Dagur - 19.02.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 19.02.1982, Blaðsíða 12
Akureyri, föstudagur 19 . febrúar 1982 Erum farin að taka á móti nf pöntunum á fermingar- i ( JifjsL ) 1 veislum. Verðið mun ekki \ &ryV/ hækka á köldum veislumat sé pantað fyrir 1. mars. Á föstu- og laugardögum, tökum við á wjP ’ * móti pöntunum á borðum, annað hvort miðað við tímann 18.30-19.30 eða eftir kl. 21.00, og viljum við vinsamlegast /-’úT<yjV-*a biðja viðskiptavini okkar um að tilgreina hvor tíminn henti betur. Tískusýningar i kvöld og annað kvöld. ‘' ■' - ‘■l:É1.1 v.. .'9.vjw;. 1 j 1 HnHHmaBnaHBHIIBHIHiHMBMi XJr gömhtm 1970 Að þessu sinni verður ekki seiist ýkja langt aftur í tíinann. Við staðnæmust við árið 1970, en í fyrsta töl- ublaði þess árs sagði í fyrir- sögn: Inflúensa töluverð hér í bæ Þóroddur Jónasson, héraðs- læknir, tjáði Degi að inflúensa væri dreifð um allun fjörð. í Gagnfræðaskólanum vantaði 13% nemenda og 15% kennara. Nýja strandferðaskipið aflient Laugardaginn 17. janúar var farin hátíðarsigling ú flutninga- skipinu Heklu, um Eyjafjörð. Siglt var norður fyrir Arnar- nes, á móts við Fagraskóg, og snúið þar við. Lagst var að Torfunefsbryggju klukkan tæplega þrj ú og fór þá fram formleg afhending skipsins. Skapti Áskelsson rakti í fáum orðum aðdragana og smíði skipsins og afhenti það for- manni byggingarnefndar, Brynjólfl Ingólfs- syni, ráðuneytisstjóra. Hekla var stærsta skipið sem lands- mcnn höfðu smíðað. Húnavellir í Austur Húnavatnssýslu I Degi þann 4. febrúar er frá því sagt að haustið 1969 hafl verið byrjuð kennsla í hinum nýja heimavistarbarnaskóla að Reykjum í Austur-Húnavatns- sýslu. Skólanum var gefið nafnið Húnavallaskóli. Fyrsta veturinn stunduðu 94 nemend- ur nám við skólann. Fyrsti skólastjórinn var Sturla Krist- jánsson, en ráðskona mötun- eytisins var Björk Kristófers- dóttir. Bárðdælir sáu hreindýr í fréttapistli frá Stórutungu segir að þar sé alltaf sama góð- vfðrið. Bændur höfðu farið á snjósleðum í eftirleit á norðurhluta afréttar austan Skjálfandafljóts. Engar fundu þeir kindurnar, en aftur á móti sáu þeir eitt hreindýr. Það var svokkailaðri Álftatjarnar- flæðu, sem er á hágrjótunum norðan Sandmúladals. Og prófunum lauk á Laugum Krakkarnir á Laugum sátu í prófum í maí og í Degi sagði að nemendur eldri deildar hefðu lokið prófum 2. maí. Að þessú sinni skilaði deildin óvenju góðum árangri, segir Dagur, en af 51 nemanda höfðu 27 fyrstu cinkun, 7.25 eða meira, og af þeim höfðu 8 hærri ein- kun en 8 í meðaleinkun. Hæst varð Stcinumm Jónasdóttir, Akureyri, með 9.03, en í öðru og þriðja sæti voru Hrefna Jó- hannesdóttir, Ytri-Tungu, og Steinþór Þráinsson, Skútu- stöðum, með 9. Prófum yngri deildar lauk nokkru síðar. Hæstu einkun hlaut Elín Hró- arsdóttir, Tröð, Reykjadal, 9.33, þá Þórhallur Ragnars- son, Iloltakoti með 9 og Jónas Jónsson, Fremstafelli var ■ þriðja sæti með 8.54. Ægilegar kalskemmdir í fréttabréfl úr Bárðardal þann 30. júní kemur fram að sprett- an sé skammt á veg komin, því veðráttan sé of þurr. „Kal- skemmdir eru ægilegri og meiri en okkru sinni fyrr hér í Bárð- ardal,“ segir fréttaritarinn. Þingeyskir bændur mótmæla í Degi þann 