Dagur - 04.11.1982, Qupperneq 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 4. nóvember 1982
122. tölublað
Olafsfjörður:
Tveir togarar
frá veioum
- Ollum sagt upi
Ólafsfjarðar. Stopul
húsi Magnúsar
Alvarlegt ástand hefur skapast
í atvinnumálum Ólafsfirðinga
og ekki útlit fyrir að úr rætist
fyrr en eftir nokkrar vikur. Allt
starfsfólk Hraðfrystihúss Ól-
afsfjarðar hefur fengið upp-
sagnarbréf, en nú er unnið að
viðgerð í vinnslusal fyrirtækis-
ins og togarinn Ólafur-Bekkur
er í klössun. Togarinn Sólberg
er bilaður og kemst tæpast á
veiðar fyrr en eftir tvær eða
þrjár vikur. Sigurbjörg er á
veiðum og er væntanleg inn
n.k. mánudag. Starfsfólk
Hraðfrystihúss Magnúsar
Gamalíelssonar verður án
atvinnu af og til eða þar til Sól-
bergið kemst aftur á veiðar.
Alls er hér um að ræða um 150
manns hjá báðum fyrirtækjun-
um.
i í Hraðfrystihúsi
atvinna í Hraðfrysti-
Gamalíelssonar
Ólafur Bekkur verður hálfan
mánuð eða þrjár vikur í klössun
og skömmu eftir að hann fór bil-
aði vélin í Sólberginu. Þar með
voru tveir af þremur togurum Ól-
afsfirðinga frá veiðum. Þegar
klössunin á Ólafi var ákveðin var
einnig ákveðið að gera við
vinnslusal Hraðfrystihúss Ólafs-
fjarðar. Því var öllu starfsfólkinu
sagt upp
Starfsfólk Hraðfrystihúss
Magnúsar var í vinnu s.l. mánu-
dag, þriðjudagog miðvikudag, en
verður að sitja heima fram að
helgi. Eins og fyrr sagði kemur
Sigurbjörgin að landi á mánu-
daginn og gera má ráð fyrir
atvinnu hjá fyrirtækinu fram eftir
næstu viku.
Vilja breiða
yfir sundlaugina
Nú er í athugun að kaupa yfir-
breiðslu á útisundlaugina á Ak-
ureyri. Að sögn Hauks Bergs,
sundlaugarstjóra, er talið að
yfirbreiðslan geti minnkað
verulega orkunotkun.
Yfirbreiðslan kostar hátt í eina
milljón, en Haukur sagði að út-
reikningar sýndu að hún gæti
borgað sig upp á tveimur til þrem-
ur árum. Yfirbreiðsla eins og sú
sem um er rætt er á stóru kefli,
sem er jafnbreitt og sundlaugin.
Hún er sett á og tekin af lauginni
með vélarafli.
Á grænu Ijósi.
Mynd: áþ.
Norðurland:
Víða óvissa í
atvinnumálum
Fjórðungssamband Norðlend-
inga boðaði í síðustu viku til
fundar með fulltrúum atvinnu-
málanefnda á Norðurlandi og
fulltrúum sveitarstjóra þar sem
ekki eru starfandi atvinnumála-
nefndir. Fundurinn var haldinn
á Akureyri, og á honum
greindu fulltrúarnir frá
atvinnuástandi og horfum í sín-
um sveitarfélögum, stöðu ein-
stakra atvinnugreina, fyrir-
tækja og líkum á atvinnuleysi.
Að sögn Guðmundar Sigvalda-
sonar starfsmanns Fjórðungssam-
bandsins kom fram á fundinum að
atvinnuástandið í fjórðungnum er
nokkuð gott í dag þegar á heildina
er litið, en óhætt mun að segja að
nokkur óvissa sé framundan víða.
Fulltrúi Hvammstanga sagði að
þar væru blikur á lofti. Fulltrúi
Blönduóss sagði að ástandið þar
væri gott, fulltrúi Skagastrandar
að atvinnuleysi væri þar hverfandi
en vaxandi hætta. Á Sauðárkróki
er ástandið gott, mjög slæmt á
Siglufirði, mjög gott á Dalvík en
útlitið fremur dökkt. Atvinnu-
ástandið á Árskógsströnd er
fremur erfitt um þessar mundir.
