Dagur - 23.02.1982, Síða 12
LlMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
Þjófnaðavmálið:
Ekkert
nýtt
„Því miður hefur ekkert nýtt
komið fram í málinu“ sagði
Daníel Snorrason rannsóknar
lögreglumaður á Akureyri er
við spurðum hann hvernig
rannsókn „þjófnaðarmálsins“
svokallaða liði, en þá er að
sjálfsögðu átt við stórþjófnað-
inn er brotist var inn í Höld h.f.
á Þorláksmessu.
„Það þýðir ekki að málinu sé
lokið, það er endalaust hægt að
vinna við að kanna hitt og þetta,
en því miður hefur ekkert nýtt
komið fram sem hefur gefið okk-
ur nýjar vísbendingar" sagði
Daníel.
Hann kvaðst ekki vera sam-
mála því sem einn af eigendum
Höldurs sagði, að tíminn ynni
með þjófnum. „Ég vil meina að
tíminn vinni með okkur og þetta
mál gæti leystst með tíð og tíma“
sagði Daníel. Rannsóknarlög-
reglan óskar sem fyrr eftir vís-
bendingum frá almenningi, og
hvetur fólk til að sitja ekki á hin-
um minnstu upplýsingum sem
leitt gætu til lausnar málsins.
Öskupokar
ogmerki
Rauða krossins
Öskudagur er hinn árlegi
merkjasöludagur Rauða
krossins, en sú venja hefur gilt
á Akureyri, að merki dagsins
eru seld síðdegis á þriðjudag.
Munu börn úr framhaldsskól-
um bæjarins ganga í hús og
bjóða merkin.
Að þessu sinni verða auk
merkjanna seldir öskupokar með
merki Rauða krossins. Hagnaður
Akureyrardeildar af sölu merkj-
anna hefur síðustu árin runnið til
tækjakaupa vegna sjúkraflutn-
inga.
Hótel KEA:
Herbergja-
nýting
mjög góð
Meðal ársnýting gistiherbergja
á Hótel KEA árið 1981 var
80,2%, en almennt er þessi ný-
ting talin vera góð sé hún ná-
lægt 60%. Hótel KEA hefur 28
gistiherbergi og meðalnýting
þeirra árin 1965 - 1970 var
57,8%, árin 1971 - 1975 var
hún 65,5% og árin 1976 -1980
var nýtingin komin upp í
76,5%.
Svo há nýting sem s.l. ár undir-
strikar aðeins þá staðreynd að
mikil vöntun er á gistirými í bæn-
um meiri hluta ársins. Eftirspurn
er misjafnlega mikil eftir árstím-
um og einnig vikudögum. En þær
eru nú orðnar fleiri vikurnar, sem
umframeftirspurn er eftir her-
bergjum á Hótel KEA.
Árið 1981 gistu Hótel KEA
5.589 manns, þar af voru erlendir
gestir 1.182 frá samtals 26
þjóðum. Þeirra fjölmennastir
voru Englendingar (243), Banda-
ríkjamenn (184), Danir (161) og
Svíar (129).
- Spjallað í miðbænum
Mynd: áþ.
Kaupmenn
mótmæla
leyfislausrí
sölustarfsemi
Aðalfundur Kaupmannafélags
Akureyrar, haldinn 13. febrúar
1982, lýsir furðu sinni á því að
enn skuli viðgangast sölustarf-
semi í einkahúsum með alkyns
vörur, þrátt fyrir að slíkt sé
bannað með lögum.
Skorar fundurinn á bæjarfóget-
ann á Akureyri og sýslumanninn í
Eyjafjarðarsýslu að taka fyrir allt
slíkt nú þegar og alltaf þegar til
slíkrar starfsemi fréttist. Vísar
fundurinn til samþykktar ályktun-
ar er gerð var á síðasta aðalfundi
um þetta efni.
Sjálfvirka símstöðin á Akureyri:
1000 ný númer á næsta ári
Nú hefur verið ráðgert að hefja
byggingu á einni hæð ofan á
símstöðvarhúsið við Skipagötu
á Akureyri, og það er áætlað að
í framtíðinni geti sú stöð tekið
við 5000 númerum,“ sagði Ár-
sæll Magnússon símstöðvars-
tjóri á Akureyri í símaviðtali
við Dag fyrir helgina.
„ Verkið verður boðið út um mán-
aðamótin og tilboð verða opnuð
um miðjan marsmánuð. Síðan
reiknum við með að bygginga-
framkvæmdum verði lokið um
miðjan september og húsnæðið
verði þá tilbúið.“
„Ég vænti þess að í framhaldi af
því verði hafin stækkun sjálfvirku
stöðvarinnar, það verður stækkað
um 1000 númer og væntanlega
verður þeirri stækkun lokið í
febrúar á næsta ári,“ sagði Ársæll.
- Hvað eru margir á biðlista
núna eftir að fá síma?
Það eru trúlega um 150 manns,
en miðað við símanotkun undan-
farinna ára er ekki fjarri lagi að
ætla að um 500 verði á biðlista á
næsta ári þegar viðbótin verður
tekin í notkun. Ég reikna því með
að það fari strax um helming-
urinn af þeim nýju númerum sem
bætast við á næsta ári,“ sagði
Ársæll.
Páskatrimm
í Hlíðarfjalli
Fiugleiðir og Skíðaráð Akur-
eyrar munu gangast fyrir
páskatrimmi í Hlíðarfjalli um
páskana, svipað í sniði og í
fyrra.
