Dagur - 28.10.1982, Síða 1

Dagur - 28.10.1982, Síða 1
MiKIÐ ÚRVAL AF SKARTGRIPA- SKRÍNUM GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREVRI 65. árgangur Akureyri, fímmtudagur 28. október 1982 119. tölublað „Þjófnaður“ á heitu vatni: Enn eru menn siálfir að endur- stilla kerfin „Að sjálfsögðu eru þessi mál alltaf í athugun. Innanhúss- deildin er stöðugt í eftirlitsferð- um, en í þeim er athugað hita- stig vatnsins og ástand tækja,“ sagði Már Svavarsson, fjár- málafulltrúi Hitaveitu Akur- eyrar er hann var inntur eftir hvort nýlega hefðu komið upg „þjófnaðir“ á heitu vatni. í haust hafa komið upp sex mál af þessu tagi, en í þeim öllum var um að ræða fólk sem var nýflutt í húsnæði og hafði beðið um endurstillingu vegna of mikils hita. Við athugun kom í Ijós að fyrri eigendur höfðu sjálfir endurstíllt tækin, sem er að sjálfsögðu ólöglegt athæfl. Már sagði að þegar upp kæmist um mál af þessu tagi væri það fyrst tekið fyrir hjá hitaveitunni, en síðan er það sent suður til Reykja- víkur þar sem sakadómari fjallar um það. „Ef menn eru óánægðir eiga þeir að láta það fréttast hing- að svo eitthvað sé hægt að gera en ekki eiga við þetta sjálfir,“ sagði Már. Á einstaka stað hefur borið á lágum vatnshita, en Már sagði að væri kvartað undan slíku færu starfsmenn hitaveitunnar á við- komandi stað þegar vatnshitinn út úr stöð væri kominn í 80 gráður. „Þá er farið á þá staði sem eru sannarlega með undirhita og við yfirstillum hemilinn. Þetta er gert eftir ákveðnum formúlum þannig að viðkomandi hús fái þann kaloríufjölda út úr vatninu og á að fást úr því magni sem keypt er.“ Ýmsar ástæður liggja að baki þess að vatnið er tiltölulega kalt þegar það kemur inn í hús. Már nefndi sem dæmi hús sem er síðast á grein, sem fáir eru tengdir við. Ef pípan er sver þá rennur vafnið hægt og kæling vatnsins er mikil. Aðspurður sagði Már að þær væru tæpast margir á Akureyri sem gerðu sér ekki grein fyrir að hægt væri að fá yfirstillingu. „Petta eru fá hús,“ sagði Már. Kópasker: Saltað í rösklega 300 síldartunnur Kópaskeri 26. október Sæblik h.f. á Kópaskeri hefúr í haust saltað í um 320 tunnur af síld sem var veidd af tveimur bátum. Annar þeirra er I eigu Auðuns Benediktssonar og hinn er eign Stefáns Þórodds- sonar. Um annað fískirí má segja að það hafi verið með af- brígðum lélegt. Astand og horfur í atvinnumál- um á Kópaskeri er mjög tvísýnt, en verið er að leita leiða svo ekki komi til verulegs atvinnuleysis í vetur. P.Þ. Allir vilja komast á vetrardekkin „Þessi törn skellur yfir á htverju ári þegar fyrsti snjór- inn kemur og hún stendur yfir í svona hálfan mánuð“, sagði Guðjón Ásmundsson hjá Gúmmíviðgerð KEA er við spjölluðum við hann. Starfsmennirnir höfðu svo sannarlega í nógu að snúast. Fyrir utan var sægur bifreiða sem þurfti að skipta um dekk á. Menn komu í löngum röðum með dekkin sín og vildu fá um- felgun eða „umtúttun“ eins og það heitir á nútímamáli. Guðjón tjáði okkur að ný vetrardekk kostuðu nú 1500 til 2000 krónur en sóluð dekk, sem ávallt eru vinsæl, kosta 700 til 1000 krónur .