Dagur - 24.08.1982, Blaðsíða 7

Dagur - 24.08.1982, Blaðsíða 7
Haukur Þorsteinsson formaður starfsmannafélags Slippstöðvarinnar: Stjórnmálamenn og embættismenn hafa sýnt Ef maður fer að hugsa um þá að- stöðu sem íslenskum skipa- smíðaiðnaði og einnig viðgerð- um og viðhaldi flotans er búinn kemur margt upp í hugann. Mest stingandi er þó sú stað- reynd hvað ríkisstjórnir allra tíma, hverju nafni sem þær nefnast, svo og stjórnmálamenn og embættismenn hafa sýnt þessari atvinnugrein lítinn skilning, þrátt fyrir þá staðreynd að sjávarútvegur hefur verið okkar aðalatvinnugrein og þar af leiðandi útheimt stóran og fullkominn fiskiskipaflota sem þurft hefur að endurnýja og halda við, en þeim þætti hefur ráðamönnum ekki þótt ástæða til að sinna hér innanlands, nema að mjög takmörkuðu leyti, þó svo að öll skilyrði séu til þess, ef rétt væri á málum haldið. Einnig má það furðu sæta að ekki skuli vera til og hafi verið til heildarstefna um endurnýjun fiskiskipaflotans og þá um leið að tryggja íslenskum skipa- smíðastöðvum næg verkefni fram í tímann, t.d. með rað- smíðaverkefnum sem m.a. lækka byggingarkostnað til muna og þá um leið styrkja sam- keppnisaðstöðu þeirra. En eins og málum hefur verið háttað um árabil og er enn, þá hefur nánast verið um módelsmíði skipa að ræða, og allir er til þekkja vita að er mun dýrara en raðsmíð og trúlega getur engin skipasmíða- stöð í heiminum tekið þátt í slíku ævintýri. Þá hefur þetta stefnuleysi stjórnvalda orsakað mikla óvissu með verkefni og þá um leið ógnað atvinnuöryggi í þessari grein. atvinnugrein lítinn áhuga Forráðamenn Slippstöðvarinn- ar á Akureyri efndu til blaða- mannafundar s.l. fimmtudag. Var sú kynning á starfsemi stöðvarinnar sem þeir efndu til í því sambandi mjög umfangs- mikil, farið var um alla stöðina og fylgst með framleiðslunni og að því loknu var efnt til fundar í fundarsal fyrirtækisins. Það kom fram á fundinum að forráðamenn stöðvarinnar eru mjög uggandi vegna verkefna- leysis á næstu misserum en eng- in verkefni við nýsmíðar eru nú sjáanleg. Nýsmíðar hafa verið tæplega helmingur af starfsemi stöðvarinnar. Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar nefndi sem dæmi um þá erfiðleika sem skipa- iðnaðurinn í landinu á við að stríða að s.l. vor hafi verið unnið í stöðinni að samningsgerð vegna raðsmíði á 35 metra fiskiskipum í samræmi við svokallað raðsmíða- verkefni sem ríkisstjórnin hefur fallist á. Gerðir voru samningar um smíði þriggja skipa og teikn- ingar voru tilbúnar. En þá gerðist það að Fiskveiðisjóður stöðvaði framgang málsins með því að synja um lánafyrirgreiðslu til þessara smíða, og lækkaði um leið lánshlutfall sitt úr 75% í 60%. í framhaldi af því ákvað ríkis- stjórnin að tryggja ríkisábyrgð til smíði fjögurra skipa í þessu rað- smíðakerfi, og munu tvö þeirra verða smíðuð hjá Slippstöðinni. Þessi verkefni munu hinsvegar á engan hátt fullnægjandi fyrir Slippstöðina í nýsmíði. Þá hafa þær kröfur sjómanna- samtakanna verið háværar að stöðva beri allar skipasmíðar í landinu í tvö ár. Þetta telja for- ráðamenn Slippstöðvarinnar algjöra fjarstæðu og sagði Gunnar Ragnars að ef til þess kæmi yrði það meiri skellur fyrir þjóðfélagið en menn gerðu sér í hugarlund. Gunnar benti í því sambandi á að endurnýjunarþörf íslenska fiskiskipaflotans næstu fimm árin er talin um á 38 skip sem eru 26 metra löng og ætluð til línu- neta borið á innflutningi á skips- skrokkum og skipshlutum, einn- ig er óþolandi að á sama tíma sem ber á verkefnaskorti hér