5. ágúst er greint frá því að landeigendur við Laxá og margir aðrir Þingey- ingar hafi fjölmennt til Akur- eyrar laugardaginn 18. júlí. í blaðinu segir að Þingeyingar hafl verið á hátt á annað hundr- að bflum. Með þessari för voru bændurnir að mótmæla Gljúf- urversvirkjun í Laxá. í mót- mælaskjali sem Hcrmóður Guðmundsson, bóndi í Árnesi, afhenti Bjarna Einarssyni bæjarstjóra á Akureyri, sagði í upphafi: „Þessi för er gerð til þess að vekja athygli bæjar- stjórnar Akureyrar á skýlaus- um skyldum og rétti Þingey- inga tii verndar Laxá og Mý- vatni.“ Feguröardrottningar í ágúst var Þórunn Þórðardótt- ir frá Siglufirði, kjörin ungfrú Eyjafjarðarsýsla og Anna Guðmundsdóttir frá Kvíslar- hóli á Tjörnesi ungfrú S-Þing- eyjarsýsla. Inn á gafll hjáWest Ham „Okkur var frábærlega vel tekið hjá West Ham, og allir voru tilbúnir til þess að gera allt fyrir okkur svo dvölin yrði sem best og árangursríkust,“ sagði Einar Pálmi Árnason knattspyrnuþjálfari hjá KA, er við ræddum við hann, en Einar Pálmi dvaldi á dögun- um ásamt Steinþóri Þórarins- syni hjá enska knattspyrnufé- laginu West Ham. Þar kynntu þeir félagar sér þjálfun, og má segja að þeir hafi verið sem tveir af hópnum hjá West Ham þann tíma er þeir dvöldu þar. „Ég held að það sé óhætt að segja að þarna hafi maður lært á 10 dögum það sem tæki mann 10 mánuði að læra hérna heima,“ sagði Einar Pálmi. „Við erum mörgum öldum á eftir þessu fræga enska liði hvað varðar alla aðstöðu, og það hreinlega hvarflaði að manni að það væri tilgangslaust að vera að standa í þessu basli hér heima ef maður ber aðstöðuna saman. West Ham hefur t.d. 10 æfingavelli, þar af einn inni í fullri stærð sem er lagður gervigrasi. Félagið er með 300 daga æf- ingaprógram í gangi, og það eru aldrei neinar tvær æfingar eins frá degi til dags. Við einbeittum okkur að því að reyna að læra sem allra mest á þessum tíma, skrifuðum niður hjá okkur og fengum einnig í hendur allt sem til var á pappír um þjálfun og þess háttar.“ - Voruð þið eitthvað með lið- inu þegar það var að undirbúa sig fyrir leiki? „Við vorum allsstaðar inni á gafli, og það var dálítið furðuleg tilfinning fyrir mig, sem hef verið sjúkur um allt sem við- kemur ensku knattspyrnunni, að standa allt í einu andspænis þessum þekktu köppum sem maður hefur lesið um og fylgst með árum saman. En við vorum með á æfingum, á fundum og þess háttar og má segja að síð- ustu 10 mínúturnar fyrir leiki þegar John Lyall framkvæmda- stjóri „messaði" yfir mönnum, hafi verið eini tíminn þegar við fengum ekki að vera með.“ Þess má geta að John Lyall framkvæmdastjóri West Ham leysti þá félaga út með gjöfum er þeir héldu heim, og einnig skrif- aði hann með þeim sérstakt meðmælabréf þar sem hann rómaði alla framkomu þeirra og áhuga, og bauð þá velkomna til félagsins aftur hvenær sem þeir hefðu áhuga á. Einar Pálmi Ámason. Það eru ekki bara blessuð bömin sem ég kem með. Eg þaríeihnig að hafa handa þeim fatnað og rið það hef égstaðið í ströngu að undan■ fömu, enda fataúrvalið eftir því, og verðið hreint ótrúlegt. Það gerir fíutningurínn. ____Eg vinn lyrir^ÆVsrgtrt. gHggGD_______

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.