Dagur - 21.09.1982, Síða 12
Akureyri, þriðjudagur 21. september 1982
Pakkningaefni
korkur, skinn og hercules.
sími 96-22700
Endurbætt
í þessari viku verður byrjað að
flytja í nýju heilsugæslustöðina
á Olafsfirði sem verður opnuð
formlega um mánaðamótin.
Bygging heilsugæslustöðvar-
innar og dvalarheimilis aldr-
aðra, sem er í sama húsi, er ein-
hver mesta framkvæmdin sem
Ólafsfirðinga hafa ráðist í á
undanförnum árum.
í nýju heilsugæslustöðinni
verður aðstaða fyrir lækni og
tannlækni, þar verður einnig
apótek og sjúkradeild þar sem
pláss verður fyrir 8 sjúklinga. í
sama húsi er einnig elliheimili sem
tók til starfa í vor.
Frá því um síðustu mánaðamót
hefur enginn læknir verið í Ólafs-
firði. Læknarnir frá Dalvík hafa
hinsvegar hlaupið undir bagga
þegar á hefur þurft aö halda, og
sagði Jón E. Friðriksson bæjar-
stjóri í samtali við Dag að þeir
hefðu vcrið mjög liprir og hjálp-
fúsir. Um næstu mánaðamót
batnar ástandiö hinsvegar, því þá
kemurStefán Björnsson læknirtil
starfa í Ólafsfirði, en hann er
þaðan.
einangrunarplast
Plasteinangrun hf. hefur nú
hafið framleiðslu á endurbættu
einangrunarplasti. Endurbæt-
urnar hafa í för með sér að
plastið er ekki eins eldfímt og
eldri framleiðslan var.
Þessi endurbót hefur ekki í för
með sér neina útlitsbreytingu á
plastinu og því mun einungis
verða framleidd nýja og bætta
tegundin. Verðið verður áfram
það sama, þótt hráefnið í nýja
plastið sé 10% dýrara.
„Við vonumst til að fá bruna-
varnayfirvöld til að rýmka reglu-
gerð um notkun á einangrunar-
plasti, með því að setja þessa
endurbættu tegund á markað-
inn,“ sagði Gunnar Þórðarson
framkvæmdarstjóri Plastein-
angrunar hf. „Og með þessu
minnkar einnig eldhætta fyrir hús-
eigendur og- byggendur."
Endurbótin á plastinu er í því
fólgin að bætt er í það efnasam-
bandi sem gerir það að verkum að
plastið leiðir ekki eld. Pað bráðn-
ar við hita - sé til dæmis eldur bor-
inn að því - en brennur ekki af
sjálfsdáðum, og sé eldurinn fjar-
lægður deyr samstundis allur
eldur í plastinu.
Hráefnið í plastið er þýskt og
framleitt þarlendum staðli, svo-
nefndum DIN-staðli, og flokkast efni. Plastið sem framleitt var hinsvegar undir auðbrennanleg
undir tregbrennanleg byggingar- með gömlu aðferðinni flokkaðist byggingarefni.
Sigurður Jóhannsson sölustjon (t.v.) með nyju tegundina, en Páll Garðarsson verkstjóri (t.h.) með það gamla,
og eru búnir að kveikja í. Ekki er svartur reykur frá nýja plastinu þegar það bráðnar, eins og frá því gamla þegar
það brennur. Ljósmynd: KGA.
Ný heilsu-
gæslu-
stöðá
Ólafs-
firði
Dalvík:
Framkvæmdir hafnar
við flugbrautina
A fímmtudaginn hófust fram-
kvæmdir viö lengingu flug-
brautarinnar á Akureyrarflug-
velli.
Verið er að búa lcnginguna
undir malbik, og er vonast til að
framkvæmdum Ijúki við malbik-
unina í haust. Brautin verður þó
ekki nothæf nema í björtu, en
ekki eru komin ijós á hana.
Þegar brautin verður orðin
2000 metra löng mun minni
þotum verða kleift að lenda, til
dæmis Boeing 727 og 720 vélum
Fluglciða.
Aukin starfsfræðsla
Dalvík 20. september
Dalvíkurskóli var settur ný-
lega. Fjöldi nemenda í ár verð-
ur um 300, og er þaö heldur
færri nemendafjöldi en var á
síðasta skólaári. Mesta fækk-
unin er í forskóla og framhalds-
deild, en í grunnskólanum er
fjöldi nemenda svipaður og
áður að sögn Trausta Þor-
steinssonar skólastjóra.
