Dagur - 28.09.1982, Blaðsíða 7
GA FRAMTIÐINA
WlBHHHHBI
HER Á LANDI
wnammmmHBammmmmamammmmmmmamamanmmmmmmaKmmmmmm
Auk þess er hitari í borðinu sem
flýtir mikið fyrir hörðnun steyp-
unnar. Það má segja að það taki
einn sólarhring að framleiða
hverja einingu, þ.e. frá þeim tíma
að byrjað er á henni og þar til hún
er orðin hörð. Yfirleitt látum við
hverja einingu þorna yfir nótt. í
. þessum borðum er sérstakur lyfti-
búnaður og með honum eru ein-
ingarnar reistar við þegar þær eru
þmjrar. Gluggarammarnir eru
■; gteyptir í einingarnar og við smíð-
;,"um sperrurnar ef menn óska þess.
- Þið eruð bjartsýnir.
— Já, þaðerum við. Einingahús
ieiga framtíðina fyrir sér hér á
iUantii.
TEXTL ÁÞ.
Fyrirtækin fimm sem sagt er frá í
upphafi, stofnuðu með sér samtök
þann 7. mars 1981 sem þau nefna
„Nýhús“. í bæklingi sem þau gáfu
út er nákvæm Iýsing á einingunum
og fer hún hér á eftir.
Útveggjaeiningar:
Útveggjaeiningar eru svokallaðar
samlokueiningar og eru þannig
gerðar, að innst er 10,5 cm þykkur
burðarveggur úr steinsteypu, því
næst einangrun og yst 7 cm stein-
steyptur veggur, sem kalla má
veðurkápu.
Bæði byrðin eru járnbent. Stærð
eininga er breytileg en algengast er
að breiddin sé 240 cm til 480 cm.
Veðurkápan er fastbundin við
innra byrðið með ryðfríu stáli.
Engin hætta er á sprungum
vegna hitaþenslu eða samdráttar í
steypu, vegna þess að húsið er ein-
angrað ,utan við burðarvegg, og
veðurkápan getur þanist án þess að
verða fyrir álagi. Auk þess sem
„þurrksamdráttur“ í steypu hefur
að mestu átt sér stað þegar eining-
arnar eru settar upp.
Innveggir:
Burðarveggir eru úr steyptum ein-
ingum. Aðrir innveggir geta veríð
af annarri gerð, svosem hlaðnir, úr
timbri o.s.frv.
Þak:
Loftplata ersteypt úr5 cmþykkum
einingum, ofan á þá plötu er síðan
lagt rafmagn, sem einnigerí öllum
veggjum. Þar ofan á er svo steypt
uns full þykkt er fengin eftir burð-
arþörf plötunnar. Ofan á þessa
plötu er svo sett hefðbundið þak.
Einnig er hægt, ef vill, að setja þak
með kraftsperrum og klæða það
neðan og fækka þá burðarveggj-
um.
Samsetningar
og þéttingar:
Innra byrði eininganna, burðar-
veggurínn, er steyptur saman eftir
að einingar eru uppsettar, og
mynda þvísamfelldan sléttan vegg.
Eins má loka samskeytum milli ein-
inganna með þéttingu og múr-
blöndu.
Nepron-þéttilistar eru milli ein-
inga á lóðréttum samskeytum ytra
byrðis. Þessirþéttilistarhafa veríðí
notkun hér á landi árum saman, og
reynst mjög vel.
mmmmmmmmmmmmi
wmmmmmmmmmmmm
Einangrun:
Húsin eru einangruð utan við ber-
andi vegginn og erá hitaveitusvæð-
um reiknað með 3“ einangrun í
veggjum.
Ef steypt plata er í húsinu situr
hún á innra byrði eininganna og
einangrun í útvegg og þaki nær
saman. Það sama gildii um kraft-
sperruþök. Engar kuldabrýr eru
þvíí veggjum við loftplötur eða við
plötur milli hæða. Húsin eru því
mjög hlý og orkusparandi.
NR 183 G
J Arnb®nt
at®ypa
(vaðurkípa)
•» «
i
S-1
o
-* *
c «
.0 b
é>
. 0, ■
-t).V
.Ryðfrítt—tawg^ j£rn
Járnbantur hiírfimrrmggur
Dmmi
lóðrétt enið £ vgg.
28. september 1982 - DAGUR - 7