Dagur - 27.04.1982, Síða 4
Skóla- og
mennmgarmál
Þróun og velferð bæjarfélagsins
byggist að verulegu leyti á því að
jafnan sé völ á hæfum og vel mennt-
uðum einstaklingum til að takast á
við vandamál og axla ábyrgð sem
fylgja æ flóknara samfélagi.
Framsóknarmenn á Akureyri telja
menntun vera mannréttindi. Öllum
skal því gert kleift að öðlast menntun
við hæfi, bæði í hagnýtum tilgangi í
tengslum við atvinnulífið og til aukins
almenns þroska. Framsóknarmenn á
Akureyri vilja að áfram verði litið á
Akureyri sem miðstöð mennta og
menningar.
Börnum á grunnskólastigi verður
að skapa sem jafnasta aðstöðu til
náms og þroska. Því vilja framsókn-
armenn á Akureyri að öll börn geti
sótt skóla í sínu hverfi. Þeir telja það
grundvallarreglu í skólastarfi sem og
annars staðar að hugað verði að þörf-
um hvers og eins. Nemendum sem
víkja frá eðlilegum þroska ber að sjá
fyrir fullnægjandi stuðningskennslu.
Einnig þarf að koma til móts við þarfir
nemenda sem skara fram úr í námi.
Koma þarf upp skóladeildum fyrir
þroskaheft og atferlistrufluð börn en
markmiðið skal þó ávallt vera að ein-
staklingar með sérþarfir geti aðlagast
samfélaginu.
Framsóknarmenn á Akureyri vilja
efla enn frekar nám á framhalds-
skólastigi og fjölga þeim námsbraut-
um sem fólk hefur úr að velja. Sérstök
áhersla verði lögð á aukna verk-
menntun og skal byggingu Verk-
menntaskólans hraðað. Koma þarf
upp námsbrautum og endurmenntun
tengdum þeim starfsgreinum sem
hér eru og hafi Verkmenntaskólinn
forystu í því efni. Ennfremur má
nefna háskólanám í tengslum við
skipasmíðaiðnað, matvælaiðnað,
kennaramenntun, menntun á sviði
heilbrigðisþjónustu og listhönnun í
tengslum við iðnaðinn í bænum.
Framsóknarmenn á Akureyri leggja
áherslu á nauðsyn endurmenntunar
og fullorðinsfræðslu.
Framsóknarmenn á Akureyri
benda á nauðsyn þess að í bænum rísi
félags- og menningarmiðstöð. Þeir
vilja að slík miðstöð rísi í tengslum við
Amtsbókasafnið á Akureyri. Þar verði
góð aðstaða til hljómleika og listsýn-
inga auk funda- og félagsaðstöðu.
Framsóknarmenn á Akureyri benda á
þann möguleika að í slíkri menning-
armiðstöð verði gert ráð fyrir aðstöðu
til upptöku útvarps- og sjónvarpsefn-
is. Starfsemi ríkisútvarpsins á
Norðurlandi verði efld til muna.
Framsóknarmenn á Akureyri telja
listiðkun vænlega til eflingar þroska.
Vegna aukins frítíma almennings
verður að leggja áherslu á uppbyggj-
andi tómstundastörf. Jafnframt verði
á Akureyri auknir möguleikar til
sérmenntunar á sviði tónlistar og
myndlistar.