Dagur - 04.11.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 04.11.1982, Blaðsíða 9
Blak um helgina: IS leikur gegn UMFS og Bjarma Um helgina verða nokkrir leikir í blaki hér fyrir norðan. í fyrstu deild karla leikur ÍS við UMSE og Bjarma. Leikurinn við UMSE verður í íþróttahúsi Glerárskóla á laugardaginn kl. 15.00. en við Bjarma á föstu- dagskvöldið og fer sá leikur fram að Laugum í S-Þing. Bjarmi leikur nú í fyrsta sinn í fyrstu deild, og er ekki vitað til að þeir hafi leikið mikið af æfingarleikj- um nú í haust. Þeir áttu hins veg- ar góða leiki í fyrra, en lið þeirra er að mestu skipað sömu leik- mönnum og þá. Þeir munu því ekkert gefa eftir á heimavellin- um og ekki munu sveitungar þeirra liggja á liði sínu í að hvetja þá. Þórsarar sóttu ekki gull í greipar Stúdenta þegar þeir léku um síðustu helgi, en eru nú staðráðnir í að veita þeim hörkukeppni. í fyrstu deild kvenna fara fram tveir leikir. Á föstudagskvöldið leika stúdínur við lið KA og fer sá leikur fram í íþróttaskemmunni. Stúdínurnar eru fyrirfram taldar sigurvissar, en KA stúlkurnar munu reyna að veita þeim verð- skuldaða keppni. Þessi sömu lið leika svo aftur saman á laugar- daginn í íþróttahúsinu í Glerár- hverfi, strax að loknum leik UMSE og ÍS. Áhorfendur ættu að fjöl- menna á þessa leiki og sjá og hvetja heimaliðin til sigurs. Þór til Borgarness Fyrstu deildar lið Þórs í körf- mun sigurstranglegri í þessum ubolta fer til Borgarness um leikjum, en þeir urðu nú í öðru helgina og leikur þar tvo leiki við sæti deildarinnar en hafa þó leik- UMF Skallagrím. Þórsarar er ið flesta leiki. Hvorugt Akureyrarliðanna í knattspyrnu Þór eða KA hafa ráðið þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Bæði félögin eru þó með þessi mál í athugun, en ákvörðun hefur ekki verið tekin ennþá, en úr því skýrist væntanlega á næstunni. Ekki er heldur vitað um félögin í nágrenni Akureyr- ar, nema þá Siglfirðinga, en þeir munu hafa endurráðið sinn breska þjálfara sem hjá þeim var s.l. sumar, og undir hans stjórn komus) þeir loksins upp úr þriðju deild og leika nú í fyrsta sinn í annarri deild. Hverjir verða þjálf- arar? Iðnaðarmenn - Verktakar Nýtt-Nýtt Wl RYOBl Ryoby rafmagnshandverkfæri á sér- stöku kynningarverði, að viðbættum 10% staðgreiðsluafslætti. Einnig bjóðum við 10% staðgreiðsluafslátt af öll- um okkar rafmagns- og handverkfærum frá Miller Falls. ■$£ Tilboð þetta gildir til 10. nóvember. Varahluta- og viðgerðarþjónusta í sérflokki. © Óseyri 6, Akureyri . Pósthóli 432 . Sími 24223 Bifreiðaeigendur Tilboðsverð á ryðvörn út nóvembermánuð. 5 m fólksbílar kr. 2.000 6 m fólksbílar og jeppar kr. 2.300. Pantið tímanlega Ryðvarnarstöðin Kaldbaksgötu Fullkomin endurryðvörn Leikfélag Akureyrar Atómstöðin Sýning föstudag 5. nóv. kl. 20.30 Sýning sunnudag 7. nóv. kl. 20.30 * Fáar sýningar eftir Aðgöngumiðasala opin alla virka daga frá kl. 17-19, sýningardaga frá kl. 17-20.30. Sími 24073 Nauðungaruppboð annað og síðasta á Helgamagrastræti 23 e.h., Akureyri, þingl. eign Magnúsar Stefánssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Þórodds- sonar hdl., Brunabótafélags íslands, Gunnars Sólnes hrl., Benedikts Sigurðssonar hrl., Landsbanka (slands veðdeild og Guðmundar Markússonar hrl. á eigninni sjálfri mánudaginn 8. nóvember nk. kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 6., 11. og 14. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteigninni Hafnarstræti 37, kjallara, Akureyri, þingl. eign Steinars Marinóssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri mánudaginn 8. nóvember nk. kl. 14.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. 4. nóvember 1982 - DAGUR - 9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.