Dagur - 24.09.1982, Side 2

Dagur - 24.09.1982, Side 2
LESENDAHORNIÐ RrImr Efi: J.'S. Íl Heilsuhæli NLFA I Kjamaskógi í morgunblaöinu 3. júlí s.l. er grein cftir Gísla Jónsson menntaskólakennara á Akur- eyri. Grein þessi ber yfirskrift- ina „Styöjum framtak þeirra". Greinin ber vott um áhuga og velvild til Náttúrulækninga- félags Akureyrar, sem nú stend- ur í stórræðum viö að rcisa heilsuhæli Norölcndinga, hlið- stætt því sem Náttúrulækninga- félag Islands hefir reist og rekiö í Hverageröi síðast liðin 26 ár. meö góðum árangri og svo mikilli aðsókn, aö hvergi nægir þaö húsnæöi sem fyrir hendi er. Akureyrarbær hefur tekiö ákvörðun NLFA af skilningi og úthlutað því lóð fyrir bygging- una í Kjarnalandi, á friösælum og fögrum staö í garði Kjarna- skógar, en þar er fyrirhugað úti- vistasvæði bæjarbúa með upp- lýstum gangstígum um skóginn. Þarna er friðsæld og fagurt út- sýni um byggðir Eyjafjarðar. Byggingaframkvæmdir eru komnar það á veg, að 600 fm kjallari hefur veriö steyptur. Ofan á hann er ráðgert að rísi þrjár hæðir og er nú vcrið að reisa þá fyrstu og samiö hefur verið um, að byggingu hcnnar verði lokið á þessu sumri. Fé til byggingaframkvæmda hefir verið aflað þannig, að ýmis félög og einstaklingar hafa gefið stærri eða smærri upphæðir, ágóði af árlegu happadrætti NLFÍ hefur runnið í bygginga- sjóð NLFA, ríkissjóður hefir lagt til framkvæmda nokkra tugi þúsunda árlega, auk þess sem stjórn féiagsins hefur sýnt mikinn áhuga og útsjónarsemi við öflun fjár eftir ýmsum leið- um. Nýlega birtu blöðingreinar- góða skýrslu stjórnar NLFA, þar sem þess er getið, að eftir framkvæmdir þessa sumars, þ.e. lokið hefur verið uppsteypu fyrstu hæðar, er fjárhagurinn þannig, að allt er greitt, sem byggt hefur verið. Allir bíða fullir áhuga og eftir- væntingar eftir því, að þessi hluti hælisins komist upp og taki til starfa og þykir ýmsum seint til ganga. Pví er þar til að svara, að hraði byggingaframkvæmda ræðst af því hversu vel gengur að afla fjár. Ekki er hyggilegt að stofna til skulda svo lengi sem bygging þessa fyrsta áfanga er ekki lengra á veg komin en að þar sé hægt að hefja rekstur. Þegar heilsuhælið í Hvera- gerði tók til starfa, var unnt að SCOUT EIGENDUR Viðurkennd varahlutaþjónusta Eigum mikið úrval ,,boddy“ hluta í Scout II. Mikið magn varahluta á lager einnig standstuðarar, (kúlustuðarar), toppgrindur og fl. Komið eöa hringið Þjónujtusími 38900 BÚVÉLAVARAHLUTIR Véladeild Sambandsins Armula 3 Reykjavik veita móttöku 40 sjúklingum, en nú tekur það við 160. Vonir standa til, að norðlenska hælið í Kjarnaskógi taki við ámóta hóp sjúklinga þegar það er fullbyggt. Norðlendingar hafa fyrr lagt fram fé og starfrækt og reist heilsuhæli með góðum árangri. Fyrir um það bil 60 árum var unnið að byggingu Kristnes- hælis. Þá voru það berklarnir, sem herjuðu á unga fólkið, ekki síst í Eyjafirði og til að vinna gegn þeim banvæna sjúkdómi var Kristneshælið reist. Þá voru það konurnar og félög þeirra, kvenfélögin sem fóru í fylking- arbrjóst. Þá var haft eftir konu í fram - Eyjafirði, að hún hefði lýst því yfir að fá heimili væru það fátæk, að þau gætu ekki lagt fram sem svaraði einu dilks verði til hælisbyggingarinnar og voru þá efni íslensku þjóðarinn- ar önnur en nú. Þetta sjónarmið ættu Norðlendingar og aðrir landsmenn að hafa til eftir- breytni nú. Leggjum öll fram krafta okkar, eftir efnum og ástæðum, næstu 5-6 árin og þá mun heilsuhælið í Kjarnaskógi verða tekið til starfa, mörgum til heilsubótar og gleði, ekki síst þeim sem lagt hafa af mörkum sitt framlag til byggingarinnar. Stjórn NLFA skráir samvisku- samlega allar gjafir, stórar og smáar, á nöfn gefenda, þannig að á seinni tímum sjáist framlag hvers og eins. Reynsla heilsuhælisins í Hveragerði sýnir, að 2/3 þeirra sjúklinga, sem þar hafa dvalið, eru konur og 1/3 karlar. Ég vil því einkum beina orðum mínum til kvenfélaga og kvenfélags sambanda, að þau láti þetta mál . til sín taka, kynni það á fundum sínum og formenn og stjórnir þessarra samtaka gangi hér á undan með góðu eftirdæmi. í lögum NLFÍ, 3.gr. segir: „Tilgangi sínum hyggst félagið ná m.a. með því að vinna að stofnun heilsuhæla, sem beiti náttúrulegum heilsu- og lækn- ingaaðferðum (ljós, loft, vatn, mataræði, hreyfing, hvtld).