Dagur - 03.09.1982, Síða 3

Dagur - 03.09.1982, Síða 3
UREINUIANNAÐ Snjólaug Bragadóttir Er næsiusemi úrelt clvgSO? Af viðtölum útvarpsmanna við vegfarendur nýlega, um efna- hagsráðstafanirnar, mátti helst ráða, að hinn almenni borgari væri ekki reiðubúinn að leggja neitt á sig. Allir segja „ekki ég“, það eru einhverjir aðrir, sem eiga að bjarga málunum. En er ekki ástandið að miklu leyti sök almennings? Heimtum við ekki og heimtum, fleygjum og sóum gegndarlaust? Rándýr tískufatnaður fer í tunnuna, skóviðgerðir er eitthvað, sem hlegið er að og enginn þykir maður með mönnum, nema endurnýja bílinn á tveggja ára fresti, að minnsta kosti. Hús- gögn fara á haugana í tonnum og gluggatjöld í kílómetrum. Hvernig á að vera hægt að kenna börnum sparnað og nægjusemi, þegar foreldrarnir kunna það ekki sjálfir? Á hverju heimili, þar sem börn eru, leggst til heilmikið af fötum og skófatnaði vegna þess að börnin vaxa upp úr því. Margir vildu gjarnan gefa þetta, en lenda í vandræðum, því margir aðrir geta ekki verið þekktir fyrir að nota föt af öðrum. Er ekki mál til komið, að varpa slíkri stórmennsku fyrir róða, nú höfum við bara ekki efni á henni lengur. í Noregi er algengt að hús- mæður við eina götu, í einu hverfi eða heilum smábæjum, komi saman tvisvar á ári með kökur og kaffi handa sjálfum sér og öll þau föt, sem heimilisfólk getur ekki lengur notað. Allt er lagt í einn stóran pott og svo er gramsað, í leit að stærri flíkum, eða minni, eftir atvikum. Þetta er kallaður Skiptimarkaður og þarna eru engir peningar í spil- inu. Allir hafa bæði gagn og skemmtun af, koma saman, spjalla, kynnast betur, losna við ónothæft og fá nothæft í staðinn. Hvað skyldi miklu af fyllilega nýtum gluggatjöldum vera fleygt hér á landi árlega? Æ, lit- urinn var farinn að fara svo í taugarnar á mér . . . Eða: Hún Sigga í næsta húsi fékk sér ný, svo ég gat ekki sýnst minni manneskja. Þau voru agalega dýr, en . . . Vissulega er lengi hægt að lita gluggatjöld, eða hafa endaskipti á þeim, sem farin eru að upplit- ast að ofan. Það má líka klippa af og setja fyrir minni glugga. En . . . æ, þaðersvomiklu auð- veldara að fleygja þeim bara og kaupa ný. Til skamms tíma var önnur hver manneskja í hvítum buxum. En einn góðan veður- dag segja sölumennirnir, sem stjórna okkur kjánunum, að nú sé sveitó og púkó að vera í hvít- um buxum. Við þrælarnir kær- um okkur ekki um slíkan stimpil og fleygjum þeim hvítu til að kaupa rauðar eða grænar. í svona tilfellum þarf eina dós af lit og um það bil klukkutíma til að eignast nýjar tískubuxur. En hver nennir því, hitt er svo miklu aðveldara . . . Nú orðið hugsar fólk örlítið um að spara símann, að minnsta kosti þeir, sem ekki geta hringt á annarra kostnað. En hversu margir hugsa um rafmagns- sparnað? Nennir til dæmis nokk- ur að reikna út, hvað mikið spar- ast á einu ári við að minnka allar ljósaperur um eitt númer? Mun- urinn finnst ekki nema rétt fyrst, en hann sést vel á reikningnum, þegar til lengdar lætur. Ef endarnir skyldu hætta að ná saman á heimilinu, væri ráð að setjast niður, skoða heimilis- bókhaldið og sjá, hvað margar krónur hafa síðasta mánuðinn farið í eitthvað, sem hvergi sést, eða eitthvað annað, sem ósköp vel hefði mátt sleppa að kaupa. En til þess að geta komið sjálf- um sér á óvart með ótrúlega háum tölum, er skilyrði að halda nákvæmt heimilisbókhald. Það mætti fylla heilt blað með ýmsum sparnaðarráðum, en þegar til lengdar lætur er besti sparnaðurinn að fara vel með alla hluti, svo þeir endist sem lengst og ekki að kaupa nýtt, fyrr en ekki er lengur hægt að gera við það gamla. Það er nefnilega furðulengi hægt að gera við, til dæmis föt, skó og leikföng. m Spjallað við hressa krakka á leikvellinum í Hlíðarhverfi á Sauðárkróki „Er gaman að eiga heima á Sauðárkróki,“ spyrjum við hóp krakka sem eru að leik á leikskóla í hinu nýja Hlíða- hverfi á Króknum. „Meira gaman en á Akureyri,“ svarar einn guttinn kotroskinn. Það kemur í Ijós að hann er eins konar talsmaður hópsins. Hann segist heita Þigurður Gunnarþon kallaður Þiggi og vera fjögurra ára. Hann lætur ekki smávegis smámæli aftra sér frá því að taka þátt í sam- ræðum, enda vísast að hann yfirvinni það fljótlega. Já það er meira gaman að eiga heima á Sauðárkróki en á Akur- eyri. Enginn hafði minnst á að við kæmum frá Akureyri en krakkarnir eru glöggir, sjá númerið á bílnum. Við spyrjum þau að því hvort þeim sé eitt- hvað illa við aðkomumenn. Þau flissa og kveða nei, nei, hvert í kapp við annað. „Ég hef oft far- ið til Akureyrar," segir Siggi litli á sinn sérkennilega hátt. En af hverju er skemmtilegra að eiga heima á Sauðérkróki en á Akureýri? „Bara,“ er svarið en síðan nánari útlistun: „Af því að rennikofinn er.“ Rennikofinn er lítið skrítið hús á nokkuð háum stöplum. Þangað klifra börnin upp og renna sér síðan niður í rennibraut. Sniðugur kofi þessi renniko'fi. „Við rennum okkur og stökkvum," segja krakkarn- þau meiði sig aldrei og þau gefa lítið fyrir svoleiðis spurningu. „Við erum hörð,“ segir strák- hnokki litlu eldri en hann Siggi. En hvað gera þau á veturna? Þá eru þau að sjálfsögðu í skólanum, þau sem hafa aldur til. „Svo erum við í snjókasti og svo renni ég mér líka á veturna,“ segir talsmaðurinn litli. Við kveðjum þessa hressu krakka sem heldur vilja vera Krókarar en Akureyringar vegna þess að það er rennikofi á Sauðárkróki. Siggi litli kveður okkur með því að snúa hlutverkinu við. Hann spyr okkur: „Vitiði hvað pabbi og mamma sáu í Reykja- vík?“ Nennir ekki bíða eftir svarinu sem lætur á sér standa og svarar því sjálfur: „Kóka- kólavél.“ Við spyrjum fávíslega hvort Krakkarnir á Sauðárkróki. Siggi litii er lengst til hægri. Mynd: gk.- 3: september 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.