Dagur


Dagur - 30.11.1982, Qupperneq 7

Dagur - 30.11.1982, Qupperneq 7
Karlakórinn Geysir 60 ára Karlakórinn Geysir, Akureyri, heldur upp á sextíu ára afmæli sitt með samsöng í Akureyrarkirkju dagana 2. og 3. desember nk. Samkvæmt gjörðarbókum kórsins var formlegur stofnfund- ur haldinn 20. október 1922. Á fundi tveimur dögum síðar voru lög kórsins samþykkt og rita 25 menn nöfn sín þar undir. Fyrstu stjórn skipuðu EinarJ. Reynis, formaður, Porsteinn Þorsteins- son frá Lóni og Porsteinn Thoriacius. Kórinn kom fyrst fram opinberlega 1. desember 1922, og hefur sá dagur alla tíð síðan verið skoðaður sem afmælisdagur kórsins. Sína fyrstu söngskemmtun hélt kórinn 16. desember 1922, og um vorið 1923 varfarið ífyrstu söngför kórsins, en þá var farið með skipi til Húsavíkur. Það sama vorfóru kórfélagar ríðandi til Möðruvalla í Hörgárdal og héldu þar söngskemmt- un. Kórinn hefur einnig farið ísöngferðir til útlanda. Til Noregs var farið 1952, til Englands 1971 og til Ítalíu 1974. Auk þess sem hér hér hefur verið getið, hefur kórinn haldið söng skemmtanir víðs vegar um landið. Fyrsti söngstjóri Geysis og ein aðaldriffjöðrin í starfi kórsins var Ingimundur Árnason, en hann stjórnaði kórnum frá stofn- un og allt til ársins 1955, að einu ári 1925 undanskyldu, en þá stjórnaði Benedikt Elfar. Ingimundur á því mjög stóran þátt í störfum kórsins, en hann varauk þess að vera söngstjóri mjög virkur og leiðandi í öllu starfi kórsins. Sonur Ingimundar, Árni, tók við stjórn kórsins af föður sínum, og stjórnaði hann frá 1956-1966. Árin 1967-1969 stjórnaði kórnum tékkneskur maður, Jan Kisa. Þá tók við stjórn Geysis Philip Jenkins og stjórnaði til 1972. Áskell Jónsson stjórnaði veturinn 1972- 1973, en þá tók við stjórn Sigurður Demetz Franzson, sem stjórnaði til 1978. Næsta vetur stjórnaði Árni Ingimundarson kórnum, en síðustu tvö árin hefur Ragnar Björnsson verið stjórnandi. Nú í vetur hefur Sigurður Sigurjónsson aðstoðað við stjórn kórsins. I tilefni 60 ára afmælisins verða haldnir tónleikar í Akureyr- arkirkju dagana 2. og 3. desember nk. Auk þeirra sem nú syngja í Geysi munu gamlir Geysisfélagar syngja á þessum tónleikum undir stjórn Árna Ingimundarsonar, og einnig mun Geysiskvartettinn koma þar fram, en hann vann nýlega til 3. verðlauna í kvartettasöngkeppni, sem haldin varí Danmörku. Núverandi formaður kórsins erReynir Valtýsson. Stjórnendur Geysis l yrrvcrandi söngstjórar, feðgamir Ingimundur Árnason og Ámi Ingimundarson. Áskell Jónsson Sigurður Demetz Ragnar Bjömsson Reynir Valtýsson: Alltaf til ungir menn sem hafa áhuga á söng „Já, vissulega eru þetta mikil tímamót í sögu kórsins,“ sagði Reynir Valtýsson, formaður Geysis,“ „sextíu ár eru langur tími. Auk þess sem við munum halda tónleika í tilefni afmælis- ins mun kórinn gefa út hljóm- plötu. Á henni eru lög með öll- um stjórnendum kórsins. Ég held að platan sé gott sýnishorn af starfi kórsins undanfarin ár og áratugi.