Kennsluhættir verða að mestu
eins. Þó eru nokkrar nýjungar í
skólastarfinu. Má þar fyrst nefna
aukna náms- og starfsfræðslu sem
fólgin er í fræðslu um atvinnulífið
og leiðbeiningum um námsskrár
og námsleiðir. Þá verður tekin
upp kennsla í heimilisfræðum en
henni hefur ekki verið hægt að
sinna, aðallega vegna húsnæðis-
skorts.
Nú í haust verður tekið í notk-
un allt húsnæði nýrrar skólaálmu
en hluti hennar var tekinn í notk-
un í fyrra. Með tilkomu aukins
kenpslurýmis skapast nýir mögu-
leikar s.s. samkennsla aldursár-
ganga. Að sögn Trausta var sam-
kennsla reynd fyrir nokkrum
árum og gafst hún vel að mati
kennara.
Á síðasta skólaári hófst kennsla
í skipsstjórnarfræðum og í vor út-
skrifuðust 9 nemendur með 1. stig
skipsstjórnarréttinda sem gefur
réttindi á stjórn báta undir 120
rúmlestum. Flestir þeirra halda
þó áfram námi í Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík. íveturverðaó
nemendur á skipsstjórnarbraut.
Fjöldi kennara í vetur verður 22
með stundakennurum. AG.
# Blómasýn-
ingin
Um helgina var heilmikil
blómasýning í íþróttahöllinni
við Þórunnarstræti. Sam-
kvæmt upplýsingur S&S
komu um þrjú þúsund gestir á
sýninguna og líklega má gera
ráð fyrir að hver og einn hafi
greitt 30 krónur í inngangs-
eyri, en fullorðnir voru krafnir
um 40 krónur og börn greiddu
lægri upphæð. Aðstandendur
sýningarinnar hafa því haft
um 90 þúsund krónur upp úr
krafsinu, auk þess sem þeir
seldu pottaplönturnar þegar
sýningunni lauk.
# Lögfræði
skrifstofa
Nonna
Af hverju skýra lögfræðingar
stofur sínar ekki á sama hátt
og hárgreiðslukonur skýra
sín fyrirtæki? Þessí spurning
kom upp í huga eins af starfs-
mönnum Dags þegar hann
arkaði eftir Hafnarstræti á
dögunum. Hugsum okkur
dæmi. Lögfræðingur að nafni
Jón Jónsson gæti t.d. nefnt
sitt fyrirtæki Lögfræðiskrif-
stofa Nonna og lögfræðingur-
inn Guðmundur gæti kallað
stofuna Lögfræðiskrifstofa
Gumma. Það er ekkert sem
mælir á móti nafngiftum af
þessu tagi, því hárgreiðslu-
konur kalla sín fyrirtæki Hár-
greiðslustofa Siggu, Kollu,
Bínu og Lilly. Heildsalar gætu
Y dTi
lim 1 ». J m
Ifka tekíð hárgreiðslukonurn-
ar sér til fyrirmyndar. Hugsið
ykkur heildverslun sem héti
Heildverslun Jóa Finns eða
Heildverslun Pésa ...
# Nýtt orð?
Áttu spil? Viltu býtta? Börn
og unglingar á Akureyri safna
nú ákaft spilum og eiga dug-
legustu safnararnir nokkuð
hundruð stykki. Spil skipta
um eigendur í frímínútum og
á kvöldin má sjá safnarana
standa á götuhornum og
ræða ákaft um verðmæti ein-
stakra spila. Eftir því sem
S&S kemst næst þá skipta
safnararnir spilunum í tvo
flokka. Það er í fyrsta lagi spil
sem má láta af hendi, í öðru
lagi spii sem á að geyma. Þau
sem safnararnir tíma ekki að
láta nefna þeir „óbýtti“. Þetta
orð er ekki til í orðabók Menn-
ingarsjóðs, en það er búið að
vinna þann sess hjá krökkun-
um að eflaust verður það
skráð í næstu útgáfu.
# Skemma
kantsteinana
Starfsmenn bæjarins hafa að
undanförnu lagt kantsteina á
nýjar götur í Glerárhverfi.
Vfða hafa skemmdarvargar
stórskemmt kantsteinana,
sem er auðvelt þegar þeir eru
blautir, nýkomnir úr vélinni.
íbúar í Glerárhverfi eru hvattir
til að fylgjast með þeim sem
þetta gera og stöðva þá um
leið.