innanlands skuli viðgerðarverk- efnum leyft að fara úr landi. Og heyrst hefur að þeir aðilar sem fara með skip sín erlendis til við- gerða fái betri fyrirgreiðslu pen- ingastofnana en ef verkið væri unnið hér heima. Oft hefur verið sagt að við vær- um ekki samkeppnisfærir hvað verð áhrærir, hvorki í nýsmíðum eða viðgerðum, í þeirri umræðu skulu menn hafa það hugfast að ekki er jafnræði í því máli, þar sem í mörgum tilfellum er um stórfellda niðurgreiðslu þeirra þjóða að ræða sem við skiptum við. í þeirri umfjöllun síðustu mánuði um að flotinn sé orðinn allt of stór og að stöðva beri all-, an innflutning skipa, og einnig alla smíði hér innanlands í 2 ár, ; ber margt að athuga, að sjálf- . sögðu skal stoppa allan innflutn- ing, þótt fyrr hefði verið, en þeir, .: sem mæla með því að stöðva.; beri skipasmíðar hér innan- ’ lands, eins og því miður sjó- mannasamtökin voru að mælast til, (vonandi í fljótfærni sagt) því þau eru um leið að mælast til þess að mörg hundruð manns verði atvinnulausir, og t.d. ef Slippstöðin hf. hætti nýsmíðum hefði sá stóri hópur er þar vinnur ekki í nein hús að venda, alla- vega ekki hér á Akureyri eins og atvinnuhorfur eru núna. Allir sem til þekkja vita einnig að þó svo ekki væri stoppuð ný- smíði nema í 2 ár, færi starfsemi sem þessi ekki aftur af stað með því að ýta á takka, t.d. væri lík- legt að reyndustu starfsmenn stöðvarinnar væru komnir í önn- ur störf, trúlega vítt og breitt um landið og kæmu ekki aftur, og það tekur mörg ár að þjálfa menn upp í því starfi sem skipa- smfðar eru. Einnig ber að líta á þá stað- reynd að þó svo allar íslenskar skipasmíðastöðvar störfuðu á fullum afköstum eru þær ekki það afkastamiklar að þær full- nægja ekki nema að litlu leyti endurnýjunarþörf flotans. Því vil ég skora á ríkisstjórn og alla þá aðila sem með málefni skipasmíðaiðnaðarins fara hér á landi að láta ekki það slys henda að stöðva skipasmíðar um óákveðinn tíma. og togveiða, 47 skip 35 metra löng til sömu veiða og 8 skuttogarar. Þessi endurnýjun gerir þó ráð fyrir að fiskiskipaflotinn minnki um 25%. Gunnar upplýsti einnig að afköst innlendra skipasmíða- stöðva miðað við meðaltal s.l. fimm ára er 9 skip af 26 metra lengd, 14 skip af 35 metra lengd og 6 skuttogarar. Innlenda af- kastagetan er því 35% af endur- nýjunarþörfinni. í þessu sambandi benti Gunnar á meðalaldur og meðallíftíma skipa fiskveiðiflotans og lítur sú tafla sem hann setti fram í því sambandi þannig út: Þau eru mörg handtökin áður en skip er fullsmíðað og vissara að vanda sig. Slippstöðin á Akureyri. Eins og sjá má á myndinni er hér um geysistórt fyrirtæki að ræða, enda er Slippstöðin 10. stærsta fyrirtæki landsins hvað snertir mannafla og unnar vinnustundir. Við sem í þessari iðn störfum hljótum að gagnrýna þann skefjalausa innflutning skipa bæði nýjum og nú upp á síðkast- ið gömlu rusli. Þá hefur einnig Haukur Þorsteinsson. stærð tegund líftími fjöldi meðalaldur 50-99 brl. tréskip 25 ár 76 27 ár 50-99 brl. stálskip 25 ár 29 21 ár 100-149 brl. tréskip 20 ár 14 22 ár 100-149 brl. stálskip 20 ár 74 14 ár 150-199 brl. stálskip 20 ár 39 19 ár 200-299 brl. stálskip 20 ár 30 18 ár 300-499 brl. stálskip 20 ár 1 21 ár loðnuveiðiskip stálskip 25 ár 52 15 ár skuttogarar stálskip 16 ár 90 8ár Viðgerðir hafa verið um helmingur af starfsemi Slippstöðvarinnar. Frumfor- sendan fyrir því að hægt sé að.halda þeim áfram er að verkefni fyrir nýsmíðar séu fyrir hendi. Unnið við teiknivinnu í tæknideild Slippstöðvarinnar. Eins og þessi tafla