Dagur - 29.10.1982, Síða 6

Dagur - 29.10.1982, Síða 6
Innan tíðar kemur út ný bók eftir Vigfús Björnsson. Vigfús er enginn nýliði á rit- vellinum, því eftir hann liggja fjórar barnabækur. Nú fer Vigfús nýja leið ogrit- ar fyrir fullorðna. Vigfús fetar ekki alltaf troðnar slóðir. - Ég tek stundum skrýtin spor, sagði Vigfús er hann bauð blaðam. vekominn inn á heimili sitt fyrir skömmu. Vigfús hætti í föstu starfi um síðustu ára- mót og hefur síðan gefið sig að hugðarefn- um sínum, en þess skal líka getið að hann og kona hans hafa komið upp sjö mann- vænlegum börnum svo ljóst má vera að þau hafa haft íýmsu að snúast síðustu ára- tugina. Menn hafa fengið ofbirtu í augun Það er af mörgum spurningum að taka þegar Vigfús er annarsvegar. í fyrsta lagi má nefna nýju bókina sem heitir Skógarkofinn. Eftir að stefnu mannsins frá firringu, tækni og vísindum, sem hann býr viö núna og dýrkar sem guð, til sem þú boðar, en þar á ég við kaup þín á Gilsá 1 í Saurbæjar- hreppi og búskapinn á þeim bæ. - Já, ég hef viljað fylgja trú minni eftir og kaup mín á þessum bæ er rökrétt framhald af henni. Það má e.t.v. kalla þetta trú- mennsku við sjálfan sig. Glórulaust tiltæki? - Frá almennu sjónarmiði má kannski segja að þessar búskap- artilraunir mínar séu glórulaust tiltæki, en einhvern veginn hef- ur þetta blessast, ég er nú búinn að hanga á þessu í þrjú ár. Það má skjóta því hér inn að Vigfús Björnsson starfaði um ára- bil sem verkstjóri í vélabókbandi Prentverks Ödds Björnssonar. Hann býr reyndar ekki föstu búi á Gilsá, en hefur þar hesta og rækt- ar rófur sem kindurnar íSaurbæj- arhreppi sáu fyrir í haust. Þetta var útúrdúr, en Vigfús sagði um búskapinn að útlitið væri ekki verra en það hefði verið. sínum innri manni trúr og láta ekki aðra segja sér fyrir hvað sé rétt og rangt. Ég vil fá að dæma um það sjálfur. - / upphafi þessa spjalls okkar kemur fram að ferill þinn sem rit- höfundur er ekki að byrja með umræddri bók. Ég man eftir því aðí æsku ias ég bók eins og Strák- ur á kúskinnsskóm og hafði gam- an af. Ertu hættur að rita fyrir börn og unglinga? - Nei,ennúlangaðimigaðeins til að tala við fullorðið fólk og vita hvernig það gengi. Ég er síður en svo búinn að leggja börnin á hill- una. Þau eru mér alltaf hugstæð. Það stendur næst hjarta mínu að segja eitthvað við börnin, skemmta þeim, fræða og örva hugmyndaflug þeirra. Ef ég held áfram að skrifa þá geri ég ráð fyrir að fyrr eða síðar muni ég einnig skrifa fyrir börnin. viss um að það geti tekist - mun það gerast. Með öðrum orðum gefur vonin okkur þann kraft sem þarf til að framkvæma hlutinn. Að sjálfsögðu er maður stund- um svartsýnn þegar allsstaðar virðast vera ljón á veginum. Ein- mitt á þeim stundum er eins og vonin sé eins og innri birta, sem gefur þrótt og hugrekki til að halda áfram. - Þegar þú lítur á veröldina í dag telur þú gerlegt að vera von- góður? - Nei, það er ekki hægt, en við megum ekki missa vonina um að bráðum komi betri tíð. Þó svo okkur sýnist að hlutirnir gangi ekki neitt og að allt stefni niður verðum við samt sem áður að gera f mörgum spurningum að ■ ar Vigfús er annarsvegar. __ ■ agi má nefna nýju bókina ák 7 ■ BI ■ ii ir Skógarkofinn. Eftir að W ■ ■ H Spjallad við Vigfús Bjömsson hafa borið saman bækur okkar töldum við Vigfús að eðlilegt væri að ræða í upphafi um nýju bóki- na, sem Skjaldborg gefur út. - Það er svolítið erfitt að ræða um bók sem ekki er komin út. Hún segir frá sér sjálf, en forsaga hennar er sú að í sumar safnaði ég efni í bók. Að lokum var ég kom- inn með fulla tösku af miðum. Þegar ég tók til við skriftir kom í ljós að bókin fjallaði um allt ann- að en miðarnir gáfu tilefni til. Með öðrum orðum er ég ekki far- inn að líta á miðana en bókin er búin. Þaðmáþvísegjaaðégeigiá lager efni í aðra bók. Annars má segja um bókina að hún fjalli um þess tíma er hann áttar sig á villu síns vegar og leitar aftur til síns fyrri uppruna og reynir að finna sjálfan sig. - Telur þú þá að menn hafi lagt ofmikið upp úr kapphlaupinu við tækniframfarirnar? - Já, menn hefa fengið ofbirtu í augun og ekki séð hvað felst í raun og veru í tækninni og því sem henni fylgir. Þessi dýrkun á tækni og þróun hlýtur að öllu óbreyttu að leiða til þess að maðurinn fyrir- fari sjálfum sér. - Eftir því sem ég fæ best séð þá gerir þú meira en að skrifa um þessa firringu - þú fylgir því eftir - Er sá boðskapur sem birtist í bókinni eitthvað nýtt sem þú ert að uppgötva eða hefur þetta búið lengi með þér? - Já, þetta er hlutur sem ég hef alltaf vitað. Hinsvegar má segja að ég hafi legið í dvala þar til ég fann að minn tími var kominn. Það hefur tekið sinn tíma að koma upp sjö börnum og ég hef látið það sitja fyrir öðru. Þegar því verki lauk hugsaði ég með sjálfum mér að nú væri sú stund upp runnin að láta aðallífsstarfið taka við þó svo ég sé kominn á þennan aldur. Nú vil ég sem sagt gera það sem ég álft að sé sann- leikurinn í lífinu. Það er að vera Yonin er einskonar hugsjón - Þegar ég ræddi við þig í síma á dögunum sagðir þú eitthvað á þá leið að það væri vonin sem allt byggðist á. Viltu útskýra þetta nánar? - Það má segja að vonin sé eins- konar hugsjón. Við göngum öll með von í brjósti og með hjálp hennar er hægt að sjá hlutina full- komnari, betri en þeir eru í raun og veru. Það verður síðan til þess að okkur langar og við reynum að gera hlutina þannig. Hvert okkar er smátt en ef við vonum öll að heimurinn batni og ef við erum það sem við teljum rétt, jafnvel þó við sjáum engan árangur. Þá og því aðeins er einhver von. Hesturinn er göfug skepna - Mér hefur ailtaf skilist að Giisá sé ofarlega í huga þér. Nú langaði mig til að biðja þig um að segja okkur frá henni. - Ég hef aldrei hugsað mér að stunda hefðbundinn búskap á þessari jörð, enda var kvótakerfið í uppsiglingu þegar ég festi kaup á henni. En ég hef alltaf verið ákaf- 6 - DAGUR— 29. október 1982 Nýtt sykurminna Sanitas maltöl

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.