Dagur - 23.11.1982, Síða 5

Dagur - 23.11.1982, Síða 5
Þlýjar bækur Þriggja orða nafn Þessi ljóðabók er ein þeirra þriggja bóka sem verðlaun hlutu í bókmenntasamkeppni þeirri sem Almenna bókafélagið efndi til á 25 ára afmæli sínu. Bókin skiptist í þrjá hluta, sem heita Villigötur, Afvegir og Vegurinn til Sunnu- hlíðar. Ljóðin eru alls 33. Höfundurinn ísak Harðarson er 26 ára að aldri og er Þriggja orða nafn hans fyrsta bók. Hann er kynntur þannig á bókarkáp- unni: „ísak Harðarson fæddist í Reykjavík hinn 11. ágúst 1956, kl. 12.52 e.h. Hann er að heiman.“ Og um bókina segir á sama stað: „Þriggja orða nafn. Fyrsta bók hins unga höfundar. Sérstæð ljóð, djúp og þróttmikil. Alvöru- þrungin leit ungs manns að til- gangi. Glæsilegt byrjandaverk upprennandi skálds.“ Þriggja orða nafn er 102 bls. að stærð og unnin í Prentsmiðjunni Hólum. Útgefandi er Almenna bókafélagið. Dón Kíkóti Almenna bókafélagið hefur sent frá sér þriðja bindi Don Kíkóti eftir Cervantes í þýðingu Guð- bergs Bergssonar. Don Kíkóti er eins og kunnugt er einn af risum heimsbókmenntanna, og hefur fyrri bindum verksins um hann verið mjög vel tekið, enda allir á einu máli um hve mikill fengur er að eignast það á íslensku í snilld- arþýðingu Guðbergs. Don Kíkóti er eins og vera ber í bókaflokki AB Úrvalsrit heimsbókmennt- annna. Petta þriðja bindi er 212 bls. að stærð og verkið er unnið í Vík- ingsprenti. Neyðaróp hjá stálsmiðjunni Þetta er 10 bók Ragnars. Af fyrri bókum hans má nefna Skjótráður skipstjóri og Upp á líf og dauða - um sjómennskuævintýri Silju og Sindra. -Neyðarópið berst frá Sveini, 13 ára gömlum, sem þrír stálpaðir strákar þjarma að. Og Þorlákur Vilmundarson bregður skjótt við. . . En má hjafnarverka- maður um sextugt sín einhvers gegn flokki pörupilta sem leiðst hafa út í notkun allskyns vímu- efna? í bókinni kemur margt á óvart. Hún er fjörleg og spennandi frá- sögn af samskiptum Þorláks og drengjanna. Kjarnakonur á ýms- um aldri koma og við þessa sögu sem gerist að hluta á sjó. Útgef- andi er Æskan. BJÓÖum lullkomna vlðgeröarþjónustu á sjón- varpstœkjum, útvarpstœkjum.'steríomögnur- um, plötuspllurum, segulbandstaekjum, bfl- tækjum, talstöðvum, fiskileltartækjum og sigl- ingartœkjum. ísetnlng á bíltækjum. Slmt (96) ?3676 V/ GlmArgOtu 37 • Akuttyn Ævintýri æskunnar í þýðingu Rúnu Gísladóttur. - Endurprentun. í bókinni, sem hefur verið ófá- anleg í nokkur ár, eru 29 ævintýri frá 17 löndum. Hún er ríkulega myndskreytt. Útgefandi er Bóka- útgáfan Æskunnar. Óhæft til birtingar eftir Arnaud de Borchgrave og Robert Moss. Skáldsaga á for- lagi Bókaklúbbs Almenna bókafélagsins. Út er komin hjá Bókaklúbbi Al- menna bókafélagsins skáldsagan Óhæft til birtingar eftir banda- rfska ritstjórann Amaud de Borchgrave og enska blaðamann- inn Robert Moss. Þýðandi er Her- steinn Pálsson. Þessi bók heitir á frummálinu The Spike, kom fyrst út árið 1980 og hefur síðan verið mikil met- sölubók á Vesturlöndum. Hún er byggð upp sem spennandi skáld- saga, en viðfangsefnið er vanda- mál dagsins í dag í samskiptum austurs og vesturs. Er þannig á málum haldið að bókin vekur til ásækinnar íhugunar um það hvar við vesturlandabúar séum í raun- inni staddir að því er þessi sam- skipti snertir. „. . . bók þessi er bráðnauðsynleg til þess að við megum betur skilja þá atburði, sem nú eiga sér stað,“ skrifaði franska stórblaðið Le Figaro um bókina, - „Frábær hryllingssaga, sem þeysir á milli ævintýa víðs- vegar í heiminum,“ skrifaði bandarísk höfundurinn Theeo- dore H. White um hana. Aðalpersóna bókarinnar er ungur Bandaríkjamaður, sem starfar við vinstri sinnað banda- rískt blað. Hann er harður and- stæðingur Nixonstjórnarinnar og CIA og aðhyllist ný viðhorf varð- andi líferni fólks og alla hegðun. Hann skrifar mjög harkalega um stríðið í Vietnam, og er greinum hans afar vel tekið. En svo kemst hann í blaðamennsku sinni að heldur óþægilegum staðreyndum varðandi starfsemi Rússa í Bandaríkjunum. Blaðamaðurinn