Dagur - 12.08.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 12.08.1982, Blaðsíða 5
g brjálaðan ann í Hrísalundi í Hrísey Dæturnar tvær, Ráðhildur og Hjálmfríður, ásamt ráðskonunni Agnesi Ingvarsdóttur. tíðir og einnig hópur brúarsmiða í Svarfaðardal. Ég held að staðurinn hafi vakið nokkra at- hygli við Eyjafjörðinn.“ „Hvað með framhaldið?“ „Ég veit nú ekki um það ennþá. Þó er ég með hugmyndir um að fá að stækka þetta og þá Myndir: H.Sv. að koma upp gistingu. Ég held að það sé þörf fyrir bæði veit- inga- og gistiaðstöðu hér allt árið, en mér finnst að sveitarfé- laginu komi þetta svolítið við. Annars hefur þetta gengið vonum framar, en það er hins vegar ákaflega einfalt að snúa lyklinum í skránni og hætta. Ég á engar rætur hér í Hrísey, er reyndar Strandamaður, en maður getur alls staðar unað sér ef maður vill svo við hafa. Eyja- fjörður er álitlegur staður og hér er friðsamt og gott að vera.“ Auðunn mátti ekki vera að því að sinna okkur meira því kostgangarar komu og fóru m.a. bormenn frá Orkustofnun*. og iðnaðarmenn frá Akureyri sem vinna við húsbyggingar hafa einnig fengið sitt fæði hjá honum. Sér til aðstoðar hefur Auðunn ráðskonu, Agnesi Ing- varsdóttur, og þegar Dagsmenn stöldruðu við í Hrísey voru dæt- ur hans tvær, Hjálmfríður og Ráðhildur, að hjálpa til við eld- hússtörfin. H.Sv. ídórsson Steindór Steindórsson er ein- stakur maður um marga hluti. . Framganga hans og svipmót, raddblær og hátterni minnir ekki á aðra menn. Hann er nú með sögufróðustu mönnum á landinu i um liðna daga og horfna tíð, og úm þjóðlegan fróðleik standa fáir i honum framar. Ræðumaður og mælskumaður er Steindór svo af ber, og enn er hann hamhleypa til verka. Ekki síst hefur Steindór verið afkastamikill rithöfundur, þýðari og útgefandi síðustu 10 ár, eftir að hann fékk lausn frá erfiðu skólameistarastarfi. Segirmérsvo hugur um, að enginn Islendingur hafi gefið út fleiri bækur þessi tíu ár en Steindór frá Hlöðum. Þessi ár hafa líka um flest verið honum góð ár, að ég ætla. Hann hefur fengið að njóta góðrar heilsu sjálfur, hann hefur setið á friðar- stóli og hann hefur fengið að helga sig hugðarefnum sínu. Steindór skólameistari Stein- dórsson frá Hlöðum er fáum líkur. Hann er skapríkur maður og atkvæðamikill, þar sem hann fer, og hann er mikið karlmenni. Lengi hefur karlmennska verið einn sterkasti þáttur í manngildis- hugsjón íslendinga ásamt æðru- leysi og hugdirfsku. Grímur skáld á Bessastöðum lýsti sumum þátt- um manngildishugsjónar fyrri tíð- ar í kvæði sínu um Halldór Snorrason. Þar segir: Aldrei hryggur, aldrei glaður, æðrulaus og jafnhugaður stirður var og stíðlundaður Snorrason og fátalaður. Steindór Steindórsson er ekki fátalaður maður, heldur glaður og reifur, hress við veg og æðrulaus, þótt hann haldi fornar dyggðir í heiðri, eins og byrjar sögufróðum manni. Nú á þessum merkisdegi vil ég færa honum bestu árnaðar- óskir mínar og þakkir frá gamla skólanum