ber með sér er þörfin á endurnýjun mikil þótt hún sé talsvert mismunandi á milli hinna einstöku stærðarflokka. Þannig er ljóst að loðnuskip verða ekki smíðið í neinum mæli hér- lendis á næstu árum. Nú hefur verið gerð breyting á lánakerfi skipasmíðaiðnaðarins í samræmi við þær breytingar á afurðalánum sem ullar og skinna- iðnaðurinn fengu vegna rekstrar- erfiðleika á s.l. ári. Að sögn Gunnars Ragnars veldur þessi breyting því að hægt á að vera að smíða ný skip á 20% lægra verði en áður. Það er því hlálegt að ein- mitt á þeim tíma skuli ýmislegt benda til þess að um verkefna- skort verði að ræða í nýsmíði á næstu misserum ef ekki kemur eitthvað óvænt til. Til skýringar því hvað hið nýja lánakerfi þýðir í reynd lagði Gunnar Ragnars fram á fundinum eftirfarandi dæmi um samanburð á fjármagnskostnaði á smíðatíma Örvars HU 21 sem Slippstöðin afhenti í sumar: 1. Skipið var fjármagnað á smíðatíma með erlendu bráða- birgðaláni sem tekið var í dollur- um. Vextir voru gangvextir á hverjum tíma og voru á bilinu 12- 22,5%. Lán þettavar jafnvirði um 71% af verðmætamati skipsins á hverjum tíma. Við lokauppgjör smíðaverðsins reynist gengismun- ur vegna bráðabirgðalánsins kr. 16.121.675 kr. og vextir 7.757.531 kr. Allsgerirþetta kr. 23.879.531. 2. Fiskverkendur og fleiri atvinnurekendur fá afurða og við- bótarlán til þess að fjármagna framleiðslu sína. Afurðalánin eru um 50% af verðmæti framleiðsl- unar og bera 28,311% vexti. Við- bótarlánin eru 44% af afurðarlán- unum og bera þau 33% vexti. Heildarlánafyrirgreiðslan er því um 72% af framleiðsluverðmæt- inu. Ef byggingarkostnaður Örvars HU 21 hefðu verið fjármagnaður með þannig lánakjörum hefði vaxtakostnaður á byggingartíma orðið 10.219.518 kr. Fjármagns- kostnaður á byggingartíma ofan- greinds skips var því 13.660.013 kr. hærri en verið hefði ef skipa- smíðastöðin hefði notið sömu lánafyrirgreiðslu og fiskverk- endur. Gunnar var spurður að því á fundinum hvort Slippstöðin væri samkeppnisfær hvað verðlag snerti við erlendar skipasmíða- stöðvar. Hann sagði að eftir að ríkisstjórnin hefði samþykkt í síð- ustu viku að skipasmíðaiðnaður- inn nyti sömu lánafyrirgreiðslu og ullar- og skinnaiðnaðurinn, ætti Slippstöðin að vera vel sam- keppnisfær hvað verðlag snertir. I Slippstöðinni starfa nú um 300 manns og var fjöldi vinnuvikna þar á s.l. ári 15660. Þar voru á s.l. ári tekin upp 121 skip í slipp og voru viðgerðir á þeim um 52% af verkefnum stöðvarinnar. Vinnu- stundir við nýsmíðar á síðasta ári voru um 190 þúsund. Þar sem ljóst er að framleiðniaukning hef- ur átt sér stað við nýsmíðarnar í kjölfar afkastahvetjandi launa- kerfis má þó gera ráð fyrir að ný- smíðarnar hafi verið að magni til 10-12% meiri en árið áður. „Premíukerfið“ eins og þeir Slippstöðvarmenn kölluðu hið af- kastahvetjandi launakerfi sem notað er í stöðinni nær orðið til um 95% starfsmanna þar. Síðan kerfið var tekið í notkun lætur nærri að meðaltalshækkun launa hafi verið um 20% miðað við taxta. Afköstin hafa aukist um 26% í nýsmíði og um 20% í við- gerðavinnu. Það eru engin smásmíði sum stykkin sem unnið er að í Slippstöðinni. Gunnar Ragnars forstjóri, Gunnar Skarphéðinsson starfsmannastjóri og Stefán Reykjalín stjórnarformaður Slipp- stöðvarinnar ræða við blaðamann sem snýr baki í myndavélina. Vélin sem mennirnir standa við sker stálið sem notað er í skipin. Forráðamenn Slippstöðvarinnar uggandi vegna verkefnaleysis 6 — DAGUR - 24. ágúst 1982 24. ágúst 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.