Dagur - 21.09.1982, Side 1
GULLKEÐJUR
8 K. OG 14 K.
ALLAR LENGDIR
VERÐ FRÁ
KR. 234.00
GULLSMIDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
v,:
1
j
1
}g&r
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 21. september 1982
103. tölublað
2ja ára
drengur í
árekstri
Talsvert annríki var hjá lög-
reglunni á Akureyri um helg-
ina, og urðu t.d. 5 árekstrar á
föstudag. Allir voru þeir þó
minniháttar og ekkert um
meiðsli á fólki.
Á laugardag tók 2 ára drengur
sig til og startaði bíl í gang við
Strandgötu með þeim afleiðing-
um að bifreið hans ók á aðra og
skemmdi eitthvað. Pann sama
dag valt bifreið við Klettaborg án
þess að nokkur slasaðist.
Þrír ökumenn voru teknir grun-
aðir um ölvun við akstur á Akur-
eyri um helgina, og eitthvað var
um minniháttar afbrot s.s. rúðu-
brot og fleira í þeim dúr.
íbúðaverð
hækkarmeira
á Akureyri
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Dagur hefur undir hönd-
um hefur íbúðaverð á Akureyrí
hækkað meira á þessu ári en í
Reykjavík.
Hækkunin frá síðasta ársfjórð-
ungi á sl. ári til fyrsta ársfjórðungs
á þessu ári varð um 30% á Akur-
eyri en um 20% í Reykjavík. Síð-
an í maí hefur íbúðaverð svo til
staðið í stað í Reykjavík, en hefur
hækkað talsvert á Ákureyri.
Sjá nánar á bls. 3.
Atvinnu-
leysis-
skráning
bréfi frá Vinnumiðlunarskrif-
stofunni dags. 7. september sl.
kemurfram að31. ágúst sl. hafi34
verið skráðir atvinnulausir á Ak-
ureyri, 20 konur og 14 karlar.
í ágúst voru skráðir 830 heilir
atvinnuleysisdagar, sem svarar til
þess að 38 hafi verið atvinnulausir
allan mánuðinn. Gefinn voru út
106 atvinnuleysisbótavottorð
með samtals 737 heilum bótadöe-
um.
r
Utvegsmannafélag Norður-
lands frestaði ákvörðun
Útvegsmannafélag Norður-
Iands frestaði aftur á fundi sín-
um í gærkvöldi að taka
ákvörðun um áframhaldandi
stöðvun flotans. Fyrsti fundur
félagsins var eins og áður sagði í
gærkvöldi og enn var frestað
ákvarðanatöku til miðviku-
dagskvölds, en þá verður annar
fundur.
Að sögn Sverris Leóssonar,
formanns Útvegsmannafélags
Norðurlands, var staðan rædd
ítarlega á fundinum í gærkvöldi.
Málið væri á viðkvæmu stigi þessa
stundina og því var ákveðið að
fresta fundinum, en menn gera
sér vonir um að samkomulag
muni takast um miðja vikuna.
í samtölum við Sverri og
Bjarna Aðalgeirsson, bæjarstjóra
og stjórnarmann í útgerðarfélag-
inu Höfða á Húsavík, kom fram
að Húsvíkingar muni ekki taka
ákvörðun um að senda skip sín á
veiðar fyrr en eftir þennan mið-
vikudagsfund. Að öðru leyti
vörðust þeir frétta af gangi mála.
„Það stendur til að Stakfellið
fari út,“ sagði Gunnar Hilmars-
son, sveitarstjóri á Raufarhöfn í
samtali við blaðið í morgun. Út-
gerðarráð Ú.N.Þ. átti að koma
saman á fund um það leyti sem
Dagur fór í prentun, en Gunnar
sagði að þar yrði endanlega
ákveðið hvenær skipið færi út.
Gunnar sagðist ekki vita betur en
Sauðkrækingar og Húsvíkingar
ætluðu að senda sín skip út á
fimmtudaginn.
%
Þannig leit Oddeyrargatan út i gær.
Um helgina var málað yfir nokkur
skiltanna, en íbúarnir máluðu þau
upp á nýtt. Mynd: KGA.
íbúar við Oddeyrargötu mótmæla:
rþig
íbúar Oddeyrargötu létu held-
ur betur hendur standa fram úr
ermum sl. föstudag, en þá út-
bjuggu þeir skilti með ýmiss-
konar áletrunum og settu í
garða sína. ,
Á skiltunum eru
áletranir eins og „Elías sér
þig“, „Gætu verið radarmæl-
ingar“, „Þetta er íbúðargata en
ekki hraðbraut“ og „Minni
hraði meira öryggi“. Með
þessu vildu íbúarnir mótmæla
þeirri ákvörðun umferðar-
nefndar að gera ekkert til að
draga úr umferðarhraða í
Oddeyrargötu. Einnig vildu
íbúarnir að aðrír bæjarbúar
færu að huga meira að umferð-
armálum á Akureyri, en þeir
telja að umferðarhraði sé alitof
mikill á götum bæjaríns.
