Dagur - 17.09.1982, Blaðsíða 6

Dagur - 17.09.1982, Blaðsíða 6
iLFORD 6 - DAGUR -17. september 1982 inn tveir og ég ekki nema tíu ára gamall. Hann kenndi mér að setja hnén undir bátinn og við tókum hann á milli okkar upp og bárum upp í fjöruna. Mér fannst ákaf- lega gaman að vera með þessum gamla manni. Mér þótti ákaflega vænt um hann strax og að geta leiðbeint honum og leitt hann. Pegar hann kom í land var hann ekki iðjulaus. Lagði sig eftir veiði- ferðina, sem lauk venjulega um hádegi, en verkaði síðan fiskinn, saltaði, þurrkaði og herti. Hann vann auk þess ýmis störf önnur, svo sem að flétta reipi úr hross- hárum, við tóvinnu og fleiri." Sport að fá sauðskinnsskó „Nú er ekki sérlega langt um liðið síðan þetta var, en samt kynntist þú ævagömlum vinnuaðferðum. Varla hefur þú gengið á sauð- skinnsskóm?“ „Ja, ég átti nú sauðskinnsskó sem voru búnir til á bænum. Móð- ir mín bryddaði þá og gerði voða- lega fína. Petta þótti mjög fínt, en þeir voru hálir þegar komið var út á tún. Það var vont að ganga á þessu þar sem grýtt var, en á tún- inu var mjúkt og létt að ganga á þeim. Sauðskinnsskór voru nú ekki almennt notaðir á þessum tíma, því annars konar skótau var komið til sögunnar. Það þótti svolítið sport, sérstaklega fyrir svona rollinga, að fá sauðskinns- skó. En það var nú ekki ríkidæm- ið á þessum tíma. Það var reynt að nýta hlutina og fara vel með þá.“ „Hefur þessi vera þín á sveita- heimilinu haft einhver áhrif á þig til frambúðar? Ertu nýtinn og sparsamur?“ Já, ég er það og ég fer vel með hluti, þó ég segi sjálfur frá. Ég get átt sömu fötin og sömu skóna svo árum skiptir, án þess að sjáist á þeim. Það getur vel átt sér stað að þetta hafi síast inn í mig í æsku. Auk þess var enginn peningaauð- ur hjá foreldrum mínum og manni var sagt að fara vel með fötin sín, sérstaklega sunnudagafötin, en þá bjó maður sig upp á og fannst sunnudagarnir vera mikið öðru- vísi en aðrir dagar.“ Rafmagnsstaur á miðjum fótboltavellinum „Hvernig léku krakkar sér á þess- um árum á Svalbarðseyri?“ „Það var mikill knattspyrnu- og íþróttaáhugi. Yfirleitt komu íþróttakennarar á hverju ári, kenndu leikfimi og frjálsar íþrótt- ir. Haldnar voru leikfimisýningar og þótti talsverður viðburður, fullt hús af áhorfendum. íþrótta- iðkunin var með töluvert öðrum blæ en nú gerist, því þá var gamli ungmennafélagsandinn allsráð- andi. Menn unnu mikið í sjálf- boðavinnu bæði við mótshald og fleira. Nú það var farið út í það að „Það var mikið líf og fjör á Svalbarðseyri á árum áður, þegar ég var drengur. Þá var þar mikil síldarsöltun og á tíma- bili voru þar sjö bryggjur og saltað á bryggjunum. Eg man eftir þessari síldarsöltun frá því ég var smápolli. Þá vorum við ævinlcga upp um alla tunnu- stafla og étandi síld upp úr tunnunum sem búið var að verka. Ég var hins vegar það ungur að ég vann aldrei neitt við síldina en seinna meir kynntist ég hins vegar síldinni nokkuð, því eftir nám í íþrótta- kennaraskólanum fór ég á síld- arbáta í þrjú sumur og var þá á Eldey frá Hrísey og Blakknesi frá Patreksfirði.