“ Karlakórinn Geysir hefur ætíð skipað sérstakan sess í hugum Akureyringa, sem eflaust munu fylla húsið þegar Geysir syngur um mánaðamótin. En mig langaði til að forvitnast um hvernig gengi að fá unga menn til liðs við kórinn á tímum sjónvarps og ýmis konar afþreyingar sem var ekki til staðar þegar kórinn leit dagsins ljós. „Það er erfiðara en það var. Tímarnir hafa breyst og fólk getur varið tómstundum sínum á mun fjölbreytilegri hátt en áður. En til allrar hamingju eru tilungir menn sem hafa áhuga á söng og raunar má segja að þegar áhuginn er fyrir hendi er alltaf hægt að finna sér tíma.“ Konur kórfélaga hafa stutt dug- lega við bakið á þeim. Ekki aðeins sem eiginkonur heldur líka við að afla fjár - það má enginn halda að það sé ódýrt að reka „fyrirtæki" á borð við Karlakórinn Geysi. Þær stofnuðu sérstakt félag árið 1968 og Reynir sagði að starf kvenn- anna væri blómlegt að stuðningur þeirra hefði verið ómetanlegur. Æfingar Geysis fara fram á 3ju hæð í húsi BTB við Glerárgötu. Kórfélagarnir festu kaup á sal í því húsi fyrir nokkrum árum, en lengi vel æfðu þeir í Lóni sem nú heitir Dynheimar. Nýi salurinn ber einnig nafnið Lón. Þegar ég leit þar inn fyrir helgina voru Geysismenn, (núverandi og fyrr- verandi félagar) að æfa og vegg- irnir titruðu þegai kraítur var lagður í raddirnar. Árni Ingi- mundarson stóð fyrir framan hóp- inn og stjórnaði, en eins og fram kemur í inngangi á opnunni er núverandi kórstjóri Ragnar Björnsson. Ragnar býr í Reykja- vík en kemur af og til norður og æfir karlana. „Vissulega má segja að sé á ýmsan hátt erfitt að söng- stjórinn sé í Reykjavík en kórinn á Akureyri. Ragnar getur ekki alltaf verið með okkur en þá njót- um við góðrar aðstoðar manna innan kórsins.“ Getur það verið satt að í þrett- án þúsund manna samfélagi sé ekki hægt að finna söngstjóra? Reynir sagði að það væri stað- reynd. „En þetta hefur allt gengið og ég vona og veit að Geysir á langt líf fyrir höndum.“ Geysir hefur fætt ýmislegt af sér - m.a. Geysiskvartettinn sem fyrst kom fram árið 1968. í Geys- iskvartettinum eru þeir Aðal- steinn Jónsson, Birgir Snæbjörns- son, Guðmundur Porsteinsson og Sigurður Svanbergsson. Nýlega tók kvartettinn þátt í móti kvart- etta í Danmörku og þar stóðu þeir félagar sig bærilega - höfnuðu í 3ja sæti. Utþráin er mikil í Geysis- félögunum og sagði Reynir að utanferð væri alltaf á óskalistan- um, en hann sagði jafnframt að slík ferðalög kostuðu mikinn undirbúning, sem ekki er hristur fram úr erminni. En stærta spurningin er e.t.v. sú hvort karlakórar eiga framtíð- ina fyrir sér, getur verið að þeir heyri fortíðinni til? „Ég vona að þeir eigi framtíðina fyrir sér, en það verður tíminn að leiða í ljós. Það má e.t.v. segja að það hafi gætt nokkurrar stöðnunar hvað karlakóra varðar en ég trúi því að það verði alltaf til fólk sem hefur anægju af að heyra fallegan karla- kórasöng." Reynir Valtýsson 1 m y f Elstu félagamir. Þeir vora að æfa í Lóni fyrir helgi og var ekki annað hægt að sjá en þeim líkaði lífið vel. Frá vinstri: Ólafur Magnússon (gekk í Geysi 1923), Hermann Stefánsson (er einn af stofnfélögunum), Stefán Halldórsson (1928) og Kári Johans- en (1930). Mynd: - áþ. Á æfingu í Lóni. Þama höfum við gömlu félagana sem munu syngja á konsertum Geysis um mánaðamótin. Mynd: PAP Hápunkturinn