Dagur - 03.09.1982, Qupperneq 12
-------BAUTINN - SMIÐJAN auglýsa-----
Bautinn er opinn alla daga til kl. 22.00.
Smiðjan eropin alla daga íhádeginu ogfrá
kl. 18.30. Sigfús Halldórsson, listamaður,
skemmtir í Smiðju 9.-12. september.
tJr
sömhun
Degi
1956
Héraðshæli A-Húnvetninga
18. janúar. Héraðshæli Austur-Húnvetninga á Blöndu
ósi var tekið í notkun milli jóla og nýjárs. Þar er rúm fyrir
31. sjúkling og 26 vistmenn. Kostnaðaráætlunin er 5,4
milljónir króna.
Stórfellt tjón af völdum fárviðris
4. febrúar. Á miðvikudagskvöldið varð eitt stórkostleg-
asta fárviðri um allt land sem um getur. Samkvæmt frótt-
um viðsvegar að af landinu hefur ofsaveður þetta valdið
stórfelldu tjóni um iand allt. Húsþök hafa fokið, bátar
sokkið og heyskaðar orðið miklir.
Illhveli á Akureyrarpolli
29. febrúar. Fyrir nokkrum dögum varð vart við tvo há-
hyrninga skammt úti á Eyjafirði og mun þar hafa verið
skotið á annan þeirra úr haglabyssu. Síðan komu háhyrn-
ingamir inn á Akureyrarpoll og svömluðu fram og aftur.
Páll A. Pálsson, hvalaskytta, brá sér á flot en komst ekki i
færi.
íslenskt 16730 lesta skip
16. maí. Samband íslenskra samvinnufélaga og Olíufé-
lagið hf. hafa í sameiningu fest kaup á 16730 lesta olíu-
skipi, og er það fengið frá Noregi. Skipið heitir Mostank og
hefur að undanförnu verið í siglingum á Miðjarðarhafi.
Það sem þó er merkilegast við þessi kaup, er að hvorki er
um banka- eða ríkisábyrgð að ræða.
Bensín hækkar
25. maí. Bensínlítrinn hefur nú hækkað um 8 aura og
kostar því 2.16 krónur.
Kaupfélag Eyfirðinga 70 ára
21. júni. Aukin hagsæld og menning eyfirskra byggða á
rætur sinar að rekja til samvinnustefnunnar. Kaupfélag
Eyfirðinga er nú stærsta og öflugasta samvinnufélag á ís-
landi. Það telur yfir 24 félagsdeildir um Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslur (ein er vestan Öxnadalsheiðar). Félags-
menn em nú um 5000 og feræ fjölgandi.
Tvö timburhús brunnu
4. júlí. Nýlega kviknaði í tveim gömlum timburhúsum
hér á Akureyri. Ókunnugt er af hvaða orsökum eldur kom
upp í París, gömlu og stóru timburhúsi. Slökkviliðið kom
skjótt á vettvang og tókst að ráða við eldinn. Nokkrar
skemmdir urðu. Þá kom einnig upp eldur í Hafnarstræti
41, sem er timburhús. íbúar sluppu út nema einn, sem
slökkviliðsmenn sóttu inn í húsið og hresstist hann fljótt.
Nokkuð greiðlega gekk að ráða við eldinn.
Ný sundlaug
11. júlí. Þann 7. þessa mánaðar var ný sundlaug tekin i
gagnið á Akureyri. Kostar hún um 3 millj. króna en full-
nægir ströngustu kröfum um slíkar byggingar.
Of mikiö brennivín í einu
18. júlí. Maður nokkur í Danmörku veðjaði um það um
daginn, hvort hann gæti drukkið hálfflösku af brennivíni i
einum teig. Jú, þambið tókst og þar með var veðmálið
unnið, en maðurinn féll niður meðvitundarlaus og komst
aldrei aftur til meðvitundar. Hann var 56 ára.
Kaldbakur með tundurdufl
21. nóvember. í rökkurbyrjun á laugardaginn kom Kald-
bakur skyndilega af veiðum. Hafði togarinn fengið tund-
urdufl í vörpuna og var það komið inn á dekk fyrr en varði.
Lagðist togarinn skammt frá bryggju, en landhelgisgæsl-
an sendi sérfræðing hingað norður og var hann fluttur út í
skipið. Tókst að gera tundurduflið óvirkt.
LANCOME Snyrtivörur
__ | .--.—ÍL—nýsending
Snertur af gap
uxahætti hjá
Snnnlendingum* ‘
*
— segir Outtormur Oskarsson á Sauðárkróki
um steinullarverksmiðju í Porlákshöfn
„Það var mjög góð heyskapar-
tíð í júlí. Þá heyjuðu menn á 2-
3 vikum. Nokkrir voru búnir og
flestir langt komnir þegar tíð
spilltist í ágúst. Heyin eru mjög
góð en ekki mikil að vöxtum.“
Það er Guttormur Óskarsson,
fréttaritari Dags á Sauðárkróki
til langs tíma, sem hefur orðið
eftir að hafa verið inntur al-
mennra frétta frá Króknum.
Guttormur sagði að mikið hefði
verið unnið við undirbúning gatna
undir bundið slitlag í sumar og
ætlunin væri að leggja slitlagið í
haust. Þá hefði verið lagt svokall-
að Otta-dekk á götuna upp í
Hlíðahverfi, sem er nýtt og glæsi-
legt íbúðahverfi. Var það gert
utan áætlunar.
Guttormur sagði ennfremur að
nú væri unnið af fullum krafti við
að steypa upp nýbyggingu kaup-
félagsins við Artorg, en þar verða
aðalstöðvar félagsins, með versl-
anir og skrifstofur. Skrifstofur fé-
lagsins eru nú til húsa að Aðal-
götu 21 og þar hefur kaupfélagið
haft aðsetur síðan 1918 en húsin
eru frá því um aldamót. Áætlað er
að flytja í hina nýju byggingu fyrir
áramótin 1983-84 og verða það
mikil viðbrigði, að sögn Gutt-
orms.
Hann sagði að mikið væri byggt
á Sauðárkróki og mikið væri af
lóðaumsóknum. Steinullarmálið
væri í fullum gangi og hlutafjár-
söfnun hæfist um næstu mánaða-
mót. Hann tók þannig til orða að
það sem Sunnlendingar væru að
gera í sínum steinullarmálum væri
„snertur af gapuxahætti hjá þeim
blessuðum.“
Togararnir hafa aflað sæmilega
en afli smærri báta hefur verið
tregur á grunnslóð. Fiskiðjan á
Sauðárkróki er að stækka fisk-
vinnsluhús sitt verulega.
Sauðfjárslátrun hefst á Krókn-
um um miðjan september. í ágúst
var slátrað 45 hrossum á Frakk-
landsmarkað og sagði Guttormur
að fyrir kjötið fengist 90% af
grundvallarverði, en það er flutt
ófrosið með flugvélum.
Guttormur Oskarsson.