“ Það er Hauk- ur Berg Baldvinsson, sundlaug- arstjóri á Akureyri, sem er í helgarviðtalinu að þessu sinni, fæddur 1929 og uppalinn á Svalbarðseyri af foreldrum sín- um Bergvin Jóhannssyni, sem m.a. var farkennari, og konu hans Sumarrós Magnúsdóttur. „Svo fór ég í sveit og var á Breiðabóli, sem er rétt sunnan við Svalbarðseyri. Þar bjó Jóhannes Bcnediktsson og mér er dvölin þarna mjög minnisstæð vegna þess, að pabbi hans var orðinn aldraður og blindur og mitt aðal- starf var það að fara með gamla manninn á sjó allt sumarið. Eg var þarna 9 og 10 ára gamall. Þetta var árabátur og veitt á handfæri. Hann var svo seigur karlinn, fór ævinlega á fætur klukkan fjögur á morgnana og út til að gá eftir fugli. Ef hann sá fugl einhvers staðar ræsti hann mig í hvelli: „Það cr fugl, það er áta, það er fiskur undir.“ Þetta var ég við meirihlutann af sumrinu, að fara með honum á sjó.“ „Þú hefur þá róið honunt á miðin?“ „Hann réri líka og sagði til um öll mið, þó blindur væri. Hann sagði bara: Þú lætur þetta hús í landi bera við þetta hús og þá finnur þú hvar brúnin er og hvar ég vil vera. Ef eitthvað skeikaði fann hann það á færinu hversu djúpt var undir. Hann spurði mig þá hvort hlutina bæri alveg saman. Nei, svo var ekki, og þá var að færa sig. Hann þekkti þetta eins og handarbakið á sér." „Ekkert sjóveikur?“ „Nei, aldrei sjóveikur. Við vor- um aldrei á sjó nema gott veður væri og héldum okkur skammt frá Svalbarðseyri. Hann kom ævin- lega heim með fisk, þótt aðrir fengju ekkert. Hann hélt áfram og skók, þótt enginn fiskur kæmi á færið, þangað til fiskurinn kom undir. Svo hélt hann honum undir en ef það var straumur þá andæfði ég. Ef það var lítill fiskur nennti ég ekki alltaf að renna. Ég beið eftir því að fiskurinn kæmi undir hjá honum, þá renndi ég. Það kom fyrir að við kæmum með hálffullan bát. Nú, við settum bát- um uppvoxtmn a Svalbarðseyri, vegavinnu o.fi. gera knattspyrnuvöll. Við notuð- um bara eyrina því þá var ekki búið að byggja á henni. Knatt- spyrnuvöllurinn var þar sem nú er búið að malbika, framan við kaupfélagið. Þetta var fullkominn völlur og þangað komu meira að karamellur, en hin kallaði í okkur og gaf okkur kökur. Alltaf var þetta nú endurtekið fyrir það. Vinsælt prakkarastrik var að festa öngul í gluggakarm sem í var festur hörtvinni, 50 til 100 metra langur. Svo var olía sett í tusku og segja Akureyringar til að spila. Þetta var malarvöllur en eitt var svolítið sérstakt við hann, því það var rafmagnsstaur á miðjum vell- inum. En það var ekkert fengist um það. Hann var ýmist með eða móti mönnum, eftir því hvort boltinn lenti í hann eða ekki. Þessi staur var ekki á vellinum til að byrja með, ekki fyrr en raf- magnið kom.“ Prakkarastrik á Svalbarðseyri „Manstu ekki eftir einhverjum bernskubrekum og óknyttum frá þessum árum?“ „Ekki get ég nú sagt beint að ég hafi staðið í óknyttum, en maður var til í svona hrekkjabrögð og prakkarastrik. Það voru nú sér- staklega tvær frúr á Svalbarðseyri sem við lögðum okkur sérstaklega eftir að hrekkja. Þær æstu sig svo- lítið mikið upp og það æsti okkur, en svo endaði það venjulega með því að önnur, sem var kaup- maður, kallaði á okkur, bað okk- ur að hætta þessu og gaf okkur henni strokið eftir þræðinum og þá hvein og söng í öllu húsinu. Sérstaklega var gaman að fylgjast með því þegar fólk var að læðast fyrir húshornið og ætlaði að góma okkur, en við vorum hvergi nærri því hörtvinninn var hafður svo langur. Það gerði þetta mest spennandi. Stundum fengum við nú ákúrur, jafnvel næsta dag, og fyrir kom að einhver var hýddur. Þetta var nú lítið pláss og nokk vitað hverjir voru að verki. Hins vegar gerðist það iðulega á gamlárskvöld, reyndar fyrir mína tíð, að bæirnir voru bundnir aftur svo fólk komst ekki út.