Dagur - 03.09.1982, Síða 8
Ungur 11 ára strákur frá Ak-
ureyri hefur vakið verðskuld-
aða athygli golfáhugamanna í
sumar. Hann heitir Kristján
Gylfason og nú síðast vann
hann sér það til ágætis að sigra
í unglingaflokki á Norður-
landsmótinu í golfí sem haldið
var á Ólafsfírði um síðustu
helgi. Sigraði hann þar tals-
vert eldri pilta bæði í keppni
með og án forgjafar. Þá varð
hann einnig í fyrsta sæti í
opna KEA-mótinu á Ólafs-
firði fyrr í sumar, bæði með og
án forgjafar. Hann tók einnig
þátt í opna Húsavíkurmótinu
„gekk vel fyrri daginn“ en
sprakk svo þann seinni, „spil-
aði bara illa“ eins og hann seg-
ir sjálfur frá.
af kappi á Akureyri og eins eldri
bróðir hans, Ólafur, sem einnig
hefur staðið sig með ágætum.
Enginn í Golfklúbbi Akureyrar
hefur lækkað sig meira í forgjöf
— seglr Krístján Gylfason
sem vakið hefur mikla
athygli íyrir frammistöðu
sína á golftnótum í sumar
Byrjaði 1980
Kristján hefur ekki spilað golf
lengi, enda ekki von þar sem
aldurinn er ekki hár. „Ég byrj-
aði að spila á fullu árið 1980 þeg-
ar ég vann á golfvellinum á Nes-
inu. Þar vann ég við að slá og
ýmislegt annað, en gat stundað
golfið talsvert. Ég byrjaði að
læra golf í hitteðfyrra og fór þá
nokkrum sinnum. Pabbi kenndi Kristján Gylfason með verðlaunagripi sumarsins.
mér undirstöðuatriðin,“ segir
Kristján. Foreldrar hans, Gylfi á þessu ári en Ólafur, eða úr 23 __________________________________
Kristjánsson og Bima Blöndal, höggum í 13 högg. Golfáhugi er
fluttu til Akureyrar sl. sumar en mikill í fjölskyldunni og á mót- „Æfí á hverjuitl degi“ -
stráksi ekki fyrr en um haustið, um má sjá báða foreldranafylgj-
rétt áður en skólinn byrjaði, því ast með af áhuga og gefa ráð-
hann gat ekki með nokkru móti leggingar þegar hægt er. Við „Ég fer yfirleitt á hverjum
slepptvinnunniágolfvellinum.í spyrjum Kristján hversu oft degi. Það er misjafnt hversu
sumar hefur hann stundað golfið hann æfi: lengi ég er í hvert skipti en yfir-
leitt æfi ég minnst fimm tíma á
dag. Ég þarf kannski ekki að æfa
alveg svona stíft, en svolítið
mikið samt ef ég ætla að ná
árangri." Það er greinilegt að
áhuginn er ódrepandi og líklega
ekki margir sem stunda golf yfir
35 tíma á viku, þó margir vildu
sjáifsagt geta það. Það virðist
vera með golfið eins og laxinn,
þetta verður hvort tveggja að
óskiljanlegri áráttu í augum
þeirra sem ekki hafa ánetjast.
Og heyra þessa menn tala um
golf. Það er staðan og sveiflan og
högglengdin og siðareglurnar og
járnin og jafnvel staðsetning
litla puttans þegar slegið er. En
snúum okkur aftur að Kristjáni.
Hvernig hagar hann æfingun-
um?
„Lengst af spila ég bara, fer
svo og æfi mig á „gríninu" (þið
vitið, blettinum í kring um hol-
una sem allt snýst um) þar sem
ég slæ nokkra bolta og spila svo
áfram.“
„Hefur þú notið einhverra
leiðbeininga annarra en þeirra
sem pabbi þinn hefur gefið
þér?“
„Ýmsir segja mér til“
„Það eru ýmsir sem segja mér
til þegar ég er að spila eins og
t.d. Jón Þór Gunnarsson og
fleiri. Ef þeir sjá að ég er að gera
einhverja vitleysu þá segja þeir
mér til.“
En hvernig æfa golfarar sig á
veturna? Við spyrjum Kristján
hvort hann stundi það þá að
brjóta glös mömmu sinnar á
stofugólfinu. Hann neitar ekki
fyrir það að hafa slegið kúlur í
glös í stofunni til að æfa sig en
hafi hins vegar fljótt orðið leiður
á því. Nú stendur hins vegar til
að koma upp æfinganeti í golf-
skálanum í vetur svo menn geti
haldið sveiflunni við að sögn
Kristjáns. En hvar getur hann
helst bætt sig í íþróttinni?
„Ég er frekar höggstuttur en
tekst púttið hins vegar vel. Ég
vona að högglengdin aukist hjá
mér. Mér finnst stuttu vellirnir
yfirleitt skemmtilegri, sennilega
af því ég er svo höggstuttur.“
„Að lokum Kristján, er þetta
ekki dýrt sport?“
„Ætli nýtt heilt sett fyrir mig
kosti ekki svona 8 þúsund krón-
ur í dag. Ég er búinn að eiga eitt
sett áður en nota núna unglinga-
sett. Jú þetta er dýrt, en það er
alltaf hægt að selja gömlu settin
þegar maður þarf að endur-
nýja,“ segir Kristján. Hann má
ekki vera að þessu lengur því
hann þarf að fara með þessa tvo
farandbikara sem hann vann á
Norðurlandsmótinu til gull-
smiðs að láta grafa nafnið sitt á
þá og mamma einkabílstjóri
bíður úti í bíl.
H.Sv.
