Dagur - 23.09.1982, Page 2
Fiskverkendur -
Útgerðarmenn
Gerum föst
verðtilboð í
smíði á,
stálgrindahúsum,
skreiðarpressum,
skúffum fyrir
skreiðarpressur,
saltskúffum
fyrir lyftara,
Ijósaskoðunarborðum
fyrir saltfisk,
netadrekum.
Önnumst
niðursetningu
bátavéla og
veitum alhliða
viðgerðar- og
varahluta-
þjónustu.
Ðílaverkstæði Dalvíkur
sími 96-61122-96-61123
'Ý' kveðjuorð
Haukur P. Ólafsson
Fæddur 29. október 1905 — Dáinn 17. september 1982
Til sölu
Mitsubishi Colt árgerð 1982, ekinn 3.400 km. Mjög
fallegur bíll.
Upplýsingar í síma 25770 eftir kl. 18.
í dag, fimmtudaginn 23. septem-
ber 1982, er til moldar borinn frá
Akureyrarkirkju Haukur P.
Ólafsson, fyrrverandi sláturhús-
stjóri KEA, en hann andaðist hér
í bæ á föstudaginn í síðustu viku.
Hann fæddist 29. október 1905,
sonur hjónanna Maríu ísaksdótt-
ur Amesen verslunarstjóra á
Austfjörðum og Péturs A. Ólafs-
sonar útgerðarmanns ög ræðis-
manns á Patreksfirði. Haukur var
því tæplega 77 ára, þegar hann
lést.
Heimili þeirra Maríu Amesen
og Péturs A. Ólafssonar var
annálað myndarheimili og Pétur
var þjóðkunnur athafnamaður.
Fer ekki á milli mála, að Haukur
mótaðist strax í bernsku af mynd-
arskap æskuheimilisins og at-
hafnasemi föðurins. Haukur var
alla tíð höfðingi í sjón og raun og
framkvæmdasamur í besta lagi.
Hann fór ungur til verslunarnáms
í Englandi og bjó alla tíð að því
námi. Hann stundaði síðan um
nokkurt árabil verslunarstörf í
Danmörku, en af Danmerkur-
dvölinni lærði hann einnig mikið.
Hann vann síðan nokkur ár við
fyrirtæki föður síns en hvarf svo til
starfa hjá Kaupfélagi Eyfirðinga
þann 1. maí 1941.
Hann varð síðar sláturhússtjóri
KEA á Akureyri um áratugaskeið
og gegndi því starfi af mikilli
trúmennsku. Undir starfssvið
hans féll ekki eingöngu sauð-
fjársláturhús, heldur einnig stór-
gripaslátmn, reykhús, frystihús,
umsjón jarðepla og saltsala ásamt
fleiru á ýmsum tímum. Starf hans
var því mjög fjölþætt og umsvifa-
mikið. Mikil og vandasöm verð-
mæti vom í umsjón hans. Fjöldi
starfsmanna var undir beinni
stjórn hans. Haukur var glaðvær,
einarður og hreinskiptinn og átti
því létt með að stjórna fólki.
Mjög traust samstarf tókst með
honum og starfsmönnum fyrir-
tækjanna, jafnt stjórnendum sem
almennum starfsmönnum. Hann
hafði mikil samskipti við bændur
héraðsins og ávann sér hylli
þeirra, enda fundu þeir að þar fór
maður, sem bar hag þeirra mjög
fyrir brjósti. Það má því með
sanni segja, að Haukur hafi verið
farsæll stjórnandi, sem naut
trausts og almennra vinsælda.
Eftirlifandi eiginkonu sinni, frú
Gerðu Halldórsdóttur Ólafsson,
kvæntist Haukur þann 14. maí
1936. Frú Gerða var eiginmanni
sínum samstiga í glaðværum
traustleika og myndarskap. Þau
voru samstiga í alúðinni og gest-
risninni. Heimsóknir til þeirra eru
því góðum vinum ógleymanlegar.
Sérstaklega ánægjulegt var að
finna ástúðina og hlýjuna milli
þeirra hjóna. Þeim varð ekki
barna auðið, en voru hvort öðru
allt. Söknuður frú Gerðu við missi
eiginmannsins er því sárari en
með orðum verði lýst, en góðir
vinir styrkja hana með hlýjum
hugsunum og djúpri samúð, þar á
meðal ég og eiginkona mín, sem
áttum því láni að fagna að eignast
vináttu þeirra Gerðu og Hauks.
Við kveðjum Hauk vin okkar
með miklum söknuði. Samvinnu-
menn í Eyjafirði minnast hans
með virðingu og þakka honum
störfin í þágu héraðsins. Við biðj-
um honum Guðs blessunar og far-
arheilla á ókunnum brautum aust-
ursins eilífa.
Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri.
AKUREYRARBÆR
Frá heilbrigðisfulltrúa
Eigendum þeirra bíla og bílhræja sem heilbrigöis-
nefnd Akureyrar hefur látiö fjarlægja af götum og
opnum svæöum á Akureyri í sumar, er hér með
veittur lokafrestur til 15. október 1982 til að sækja
bíla sína, gegn greiðslu áfallins kostnaöar og að
þeir sanni umráðarétt sinn á bílunum. Að liðnum
þesum fresti má reikna með að bílunum verði
hent.
Heilbrigðisfulltrúinn Akureyri.
Frá Vinnuskóla Akureyrar
Orlofsgreiðslur til starfsfólks Vinnuskóla Akureyr-
ar sl. sumar eru hafnar á Bæjarskrifstofunni.
Forstöðumaður.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins Akureyri
er flutt í Strandgötu 31. Skrifstofan verður opin kl.
14.00-16.00 mánudaga til föstudaga. Síminn er
21180.
Fimmtudagur:
Túnamót
í skemmtanalífinu
Hinn heimsfrægi dávaldur
Frísenette sýnir kl. 21.00.
VUltdiskótakl.01.
Föstudagur og laugardagur:
Ian Charles, breski töfra-
maðurinn frábærí, skemmtir
ásamt hljómsveitinni Jamaica.
Veislumatur framreiddur til kl. 22.00.
Sunnudagur:
Diskótek.
Allar heitustu skífumar frá
versluninni Cesar á fóninum.
Ian Charles töfrar fram
ótrúlegustu hiuti.
Hittumst hress.
SIMI
25566
Nýttá
söluskrá:
Núpasíða:
3ja herb. raðhús ca. 90 fm ófull-
gert en ibúðarhæft. Laust fljót-
lega.
Seljahlíð:
4ra herb. raðhús ca. 85 fm.
Laust (október.
Helgamagrastræti:
3ja herb. hæð í tvíbýlishúsi ca.
80 fm endurnýjuð að mestu.
Mikið áhvílandi.
Einholt:
5 herb. raðhús ca. 140 fm.
Ástand gott. Laust (nóvember.
Skipti:
Vantar 6 herb. raðhús á Brekk-
unni i skiptum fyrir Iftið einbýl-
ishús í Mýrarhverfi.
Skipti:
Meðalstórt ejdra einbýlishús á
Brekkunni óskast i skiptum
fyrir mjög gott 4ra herb. raðhús
á góðum stað á Brekkunni.
FASTEIGNA&ÍJ
SKIWVSALA3fc
NORÐURLANDS O
Amaro-húsinu II. hæð.
Síminn er 25566.
Benedikt Ólafsson hdl.
Sölustjóri Pétur Jósefsson.
Er við á skrifsfofunni alla virka
daga kl. 16,30-18,30.
Kvöld- og helgarsími: 24485.
2 - PAQUP - 23.septembejr.1982