Dagur - 05.01.1982, Page 8

Dagur - 05.01.1982, Page 8
Akureyri, þriðjudagur 5. janúar 1982 DNY-FLEX VATNSKASSAHOSUR I s Slökkviliðsmenn berjast við eldinn í Sjálfstæðishúsinu, Vilj'a að áfram verði skemmtistaður í SH Eins og kunnugt er varð stór- bruni í Sjálfstæðishúsinu á Ak- ureyri þann 19. desember sl. Talið er að þak hússins sé að mestu ónýtt og innréttingar skemmdust mikið af völdum reyks og vatns. Eldsupptök voru í útblæstri frá eldhúsi, sem er í vesturenda hússins. Ahugi er fyrir því hjá eigendum hússins, að þar verði áfram rek- inn skemmtistaður, en Ijóst er að viðgerð mun taka nokkra mánuði. Tómas Búi Böðvarsson, slökkvi- liðsstjóri sagði að erfiðlega hefði gengið að slökkva eldinn þar sem illt var að komast að honum. Slökkviliðsmennirnir urðu t.d. að skríða eftir loftinu fyrir ofan danssalinn til að komast að eldinum. Tómas sagði að ald- rei áður í sögu slökkviliðsins hefði verið notað jafn mikið af reykköf- unartækjum. Alls þurfti 60 kúta af súrefni og voru þeir hlaðnir jafn- harðan á slökkviliðsstöðinni. „Ég tel að mínir menn hafi staðið sig mjög vel,“ sagði Tómas, „sem dæmi má nefna að sumir voru stanslaust í reykköfun í yfir þrjár klukkustundir.“ Tómas sagði að kröfur um eld- varnarbúnað í húsum hefðu breyst mikið síðan Sjálfstæðishús- ið var reist, en hefðu t.d. verið eldvarnarveggir milli þaks og gólfs á falska loftinu hefðu þeir komið í veg fyrir eins mikið tjón og raun varð á. Aðspurður um ástand mála í öðrum samkomu- húsum á Akureyri, sagði Tómas að það væri víðast hvar viðun- andi, en nefndi að undantekning væri t.d. húsnæði Karlakórsins Geysis, Lón við Glerárgötu. Er- indi vegna þessa var sent bæjar- ráði fyrir löngu síðan, en ekkert svar hefur borist. Á meðan svo er getur slökkviliðsstjóri ekkert aðhafst. Tómas sagði að lokum að hann væri nú að senda bæjaryfir- völdum í 3ja sinn beiðni um að keyptur verði tankbíll til slökkvi- tiðsins. Slíkur bíll stuðlar að auknu öryggi í brunavörnum Ak- ureyrar, sagði Tómas. Stórhækkað fasteignamat: Mun dýrara að þinglýsa Akureyri: Álfadans og brenna á Þórsvelli á morgun íþróttafélagið Þór á Akur- eyri gengst að vanda fyrir álfa- dansi og brennu á „þrettánd- anuin" (annað kvöld) og hefst skemmtunin við stúkuna á íþróttavellinum kl. 19.45. Þaðan verður gengið í heilmik- illi skrúðgöngu undir forustu álfa- kóngs, álfadrottningar, púka, jóla-sveina, trölla og dansflokks upp á Þórsvöll, en þar hefst skemmtun kl. 20. Þar verður stór og mikil brenna, Hjáiparsveit skáta sér um flugeldasýningu, Katla María syngur, sýndir verða þjóðdansar og margt fleira verður á dagskrá. Þann 1. desember s.l. hækk- aði fasteignamat íbúða á Akur- eyri. Nokkuð var hækkunin misjöfn, mun meiri á nýjum húsum en eldri, en meðaltals- hækkunin mun hafa verið um 50%. Þessi hækkun veldur því að nú er mun dýrara en áður að þinglýsa kaupsamningum og skuldabréf- um, því stimpilgjaldið af kaup- samningum er 0,4% og af skulda- bréfum 1,5%. Hinsvegar er þing- lesningargjaldið ávallt hið sama eða 28 krónur. Ef tekið er dæmi af fjögurra herbergja íbúð í Hjallalundi sem er tæpir 90 fermetrar að stærð, þá var fasteignamat hennar fyrir hækkunina 264.800 krónur, en er nú 410 þúsund krónur. Þinglesn- ingargjald og stimpilgjald af þess- ari íbúð var fyrir 1. desember 1.060 krónur en er nú 1.640 krónur. Ef tekið er einbýlishús við Bakkahlíð með bílskúr, þá var fasteignamatið 611 þúsund, en eftir hækkunina er það 955 þús- und krónur. Þinglesningar og stimpilgjald var kr. 2.448 krónur en er nú 3.820 krónur. Þama munar því hvorki meira eða minna en 1.372 krónum. Sem fyrr sagði er stimpilgjald af skuldabréfum 1,5% af fasteigna- mati viðkomandi íbúðar. Ekki er óalgengt að lánaður sé þriðjungur af kaupverðinu og ef keypt er t.d. fjögurra herbergja íbúð sem kost- ar um 600 þúsund þá má ætla að lánaðar séu um 200 þúsund krónur. Stimpilgjald af því skulda- bréfi næmi þvf um 