„Að sögn umferðarnefndar er
ástandið svo slæmt víða í bænum
að hún taldi sig ekki í stakk búna
að taka fyrir eina götu og gera úr-
bætur í þá átt að draga úr umferð-
arhraða," sagði Helga Frímanns-
dóttir, sem býr við Oddeyrargötu.
„Þetta er gamalt baráttumál og ég
vil minna á að bæði fyrrv. bæjar-
stjórn og skipulagsnefnd sam-
þykktu að láta draga úr umferðar-
hraðanum. Og fyrst ástandið er
svona slæmt víða í bænum vildum
við gjarnan að íbúar bæjarins
tækju höndum saman og héldu
t.d. ráðstefnu um umferðarmál
Akureyrar. Ég vil líka minna á að
Gunnar Jóhannesson, verkfræð-
ingur, hefur gert ýmsar ágætar til-
lögur til úrbóta, en þeim hefur nú
öllum verið stungið undir stól.“
Elías I. Elíasson, bæjarfógeti
og formaður umferðarnefndar,
sagði að nefndin hefði beitt sér
fyrir því á sínum tíma að banna
umferð úr Brekkugötu upp í
Oddeyrargötu. Hann sagði einnig
að umferð um Oddeyrargötuna
væri ekki hraðari en um aðrar göt-
ur bæjarins og að á þessu stigi
málsins væri ekki ráðgert að ráð-
ast í frekari framkvæmdir.
Deila um upprekstrarrétt
Bændur í nyrðri hluta Fnjóskadals, sem eiga upprekstrarrétt á
Flateyjardalsheiði, telja að bændur á sex bæjum í Grýtubakka-
hreppi hafl ekki heimild til að beita fé sínu á heiðina. Að sögn Þór-
ólfs Guðnasonar í Lundi í Fnjóskadal var umræddum bændum í
Grýtubakkahreppi tilkynnt um þetta með bréfi í vor, en þá tókst
ekki að ná samningum og því fer þessi deila fyrir sýslunefnd.
Að sögn Þórólfs er Flateyjardalsheiðin ofbeitt, en talið er að hún
yrði hæfilega beitt ef fé bændanna í Grýtubakkahreppi gengi ekki
á heiðina.
„Þarna er um það að ræða að véfengja, teljum a.m.k. að hann
þessir menn í Höfðahverfi hafa sé lítill miðað við þann fjárfjölda
rekið alllengi á heiðina og telja sig sem um er að ræða,“ sagði Þórólf-
hafa hefðarrétt. Þetta viijum við ur. „Það eru sex bæir í Höfða-
hverfi sem reka á heiðina og eru
þeir allir norðan Fnjóskár og að
okkar áliti utan marka okkar
fjallskiladeildar. Við sjáum ekki
að nokkursstaðar sé stafur fyrir
því að deildarmörk hafi náð
norður fyrir þessa bæi. Þessu mót-
mæla bændurnir og telja að þeir
hafi unnið sig inn í deiídina fyrir
hefðar sakir."
Þórólfur sagði að skv. beitar-
þolsrannsóknum og ítölumati sé
mun fleira fé á heiðinni en hún
þolir. Ef sýslunefnd kæmist t.d.
að þeirri niðurstöðu að bændurnir
hefðu ekki rétt til að nota Flateyj-
ardalsheiði gætu þeir áfrýjað
þeim úrskurði til dómstóla.
„Já, þeir smöluðu heiðina, en
gerðu það upp á sitt eindæmi. Það
voru ekki lagðar á þá göngur af
okkar hálfu. Það er ekki búið að
senda greinargerðir til sýslu-
nefndar um málið, en við leituð-
um sl. vor eftir samningum við
bændurna um að það yrði dregið
úr upprekstri, það var ekki ætlun-
in að útiloka þá, en við fengum
ekki neinar undirtektir um nokk-
urskonar samninga svo við tókum
til þeirra ráða að banna þeim upp-
rekstur en það var aðeins vegna
þess að það var ekki um neina
samninga að gera.“
Stefán Þórðarson, sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps vildi ekki tjá
sig neitt um málið þegar Dagur
leitaði til hans í gær.