Dagur - 21.09.1982, Blaðsíða 11
Samkeppni um
nöfn á flugvélar
Flugleiða
Flugleiöir efna nú til samkeppni
meðal starfsmanna sinna og alls
almennings um nöfn eða nafna-
röð á flugvélar félagsins. Frestur
til að skila tillögum rennur út 31.
október. Tillaga sem dómnefnd
velur hlýtur glæsileg verðlaun.
Fram til þessa hafa flugvélar
Flugleiða ekki borið skírnarnöfn
en það gerðu vélar Flugfélags ís-
lands og Loftleiða áður fyrr. Nú
er ætlunin að skíra flugflota Flug-
ieiða og því ákveðið að efna til
samkeppni um heppileg nöfn.
Flugleiðir eru með 8-10 vélar í
notkun að jafnaði og síðan verður
hver farkostur sem bætist í hópinn
skírður með viðhöfn.
Allar tillögur eru vel þegnar og
hver einstaklingur má senda eins
margar tillögur og hann vili. Allar
tillögur verða iagðar fyrir sérstaka
dómnefnd, en hana skipa: Leifur
Magnússon, Björn Theodórsson
og Ólafur Stephensen. Dóm-
nefndin mun ljúka störfum ekki
síðar en 15. janúar næstkomandi.
Tillaga valin af dómnefnd verður
verðlaunuð með sérstöku heið-
ursskjali, ferð fyrir tvo til Puerto
Rico í boði Flugleiða og auk þess
gullpenna Flugleiða.
Tillögur að nöfnum sendist
fyrir 31. október á vélrituðu blaði
í lokuðu umsiagi merktu:
Nafngjöf
Flugleiðir hf.
Reykjavík
v/Sæmundur Guðvinsson,
fréttafulltrúi.
Nafn sendanda og heimilisfang
þarf að koma greinilega fram á
blaðinu og umslaginu.
, Bokaklúbbur AB:
Islenskar
smásögur
— Ritstjóri Kristján Karlsson
Ut er komið hjá Bókaklúbbi
Almenna bókafélagsins 2.
bindi Islenskra smásagna undir
ritstjórn og í allri umsjá Krist-
jáns Karlssonar. Fyrsta bindi
smásagnanna kom út snemma á
þessu ári.
í þessu öðru bindi smásagn-
anna eru sögur eftir höfunda sem
byrjuðu að birta slíkt efni á tíma-
bilinu um 1920-1945. Þessar sög-
ur eru í bindinu: Þórir Bergsson:
Lögreglan
tók
eimingartæki
Akureyringur nokkur fékk heim-
sókn lögreglu um helgina, og var
erindi lögreglunnar að sækja til
mannsins eimingartæki sem frést
hafði að hann hefði undir
höndum.
Það stóð heima, og voru þetta
60 lítra eimingartæki. Einnig
fundust 6 lítrar af eimuðu áfengi
og eitthvað talsvert að áfengi sem
átti eftir að fara í gegn um eiming-
artækin.
Sigga Gunna, Jakob Thoraren-
sen: Bréfi svarað, Davíð Þor-
valdsson: Skóarinn iitli, Guð-
mundur G. Hagalín: Guð og
lukkan, Indriði Indriðason: Um
tvennt að velja, Kristmann
Guðmundsson: Sumarnótt á
Bláskógaströnd, Hjörtur Hall-
dórsson: Friðsamleg þróun, Hall-
dór Stefánsson: Hégómi, Kristján
Albertsson: Marcel vegabóndi,
Þórunn Elfa: Er Jósefína búin að
ráða sig? Sigurður Helgason:
Samúð, Stanley Melax: Grafarinn
í Lýsufirði, Sigurður Róbertsson:
Skuldaskil, Guðmundur Daníels-
son: Faðir og sonur, Steindór Sig-
urðsson: Laun dyggðarinnar,
Ólafur Jóhann Sigurðsson: Snjór
í apríl, Halldór Laxness: Kórvilla
á Vestfjörðum.
Kristján Karlsson ritar formála
um íslenska smásagnagerð og er
hann framhald af formála hans
fyrir fyrsta bindi. Og enn mun
framhald þessarar ritgerðar birt-
ast í næsta bindi smásagnanna.
í lok bindisins er höfundatal
með upplýsingum um höfunda
bindisins og smásagnritun þeirra.
íslenskar smásögur 2. bindi er
344 bls. Hún er unnin í Prent-
smiðjunni Odda.
Dr. Kristján
Eldjárn
látinn
Við áttum lampa,
hans Ijós var styrkur.
Þá var óttinn fjarri
og aldrei myrkur.
Ogþví varlífíð
ílampans skini
eins og gisting
hjágóðum vini.
Nú erlampinn brotinn
og loginn dáinn.
Við störum orðvana
útíbláinn.
K.f.D.
Sambandið í fiskirækt!