„Það er segin saga að bifreiðaeigendur rjúka upp til handa og fóta þegar fyrsta snjó- inn festir á haustin og önnur „lota“ ríður yfir á vorin þegar menn skipta yfir á sumardekkin, en hún gengur yfir á lengri tíma“, sagði Guðjón og var rokinn. Ofsaveður á Norðurlandi Mikið ofsaveður gekk yfir Norðurland sl. þriðjudag. Veðrið var af norðaustan og veðurhæð mikU. Talsverðar skemmdir urðu víða en langmestar á Siglufirði þar sem veðurhæðin var hvað mest. Veðrið gekk síðan niður um nóttina og enn í gær voru menn að störfum við Iagfæringar og viðgerðir á Siglufirði. Við slógum á þráðinn til þriggja fréttaritara. Sveinn Björnsson á Siglufirði varð fyrstur fyrír svörum: „Þetta ofsaveður skall á bæinn um fjögurleytið og stóð alveg framyfir miðnætti og það er óhætt að segja að ýmislegt hafi gengið á hér í bænum eins og búast má við þegar svona ofsaveður skellur á öllum á óvart. Tjón sem hefur orðið hér í bæn- um er mjög víða, sennilega á ein- um 20-30 húsum. Aðallega er um að ræða rúðubrot og fok á þakplöt- um. Einnig opnuðust bílskúrs- hurðir hver á eftir annarri og sumar fuku út í loftið þannig að menn stóðu bara eftir með hand- föngin í höndunum. Sumar hafa ekki fundist enn og menn halda að þær séu einhversstaðar uppi í fjöllum. Bátar í höfninni sluppu nokkuð vel, en þó sökk einn og nokkrir smábátar sem voru komnir á land höfnuðu á hliðinni og skemmdust nokkuð. Rafmagnið fór út um kvöldið og á meðan verið var að tengja varastöð var almyrkvað í bænum og ekki fýsilegt fyrir þá sem unnu við björgun. Lögregla, björgun- arsveitir og margir aðrir hjálpuð- ust að við að lagfæra skemmdir, negla fyrir glugga og þess háttar, og nú eru menn að hamast við að koma öllu í samt lag aftur.“ Reynir Pálsson, Stóru-Brekku í Fljótum hafði eftirfarandi að segja um veðrið í gær: „Um miðjan dag í gær gerði hér mikið norðaustanveður með hvassviðri og rigningu. Veðurhæð hefur sjálfsagt verið sjö til níu vindstig og einstaka hryðjur mun hvassari. Úrkoma við Skeiðfoss mældist 60 mm á 12tímum, en þar er úrkomumælir. Klukkan 21.15 fór rafmagnslínan til Ólafsfjarðar út og 15 mínutum síðar sló út lín- unni til Siglufjarðar og lá hún niðri við Heljartröð. Talið er að einangrar hafi brotnað, en einnig skemmdist einangrari við spenni við Skeið- foss. Skemmdir á húsum munu ekki vera teljandi nema hvað gróðurhús við Skeiðfoss skemmd- ist mikið. Ármann Þórðarson á Ólafsfiröi tjáði okkur eftirfarandi: „Það var snarvitlaust veður hér, mjög hvasst af norðaustri og mikil úrkoma. Mér er ekki kunnugt um neinar teljandi skemmdir þrátt fyrir þetta veður, eitthvað laus- legt sem ekki hafðiverið nægilega vel gengið frá fauk s.s. fiskikassar og þess háttar. Það má eiginlega segja að Múl- inn sé mesta vandamálið þessa dagana. Hann lokaðist á þriðju- dagsmorgun vegna snjóskriða sem féllu þar. Hann var opnaður aftur um hádegið og var opinn framundir kvöldið en lokaðist þá aftur og bílar áttu þar í erfiðleik- um.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.