“ „Skólaganga á þessum árum?“ „Ég fór fyrst í unglingaskóla á Svalbarðseyri en síðan í gagn- fræðaskóla til Norðfjarðar, en systir mín var þá búsett þar. Þar var ég í tvo vetur og seinna sumar- ið vann ég við að mála fyrstu verkamannabústaðina sem þar voru reistir. Við vorum þarna tveir strákar, ég og Hreinn Stef- ánsson, sem síðar lagði fyrir sig iðnina, en sá sem réð okkur hét Magnús. Hann kenndi okkur meira að segja að eikarmála og hvaðeina, með kömbum og druslum, sem kallað var oðra. Svo má segja að Stefán Þorleifsson, sem nú er forstöðumaður sjúkra- hússins í Neskaupstað, hafi orðið nokkur örlagavaldur, því hann kenndi þarna íþróttir og hvatti mig til að fara í íþróttakennara- skólann, enda hafði ég mjög gam- an af leikfimi og íþróttum. Akureyrarveikin stöðvaði kennsluna Ég var svo ráðinn til íþróttakenn- arastarfa hjá UMSE en lítið varð úr því starfi, því þetta var á þeim árum þegar Akureyrarveikin svokallaða herjaði, lömunarveik- in margumtalaða. Þá lagðist eig- inlega allt niður, allt skemmtana- hald og allar samkomur voru bannaðar vegna smithættu. Ekk- ert varð því úr kennslu en ég fór vestur á ísafjörð á skíðaskóla. Þetta var 1949 og þarna voru ýms- ir sem síðar gerðu garðinn frægan, eins og Karólína Guð- mundsdóttir, Oddur Pétursson og Gunnar Pétursson. Meiningin var að ná sér í réttindi sem skíða- kennari, en það fór miklu verr en á horfðist, því ég lenti á hliði í keppni og sleit allt sem slitnað gat í ökklanum. Fæturnir voru festir við skíðin með ól og ekkert gat gefið eftir nema fóturinn. Ég átti í þessu í mörg ár. Út úr þessu keypti ég mér vöru- bíl og komst í vegavinnu, fastur maður allt sumarið, og við það starfaði ég stanslaust í 12 ár. Á veturna gerði ég mest lítið, því ég hafði það svo gott yfir sumartím- ann í vegavinnunni. Ég fór jú á vertíð í Vestmannaeyjum, mest til að gera eitthvað." Keypti mér „rúturass“ „Lentirðu aldrei í neinum óhöpp- um í vegavinnunni?“ „Ég velti aldrei bíl, en ég var eitt sinn nærri búinn að drepa alla sem með mér voru í bílnum og ég hef reyndar aldrei sagt neinum frá því. Það var þannig að ég hafði „boddý“ sem kallað var á bílpall- inum og keyrði menn úr og í vinnuna um helgar. Það voru einir 12 í bílnum og ég var að koma að gömlu Fnjóskárbrúnni í Dals- mynni. Lenti í lausamöl og engu mátti muna að bíliinn færi ofan í gljúfrið. Ég nötraði allur og skalf á eftir: En ég hélt áfram fólks- flutningum með þessum hætti og keypti mér síðar „rúturass", eins og það var kallað manna á meðal, en það var afturendi á rútu með fjórum sætaröðum, bólstruðum sætum og fínt. Þetta hafði ég á vörubílspallinum og flutti þannig starfsfélagana." „Skemmtanir á þessum árum?