3000 krónum. Jólaverslunin á Akureyri: Kaupmenn ánægðir Ekkí er annað að heyra á kaupmönnum á Akureyri en aö jólaverslunin hafi verið mjög mikil að þessu sinni, en hún þykir jafnan gefa nokkuð góða vísbendingu um það hvernig fjárráð fólks eru almennt. „Það er óhætt að segja að jólaverslunin hafi farið fram úr öllum vonum hjá okkur,“ sagði Björn Baldursson hjá Kaupfé- lagi Eyflrðinga. „Þrátt fyrir að tíðarfar væri ekki sem hagstæð- ast í desember kóm jólaversl- unin mjög vel út. Nokkuð bar á því að fóik spyrði um verð og velti því fyrir sér, en þegar á heildina er litið var versíunin mjög góð.“ „Ég er mjög ánægður með jóla- söluna og varð ekki var við annað en fólk hefði rúm auraráð," sagði Sigbjörn Gunnarsson eigandi Sporthússins. „Salan í nóvember var léleg eins og venjulega, en fólk heldur jól og virtist ekki vera neitt aðþrengt. Það ber einnig að líta á það að kaup á sportvörum eru hagstæð um þessar mundir, a # Snjórog snjómokstur Óvenju mikill snjór hefur fall- ið í Eyjafirði að undanförnu. Háir ruðningar eru viða í út- hverfum Akureyrar og öku- menn hafa oft átt í erf iðleikum með að komast á milli bæjar- hluta. Snjómoksturstæki hafa þó verið i gangi flesta daga og starfsmenn Akureyrarbæjar hafa staðið sig með mestu prýði. % Jólatrénæst Kunningi blaðsins sagði að hann hefði saknað jólatrés i miðbæ Akureyrar. Hann benti á að margir bæir hér á landi fá jólatré að gjöf frá vinabæjum sínum á Norðurlöndunum, en þá sögu er ekki hægt að segja um Akureyri. „Væri ekki tilval- ið,“ sagði þessi kunningi Dags, „að bæjarstjórn kæmi þeim tilmælum á framfæri að hún myndi þiggja svo sem eitt fallegt jólatré fyrir næstu jól. Það er miklu hagkvæmari lausn en að kaupa tré.“ • Rýmri opnunartími Opnunartími banka og opin- berra stofnana hefur áður ver- iðtil umræðu í Smáu og stóru, en sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Fólk sem vinnur fuil- an vinnudag á oft í erfiðleik- hækkun á skíðavörum frá des- ember 1980 til desember 1981 var t.d. ekki nema um 25% og hækk- unin almennt á þessum vörum er um 30-35%. Sportvörur eru því á betra verði en áður,“ sagði Sigbjörn. „Ég vil halda því fram að jóla- salan hafi verið mjög góð hjá okkur, en hún fór seint af stað,“ sagði Róbert Friðriksson verslun- arstjóri hjá Akurvík. „Ég var að sumu leyti hissa á því hvað fólk virtist hafa mikil auraráð. Þó bar á því fyrr í mán- uðinum að meira var óskað eftir lánum en oft áður, en það hvarf mikið til þegar leið á mánuðinn, þannig að fólk virtist hafa peninga á milli handanna.“ Róbert sagði að myndsegul- bönd og sjónvörp hefðu selst mikið í desember og þá hefði ver- ið góð sala í svokallaðri tölvu- saumavél frá Husqvarna þótt hún sé dýrari en saumavélar eru yfir- leitt og kosti um 7.500 krónur. Á þessari stuttu úttekt má glöggt sjá að jólaverslunin hafi verið með líflegra móti. um með að komast úr vinnu til þessara aðila, enda oft lokað í hádegi og snemma síðdegis. Þetta þyrfti að færa til betri vegar sem fyrst. % Forvalvarð ofan á í síðustu viku héldu aðstand- endur kvennaframboðsins fund á Akureyri og tóku á- kvörðun um að hafna sameig- inlegu prófkjöri flokkanna, en viðhafa forval og ákveða skip- an lista síns á þann hátt. Þar með er grundvöllurinn fyrir sameiginlegu prófkjöri flokk- anna brostinn, en áður hafðí Alþýðubandalagið skorist úr leik. % Léleg sala á flugeldum Eins og undanfarin ár, sá Hjálparsveit skáta að mestu um flugeldasölu á Akureyri. Samkvæmt þelm upplýsing- um sem Smátt og stórt hefur aflað sér var salan ákaflega léleg, nánar tiltekiðekki nema 70% af sölu sfðasta árs. Á- stæðan mun einkum vera sú að síðustu dagana fyrir ára- mót var veður slæmt og fáir á ferli. Skátunum tókst þó að selja nóg til að geta greitt fyrir það sem þeír keyptu, en sitja uppi með mikið magn flug- elda, sem seljast tæplega fyrr en um næstu áramót.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.