Óli litli fékk leyfi til að fara í kirkju
með afa sínum, en þar sem dreng-
urinn átti erfitt með að þegja lengi í
einu, var afinn órólegur yfir tilhugs-
uninni um hvernig sá stutti mundi
haga sér í messunni. Hann gaf Óla
þess vegna pening til að setja í
samskotabaukinn eftir messuna.
Hræðsla afans virtist óþörf til að
byrja með, en þegar presturinn var
búinn að tala í 20 mínútur, gat Óli
ekki meir og sagði með hárri röddu:
„Nei, afi, nú borgum við bara og för-
um heim ...!“
'b'k'k
Emil kom til prestsins og sagði hon-
um að nú ætti hann von á enn einu
barni. Presturinn sá á bókum sínum
að þetta yrði 11. barn Emils og fór
eitthvað að ræða um það. En Emil
sagði honum þá að hann hefði ekki
tærnar þar sem bróðir sinn hefði
hælana-hannætti 16börn. Prestur
varð heldur en ekki undrandi og
spurði:
- Með sömu konunni?
Emil svaraði með feimnislegu brosi:
- Ja, nei prestur minn, við höfum
hvor okkar sína konuna...
Ungi presturinn átti að skíra barn og
var það fyrsta skírnarathöfnin hans.
Foreldrarnir voru hjá honum í viðtali.
Hann reyndi að sýnast áhugasamur
um barnið og spurði hversu gamalt
þaðværi.
„10 vikna," sagði móðirin stolt.
Þá sagði presturinn og virtist fullur
áhuga:
„Og er þetta þitt yngsta barn?“
Presturinn spurði söfnuð sinn, í kirkj-
unni, hvort þau gætu ekki gefið pen-
inga til nýrrar kirkjubyggingar. Þá
stóð gleðikona bæjarins upp og
sagði:
„Ég vildi gjarna gefa 50.000 krónur."
„Ég get því miður ekki tekið pening-
um þínum, - kirkjan getur ekki tekið
við peningum, sem græðast á þenn-
an hátt.“
Þá heyrðist mannsrödd segja aftan úr
kirkjunni:
„O, taktu bara við þessu, prestur
minn. Þeir koma frá okkur öllum.“
☆ ☆☆
Prestur nokkur var kærður fyrir það
að ferðast um á reiðhjólinu sínu, án
þess að hafa hendur við stýri við akst-
urinn.
„Sektin verður þúsund krónur,“ sagði
dómarinn valdsmannslega.
„Já, en góði dómari, hjá mér er drott-
inn við stýrið," sagði prestur sér til
varnar.
„Ahha! Tveir á sama hjóli! Þá verður
sektin tvö þúsund!“
☆ -& ☆
Kirkjur eru yfirleitt mjög traustar bygg-
ingar, að minnsta kosti erlendis. Þess
vegna eru þær líka hugsaðar sem
griðastaður í stríði og náttúruhamför-
um. Öryggisvörður var að kanna
slíka staði og spurði prestinn:
„Hvað margir geta sofið hér í einu?“
„Ég veit það nú ekki fyrir víst,“ svar-
aði prestur, „þegar gera má ráð fyrir
að allir kjósi að liggja. En á hverjum
sunnudegi sitja að minnsta kosti 400
manns hér inni og sofa.“
☆ ☆☆
Gamla konan situr við hliðina á bisk-
upi í almenningsvagninum. Húnspyr:
„Ert þú kennari?"
„Nei, en ég var það nú einu sinni."
Hún hugsar sig um andartak og segir
svo:
„Ertu kannski prestur?"
„Nei, en ég var það einu sinni.“
„Prófastur þá?“
„Nei, en það hef ég líka verið.“
„Já, já,“ andvarparkonan, „þettavín,
þetta ólukkans vín.“
☆ ☆ ☆
Hinn hæverski sálnahirðir hafði aldrei
vogað sér neitt slíkt áður, en í þetta
skipti hafði hann ekki stjórn á sér.
Hann hætti í miðri predikun, steig
niður af stólnum, gekk beinustu leið
að manni á þriðja bekk og hristi hann
til.
- Þér verðið að reyna að hætta þess-
um hrotum, Ólafur, annars vekið þér
allan söfnuðinn ...
Gamli sveitapresturinn var orðinn
ósköp seinmæltur og ræður hans
vildu dragast mjög á langinn. Einn
sunnudag var hann óvenjulega lang-
orður. Þegar prestur gerði smáhlé á
ræðu sinni til að súpa af vatnsglasi
heyrðist hvíslað í miðri kirkju:
- Mamma. Er ennþá sunnudagur?
☆ ☆☆
Símon hafði fengið samviskubit og
fór til prestsins til að skrifta fyrir, að
hann hefði haft mök við gifta konu í
hreppnum. Presturinn tók honum
vel en þegar Símon hafði sagt hon-
um frá hrösun sinni, vildi presturvita
hver konan væri, sem Símon hafði
verið í þingum við. Presturinn
reyndi að koma honum til og spurði:
- Er það hún Marta í Fitjakoti?
- Nei.
- Er það hún María á Hvoli?
- Nei.
Loks varð prestur gramur og sagði
Símoni að fara út. Og Símon fór.
Félagi hans sem hafði fylgt honum
til prestsins beið eftir honum og
spurði hvernig erindið hefði gengið:
- Fékkstu syndafyrirgefningu?
- Nei, ekki fékk ég nú það, svaraði
S ímon, - en ég fékk nokkur ný nöfn,
sem ég ætla að reyna við... I
=Brandarar=
'6 - ÐAGÚR - 3- septémtýén 1 ©852