Dagur - 24.09.1982, Síða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON,
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Dökk þjóðhagsspá
í nýrri þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar er lýst
mjög dökku útliti í efnahagsmálum og mun
verri horfum en voru á síðastliðnu sumri. Gert
er ráð fyrir að þjóðartekjur dragist saman um
5% á þessu ári. Þjóðarframleiðslan dregst
saman um 3,5 % á þessu ári og er meginástæð-
an 16—17% samdráttur í framleiðslu sjávaraf-
urða. Þá er gert ráð fyrir að viðskiptakjörin
verði um 2% lakari en í fyrra og talið er að við-
skiptajöfnuðurinn við útlönd verði óhagstæð-
ur um 10,5% af þjóðarframleiðslu. í þjóðhags-
spánni er gert ráð fyrir að kaupmáttur kaup-
taxta verði að meðaltali svipaður og á síðasta
ári. Nú er gert ráð fyrir að vísitöluhækkun frá
upphafi til loka ársins verði 60%.
Eitt af því sem gera verður er að draga úr
þeim gengdarlausa innflutningi sem verið
hefur til landsins, á sama tíma og heildarút-
flutningur okkar dregst stórlega saman eykst
innflutningur gífurlega. Heildarútflutningur
landsmanna dróst saman um 11% fyrstu sjö
mánuði ársins. Á hinn bóginn hefur innflutn-
ingur á t.d. bílum sjaldan eða aldrei verið meiri
og allar bílasölur eru fullar af nýjum eða nýleg-
um bílum sem engin þörf var á að endumýja.
Innflutningur á húsgögnum, innréttingum og
einingahúsum jókst um liðlega 100% fyrstu
sex mánuði þessa árs, miðað við sama tíma í
fyrra. Þar af jókst innflutningur einingahúsa
um 412% og innréttinga um 210%. Allir sjá að
eitthvað er brogað við þessa þróun. Lands-
menn hafa brugðist þveröfugt við þeim
vandamálum sem við er að glíma í íslensku
efnahagslífi.
Órétllæti í þjónustugreinum
Á fjórðungsþingi Norðlendinga var m.a. rætt
um endurskoðun sveitarstjórnarlaga. í fram-
söguræðu sem Sturla Böðvarsson, sveitar-
stjóri á Stykkishólmi flutti, sagði hann m.a. á
þessa leið:
„Nú er í undirbúningi breyting á stjórnar-
skránni. Ekki þarf að efa að breytingar á
stjórnarskránni munu hafa meiri og minni
áhrif á sveitarfélögin. Hin veigamesta breyt-
ing sem þar er rædd er tilfærsla þingmanna
milli kjördæma eða fjölgun þeirra í kjördæmum
höfuðborgarsvæðisins. Ekki dreg ég í efa rétt-
mæti leiðréttingar á svokölluðu vægi atkvæða.
Hins vegar hefur þáð vakið athygli mína hve
þingmenn landsbyggðarinnar hafa virst ró-
legir undir þessari umræðu, vitandi manna
best hvert óréttlæti ríkir í mörgum þjónustu-
málum landsbyggðarinnar og þá ekki síst í
málum sem varða sveitarfélögin beint, t.d. í
atvinnumálum.
Hversu mikils virði er það t.d. Reykjavík, Sel-
tjarnarnesi og Kópavogi að fá mest af tekjum
sínum frá skattgreiðendum sem eru æviráðnir
hjá opinberum stofnunum eða stórfyrirtækj-
um? Ekki hef ég orðið þess var að vandi út-
gerðar og fiskvinnslu hafi haft áhrif á greiðslu-
getu eða tekjur Kópavogsbæjar eða Seltjarn-
arness svo dæmi sé nefnt. Það væri fróðlegt að
láta mæla áhrif hinna breytilegu afkomu í sjáv-
arútvegi á afkomu sveitarfélaganna. “
4 - DAGlJB.~ 24. septémber 1982,-.
Sá bandarísld
vildi ekki
sitfurverðlaun!
— spjallað við Jóhannes Hjáhnarsson
nýbakaðan heimsmeistara í lyftingum öldunga
Það er engin spurning með
það að ég hef yngst mikið lík-
amlega síðan ég fór að stunda
þetta, og andlega finn ég einnig
mun. Ég get því tvímælalaust
mælt með því við menn á mín-
um aldri að þeir fari að stunda
lyftingar sér til ánægju og
hressingar,“ sagði Jóhannes
Hjálmarsson kraftlyftinga-
maður, en hann er nýkominn af
Heimsmeistaramóti öldunga
sem fram fór í Bandaríkjunum.