var Noregs- ferðin —segir Kári Johansen Kári Johansen, deildarstjóri, var aðeins 18 ára gamall þegar hann gekk í kórinn. Þetta var um haustið 1930 og Kári söng með kórnum þar til um vorið 1981. „Þetta er búinn að vera mjög skemmtilegur tími. Við þessir gömlu eigum margar góðar minn- ingar,“ sagði Kári. „Yfirleitt fannst mér æfingarnar skemmti- legastar, en þá hitti ég góða félaga og við áttum saman ánægjulegar stundir. Ég lagði ekki eins mikið upp úr því að fara upp á senu og syngja. Þá voru ferðalögin mörg alveg ágæt. Noregsferðin var lang skemmtilegust enda er ég hálfur Norðmaður svo það er e.t.v. ekk- ert skrítið þó ég sé á þeirri skoðun. En í alvöru - ég held að við séum allir sammála um að Noregsferðin sé hápunkturinn í starfi Geysis.“ Þegar Kári byrjaði að æfa með kórnum var hann með aðstöðu í Skjaldborg. „Frá fyrstu tíð hefur Geysir verið mjög heppinn með húsnæði. Meira að segja var bragg- inn í Gilinu (var beint á móti Sjöfn) hreint ágætur." Kári sagði að nú ættu karlakórar svolítið erf- itt uppdráttar og þyrfti að leiða til að endurvekja áhuga almennings á þeim. Þar fyrir utan væri það slæmt fyrir kór ef söngstjórinn væri ekki búsettur á sama stað. „Ég held að framtíð karlakóra hér á Akureyri sé erfið - erfiðari en í Reykjavík - en ég vona að karlakórssöngur muni halda áfram hér og að söngstjóri finnist hér. Hann verður að vera á staðn- Kári sagði að það hefði svo sannarlega verið ánægjulegt að sjá gömlu félagana aftur þegar þeir fóru að æfa saman fyrir 60 ára afmælið. Þarna mætti sjá menn sem hættu að syngja fyrir 10 eða 20 árum, en nú þendu þeir radd- böndin af miklum móð. „Þeir yngjast um ein 10 ár þegar þeir syngja,“ sagði Kári og brosti. Karlakórinn Geysir eins og hann var skipaður í vor. Mynd: PAP CyQfSy tveimur lögur Saga Karlakórsins Geysis er löng, miklu lengri en svo að hægt sé að gera henni nokkur skil hér og nú. Hinsvegar er hægt að tæpa á einstökum at- riðum, en Dagur hefur ætíð fylgst vel með kórn- um eins og sjá má þegar gömlum blöðum er flett. Dagur - 23. mars 1932: Geysir söng í Samkomu- húsi bæjarins fyrir full- skipuðum bekkjum. LOKSINS, varð manni á að hugsa, því Geysir hef- ur mátt þreifa á því í vetur, að völt er veraldar- hyllin. Hvað eftir annað hafa þeir boðið og laðað, en lýðurinn daufheyrst og látið þá um hversu þeim tækist að tjá list sína tóm- um veggjunum, að segja má. Þangað til á sunnu- daginn, að maður fékk von um að bæjarbúar væru aftur að glöggva sig á sínum vitjunartíma. Því Geysir á það skilið að vera af oss vel metinn. Vér eigum erfitt aðstöðu á ýmsa lund, en því síður megum vér vanrækja nokkuð það, er eflt getur menningu vora á einn og annan hátt . . . Vafalaust er hér allmikið af söng- hæfileikum og góðum röddum. Sérstaklega hafa norðlenskir tenórar feng- ið orð á sig og maklega. En fremd félagsins er ekki eingöngu né endi- lega fyrst og fremst að þakka góðum röddum, heldur söngstjóranum, hr. Ingimundi Árnasyni. Félagið hefur verið að öllu leyti heppið, að fá að njóta hans. Hann er músí- kalskur í besta lagi, og að eðlisfari listrænn, smekk- vís og ákveðinn stjórnari. Dagur - 