ákveður að taka sér ársfrí til þess að kanna þessi mál nánar og upp- götvar þá margt ófagurt. Hann skrifar greinar um rannsóknir sínar og vill fá þær birtar í blað- inu, en er neitað um það, hann er ásakaður fyrir svik við málstaðinn og ritsmíðin afgreidd sem óhæf til birtingar. En margt á enn eftir að gerast í bókinni, og allt er þetta svo gegn- umsmogið af alls kyns svikum og óheilindum að örðugt er að kom- ast til botns í ófögnuðinum. Hinn ófagri leikur fer fram víð- svegar í heiminum og inn í hann fléttast viðfelldin ástarsaga sem gerir persónurnar manlegar og manneskjulegar. „Geta Sovétmenn sigrað Vest- urveldin án þess að hleypa af skoti?“ spurði Richard Helms, fyrrum yfirmaður CIA eftir að hafa lesið þessa bók. Óhæft til birtingar er 315 bls. í Skírnisbroti. Hún er unnin í Prentsmiðjunni Odda. Tilvalin tækifæris- og jólagjöf. Afiy Jfaöirbor, '}¥ þúann ertáfjimnum, 7 fjeláifit þitt imfn, til tomi þitt \) 1 tibi Uerröi þnui Uilii.stio á jörDu sem \ a fjnramm; srf oas i bag Uort baslrgt brauti 02 fjrirgtf ofifi Uorar sktilbir. fiUo smi uir og forimtfum Uomm shufbunautiim, ngi íéib þii oss i , k frcistni.fjrlbur frclsa oss ftá illu, / A þUi ab pitt er riftib, mátturinn JJ. ogbnrbmaB eilifu, Zo) amen Veggplatti með „Faðir vorinu“ til styrktar byggingasjóði KFUM og K. Verð kr. 250.00. Fæst í Hljómveri og Véla- og raftækjasölunni. Nýkomið: Fínrifflað flauel margir litir Vatteruð efni í kuldafatnað loðfóðruð - grisjufóðruð og vendiefni. Rósótt og einlit efni í kjóla og blússur Jóladúkar og dúkaefni samstæð efni í jólagardínur. Dagatölin 1983 komin Opið á iaugardögum. a!lt til sauma emman SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504 PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI AKUREYRARBÆR Viðtalstímar bæjarfulltrúa Miðvikudaginn 24. nóvember nk. kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Freyr Ófeigsson og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir til viðtals í fundastofu bæjarráðs, Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarstjóri. ítölsku hátalararnir komnir aftur á ótrúlega hagstæðu verði. MnBUÐ/N ar 22111 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Sunnuhlíð 2, Akureyri, þingl. eign Fjölnis Sigur- jónssonar, ferfram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 26. nóvember 1982 kl. 14.30. Bæjarfóetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 93., 95. og 99. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Tjarnarlundi 13h, Akureyri, þingl. eign Árna Ing- ólfssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl., Jóns Ingólfs- sonar hdl., Jóns Kr. Sólnes hdl., Ólafs B. Árnasonar hdl., bæjarsjóðs Akureyrar og Hreins Pálssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. nóvember 1982 kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 4147. og 52. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Óseyri 4, Akureyri, þingl. eign Haga hf., fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og Arnmundar Backman hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. nóvember kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 36., 39. og 43. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á fasteigninni Seljahlíð 3a, Akureyri, þingl. eign Jóns G. Grétars- sonar, fer fram eftir kröfu Sigurðar Sigurjónssonar hdl. og Jóns Kr. Sólnes hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 26. nóvember 1982 kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 17., 23. og26. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Norðurgötu 28 e.h., Akureyri, þingl. eign Vilhjálms Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Arasonar lögmanns, Gunnars Sólnes hrl., Benedikts Ólafssonar hdl. og bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri föstudaginn 26. nóvember 1982 kl. 13.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. 23. hóvéirtbtti' 1*982- DAGURÚ5

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.