Dagur - 30.03.1982, Qupperneq 9
Akureyrarmót í lyftingum:
met litu
dagsins liós
Sl. Laugardag var haldið Ak-
ureyrarmót í lyftingum í
íþróttasal Lundarskóla. Atta
keppendur tóku þátt í mótinu
og voru þar sett 7 íslandsmet
og nokkur Akureyrarmet.
í 67.5 kg. flokki voru tveir
keppendur:
Viðar Eðvarðsson snaraði 85 kg.
og jafnhattaði 115 kg.( saman-
lagt 200 kg. Kári Elíasson sna-
raði 97.5 kg. og jafnhattaði
107.5 kg. samanlagt 205 kg.
75 kg. flokkur:
Eyþór Hauksson snaraði 62.5
kg. og jafnhattaði 90 kg. eða
152.5 kg alls. Haraldur Ólafsson
snaraði 130 kg. og jafnhattaði
162.5 kg. eða 292.5 kg. alis. Har-
aldur setti þrju íslandsmet þ.e. í
snörun, jafnhöttun og í saman-
lögðum árangri. Pess má geta að
Haraldur átti 2 góðar tilraunir
við 168 kg. í jafnhöttun sem
hafði orðið nýtt Norðurlanda-
met og samanlagður árangur þá
jafngildandi Norðurlandameti í
75 ktfUjlokki.
í 8M5 kg. flokki snaraði Ólaf-
ur Ólafsson 80 kg. og jafnhattaði
107.5 kg. eða alls 187.5 kg. ,
Haraldur Ólafsson setti 3 ný íslandsmet.
90 kg. flokkur:
Kristján M. Falsson féll úr
keppni í snörun. í jafnhöttun
lyfti hann 167.6 kg. Gylfi Gísla-
son snaraði 175 kg og jafnhatt-
aði 175 kg. sem er jafnt gildandi
t
Pálína Jónsdóttir
frá Grund
Fædd 4. apríl — Dáin 21. mars 1982
Páiíná Jónsdóttir fyrrum hús-
freyja á Grund í Eyjafirði, and-
aðist í Borgarspítalanum í
Reykjavík 21. mars sl. og var
jarðsungin frá Grundarkirkju
laugardaginn 27. mars. Hún átti
heima á Akureyri síðustu árin, en
hafði dvalið skamma hríð á heim-
ili Sighvatar læknis sonar síns í
Reykjavík, er hún veiktist og
andaðist að fáum dögum liðnum,
tæpra 75 ára að aldri.
Hin látna var fædd í Hrísey 4.
april 1907. Foreldrar hennar voru
hjónin Jón Bergsson, útskurð-
armeistari og Þorgerður Jör-
undsdóttir, atgerfiskona. Þeirra
börn urðu tíu talsins og ólst Pálína
því upp í mannmargri fjölskyldu,
þar sem tekjur voru vart í sam-
ræmi við fjölskyldustærð.
Foreldrar Pálínu fluttu með allt
sitt til Ólafsfjarðar 1911 og þar ólu
þau upp barnahópinn sinn og áttu
þar heimili starfsævi sína alla. Á
þeim tímum var Ólafsfjörður ein-
angruð sveit umfram flestar aðrar
á Norðurlandi. Staðurinn krafðist
harðfylgis á sjó og landi og ói upp
dugmikla sjómannastétt. Ungar
konur ólust upp við algenga vinnu
eins og tíkaðist í sjávarplássum á
uppvaxtarárum Pálínu og lengi
síðar, bæði við að beita línu og
verka fisk, auk hinna hefðbundnu
heimilisstarfa kvenna í verka-
skiptu þjóðfélagi.
Tvítug að aldri fór Pálína í
Laugaskóla í Suður-Þingeyjar-
sýslu og dvaldi þar tvo vetur við
nám. Kom þar vel í ljós, að hún
var bóknæm í besta lagi og
listfeng.
Að námi í Laugaskóla loknu,
var hún nokkur misseri við versl-
unar-og skrifstofustörf á Akur-
eyri, en árið 1933 giftist hún Snæ-
birni Sigurðssyni frá Snæbjarnar-
stöðum í Fnjóskadal, sem þá var
farinn að búa í Hólshúsum í
Hrafnagilshreppi. í Hólshúsum
bjuggu þau Snæbjörn og Pálína til
ársins 1948 og þar fæddust þeim
elstu 'oörnin.