14. aprfl 1932: Geysir kvaddi íslensku vikuna með söng í Nýja- Bíó á sunnudaginn. Á söngskránni voru ein- göngu íslensk lög við ís- lenska texta, 15 alls . . . Tókst söngur Geysis mjög vel eins og venja er til og var hinn ánægjuleg- asti. Sérstaklega þótti mikið koma til Land- námssöngsins og varð flokkurinn að endurtaka það lag og fleiri. Dagur - 20. aprfl 1933: Karlakórinn Geysir söng í Nýja-Bíó á annan í páskum. Söng flokkurinn 12 lög og varð að endur- taka mörgþeirra. Gunnar Pálsson söng einsöng í lögum og enn- fremur sungu þeir Gunn- ar Pálsson og Hermann Stefánsson tvísöng í einu laginu. Vigfús Sigurgeirs- son aðstoðaði með flygel- undirspili. Þessi söng- skemmtun Geysis tókst prýðilega, enda fékk kór- inn hinar bestu viðtökur hjá áheyrendum. Að- sóknin bar þess vott, að almenningur í bænum hefur nú áttað sig á því, að það er mesta unun að heyra Geysi syngja. Það var ekki einungis að hvert sæti væri skipað, heldur og hvert stæði í húsinu. Geysir endurtekur söng- skemmtun sína á morgun (sumardaginn fyrsta) í Nýja-Bíó kl. 5 e.h. Dagur - 21. maí 1952 Geysi var forkunnarvel fagnað í Þrándheimi. Blaðadómar um fyrstu hljómleikana voru mjög lofsamlegir. Húsfyllir á hljómleikunum í Þránd- heimi. Kórnum fagnað hjartanlega í gær. Molde, þriðjudag. Einkaskcyti til Dags. „Hekla" kom til Þrándheims klukkan sjö á mánudagsmorguninn eftir þægilega sjóferð. Veður var gott alla leið- ina en sjóveiki gerði lítil- lega vart við sig á laugar- daginn. Var hátíðarhöld- unum um borð í tilefni af þjóðhátíðardegi Norð- manna frestað til sunnu- dagsins. Þá flutti Sigurður Magnússon, fararstjóri, erindi um Noreg, séra Ingólfur Þorvaldsson, frá Ólafsfirði, flutti stutta guðsþjónustu, Geysir söng norsk lög. Get- raunakeppni farþega um fyrstu landssýn vann Tómas Steingrímsson og hlaut hann 500 krónur í verðlaun. Brottförin frá Akur- eyri. Með Heklu fóru 185 farþegar, frá Akureyri 128, þar af Geysismenn og skyldulið 70, frá Suðurlandi 21, frá Aust- urlandi 22 og frá ýmsurn stöðum á Norðurlandi 14. Skipið fór héðan frá Torfunefsbryggju klukk- an 8 síðastliðinn föstu- dag. Hafði áður farið fram virðuleg kveðjuat- höfn á bryggjunni . . . Laust fyrir klukkan 8 gekk Karlakór Akureyrar fram á bryggjuna og söng kveðjuljóð, er ort hafði formaður kórsins, Daníel Kristinsson, við lag Björgvins: Syng frjálsa land. Því næst ávarpaði Jónas Jónsson, kennari, kórinn fyrir hönd Karla- kórsins og Kantötukórs- ins, en því næst söng Kantötukórinn undir stjórn Björgvins Guð- mundssonar Þú ert fögur Akureyri, ljóð Jóns Norland, lag Björgvins. Hermann Stefánsson, formaður Geysis, ávarp- aði mannfjöldann úr lyft- ingu, þakkaði vinarhug, kveðjur og góða aðstoð og kvaddi bæinn með hlýjum orðum. Dagur - 28. maí 1952 Blaðinu hafa borist fyrstu blaðaummæli frá Noregi um söng Geysis. Adresse- avisen í Trondhjem segir svo 20. maí: Hljómleik- arnir í gærkvöldi reyndust sannarlega viðburður. Hér bar alls ekkert vott um minnstu hnignun eða afturför á þesum vett- vangi, því að svo hress- andi hreinan, þrótt- mikinn og heilbrigðan söng er sjalfgæft að heyra. Geysir er mjög vel skipulagður, og hin