Dagur - 04.11.1982, Page 4

Dagur - 04.11.1982, Page 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL PÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Mótmælt einhliða ákvörðun Seðiabankans Miklar umræður hafa orðið um vaxtahækkun- ina sem Seðlabankinn ákvað, að því er virðist án samráðs við ríkisstjórn landsins. Þingflokk- ur Framsóknarflokksins samþykkti samhljóða ályktun um málið og þar segir: „Þingflokkur framsóknarmanna leggur á það áherslu að úr þeim mikla viðskiptahalla sem nú er verði án tafar að draga. í því skyni er nauðsynlegt að framkvæma skilyrðislaust all- ar þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur boðað til þess að draga úr verðbólgu. Grípa verður til allra tiltækra ráða til þess að draga úr innflutn- ingi og áherslu verður að leggja á aukna fram- leiðslu og útflutning. Þingflokkurinn telur hins vegar hækkun lánskjaravísitölu og vaxta í þessum tilgangi óraunhæfa leið í þeirri stöðu sem nú er. Þótt verðtrygging sparifjár sé eðlileg þegar til lengri tíma er litið verður að framkvæma slíkt með fullu tilliti til greiðslugetu almennings og atvinnuveganna. Þingflokkurinn telur að endurskoða verði útreikninga lánskjaravísitölu þannig að fram komi áhrif opinberra aðgerða til hjöðnunar verðbólgu til lengri tíma en nú er gert og jafn- framt tryggt að vextir og lánskjaravísitala hækki ekki umfram greiðslugetu almennings og atvinnuveganna þegar yfir nokkurn tíma er litið. Þingflokkurinn varar eindregið við þeirri miklu hækkun lánskjaravísitölu og vaxta sem Seðlabankinn hefur nú einhliða ákveðið ásamt stórhertum útlánareglum sem kunna að leiða til greiðsluþrots atvinnufyrirtækja og atvinnu- leysis ef ekki verður gripið í taumana án tafar. Með tilvísun til 37. gr. laga um efnahagsmál frá 1979 mótmælir þingflokkurinn sérstaklega einhliða ákvörðun Seðlabanka íslands um hækkun vaxta á viðbótar- og afurða- og rekstr- arlánum atvinnuveganna. Akvörðun um vexti og lánskjaravísitölu er óaðskiljanlegur þáttur aðgerða í efnahagsmálum sem ríkisstjórn verður að hafa á sínu valdi.“ í lok ályktunar þingflokks framsóknarmanna segir síðan að tryggja verði ákvörðunarvald ríkisstjórnarinn- ar á vaxtamálin með lagabreytingu ef nauð- syn krefur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem framsókn- armenn gjalda varhug við raunvaxtastefnunni svokölluðu og miða þá við það ástand sem ríkir í þjóðfélaginu. Margir eru þeirrar skoðunar að þessi stefna sé óframkvæmanleg nema sam- fara verðbólgulækkun. Ýmsar aðstæður, afla- brestur, sölutregða á afurðum, stóraukinn innflutningur og fleira hafa hins vegar örvað verðbólguþróunina verulega. Það hefur sýnt sig að einstaklingar og fyrirtæki þola ekki bæði óðaverðbólgu og háa vexti. 4 - DAGUR - 4. nóvembér 1982 MyndrHSV. Meiriparturinn af mér varð eftir fyrir austan segir Runólfur Jónsson sem er áttræður í dag Runólfur Jónsson, sem var um langt árabil starfsmaður Dags, er áttræður í dag. Hann fæddist að Stóra-Sandfelli í Skriðdal 4. nóvember 1902 en ólst upp á Litla-Sandfelli í sömu sveit og bjó þar síðan búi frá 1926 til 1958, er hann flutti til Akureyr- ar ásamt eiginkonu sinni, Jón- ínu Vilborgu Jónsdóttur. Búa þau nú í Langholti 17 Akureyri. Eins og áður sagði bjó Runólfur búi að Litla-Sandfelli í Skriðdal frá 1926, en það sama ár kvæntist hann konu sinni, sem er frá Vaði í Skriðdal. Par eystra byggðu þau stórt íbúðarhús og unnu hörðum höndum við að yrkja jörðina. Það var mikil virði að sjá móana breytast í tún og notalegt að hugsa til þess,“ sagði Runólfur í stuttu spjalli við Dag í tilefni áttræðis af- mælisins. Pau hættu búskap 1978 og fluttust til Akureyrar, en þá voru tvö barna þeirra orðin búett í Eyjafirði, en fleiri komu svo á eftir. „Fyrst vann ég á verksmiðjun- um við ýmis störf, eða þangað til mér var ráðlagt að hætta, þar sem hitinn og hávðaðinn fóru ekki allt of vel með mig. Síðan vann ég við byggingarstörf og ýmislegt þang- að til ég tók að mér að rukka fyrir Pétur og Pál. Þannig fór ég smám saman að vinna fyrir Dag og innan þriggja ára var ég fastráðinn í hálft starf. Það var árið 1966 og ég vann svo ýmis störf á Degi til árs- ins 1978, þá 76 ára að aldri. Sam- starfsmenn mínir þennan tíma voru einkum þeir Erlingur Davíðsson og Jón Samúelsson. Þetta var ágætur tími og langar mig til að koma á framfæri kærum þökkum til samstarfsmanna minna á Degi.“ „Hvernig hefur ykkur svo liðið á Akureyri?" Það hefur ekki verið fyrir neinu að kvarta, en þó verð ég að segja það, að meiri parturinn af mér varð eftir fyrir austan. Ég verð víst alltaf Austfirðingur. Fyrst í stað eftir að við fluttum hingað norður fórum við árlega í heim- sókn austur í Skriðdalinn, en eftir að fjöldinn af okkar bestu sam- ferðamönnum fór að týna tölunni hafa ferðirnar strjálast. En yfir- leitt hefur farið vel um okkur hér, heilsan yfirleitt verið sæmilega góð, þótt ellin sé farin að segja margt við mann núna,“ sagði Runólfur. Runólfur og Vilborg eign- uðust sex börn, Kristbjörgu, Björgvin, Kjartan, Ingibjörgu, Sigurð og Árnýju. Barnabörnin eru orðin 23 og barnabarnabörnin 21 talsins. Runólfur mun dveljast hjá dóttur sinni og tengdasyni á af- mælisdaginn, þ.e. seinnipartinn í dag og í kvöld.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.