Þau höfðu ekki lengi búið á
jörð sinni er í ljós kom, að þar
hafði hin byltingarkennda fram-
faraalda ekki farið hjá garði.
Ræktarlönd stækkuðu ört og hús
úr varanlegu efni risu.
En árið 1948 keyptu þau hjónin
Grund 2, hálflendu hins forn-
fræga höfuðbóis og bjuggu þar í
þrjá áratugi. Þá létu þau jörðina í
hendur barna sinna, en nú er hún
auglýst til sölu. Fer hér sem oftar,
að ættir tengjast sjaldan lengi
sama búsetustað í sveit, hvortsem
mönnum kann að sýnast það köld
örlög eða eitthvað annað.
En Grundarhjónin, Pálína og
Snæbjörn, hafa á þriggja áratuga
búskaparferli sínum á Grund,
tryggt sér nöfn í sögu þessa forn-
fræga höfuðbóls Eyfirðinga. Á
ýmsu valt í búskap Snæbjarnar
bónda, en stórbóndi var hann
löngum og naut hann sín betur við
framkvæmdir en hin daglegu störf
búskapar og þá best þegar mest
var í húfi. Pálína húsfreyja naut
tónlistar og leiklistar flestum bet-
ur og félagsstörf á þeim sviðum
áttu vísan stuðning húsfreyjunnar
á Grund, ekki síður en fagrar
handmenntir, sem hún kenndi
ungum konum á námsskeiðum.
Rausn og margháttaður myndar-
skapur hafa löngum þótt ein-
kenna Grundarheimili, hvort sem
þau hafa verið eitt eða fleiri og
hefur svo verið til þessa, enda
Pálína mikil húsmóðir og auk þess
ástrík móðir. Börn þeirra Pálínu
og Snæbjarnar eru þessi: Sigurð-
ur, bóndi á Höskuldsstöðum í
Öngulsstaðahreppi, Hólmfríður,
lögfræðingur í Reykjavík, Sig-
hvatur, læknir í Reykjavík, Jón
Torfi, kennari í Reykjavík,
Ormar, kennari á Akureyri,
Sturla, bóndi á Grund og Þórður,
sonarsonur og kjörsonur þeirra
Pálínu og Snæbjarnar.
Fyrsti ábúandinn á Grund í
Eyjafirði, sem sögur fara af, var
Þorvaldur krókur, síðar, eða 1217
flutti þangað Sighvatur Sturluson
og eftir miðja fjórtándu öid bjó
þar Grundar-Helga og var Björn
Jórsalafari sonur hennar. Á
Grund bjó á sínum tíma ein af
dætrum Jóns biskups Arasonar og
hét hún Þórunn. Sat hún jörðina
um sextíu ára skeið en andaðist
1593. Þá er margra sýslumanna
getið, er á Grund hafa setið. Um
1800 kemur þar Bríemsættin við
sögu og þrem aldarfjórðungum
síðar sá maður sem bjó á Grund
fram á okkar öld og skráði nafn
sitt eftirminnilega í sögu staðar-
ins, en það var Magnús Sigurðs-
son, bóndi og kaupmaður.
Grund hefur ætíð verið meðal
vildisjarða í Eyjafirði. Landið er
mikið, ræktað land stórt og annað
ræktanlegt. Staðurinn ber fornri
frægð merki og gildir það um báð-
ar hálflendurnar.
Án efa hefur það verið ungri
konu úr afskekktu sjávarplássi
mikið ævintýri að verða húsfreyja
hins eyfirska höfuðbóls. Víst er
einnig, að sú virðingarstaða
krafðist þreks og vitsmuna og þá
eiginleika átti hin unga húsmóðir.
Pálína Jónsdóttir, sem nú er
kvödd, var fríð kona og mjúklát,
en bjó yfir miklum andlegum
styrk og listrænum hæfileikum.
Á sorgar-og kveðjustundum
þegar jörðin tekur á ný við börn-
um sínum, er reynt að ráða hinar
miklu gátur um lífið og dauðann.
Við sjáum skammt en þykjumst
þess fullviss, að þótt við leysum
fáar gátur, muni guðdómurinn
enn birtast okkur í augum barn-
anna og í litum hinna angandi
blóma. Við trúum því einnig, að
guðdómurinn roði hnúka á nýrri
vegferð þeirra vina okkar, sem
við kveðjum hinstu kveðju.