okkar. Gott væri, að margir yrðu Menntaskólanum á Akureyri það, sem Steindór skólameistari Steindórsson frá Hlöðum hefur verið honum. Tryggvi Gíslason. Lyftingamenn i Færeyjum Dagana 1. og 2. ágúst héldu lyft- ingamenn frá Akureyri, ásamt aðstoðarmönnum, tvö sýningar- mót í lyftingum og kraftlyfting- um í Fimleikahöllinni í Þórshöfn. Mót þessi átti upphaf- lega að halda í tengslum við há- tíðahöld á Ólafsvökunni en þar sem þoka hamlaði flugi í fjóra sólarhringa seinkaði mótunum sem því nam. Fyrri daginn var keppt í kraft- lyftingum og lyftingum. Voru hinir sjö keppendur flestir nokk- uð frá sínum besta árangri þar sem hin langa bið í Reykjavík hafði raskað æfingaráætlun þeirra eftir margra vikna þrot- lausan undirbúning. Kári Elís- son bætti þó eigið íslandsmet í bekkpressu er hann lyfti 150,5 kg í 67,5 kg flokki. Þá náði Jó- hannes Hjálmarsson mjög góð- um árangri í hnébeygju þegar hann lyfti 230 kg. Einnig náði Gylfi Gíslason ágætum árangri er hann snaraði 135 kg og jafn- hattaði 170 kg. Seinni daginn var haldið mót með sýningarsniði og án dóm- ara. Fengust því þær metþyngdir sem lyft var ekki staðfestar. Léku þá lyftingamenn á als oddi óspart hvattir af stórkostlegum áhorfendum. Garðar Gíslason, sem orðið hafði að hætta keppni daginn áður vegna eymsla í baki, jafnhattaði 175,5 kgsem er 0,5 kg yfir gildandi íslandsmeti í 90 kg flokki og 5,5 kg meira en hans besti árangur til þessa. Kári Freyr og Flosi lyfta saman. Elísson bætti árangur sinn frá deginum áður er hann lyfti 151 kg í bekkpressu. Jóhannes Hjálmarsson lyfti 280 kg í rétt- stöðulyftu sem er 12,5 kg yfir heimsmeti hans í öldungaflokki. Þá vann Freyr Aðalsteinsson það afrek að lyfta 192,5 kg í rétt- stöðulyftu með annarri hendi. Eftir því sem best er vitað mun einungis Jón Páll Sigmarsson hafa lyft meira með annarri hendi en þess ber að geta að hann keppir oftast í fl. 125 kg en Freyr í 75 kg flokki. Sýningu þessari lauk svo með því að Freyr og Flosi Jónsson sýndu tveggja manna réttstöðulyftu. Ekki var unnt að hlaða stöngina með meiru en 300 kg því 50 kg lóð eru ekki í eigu lyftingafélags- ins „Bragðið“ sem lánaði búnað til mótsins. Gerðu þeir kappar sér lítið fyrir og lyftu 300 kg fimm sinnum í röð. Mun þetta í fyrsta skipti sem lyftingamenn sýna slíkar lyftur á móti. Góð aðsókn var að mótum þessum sem munu hafa verið hin fyrstu í Færeyjum. Undirtektir áhorfenda voru einstakar og sagðist einn lyftingamannanna aldrei hafa upplifað aðra eins stemmningu og hafa þó keppt á öllum Norðurlöndunum. Ekki má gleyma þætti Akureyringsins Eiríks Ingvarssonar tæknifræð- ings og formanns íslendingafé- lagsins. Lagði Eiríkur ómælda vinnu í undirbúning, útvegun tæk j a og húsnæðis o. fl., auk þess sem hann var kynnir á mótun- um. Mun Lyftingaráð Akureyr- ar seint geta fullþakkað Eiríki hans framlag. Knattspyrna um helgina Geysileg keppni er nú í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu og þegar liðin eiga eftir 4-6 leiki geta þau öll sigrað í mótinu og reyndar öll fallið líka. Á laugardagsmorgoninn, ekki mjög snemma var haldið á golfveUinum á Jaðri golfmót íþróttafréttaritara blaðanna, sem hér á Akureyri eru. Ekki gátu þó aUir mætt á þessum tíma vegna anna. Alls mættu fjórir. Þegar fara átti að slá á fyrstu brautinni kom í Ijós að enginn hafði haft með sér golfkúlur, en þær fengust keyptar í Golfskálanum og kom það því ekki að sök. Strax varð ljóst að um einvígi yrði að ræða á milli íþrótta- fréttaritara Tímans Gylfa Krist- jánssonar og Moggans Reynis Eiríkssonar, en þeir höfðu það fram yfir aðra keppendur að þeir náðu upphafshögginu nokkuð góðu. Inni á grínunum voru menn hins vegar nokkuð jafnir, enda sumir æft pútt heima í stofu að minnsta kosti þar til vatns- glasið brotnaði sem slegið var í. Um helgina verður heil umferð. Akurnesingar fá Kefl- víkinga í heimsókn, Valur og ÍBV leika í Reykjavík, Breiða- blik og Víkingur í Kópavogi, Þegar áttundu braut lauk hafði Reynir eitt högg á Gylfa, en Gylfi sagðist vera eldri og reynd- ari og myndi því taka hann á síð- ustu holunum. Það stóð heima að þegar Gylfi hafði púttað síð- asta púttið af 10 cm færi og hitt, hafði hann sigrað Reyni með einu höggi, eða farið 9 holumar á 52 höggum sem er frábær ár- angur. Reynir var í öðru sæti á 53 höggum sem einnig er mjög gott, þar sem hann er lítt keppnisvanur. Guðmundur Svansson sem hafði verið alla verslunarmanna- helgina í æfingarbúðum í Ás- byrgi hafnaði í þriðja sæti á 63 höggum, en það er nokkuð frá hans besta. Áð lokum skal þess getið að einnig var þarna kepp- andi frá Degi. Var það hinn snaggaralegi Olafur Ásgeirsson, en höggafjöldi hans er ennþá í tölvuvinnslu og verður gefinn upp síðar. Fram leikur gegn KR og KA fær ísfirðinga í heimsókn. Verðursú viðureign á Akureyrarvelli á laugardag kl. 14. Staðan í deild- inni er nú þessi: Víkingur 12 5 6 1 20-14 16 ÍBV 12 6 2 4 15-11 14 KR 13 3 8 2 9-10 14 Valur 14 5 3 6 15-13 13 KA 14 4 5 5 12-13 13 Breiðablik 14 5 3 6 14-17 13 ÍBK 13 5 3 5 12-15 13 Fram 13 3 6 4 14-13 12 Akranes 13 4 4 5 14-15 12 ÍBÍ 14 4 4 6 19-23 12 2. deild í 2. deildinni er einnig hörku- keppni. Segja má að staða Þrótt- ar Reykjavík sé orðin það góð að liðið hljóti að fara upp í 1. deild, en 6 lið geta náð hinu sæt- inu. f augnablikinu eru það Þór, FH og Reynir sem standa þar best að vígi, og gætu línur skýrst nokkuð um helgina. FH leikur þá gegn Þrótti R. Þórsarar leika á útivelli gegn Reyni, Völsungur gegn Skallagrími, Þróttur N. gegn Njarðvík og Fylkir gegn Einherja. Staðan í 2. deild er nú þessi: Þróttur R. Þór Ak. Reynir S. FH Njarðvík Völsungur Einherji Skallagr. Þróttur Stórkostleg tilþrif að Jaðri 13 8 4 1 18-7 20 13 4 7 2 24-12 15 13 6 3 4 19-11 15 13 5 5 3 16-15 15 13 5 3 4 20-21 13 13 4 4 5 14-14 12 13 5 2 6 18-21 12 13 3 3 7 11-22 9 13 2 3 8 5-20 7 12. ágúst 1982 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.