Boðið verður upp á 3 og 6 km
skíðagöngu fyrir fjölskylduna,
verðlaunapeningar veittir fyrir
fyrstu þrjú sætin og einnig verður
dregið úr hópi þátttakenda þrenn
ferðaverðlaun, ein utanlandsferð
og tvær helgarferðir til Reykja-
víkur.
F*á verður einnig keppt í svigi
barpa innan 12 ára og unglinga
13-16 ára og verðlaunapeningar
veittir fyrir þrjú efstu sætin í hvor-
um flokki.
Páskatrimm með þessum hætti
var í fyrsta skipti haldið í fyrra að
frumkvæði ívars Sigmundssonar,
framkvæmdastjóra Skíðastaða.
Þá tóku 130 manns þátt í göngu-
keppninni og um 80 unglingar í
svigkeppnum barna og unglinga.
Vildu heldur
forgangsorku
„Málið er ekki eins einfalt og
hann Hjörtur vinur minn vildi
vera láta,“ sagði Knútur Otter-
ste rafmagnsveitustjórí, í við-
tali við Dag, vegna þeirra um-
mæla Hjartar Eiríkssonar
framkvæmdastjóra Iðnaðar-
deildar, að verksmiðjurnar
greiddu nú tvöfalt hærra verð
fyrir innlenda orku heldur en ef
keypt væri svartolía til notkun-
ar þar. Ástæðuna sagði Hjörtur
þá, að vegna vatnsskorts á aðal-
vatnsvæðum virkjana lands-
manna, þyrftu verksmiðjurnar
nú að kaupa forgangsorku í
stað afgangsorku.
Verð á forgangsorkunni er
51,57 aurar á hverja kílówatt-
stund, en ef notuð væri svartolía
væri verðið 24,14 aurar á hverja
kílówattstund.
„Það kom hvergi fram í þessu
viðtali við Hjört, að afgangsorkan
kostaði 18,56 aura á hverja kíló-
wattstund fram til 5. nóvember,
en þá hækkaði verðið í 20.04 aura
á kílówattstundina. Ætli jafnað-
arverðið til þeirra á síðasta ári hafi
ekki verið um 35 aurar á kwst.
Þá finnst mér rétt að það komi
fram, að það var aldrei samið um
sölu á forgangsorku til verksmiðj-
anna. Þegar hins vegar þurfti að
grípa til skömmtunar, vildu þeir
heldur kaupa orkuna á þessu
verði, en að hlíta skömmtun eins
og aðrir,“ sagði Knútur Otter-
sted.
# Óskemmtilegt
en satt
Það er víst ekki ofsögum sagt,
að það er erfitt að eiga undir
aðra að sækja varðandi íbúð-
arhúsnæði í dag. Það er al-
kunna að gífurlega erfitt er að
fá leigt, og ef það tekst þá þarf
að snara út allt að ársgreiðslu
fyrirfram og það eru víst engir
smáaurar sem þar eru á ferð-
inni. Og víða mun víst fylgja
með sú kvöð að ekki megi
gefa upp nema hluta leigunn-
ar til skattsins. - Það er ekki
bara á Akureyri sem ástandið
er svona, ekki mun það vera
betra i höfuðborginni, enda
berast þær sögur þaðan að
þar séu f ullorðnir menn hættir
að leigja einhleypum konum
með börn íbúðir sínar nema
þær borgi leiguna með blíðu
sinni. Þetta segir kona ein
sem skrifar lesendabréf í DV á
dögunum.
• Tekið
niður um
snillingana
Eftir að landslið okkar í hand-
knattleik bar sigurorð af Dön-
um um áramótin, voru sér-
fræðingar sem fjölluðu um
málin opinberlega, mjög
hrifnir og flestir á þeirri skoð-
un að nú værum við komnir
með eitt besta landslið heims
í handknattleik, (ekkí í fyrsta
skipti sem imprað er á því) og
framundan væri bjartur tími.
En eftir síðustu verkefni
landsliðsins er örugglega
óhætt að endurskoða málíð í
heild sinni. „Rússnesku birn-
irnir“ fóru höndum um okkar
menn, léku reyndar allt aðra
íþrótt og „strákarnir okkar“
áttu ekki möguleika á því að
forðast hálfgerða niðurlæg-
ingu. En menn hugguðu sig
við það að Rússarnir eru þeir
„bestu í heimi“ eins og það
var orðað. Svo komu Svíarnir
sem fyrirliði íslenska liðsins
talaði um að „grafa undir
parketið" í Laugardalshöll.
Svíarnir hljóta líka að vera
„bestir i heimi“ því aftur lá
landinn með tilþrifum
miklum. Nú bíðum við bara
eftir því að enn eitt besta lið (
heimi komi í heimsókn til
þess að láta „grafa sig undir
parketið".
# Villfábrauð
úr Gilinu
Þau tíðindi bárust S&S til
eyrna frá höfuðborginni, að
nokkuð sérkennilegt mál
hefði risið upp milli verslun-
arstjóra Hagkaups á Akureyri
og ráðamanna f Reykjavík.
Verslunarstjórinn er sagður
vilja kaupa brauðið frá Brauð-
gerð KEA, en stjórarnir fyrir
sunnan hafa að sögn, lítinn
áhuga á því. En hver veit
nema Hagkaup taki upp stór-
felld viðskipti við Brauðgerð
KEA - það er bara að bíða og
sjá.