“ „Það var mikið um böll, skemmtanir og leiksýningar og ég tók þátt í nokkrum slíkum. A Svalbarðseyri voru oft sýnd stór verk og fólk kom jafnvel á bátum frá Akureyri til að sjá leiksýning- arnar. Stundum var meira að segja svo að það þurfti að sýna tvisvar sama kvöldið, því svo. margir komu innan að á bátum. Ég tók reyndar ekki þátt í þeim sýningum, því ég var svo ungur þá. Dansleikir voru nokkuð oft haldnir og þá lék undir dansi venjulega einn maður á harmo- nikku. Kalli í Krossanesi spilaði oft fyrir dansi og Lýður Sigtryggs- son. Almennt sást ekki vín á fólki •og hreint ekki á kvenfólki. Það voru hins vegar alltaf nokkrir menn, venjulegast sömu menn- irnir, sem komu þarna fullir og í þeim eina tilgangi að stofna til slagsmála. Ég held að hvert ein- asta ball hafi endað með slagsmál- um.“ Kynntist konunni á öfugum hring „Þú hefur kannski nælt í konuna þína á einhverju svona balli?“ „Nei, ég fór til Vestmannaeyja á vertíð eins og ég gat um áðan og þá náði ég í hana. Hún heitir Unn- ur Gísladóttir og það var nú svo- lítið skrýtin saga hvernig það atvikaðist. Ég var á vertíð með systursyni mínum og við vorum ævinlega á rúntinum eftir róðra, eins og aðrir. Fólk gekk þarna hring eftir hring og þar var aðal- fjörið. Við vorum svolítið seint fyrir eitt kvöldið og aldrei þessu vant fáir á rúntinum, virtust allir farnir heim. Við löbbuðum einn hring, sáum engan svo ég lagði til að við löbbuðum öfugan hring, aftur til baka. Við snerum við og sáum fljótlega tvær dömur, renndum okkur upp að þeim og fórum að spjalla við þær, kaldir karlar. Við gengum með þeim nokkra hringi og þetta endaði með því að við fylgdum þeim heim sitt í hvoru lagi. Ég eins og góður og gegn maður tók bara í hendina á minni og sagðist vonast til að sjá hana fljótt aftur. Til að gera langa sögu stutta, þá endaði þetta með því að ég nældi mér í konu. Má því kannski segja að ég hafi hitt konuna mína á öfugum hring. Við bjuggum svo á Sval- barðseyri frá 1953 til 1960 er við fluttum til Akureyrar. Það var svo 1965 sem auglýst var eftir sund- laugarstjóra. Ég sótti um og fékk og þar hef ég starfað síðan. Þar hefur mér líkað vel. Gaman að umgangast unglingana og maður kynnist fjölmörgum. Föst- um gestum kynnist maður náttúr- lega mest og þeir eru margir mínir bestu vinir. Þeir eiga hvert bein í manni og maður hvert bein í þeim. Þeir eiga sína staði í húsinu, sínar sturtur og sína klefa. Móðg- ast ef lyklarnir þeirra eru ekki á snaganum þegar þeir koma, það verður að passa upp á það. Opnunartíminn færðist sífellt fram Það hefur oftast verið þröngt í sundlauginni á morgnana og það varð til þess að ég fór að mæta hálftíma fyrir opnun, klukkan hálf átta. Það leiddi hins vegar til þess að fastagestirnir fóru líka að mæta hálf átta og samkomulag var gert við starfsfólkið um að hleypa þeim inn. Mér fannst ég þurfa að mæta nokkru fyrr en gestirnir svo ég fór að mæta klukkan sjö, en sama áagan endurtók sig og þann- ig þróaðist það að sundlaug Akur- eyrar er opnuð klukkan sjö á morgnana og stundum bíða menn fyrir utan eftir að komast inn. Nú reyni ég að passa mig á að koma ekki klukkan hálf sjö, en oft er starfsfólkið lipurt og opnar jafn- vel fyrir klukkan sjö.“ „Hefur þú tamið þér eða til- einkað þér einhvern sérstakan lífsmáta á lífsleiðinni?“ „Ég hef alltaf reynt að taka nokkurt mið af því sem Tryggvi Þorsteinsson, skólastjóri, hafði að eins konar máltæki, en það er að nauðsynlegt sé að gera að gamni sínu og prakkarastrik alltaf annað slagið, en alltaf í góðu.“ Texti: H.Sv. Myndir: KGA 17. september 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.