„Þarna voru yfir 200 keppendur
frá fjölmörgum löndum, m.a.
Noregi, Danmörku, Svíþjóð,
Finnlandi, Austurríki, Þýska-
landi, Bretlandi, Kína, Japan og
fleiri löndum. Keppt var í 10
jyngdarflokkum og ég var í 100
kg flokki 50-ó0 ára.
Það var strax ljóst eftir fyrstu
lyfturnar að keppnin um heims-
meistaratitilinn í þessum flokki
myndi standa á milli mín og
Bandaríkjamanns nokkurs. Hann
hefur verið ósigrandi undanfarin
7 ár, hefur keppt í flokki 55-60
ára en ég í flokki 50-55 ára. Nú
var hinsvegar önnur aldursflokka-
skipan þannig að flokkurinn var
fyrir 50-60 ára.
Ég byrjaði á því að lyfta 215 kg í
hnébeygjunni en hann fór upp
með 210 kg. Síðan hækkaði hann í
222,5 kg sem hann lyfti, og ég bað
3á um 227,5 kg sem var jafnt
heimsmetinu og það fór upp í 2.
tilraun. Hann reyndi síðan við 232
kg en það gekk ekki. Ég átti þá 5
kg á hann þegar kom að bekk-
pressunni.
í þeirri grein gekk ekkert hjá
mér en mér tókst þá að fara upp
með 127,5 kg í þriðju tilraun. Sá
Bandaríski lyfti hinsvegar 150 kg
og því hafði hann 17.5 kg í forskot
þegar kom að síðustu greininni
sem var réttstöðulyfta.
f þeirri grein komst hann aldrei
nálægt mér og lyfti 245 kg. Ég
byrjaði hinsvegar á nýju heims-
meti, 270 kg og bætti eldra metið
sem ég átti sjálfur um 2.5 kg. Síð-
an lét ég setja 290 kg á stöngina.
Ég fór létt upp með þá þyngd, en
þá sortnaði mér fyrir augum og ég
gerði þau mistök að setja lóðin
niður of snemma. Það var mikill
hávaði í salnum meðan ég var
með þetta á stönginni og ég gerði
þessi mistök í hita leiksins. Ég
reyndi svo aftur við þetta en tókst
ekki.“
- Úrslitin í keppninni urðu því
þau að Jóhannes lyfti samtals 625
kg og sigraði þann Bandaríska
með 7.5 kg mun. Sá tók ósigrinum
ekki mjög mannlega, hann neit-
aði að taka við silfurverðlaunum
sínum, vildi bara gull eins og hann
hefur ávallt hlotið s.l. 7 ár. Hann
vildi hinsvagar taka við gullverð-
launum sínum sem Bandaríkja-
meistari en mótið var um leið
meistaramót Bandaríkjanna. En
þá lét fólkið í salnum hann skilja
að hann hafi komið óíþrótta-
mannslega fram er hann neitaði
að taka við silfrinu og það var
mikið púað á hann.
- Hvenær byrjaðir þú að æfa
lyftingar?
„Það var í desember 1979 en þá
var ég 49 ára. Það hefur oft komið
fram að kveikjan var sú að ég var
aí aðstoða son minn við við æf-
ingar, en svo fékk ég „bakter-
íuna“ óvart sjálfur. Ég hefi ekki
verið mikið í íþróttum áður, að-
eins í knattspyrnu og hástökki
sem unglingur, en 15 ára fór ég til
sjós og var á sjó í 21 ár samfleytt."
- Hvernig var þessu uppátæki
49 ára manns tekið af fjölskyldu
þinni, að fara að æfa lyftingar?
„Því var vel tekið af minni fjöl-
skyldu, en flestir aðrir sögðu að ég
væri orðinn vitlaus og myndi
drepa mig á þessu. Það sjónarmið
átti hinsvegar eftir að breytast. Ég
breytti ekkert mínum lifnaðar-
háttum við þetta nema að því leyti
að frístundunurn var varið á
annan hátt, annað breyttist ekki.
Ég segi ekki að matarlystin hafi
ekki aukist eitthvað, en ekkert í
líkingu við þær sögur sem aðrir
lyftingamenn hafa látið hafa eftir
sér um mataræði sitt.“
- Þess má að lokum geta til
gamans að besti árangur Jóhann-
esar er nú 640 kg í samstöðu.i-
Hinsvegar er hann tók þátt í sínu
fyrsta móti í mars 1980 lyfti hann
450 kg. Framfarir eru því upp á
hvorki meira né minna en 190 kg á
rúmlega tveimur árum og geri
aðrir betur. gk--