Dagur - 27.04.1982, Blaðsíða 2
Samhenta og trausta
forustu
Lengi hafa framsóknarmenn haft forystu um
samstarf í stjórn bæjarmála á Akureyri. Undir
þeirra stjórn hafa orðið miklar framfarir á flest-
um sviðum. Akureyri hefur haft mikið að-
dráttarafl fyrir fólk og fólksfjölgun verið meiri
en víðast annars staðar. Framsóknarmenn á
Akureyri telja það ávinning fyrir eyfirskar
byggðir, Norðlendinga og þjóðina alla að Akur-
eyri eflist enn frekar og skapi nauðsynlegt mót-
vægi við Faxaflóasvæðið.
Framsóknarmenn á Akureyri líta á byggðir
Eyjafjarðar sem atvinnulega og menningarlega
heild og vilja því eiga gott samstarf við ná-
grannabyggðalögin um uppbyggingu svæðis-
ins og skapa íbúunum öryggi og farsæld.
Framsóknarmenn á Akureyri vilja beita áhrif-
um sínum til að auka sjálfstæði sveitarfélaga
gagnvart ríkisvaldinu og efla samvinnumögu-
leika þeirra. Þeir gera kröfu til eðlilegrar og
sanngjarnrar hlutdeildar í sameiginlegum sjóð-
um þjóðarinnar í hlutfalli við framlag íbúa svæð-
isins. Vegna aukinna aðgerða ríkisvaldsins til
tekjujöfnunar, vaxandi almannatrygginga og
bætts efnahags almennings, telja framsókn-
armenn á Akureyri að gamalt og rótgróið fram-
færsluhlutverk sveitarstjórna eigi að hverfa að
miklu leyti. í stað þess eigi sveitarfélög að ein-
beita sér í ríkara mæli að framkvæmdum í þágu
íbúanna og stuðla m.a. þannig að aukinni
atvinnuuppbyggingu.
Framsóknarmenn á Akureyri vilja tryggja
áfram traustan fjárhag bæjarsjóðs og bæjar-
stofnana og gæta aðhalds í öllum rekstri bæjar-
ins. Akureyri og Eyjafjarðarbyggðir hafa miklu
hlutverki að gegna við uppbyggingu íslensks
þjóðfélags. Því þarf áfram samhenta og trausta
forustu sem stjórnar málefnum bæjarins í nán-
um tengslum og samvinnu við íbúana.