Fulltrúi Akureyrar upplýsti að
ástandið væri ekki slæmt og raun-
ar viðunandi næstu mánuði ef sér-
stök áföll koma ekki til. Hann
upplýsti ennfremur að útlitið væri
mjög óvisst ef litið væri til næstu
missera, og í sumum greinum
mjög slæmt.
Á Grenivík vantar frekar fólk
til vinnu fremur en hitt en undir-
staðan er ótrygg vegna þess að
flest atvinnutækin s.s. bátarnir
eru í einkaeign. í Mývatnssveit er
ástandið nokkuð gott, á Húsavík
telst ástandið gott en ér byggt á
veikum grunni og atvinnuleysi
frekar á uppleið. Á Kópaskeri er
atvinnuástand viðunandi. Fulltrúi
Raufarhafnar sagði að sú stað-
reynd að íbúum hafi sífellt fækk-
að þar síðan 1978 væri besta lýs-
ingin á stöðunni sem er ekki góð.
Stöðvun loðnuveiðanna ræður
mestu um ástandið á Raufarhöfn
enda kostaði hún 35 manns
atvinnuna. Fulltrúi Þórshafnar
sagði hinsvegar að þar væru horf-
ur nokkuð góðar og hefur tilkoma
nýja togarans þar ekki minnst að
segja.
Fullyrða má að ástandið sé
verst á Siglufirði, enda er talið að
atvinnuleysi þar sé Jkdag 8-10%
og slæmt útlit. Ástandið virðist
hinsvegar vera einna best á
Blönduósi og á Sauðárkróki og
ekki fyrirsjáanleg nein vandamál
á þessum stöðum.
Góðar
gæftir
en tregur
afli
Hrísey 2. nóvember.
Gæftir hafa veríð góðar það
sem af er mánuðinum. Einn
bátur rær á línu en afli hefur
verið tregur og vart fengist fyrir
tryggingu. Heldur skárri af-
koma er hjá bát sem er á
snurvoð. Hríseyjartogarinn er
undirstaða atvinnunnar hér í
Hrísey ásamt með bátunum.
Frystihúsið hefur skilað hagn-
aði undanfarin ár. Þessum hagn-
aði hefur verið beint í nýbyggingu
Útgerðarfélags KEA í Hrísey og
nýjan vélakost fyrir frystihúsið.
Miklar vonir eru bundnar við
þessar breytingar, sem áætlað er
að ljúka fyrir áramót. Öll vinnu-
aðstaða mun stórlega batna, en er
þó nokkuð góð fyrir. Mest munar
um nýja kaffistofu og búningsher-
bergi ásamt baðaðstöðu, en segja
má að vinnuaðstaða verði orðin til
fyrirmyndar þegar þessar breyt-
ingar verða komnar í fram-
kvæmd.
Mikil áhersla er lögð á hreinlæti
og vöruvöndun í frystihúsinu í
Hrísey, enda er það í hæsta gæða-
flokki meðal Sambandsfrystihús-
anna hvað vöruvöndun viðvíkur.
S.A.
Smyglá
Dalvík
A þriðjudag kom vélbáturinn
Bliki E.A. til Dalvíkur úr sölu-
túr til Englands. Reykvískir
tollverðir komu gagngert til
Dalvíkur og leituðu í Blika og
höfðu svo sannarlega erindi
sem erfiði. Þeir fundu um 150
kassa af bjór, tvö myndsegul-
bandstæki, kjöt og fleira. Að
sögn heimamanns er Dagur
ræddi við fyllti góssið heilan
sendiferðabíl.
Bókadeild
opnuð
í Hrísey
Hrísey 2. nóvember.
Verslunarútibú KEA í Hrísey
mun á næstunni opna bóka-
deild. Þar verða á boðstólum
veraldlegar og andlegar bækur
ásamt blöðum og tímaritum.
Mikill menningarauki er af
þessu framtaki fyrir Hríseyinga
og á stjórn kaupfélagsins þakkir
skiliðfyrirþettaframtak. S.A.