Dagur - 16.02.1982, Side 8
LlMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
OUIÍies
veröur
í kjöri
Jón G. Sólnes, fyrrverandi
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og fyrrverandi al-
þingismaður hefur ákveðið að
gefa kost á sér í prófkjöri
flokksins fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar á Akureyri.
I forvali innan fulltrúaráðs
flokksins á dögunum hafnaði Jón
G. Sólnes í 12. sæti. Sjálfur hefur
hann látið hafa eftir sér að þar hafi
hann fengið óvæntan stuðning.
Hann hefur sagt að þessi stuðn-
ingur, ásamt því að margir sjálf-
stæðismenn sem þykja áhrif
flokksins lítil í bæjarstjórn, hafi
hvatt sig til framboðs, hafi orðið
til þess að hann verður í kjöri.
„Enginn
slasað
sig hér“
„Við höfum heyrt þessar sögu-
sagnir sjálfir, og erum að von-
um mjög óhressir með þær,“
sagði Guðmundur Svansson,
annar eiganda Heilsuræktar-
innar Pallas á Akureyri er við
bárum undir hann þann orð-
róm sem okkur hafði borist til
eyrna að þar í stöðinni hefði
fólk slasað sig við æfingar.
„Við vitum ekki til þess að einn
einasti af okkar viðskptavinum
hafi slasað sig við æfingar, og
reyndar höfum við ekki séð annað
en fólk færi ánægt héðan. Þess
vegna þykja okkur sem þessar
sögusagnir séu af grófasta tagi.
Vilji hinsvegar svo illa til að ein-
hver hafi kennt sér meins eftir að
hafa verið hér við æfingar, þá
biðjum við þann að hafa samband
við okkur hér í stöðinni,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagðist telja þessar sögu-
sagnir komnar á kreik sökum þess
að þeir sem reka Pallas eru ekki
sérmenntaðir í líkamsrækt eða
sem sjúkraþjálfarar.
Beint flug til
utlanda:
Mikil
aðsókn
„Undirtektir hafa verið mjög
góðar, og greinilegt að fólk
kann að meta það að vera boð-
ið upp á beint flug frá Akureyri
til útianda,“ sagði Gísli Jóns-
son forstjóri Ferðaskrifstofu
Akureyrar sem gengst síðar í
mánuðinum fyrir helgarferð til
Kaupmannahafnar.
Fyrir helgina höfðu um 80
manns skráð sig í ferðina, og að
sögn afgreiðslustúlku á Ferða-
skrifstofu Akureyrar voru þá að-
eins 10 sæti laus. Er því ljóst að
Norðlendingar höfðu tekið vel við
sér er þessi ferð var auglýst, enda
er það forsendan fyrir því að
áframhald gæti orðið á þessari
þjónustu.
„Tilgangurinn að koma
í veg fyrir fordóma“
— og að kynna heilbrigðum málefni fatlaðra
Fyrir helgi hófust sýningar á
Akureyri á brúðuleikriti og
verður verkið sýnt öllum börn-
um í grunnskólum bæjarins á
aldrinum átta til tólf ára. Til-
gangurinn með sýningunni er
að kynna ófötluðum börnum líf
og starf fatlaðra. Það eru þær
Helga Steffensen og Hallveig
Thorlacius sem stjórna brúðun-
um og flytja efnið. Þetta brúðu-
Ieikrit er bandarískt að upp-
runa og hófust sýningar á því í
fyrra. Það kom hingað til lands
fyrir tilstuðlan ALFA-nefndar-
innar. Búið er að sýna það í
nokkrum grunnskólum ■
Reykjavík, á Akranesi og sýn-
ingum lýkur á Akureyri í þess-
ari viku.
Fyrsta sýningin var í Oddeyrar-
skóía sl. fimmtudag og var ekki
annað hægt að sjá en börnin fylgd-
ust náið með því sem brúðurnar
„sögðu“ og þau spurðu margs
þegar sýningunni lauk. „í þessu
leikverki er fjallað um fötluð
börn, þarna er blindur strákur,
heyrnarlaus stúlka, vangefin
stúlka og lamaður piltur. Tilgang-
urinn með þessu leikriti er að
kenna heilbrigðum að umgangast
fatlaða og að koma í veg fyrir for-
dóma sem óneitanlega hafa verið
til, hér sem annarsstaðar í gegn-
um tíðina,“ sagði Helga er Dagur
ræddi við hana um sýninguna.
„Ég held að mér sé óhætt að full-
yrða að sýningin hafi hér sem ann-
arsstaðar náð tilgangi sínum.
Börnin eru mjög upptekin af sýn-
ingunni og spyrja mikið, en til
þess er ætlast eftir að hver
„tegund" fötlunar hefur verið
kynnt. Þau vilja fá að vita hvernig
blindi drengurinn geti klætt sig og
borðað, svo dæmi sé gefið.“
Sýningin er um 40 mínútur að
lengd, eða jafn löng og kennslu-
stund. Eins og fyrr sagði er efnið
samið í Bandaríkjunum og þaðan
komu einnig brúðurnar fyrir til-
stuðlan ALFA-nefndarinnar.