Fyrr á þessu ári gerðist Sam-
bandið hluthaf! í fyrirtæki sem
nefnist Fljót hf. og hefur það að
markmiði að reka hafbeitar-
stöð á vatnasvæði Flókadaisár í
Fljótum í Skagafirði.
Axel Gíslason frkvstj., sem
unnið hefur að þessum málum af
hálfu Sambandsins og á sæti í
stjórn fyrirtækisins, sagði að
þarna hefði það verið á ferðinni
að nokkrir aðilar hefðu haft það
sameiginlega áhugamál að reyna
að gera alvarlega tilraun til að
komast að raun um það hvaða
framtíð þessi búgrein ætti fyrir sér
hér á landi, og því hefði Sam-
bandið ákveðið að ganga til þessa
samstarfs. Eignarhlutar í fyrir-
tækinu eru þannig að Sambandið
á 35%, Kf. Skagfirðinga á 15%,
Veiðifélagið Flóki, sem saman-
stendur af heimamönnum, á
25%, Guðmundur Jónsson kaup-
maður í Byggingavöruverslun
Kópavogs á 15% og Teitur Arn-
laugsson fiskifræðingur á 10%.
Þeir Guðmundur og Teitur eru
auk þess eigendur nýrrar klak-
stöðvar að Reykjarhóli í Fljótum,
en Guðmundur er stjórnarfor-
maður í Fljótum hf.
Axel sagði einnig að nú í sumar
hefði verið sleppt 65 þúsund sjó-
gönguseiðum, sem áður höfðu
verið alin og fóðruð í kvíum.
Hlutafé fyrirtækisins er ein
milljón króna, og kostnaður-
inn við þessa framkvæmd var
mjög nálægt þeirri upphæð.
Til sölu á Grenivík
100 fm nýtt einbýlishús. Byggingaleyfi og teikningar
fyrir 45 fm eða 90 fm stækkun. Upplýsingar í síma
33201.
Bifreiðastjóri
Vantar bifreiðastjóra. Þarf að geta byrjað strax.
Sana hf., Akureyri.
Forstöðumaður
Kaupfélag Skagfirðinga óskar eftir að ráða for-
stöðumann að bifreiða- og vélaverkstæði sínu
á Sauðárkróki.
Góð menntun og starfsreynsla áskilin. Umsókn-
arfrestur er til 4. okt. nk. Skriflegar umsóknir, er
greini menntun og fyrri störf, sendist kaupfélags-
stjóra er gefur nánari upplýsingar í síma 95-5200.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÖSI - VARMAHLÍÐ - FLJÓTUM
Framundan er svo að bíða og sjá
hvernig endurheimturnar verða.
Gera má ráð fyrir að eitthvað af
laxinum skili sér strax næsta
sumar, en aðalheimturnar verða
þó væntanlega að tveimur árum
liðnum.
d t
schoo! of fme ans
Einu sinni í viku.
Einu sinni í viku.
Einu sinni í viku.
Tvisvar í viku.
Tvisvar í viku.
er*
Námskeið:
Teiknun og máiun fyrir börn og
unglinga:
1.11. 5-6 ára.
2. 0. 6-7 ára.
3. n. 8-9 ára.
4. n. 10-11 ára.
5. n. 12-14 ára.
Teiknun og málun fvrir
fullorðna:
1. fl. Byrjendanámskeiö A.
Tvisvar í viku.
2.11. Byrjendanámskeið B.
Tvisvar í viku.
3. II. Framhaldsnámskeiö.
Tvisvar í viku.
4. H. Myndlistardeild. Tvisvar í viku.
5. fl. Myndlistardeild (framh.)
Tvisvar í viku.
Byggingarlist:
1 fl. Híhýlafræöi. Tvisvar í viku.
2. fl. Byggingarlist og híhýlafræöi.
Tvisvar í viku.
Grafik:
1. fl. Dúk- og trérista. I'visvar i viku.
Letrun:
1. II. Skrift og leturgerö.
Tvisvar í viku.
2. fl. Skrift og leturgerð (framh.)
Einu sinni í viku.
Listasaga:
Listasaga I. Einu sinni í viku.
Listasaga 11. Einu sinni í viku.
Íslensk listasaga. F.inu sinni í viku.
IVlódelteiknun:
Teiknun eftir lifandi fyrirntynd.
Einu sinni í viku.
Textíl:
1. II. Myndvefnaöur. Tvisvar í viku.
2. II. Quilting (huta- og vattsaumur).
Einú sinni í viku.
3. fl. Quilting(húta-ogvattsaumur).
Einu sinni í viku.
Innritun fer íram i skrifstofu
skólans, Glerárgötu 34, alla
virka tlaga kl. 16-19. Allar nán-
ari upplýsingar í síma 24958.
Skólastjóri.
21. september 1982 - DAGUR-11