Dagur - 22.01.1982, Side 11
Það á að athuga með
flugið seinna í dag
— Rætt við Sigurð Öm Brynjólfsson sem opnar sýningu
á verkum sínum í Rauða húsinu á laugardag.
Nýlist eða ný list
„Auðvitað eru nýjustu mynd-
irnar
mínar nýlist,“ segir Sigurður
Örn Brynjólfsson teiknari, þar
sem við sitjum yfir kaffi
bolla skömmu eftir hádegi síð-
astliðinn sunnudag.
Sigurður Örn, eða SÖB, eins
og hann signerar teikningarnar
sínar, ætlaði að opna sýningu á
verkum sínum í Rauða húsinu
laugárdaginn 16. janúar sl.
Meiningin var, að hann kæmi
norður með myndir sínar föstu-
daginn 15., en þá var ekki flog-
ið frá Reykjavík til Akureyrar.
„Maður er ekki vanur því, að
snjórinn skipti svona miklu
máli,“ heldur SÖB áfra. „Þetta
er í fyrsta sinn sem fylgst er svo
náið með veðurfregnum á mínu
heimili.
í morgun var loksins. flogið.
Pakkarnir með myndunum var
komnir út í flugvélina með
fraktinni. Það var kallað út í
vél, en þegar ég var á leiðinni
þangað, sá ég að verið var að
fara með pakkana mína til baka
inn í flugstöð. Mér varð ekki
um sel, en fékk þá skýringu, að
þeir kæmu með næstu vél. Ég
var búinn að borga tvöfalt
undir þá sem hraðsendingu, en
þeir sögðu að fólk, farangur og
póstur gengi fyrir.
Hálftíma hringsól
Flugvélin með fraktina kom
rétt á eftir þeirri sem ég kom
með. Og þarna sveimuðu
myndirnar mínar yfir Akureyr-
arflugvelli, en vélin gat ekki
lent. Eftir hálftíma hringsól var
vélinni snúið aftur til Reykja-
víkur.“
Og þarna situr Sigurður Örn
hinum megin við borðið, loks-
ins kominn til Akureyrar, en
myndirnar ennþá í Reykjavík.
Það er ekki á honum að sjá að
hann þjáist af streytu.
„Það á að athuga með flug
seinna í dag,“ segir SÖB og fær
sér aftur í bollann. „Við erum
búnir að ákveða að fresta sýn-
ingunni um eina viku, úr því
sem komið er. Ég ætla að
hengja myndirnar upp í dag,
þegar þær koma og fara sjálfur
til Reykjavíkur annað kvöld.“
Máttarvöldin ráða
Það er óvenjulegt að sjá lista-
mann taka örðugleikum með
slíku jafnaðargeði og sjálfsagt
að hafa orð á því.
„Það er vissulega skrýtið að
vera búinn að ganga frá öllu í
tíma, innramma myndir, láta
prenta plaköt og sýningarskrár,
en komast svo ekki af stað. En
é£ get ekkert við þessu gert.
Enginn ræður við máttarvöld-
in, þegar þau taka sig til. Það
voru 6 ferðir sem féllu niður frá
því á föstudag, þangað til í
morgun.“
Gunnar fjórir
SÖB er það eiginlegt að
hugsa myndrænt.
„Ég sé fyrir mér stóra hvíta
mynd. örlítill haus stendur upp
úr þessum stóra hvíta fleti. Það
minnir mig á mynd, sem mig
hefur lengi langað til að gera.
Sviðið er manntaflið við Lækj-
argötu, útitaflið fræga. Allt er á
kafi í snjó og skafrenningur að
norðan. Þar sem taflmennirnir
ættu að vera, ganga um úlpu-
klæddir menn, sem leita með
löngum stöngum að taflmönn-
unum undir fönninni. Við lítið
taflborð í einum skaflinum sitja
þeir stórmeistararnir Friðrik og
Kortsnoj, kappklæddir með
lambhúshettur og belgvettl-
inga. Friðrik æpir upp í
storminn: „Gunnar fjórir til
Gunnar fimm!!!“ Fólkið drífur
að, forvitið um það sem er að
fara fram þarna í hríðinni."
Ókrýndur konungur
Laugardaginn 23. janúar
verður sýning á 50 verkum
SÖB opnuð í Rauða húsinu.
Listamaðurinn verður sjálfur
viðstaddur, ef veður leyfir.
Þetta er önnur einkasýning
SÖB, en sú fyrri var haldin í
Norræna húsinu árið 1979.
Ekki spöruðu gagnrýnendur
hólið urn þá sýningu. Eftirtalin
dæmi segja sína sögu:
„Sigurður Örn er ókrýndur
konungur á sínu sviði. Skrýtlur
hans og myndasögur eru tví-
mælalaust það besta sem gert er
í þessum efnum á íslandi.
ísmeygileg fyndni hans blandin
sterkri ádeilu nýtur sín einkar
vel í liprum og öruggum teikn-
ingum hans.“
„Sigurður Örn hefur sjald-
gæfa kímnigáfu, er honum
tekst fullkomlega að koma til
skila. Hann er vandvirkur og
hefur mikið vald á línu og
myndbyggingu.“
Að lokum má geta þess, að
Þrymskviða, fyrsta íslenska
teiknimyndin, verður sýnd í
Rauða húsinu á meðan sýning
SÖB stendur yfir. Að sjálf-
sögðu er SÖB höfundur þeirrar
kvikmyndar.
Góða skemmtun.
R. Lár.
SKIÐATRIMM
Stofnuð hefur verið skíða-
trimm-nefnd á Akureyri, sem
er skipuð fulltrúum frá útivist-
arsvæðinu í Kjarna, íþrótta-
hreyfíngunni, Skíðastöðum,
skátum o.fl.
Fyrsta verkefni þessarar nefnd-
ar er að bjóða almenningi upp á
leiðsögn í meðferð gönguútbún-
aðar og gönguáburðar. Fer þessi
leiðsögn fram í Kjarna nk. sunnu-
dag kl. 2^1. Síðan er gert ráð fyrir
að leiðbeini verði tvö kvöld í viku
í Kjarna næstu vikurnar.
Utsalan
hefst á mánudag
Fatnaður á alla fjölskylduna
á niðursettu verði,
Gerið góð
kaup
Sigwtkir GÆmmissotmrhf.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI96-24423 AKUREYRI
Auglýsing
Laugardaginn 30. janúar n.k. kl. 14.00 verður selt á nauðungar-
uppboði við lögreglustöðina á Akureyri, ýmiskonar lausafé s.s.
bifr. A-5873, A-5891, jarðýta „Case 850“, trésmíðavél
„Camo“, þvottavél „Lava Lux“, sófasett, þriggja og tveggja
sæta sófar og einn stóll með brúnu plusáklæði, borðstofuborð
og sexstólar, „Kenwood" magnari með útvarpi, plötuspilara og
tveir hátalarar, málverk, hvít hillusamstæða, þvottavél
„Philips" og ca 30 fm af notuðu ullargólfteppi (brúndrappað).
F.h. bæjarfógetans á Akureyri,
Erlingur Óskarsson.
sealskin
22. janúar 1982 - DAGUR -r 11