Dagur - 18.03.1982, Blaðsíða 7
Smábáta-
höfnin enn
á teikni-
borðinu
„Við bíðum eftir því að það
verði byggð góð smábátahöfn á
Sauðárkróki. Árið 1976 komst
smábátahöfn á teikniborðið.
Hún er þar enn. Það er mjög
mikilvægt að komist skriður á
málið því hér er bókstaflega
engin aðstaða fyrir smábátaeig-
endur. Hér er trébryggja og
hún hangir uppi af gömlum
vana,“ sagði Steingrímur Aðai-
steinsson hafnsögumaður á
Sauðárkróki í samtali við Dag.
Bátar hafa skemmst í höfninni,
enda er mikil hreyfing í henni.
„Ég er alveg viss um að það væri
meiri smábátaútgerð héðan ef að-
staðan væri betri. Menn halda að
sér höndum í að fá sér bát. Bátar
eru orðnir dýrir og þegar eigend-
urnir hafa ekki örugga höfn, eða
aðstöðu, er það skiljanlegt að þeir
kaupi ekki báta.“
Firmakeppni
í innanhúss-
knattspyrnu
hefst 2. apríl
Knattspyrnuráð Akureyrar
heldur sem áður Firmakeppni í
innanhúsknattspyrnu og hefst
hún í íþróttaskemmunni föstu-
daginn 2. apri'l kl. 19.00.
Fyrirkomulag keppninnar er
þannig að ekki er leyfilegt fyrir
tvö fyrirtæki að sameinast um
lið.
Skjaidbökum
skilað til
heilbrigðis-
fulltrúa
„Ég veit ekki til þess að tauga-
veikibróður hafi orðið vart hér í
bænum,“ sagði Valdimar
Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi
á Ákureyri er við ræddum við
hann og spurðum frétta af
„skjaldbökumálinu“ svokall-
aða.
Valdimar sagði að fólk hefði
verið að skila þessum dýrum inn
undanfarna daga, en það er vilji
landlæknis að allar skjaldbökur í
landinu verði drepnar vegna þess
að í ljós hefur komið að þær flytja
með sér salmonellu-
sýkil sem veldur taugaveiki-
bróður.
- Hvað tekur langan tíma að
rannsaka þau sýni sem verða tek-
in af því fólki sem hefur um-
gengist þessj dýr?
„Það má reikna með að það
taki rúmlega viku frá því sýnið er
tekið og þar til er greiningin er
komin.
- Getur fólk gengið með þessa
bakteríu lengi án þess að veikj-
ast?
„Fólk getur verið smitberar án
þess að það veikist sjálft, jafnvel
svo árum skiptir.
Passíukórinn á Akureyri flutti sl. þriðjudagskvöld óratoríuna Messías eftir Georg Hándel í Akureyrarkirkju. Fjórir einsöngv-
arar tóku þátt ífíutningi verksins ásamt kammersveitsem skipuð var hljóðfæraleikurum frá Akureyri og félögum úr Sinfón-
íuhljómsveit íslands. Tónleikarnir heppnuðust mjög vel, og ríkir almenn ánægja með flutning verksins.
Framsóknarfólk
Húsavík
Framsóknarfélag Húsavíkur heldur almennan fé-
lagsfund mánudaginn 22. mars nk. kl. 20.30 í
Garðar.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrrafélaga.
2. Tillaga að framboðslista.
3. Fjárhagsáætlun 1982.
4. Önnurmál.
Félagar- mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Framsóknarfélag
Akureyrar
Almennur félagsfundur verður haldinn þriðjudag-
inn 23. mars að Hótel KEA kl. 20. Umræður um
kosningaundirbúninginn. Dagskrá nánar auglýst
síðar.
Allt áhugafólk um störf og stefnu Framsókn-
arfélagsins velkomið.
Stjórnin.
H
Opiðhús
er að Hafnarstræti 90
öll fimmtudagskvöld frá kl. 20-23.30
Spil — Tafl — Umræður
Lesið nýjustu blöðin
Kaffiveitingar
Allir velkomnir
Þessir krakkar komu á ritstjórn Dags með 60 krónur, sem þau báðu um að
yrði komið til forráðamanna Systraselssöfnunarinnar. Peningana fengu
krakkarnir á öskudaginn, F.v. Friðfínnur Örn Hagalín, Stefán Hrafn Hagalín,
Ólöf Rist, Birna Helgadóttir og Erna Erlingsdóttir. Mynd: KGA.
AKUREYRARBÆR
Akureyringar
Vinsamlegast hreinsið snjó frá sorpílátum, svo
hreinsun geti farið fram.
Bæjarverkfræðingur.
Nauðungaruppboð
Laugardaginn 20. mars nk. kl. 14.00 verður, að kröfu ýmissa
lögmanna, selt á nauðungaruppboði við lögreglustöðina á Ak-
ureyri ýmiss konar lausafé, s.s. bifr.: A-1139, A-4096, A-6209,
A-5309, A-6610, A-6951, í-4013, A-6130, A-5740, A-2969, A-
7767, A-6273, A-4222, A-5650, Ford 4600 dráttarvél árg. 1973,
2 stk. leðurklæddir stólar, sófaborð með glerplötu á stálfæti, ál-
suðutransi, „Grundig" hljómflutningstæki (plötuspilari, magnari
og 2 hátalarar), „Philco Bendix“ þvottavél, „Rösler" píanó,
sófasett: þriggja- og tveggja sæta og einn stól með rauðu plus-
áklæði, varahlutir í Chrysler New Yorker: 2 frambretti, vatns-
kassi, framljósabúnaður og grill.
F.h. bæjarfógetans á Akureyri, 17. mars 1982,
Erlingur Oskarsson.
18, mars 1982 - DAGUR - 7