“ Hugmynd Jónasar Kristjáns- sonar læknis var sú, að minnst 4 heilsuhæli á vegum NFLÍ, eitt í hverjum landsfjórðungi, yrðu reist á íslandi. Verum minnug hugsjóna og framtaks norð- lenska læknahöfðingjans Jónas- ar Kristjánssonar, sem aldrei lét deigan síga í baráttunni við sjúk- dóma, sem hann taldi marga stafa af röngum lifnaðarháttum. Hann varði eigum sínutn og orku í þágu þeirrar hugsjónar. Bygging heilsuhælis NLFA í Kjarnaskógi, Eyjafirði er hafin. Norðlendingar og landsmenn allir, látum sjá að skilningur okkar og framtak sé ekki minna en var fyrir 60 árum, leggjum fram fjármuni eftir efnúm og ástæðum málefni þessu til stuðnings. Arni Ásbjarnarson. Halda mætti að um til- raunaútsend- Ingar væri að ræða Nú er ekki hægt að orða bindast lengur vegna ástands á útsend- ingum „Lunda-vídeós“ svokall- aðs. Sá sem þetta ritar hefur ver- ið búsettur í Hrísalundi í um 2 mánuði, og allan tímann hafa út- sendingar vídeósins verið þann- ig fyrstu 15 mínúturnar til hálf- tíma að menn mættu halda að um tilraunaútsendingu væri að ræða, og að um algjöra viðvan- inga væru að ræða og ekki væri búið að ákveða fyrr en eftir þennan tíma sem áður er nefnd- ur hvað sýna á það kvöldið, þar eð hlaupið er úr einu í annað. Fyrir þetta er látið borga inn- tökugjald í upphafi og síðan mánaðarlega vissa upphæð. Nú langar mig til að spyrja hvort þannig eigi að halda áfram í ná- inni framtíð? Jafnframt legg ég hér fram nokkrar hugmyndir sem forráðamenn vídeósins mættu vel fara eftir. 1. Undirbúa dagskrá kvöldisins fyrirfram. 2. Yfirfara tæki sín vel, þannig að til þessara sífelldu truflana þurfi ekki að koma á hverju kvöldi. (Þið ættuð að hafa nægan tíma, þar eð aðeins er sýnt þrjú kvöld í viku.) 3. Hafa ætíð dagskrá uppi í öll- um þeim stöðum sem njóta vídeósins. 4. Láta dagskrána koma á skjá- inn á kvöldin sé þess kostur. 5. Endursýna mynd kvöldsins t.d. kl. 14.00 daginn eftir eins og gert hefur verið stöku sinnum. Ef ekki er hægt að verða við þessu í flestum eða öllum atr- iðum væri eins gott fyrir fyrir- tækið að hætta útsendingum, því það er lítil ánægja fyrir fólk að horfa á eilífar truflanir og skipt- ingar á milli spóia (dagskráa). Þetta er ef til vill ofurlítið dýr- ara í framkvæmd, en íbúar blokkanna sjá sjálfsagt ekkert eftir því að greiða ofurlítið meira fyrir truflunarlausa dagskrá, og fá kvöldmyndir sýndar daginn eftir, t.d. fimmtu- dagsmynd á föstudegi fyrir RUV og föstudagsmynd á laugardegi kl. 14.00 og laugardagsmynd kl. 14.00 á sunnudegi. Svar óskast frá forráðamönnum vídeósins í næsta lesendadálki eftir birtingu þessa. yirðingarfyllst. Óánægður Lundaíbúi. Hvar er nú gamla kjötíð? Reiður skrifar: Það muna sjálfsagt flestir eftir því að um mitt árið sem nú er orðið Iiðið á var upplýst að gíf- urlegar kjötbirgðir væru til í landinu, og ég man ekki hversu mörg hundruð eða þúsund tonn áttu að vera til af kjöti þegar kæmi að haustslátrun. Það er því furðulegt, og er ekki sterkt til orða tekið þegar það kemur í ljós að ekki er hægt að fá gamalt kjöt á gömlu verði á Akureyri. Hvarvetna er sama svarið, gamla kjötið er búið og vilji maður kjöt er ekki um neitt annað að ræða en kaupa það á uppsprengdu verði. Ég segi uppsprengdu, því hvaða vit er í því að láta okkur íslendinga greiða mörgum sinnum hærra verð fyrir íslenska kindakjötið en þá útlendinga sem við seljum kjöt? Ég sé ekk- ert siðferði í slíkum viðskipta- háttum og mér hreinlega blöskr- ar að almenningur skuli ekki hafa tekið sig saman um að mót- mæla þessu. Það ætla ég að gera á minn hátt, ég ætla ekki að kaupa kindakjöt í vetur á þessu uppsprengda verði, læt mér bara nægja að láta mér eitthvað ann- að til munns, og fleiri mættu koma á eftir. ,2 DAQUR - 24* (septeip^er:1982

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.