Ég sendi eftirlifandi eigin-
manni, Snæbirni Sigurðssyni, sem
sjúkur dvelur á Grund í skjóli
sonar síns og tengdadóttur, mína
innilegustu samúðarkveðju, svo
og öðrum ástvinum hinnar látnu.
Erlingur Davíðsson
fslandsmeti í ungiingaflokki.
Samtals lyfti Gylfi 305 kg.
í 100 kg. flokki þríbætti Garð-
ar Gíslason íslandsmet unglinga
í snörun, lyfti mest 142.5 kg.
Garðar jafnhattaði 170 kg. og
átti tvær góðar tilraunir til að
lyfta 175 kg. og bæta þannig ís-
landsmet Gylfa bróður síns um
2.5 kg. Samtals tyfti Garðar 310
kg. sem er nýtt Islandsmet ung-
linga.
Firmakeppni
í boðgöngu
SRA efnir til firmakeppni í boð- boðgöngu gengur hver maður 3
göngu og flokkasvigi 17.+18. km. Þátttökutilkynning þarf að
apríl. Er um að ræða þriggja hafa borist eigi síðar en 14. apríl
manna sveitir sem starfsmenn í síma 23248, Magnús.
viðkomandi fyrirtækis. skipa. í
Akureyrar-
mót í svigi
Akureyrarmót í svigi fyrir 12
ára og yngri var haldið í Hlíð-
arfjalli á dögunum. Þátttaka
var mjög góð, og ágætur ár-
angur náðist í mótinu í öllum
flokkum. Sigurvegarar og þeir
sem unnu til verðlauna í hin-
um ýmsu flokkum urðu sem
hér segir:
DRENGIR 11-12 ira:
1. Valdimar Valdimarsson KA 76,77
2. Jón Harðarson KA 80,07
3. Jón M. Ragnarsson Þór 80,49
STÚLKUR11-12 ira:
1. Kristín M. Jóhannsdóttir Þór 82,48
2. Sólveig Gísladóttir Þór 83,46
3. Laufey Þorsteinsdóttir KA 85,24
DRENGIR 10 ira:
1. Sverrir Ragnarsson Þór 73,08
2. Vilhelm Þorsteinsson KA 74,67
3. Viðar Einarsson KA 80,94
STÚLKUR 10 íra:
1. Ása Sigr. Þrastardóttir Þór 80,79
2. Erna Káradóttir KA 85,17
3. Rakcl Reynisdóttir KA 89,74
DRENGIR 9 ira:
1. Magnús H. Karlsson KA 73,37
2. Sævar Guðmundsson Þór 74,78
3. Arnar M. Arngrímsson KA 78,58
STÚLKUR 9 ira:
1. María Magnúsdóttir KA 75,45
2. Mundína Kristinsdóttir KA 82,65
3. Harpa Örlygsdóttir KA 88.89
DRENGIR 8 ira:
1. Gunnlaugur Magnússon KA 73,38
2. Stefán Þ. Jónsson KA 80,56
3. Ingólfur Guðmundsson Þór 82,97
STÚLKUR 8 ira:
1. Harpa Hauksdóttir KA 78,14
2. Linda Pálsdóttir KA 82,42
3. Harpa Hallsdóttir Þór 93.67
DRENGIR 7 ira og yngri:
1. Þórleifur K. Karlsson KA 82,22
2. Róbert Guðmundsson Þór 90,34
3. Arnar Friðriksson 97,07
STÚLKUR 7 ira og yngri:
1. Sísí Malmquist Þór 88,34
2. Erla H. Sigurðardóttir Þór 93,55
3. Hildur Ösp Þorsteinsd. KA 94,82
Nýr umboðs-
maður getrauna
Stjórn knattspyrnudeildar KA
hefur farið þess á leit við íþrótta-
síðuna að þess verði getið að
aðalumboðsmaður knattspyrnu-
getrauna hjá KA sé nú Einar
Gunnarsson starfsmaður í
hljómdeild Cesars. Hann tók við
starfi af Frímanni Gunnlaugs-
syni í Sport og Hljóð, en Frí-
mann hafði gengt þessu starfi
um árabil fyrir KA. Umboðs-
laun knattspyrnugetrauna er töl-
uverður peningur fyrir íþrótta-
félögin.
30. mars 1982 - DAGUR - 9