sjö mín.
voru til leiksloka var staðan orð-
in 22 gegn 16 fyrir KR og stefndi
í stórsigur. Þá tóku KA-strák-
arnir sig til og gerðu fjögur mörk
í röð án þess að KR tækist að
svara fyrir sig og staðan allt í
einu orðin 22 gegn 20. Þá setti
Jóhann Ingi þjálfari KR, Alfreð
aftur inná, en hann hafði þá
fengið að hvíla sig um stund og
ekki leið á löngu áður en boltinn
söng í netamöskvum KA eftir
hörkuskot frá Alfreð. Þegar
flautað var til leiksloka var stað-
an 21 gegn 25 og öruggur og
sanngjarn KR-sigur var í höfn.
KR-ingar eru í toppbaráttu í
deildinni en staða KA vægast
sagt mjög erfið. Þeir hafa aðeins
hlotið tvö stig, jafnmörg og HK
og Fram en þessi þrjú lið munu
berjast um tilveru sína í deild-
inni. Nánast öll önnur lið eru í
toppbaráttu.
Sigurður var besti maður
KA-liðinu, og gerði alls 8 mörk.
Friðjón gerði 4, þar af eitt úr
víti.
Erlingur gerði 3, og Jakob,
Jóhann og Þorleifur 2 hvert. Al-
freð var markhæstur hjá KR
með 8 mörk og bróðir hans
Gunnar gerði 5.
Fimm sinnum var KA-leik-
manm vísað af leikvelli í tvær
mín. en tvisvar sinnum KR-ing.
Áhorfendur voru um 450 og er
það „Skemmumet“ á þessu
keppnistímabili.
Klæðist Gunnar KA-
peysunni aftur?
Þórsarar
sigursælir
Nú um jólin var haldið í
íþróttaskemmunni Akureyr-
armót í innanhússknatt-
spyrnu. Keppt var í öllum
flokkum karla, og í meistara-
flokki kvenna.
Keppendur voru frá Akureyr-
arfélögunum Þór og KA.
Keppni var oft á tíðum jöfn og
spennandi og þurfti að fram-
lengja nokkra leiki til þess að
úrslit fengjust. Alls voru leiknir
tólf leikir og sigruðu Þórsarar í
átta þeirra en KA í fjórum.
Annars urðu úrslit einstakra
leikja þessi:
4. flokkur B
4. flokkur A
3. flokkurB
3. flokkur A
2. flokkur
1. flokkur
Meist. fl.
„Old boys“
Kvennafl.
KA4-Þór2
Þór 6 - KA 2
Þór4-KA3
Þór7-KA5
KA6-Þór5
Þór 5 - KA 4
Þór 8 - K A 5
KA5-Þór3
Þór3-KA 1
Margir hafa velt fyrir sér
þeirri spurningu eftir að
Gunnar Gíslason var valinn í
íslenska landsliðið í hand-
knattleik, hvort hann myndi
koma aftur hingað til Akur-
eyrar í vor eftír að hann lýkur
námi í íþróttakennaraskólan-
um. Gunnar hefur undanfarin
ár verið einn af máttarstólp-
um KA, bæði í knattspymu og
handknattleik. Hann ákvað
hins vegar í haust að leika
frekar með KR í handboltan-
um í vetur þar sem það er nær
ógjörningur að leika með liði
hér á Akureyri meðan á námi
stendur í skólanum. Frami
hans í handboltanum í
Reykjavík var hins vegar
mjög skjótur og nú er hann
kominn í landsliðið og var
6. flokkur
5. flokkurB
5. flokkur A
KA4-Þór2
Þór3-KA0
Þór5-KA3
Göngumót í
Ólafsfirði
Á laugardaginn héldu Ól-
afsfirðingar skíðagöngumót í
blíðskaparveðri og góðu
skíðafæri. Gengnir vora um
11 kflómetrar, og urðu úrslit
þessi:
1. Haukur Sigurðsson 30-06
2. Gottlíeb Konráðsson 31.10
3. Jón Konráðsson 31.22
4. Axel Pétur Ásgeirsson 33.36
með í að leggja Dani nú um
jólin eins og menn muna. Þá
var hann einnig mjög at-
kvæðamikill í unglingalands-
liðinu fyrr í vetur þegar þeir
kepptu á Heimsmeistaramót
inu.
Gunnar var að því spurður
hvort landsliðssæti í handknatt-
leik skipti einhverju um framtíð-
aráform sín. Hann svaraði því til
að víst gæti svo farið að það
skipti fyrir sig máli. Hann hefði
hins vegar verið ákveðinn í að
koma hingað til Akureyrar í vor,
og fara síðan að starfa við
íþróttakennslu hér í bæ. Hann
kvaðst búast við að íþróttakenn-
arastaða við Gagnfræðaskólann
losnaði nú í vor og ætlunin væri
að sækja um hana.
- Ég er ákveðinn í að koma í
vor og leika með KA í fótboltan-
um í sumar, en hvað gerist í
haust er ennþá óráðið. Ef ég
verð áfram valinn í landsliðið í
handknattleik nú í vetur er ekki
ósennilegt að ég verði í Reykja-
vík næsta vetur. Það er nánast
ómögulegt að leika með liði á
Akureyri og ætla sér að eiga
möguleika á að komast í lands-
liðið í handknattleik, sagði
Gunnar.
Þá var hann að því spurður
hvort það kæmi ekki illa niðri á
náminu að vera svo mikið frá í
keppnisferðum, bæði með fé-
lagsliði og landsliði. - Við erum
þrír KR-ingar á íþróttaskólan-
um að Laugarvatni, sagði
Gunnar, - við förum til Reykja
víkur tvisvar í viku og síðan alla
helgina. Það tekur um einn til
þrjá tíma að aka frá Laugarvatni
til Reykjavíkur eftir veðri og
færð, þannig að lítill tími verður
eftir til lestrar. Ég á ennþá eftir
að^taka þrjú próf sem ég átti að
taka fyrir fyrir áramót, sagði
Gunnar.
Gunnar hældi mikið þjálfara
sínum, Jóhanni Inga, og sagði að
hann væri frábær þjálfari. Hann
sagði líka að sér hefði komið á
óvart hve KA-liðið væri sterkt. -
Þetta er allt annað en í fyrra,
sagði Gunnar.
Roger Berents
til Þórsara
Tilþrif hinna ungu knattspyrnumanna voru oft mjög skemmtileg.
Ljósm. KGA
Þórsarar fá innan skamms
tíl liðs við sig bandarískan
körfuknattieiksmann, og mun
hann leika með liðinu það sem
eftir er keppnistímabilsins.
Leikmaður þessi heitir Roger
Berents, og er 24 ára að aldri.
Hann þykir vera mjög sterkur
leikmaður undir körfunum,
harður í fráköstum og skorar
jafnan mikið af stigum. Hann er
1.97 m á hæð og leikur ýmist sem
framherji eða miðherji.
Upphaflega ætluðu Þórsarar
að fá Mark Christensen hingað
til lands á nýjan leik, en þegar til
kom treysti Mark sér ekki til að
koma. Það var svo með aðstoð
þeirra Danny Shouse sem leikur
með UMFN og Tim Higgins sem
leikur með ÍBK að samningar
tókust við Roger Berents, og er
hann væntanlegur til Akurreyr-
ar eftir viku til 10 daga.
5. janúar 1982 - DAGUR 5