Dagur - 18.02.1982, Qupperneq 5
Teitur Jónsson formaður Tannlæknafélags Norðurlands:
Skólatannlækningar
Á baksíðu Dags 11. febrúar 1982
er fjallað lítillega um skólatann-
lækningar, en þar sem nokkurs
misskilnings gætir í klausunni ósk-
ar TFN að Dagur miðli þessum
upplýsingum til viðbótar.
Samkvæmt lögum um almanna-
tryggingar frá 1974 til 1978 endur-
greiða sjúkrasamlög að fullu
kostnað við almennar tannlækn-
ingar 6-15 ára barna, en 75% af
kostnaði við gullvinnu og tann-
réttingar sama aldurshóps. í sömu
lögum er ákvæði þess efnis, að þar
sem því verði við komið skuli
þessi þjónusta veitt á heilsugæslu-
stöð eða hjá skólatannlækni.
TFN er sammála tilgangi þess-
ara laga og hefur því beitt sér fyrir
skipulagningu á þjónustu við um-
ræddan aldurshóp á Akureyri.
Héraðslæknir, skólahjúkrunar-
fræðingar, forstjóri sjúkrasam-
lagsins og aðrir málsaðilar hafa
sýnt þessu stuðning og nú er svo
komið að ætlunin er að skoða ár-
lega og sinna tannviðgerðum allra
6-15 ára barna á Akureyri og ná-
grenni. Reynslan verður hinsveg-
ar að sýna hvort þetta kemst að
fullu í verk í vetur eða síðar.
Að skoðun lokinni á barnið
kost á nauðsynlegum aðgerðum
hjá skólatannlækninum, en getur
einnig farið til síns fyrri tannlækn-
is. Hann fær þá skoðunarkortið í
hendur og tekur ekki gjald fyrir
nýja skoðun. Þetta fyrirkomulag
virðist ef til vill umhent í byrjun,
en miðað við reynslu t.d. Reyk-
víkinga má búast við að smám
saman þiggi flestir áframhaldandi
þjónustu hjá skólatanniækninum.
Skiptingu tannlæknastofanna
milli skólanna var hagað þannig
að fjarlægðir yrðu sem minnstar
og að Glerárskólanum undan-
skildum má segja að það dæmi
gangi sæmilega upp.
TFN álítur þetta fyrirkomulag
æskilegast eins og er, og að það
tryggi best að öll börn njóti þeirr-
ar þjónustu sem þeim er ætluð.
Að sjálfsögðu er þó um tilboð en
ekki kvöð að ræða, á sama hátt og
Teitur Jónsson.
t.d. læknisskoðun í skólunum. Til
þess að heildarsýn fáist er þó
nauðsynlegt að þeir sem fá boð
um að heimsækja skólatannlækn-
inn láti hann vita ef meðferð er
nýlokið annarsstaðar, en mæti að
öðrum kosti.
í grein Dags eru einnig dylgjur
um óvönduð vinnubrögð. Slíkar
sögur skemmta ef til vill sumum
lesendum, en valda því miður tor-
tryggni sem getur tafið fyrir fram-
kvæmd skólatannlækninganna.
Kerfisbundið eftirlit og viðgerðir
hjá skólabörnum stuðla örugg-
lega að bættri tannheilsu og forða
einstaklingnum ogsveitarféiaginu
frá kostnaðarsömum aðgerðum
síðar.
Næst þegar tíðindamaður S&S
„fréttir" eða „heyrir“ um vafasöm
vinnubrögð tannlækna, ætti hann
að leita álits dómbærra aðila, t.d.
sáttanefndar Tannlæknafélags
Islands, sem fjallar um ágrein-
ingsefni tannlækna og sjúklinga.
Einnig má benda á að samkvæmt
samningi TFÍ við Tryggingastofn-
un ríkisins er eftirlit með vinnu
við tryggða sjúklinga í höndum
tryggingatannlæknis, starfsmanns
TR. Áríðandi er að hann starfi af
árvekni, þar sem í húfi eru pen-
ingar skattgreiðenda, tennur
sjúklinga og heiður tannlækna.
Þessir krakkar á myndinni, sem heita Inga Lilja Ólafsdóttir, Hrefna Friðriksdóttir, Guðný Friðriksdóttir og
Heiða Björk Reynisdótir og eiga heima á Brekkunni, héldu á dögunum tombólu. Ágóðinn var kr. 400 og
báðu þau Dag um að koma þeim peningum til Ellihcimilisins Hlíð á Akureyri.
Sýnum 1982 árgerðirnar af Ford Taunus, Escort,
Fiesta og Transit. Einnig sýnum við hinn nýja Suzuki Fox jeppa.
Laugardaginn 20. febrúarkl. 14-18
og sunnudaginn 21. febrúar kl. 10-18.
18. lébrúaF 1882 - DAGUft-5