Helga og Hallveig þýddu handrit-
ið og staðfærðu efrtið. Höfundur-
inn er bandarískur sálfræðingur
og sagði Helga að það hefði tekið
hann ein þrjú ár að semja textann,
enda er hann hnitmiðaður og ein-
faldur, og sagði Helga að hann
hitti beint í mark. „Það stendur til
að fara a.m.k. í hvern landsfjórð-
ung og við eigum mikið verk eftir
óunnið í Reykjavík," sagði Helga
að lokum.
Frá sýningunni í Oddeyraiskóla.
Myndá.þ.
Gott ástand í
byggingaríðnaði
„Ástandið virðist vera nokkuð
gott og það hefur ræst verulega
úr frá því sem okkur sýndist í
haust að það myndi verða,“
sagði Guðmundur Ómar
Guðmundsson formaður
Trésmiðafélags Akureyrar er
við slógum á þráðinn til hans og
spurðum um atvinnuástand hjá
trésmiðum.
„Það er ekkert atvinnuleysi hjá
fullfrískum mönnum í stéttinni,
og það virðist vera nokkuð ljós að
næg atvinna mun verða áfram ef
ekki kemur til verulegur sam-
dráttur í peningamálum," sagði
Guðmundur. Við spurðum hann
hvað hefði ollið því að ástandið
væri svo miklu betra en reiknað
var með í haust að það myndi
verða.
„Það sem okkur leyst verst á,
var hversu fáar íbúðir það voru
sem byrjað hafði verið á í haust.
En það sem hefur haft töluverð
áhrif í þessu máli er að þessar
íbúðir eru að meirihluta til á veg-
um opinberra aðila, Bygginga-
nefndar Verkamannabústaða og
Leiguíbúðanefndar og þetta eru
allt saman íbúðir sem á að fullgera
fyrir vorið. Þess vegna hefur verið
stöðug vinna í þessu. Þeir sem
hafa annast þessar byggingar
ganga alveg frá þeim.“
Við spurðum Guðmund að lok-
um hvort hann hefði nokkuð
heyrt um slæmt ástand í öðrum
greinum byggingariðnaðarins.
„Ég hef ekki heyrt það, og mér
skilst að það sé allsstaðar nóg að
gera.“
• Drepið í
sjónvarpi
Einhver mestu dráp sem sést
hafa í okkar kæra íslenska
sjónvarpi hafa átt sér þar stað
undanfarin kvöld, og það jafn-
vel áður en yngstu lands-
mennirnir hafa verið sofnaðir
með pelann sinn. Það hefur
löngum verið kvartað undan
erlendum glæpamyndum þar
sem morð hafa verið framin
og annar voðaverknaður, en í
skýringaþftunum af X. Reykja
víkurmótinu í skák hefur
keyrt um þverbak.
# Litlu peðin
fjúka fyrst
Raunar væri réttara að nefna
þetta fjöldamorð en dráp, því
á stuttum tíma er drepið
grimmt á báða bóga. Venju-
lega eru það litlu peðin sem
voga sér út í lífið drepin fyrst,
en það líður venjulega ekki á
löngu þar til riddarar og fleiri
fylgja i kjölfarið. Jafnvel
biskupar eru ekki óhultir og
svo langt hefur þetta gengið
að þeim hefur hreinlega verið
fórnað til þess að ná megi
betri stöðu í valdakapphlaup-
inu. Fyrir þessu öllu saman
standa prúðir menn sem út-
skýra drápin með spekings-
svip og er óhætt að segja að í
þessum þáttum ríði valda-
græðgin ekki við einteyming.
# Kóngurinn
friðhelgur
Gagnstætt því sem oft er þeg-
ar barist er í fjarlægum lönd-
um þar sem þjóðhöfðingjar
eru skornir fyrst, eru kóng-
arnir á skákborði sjónvarps-
ins friðhelgir og ekki mögu-
leikl að drepa þá. Eru þeir því
betur settir til þess að stýra
mönnum sínum í drápinu ef
þeir hafa drottningu sína sér
við hlið, og er það vel. Hefur
það jafnvel komið fyrir að þeir
hafa getað „vakið upp“ aðra
drottningu. Er ekki nóg með
að þeir njóti friðhelgi heldur
virðist fjölkvæni einnig geta
liðist átölulaust.
• Ýmis brögð
eru notuð
Drepið er eftir ýmsum leiðum
í þessu spili. Svo langt geng-
ur að „gafflar“ eru settir á tvo
eða fleiri aðila í einu og annar
eða einn þeirra síðan drepinn.
Þykir þetta einkar góð aðferð
til að koma ofbeldisverkunum
fram. Þá eru menn „leppaðir“
og mega síðan bíða dauða
síns þótt stundum sleppi þeir
með skrekkinn. Fórnað er á
grimmilegan hátt til þess að
ná sóknarfærum og þegar
upp er staðið er maður hálf
dasaður af öllu saman og þyk-
ir einkar „mannúðlegt“ að
fylgjast með er Tommi og
Jenni reyna fólskubrögð sín
hvor á öðrum. Þar er ekki
drepið, enda væri annar
atvinnulaus án hins.