af- burða mikla hljómfylling þegar í upphafi í „Ja, vi elsker“ spáði óðar góðu . . . Árni Ingi- mundarson er duglegur og nákvæmur undirleik- ari. Dagur - 9. fcbrúar1955 (Úr afmælisgrein um Ingimund Árnason sex- tugan, eftir Hermann Stefánsson). Þegar yfir álinn kom, til Þránd- heims, var allt hik og kák á burt, 800 manna salur, þéttsetinn. Ingimundur laust kórinn töfrasprota sínum og snart tilheyr- endur svo, að heyra hefði mátt flugu anda, þegar því var að skipta og á hinn bóginn ætlaði fögnuður Norðmanna allt að sprengja. Meðal annars stökk symfóníuhljóm- fóru frá Lóni heim til Ingimundar. Gengu þeir með 40 logandi kyndla um götur bæjarins, en heima við hús Ingimund- ar voru flutt ávörp. Dagur - 5. maí 1971 (Úr grein eftir Soffíu Guðmundsdóttur): Hvað söng Geysis áhrærir er þar skemmst frá að segja, að hann hefur tekið stór- um stakkaskiptum og ótrúlegum framförum. Söngstjórinn, Philip Jenkins, hefur náð ágæt- um arangri, sem birtist í öguðum heildarsvip, vönduðum flutningi og ævinlega smekkvísum. Hraðaval ,er létt og óþvingað, hann leyfir engar yfirdrifnar hraða- eða styrkbreytingar auk heldur tilfinningasemi af neinu tagi. Dagur - 8.júní1974 Karlakórinn Geysir held- ur samsöngva um næstu helgi í Borgarbíói á Ak- ureyri undir stjórn Sig- urðar Demetz Franz- sonar . . . Einsöngvarar eru Aðalsteinn Jónsson, Guðrún Kristjánsdóttir og Kristján Jóhannsson. Undirleikari Hörður Kristinsson . . . Kórinn hefur æft af kappi í vetur undir stjórn Sigurðar Demetz og hyggur á skemmti- og söngferð til Norður-Ítalíu í septem- ber. Verða þá heimaslóð- ir söngstjóans heimsótt- ar. Dagur - 14. desember 1974 (Úr grein eftir Guðmund Gunnarsson): Um kvöld- ið var samsöngur í félags- heimili Ortiseibæjar. Var þar troðfullt hús, ágætar undirtektir og góður hljómburður . . . einu sinni var sungið opinber- lega í Lignano. Var það laugardagskvöldið 14. september utanhúss á torgi einu í bænum. Hlýddi allmargt manna á sönginn. Áeftirvarboðið upp á bjór í veitingastað Kvæðið sem fylgt hefur kórnum um árabil Þú komst í hlaðið a hvitum hesti; þú komst með vor í augum þér. Hg söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í brjósti mér. Eg heyri álengdar hófadyninn. Eg horfi langt á eftir þér, og bjart er alltaf um bezta vininn, og blítt er nafn hans á vörum mér. Þó líði dagar og liði nætur, má lengi rekja gömul spor. Þó kuldinn næði um daladætur, þá dreymir allar um sól og vor. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. sveitarstjórinn Cecil Coll- in-Hansen upp á stól og hrópaði: Slik skal mann- sang være“. Um nóttina bárust 6 blaðadómar, allir á einn veg. Tel ég þetta stærsta söngsigur Ingi- mundar. (Úr frétt á forsíðu). Ingimundi . . . var marg- víslegur sómi sýndur. Mesta athygli vakti blys- för Geysismanna, er þeir við torgið og var þar góð- ur fagnaður . . . Skulu hér að lokum færðar þakkir þeim mönnum sent báru hitann og þung- ann af undirbúningi ferðarinnar, formanni kórsins, Frey Ófeigssyni og söngstjóranum, Sig- urði Demetz Franzsyni, en án hans tilverknaðar hefði aldrei úr þessu ferðalagi orðið. 6 - DAGUR - 30. nóvember 1982 30. nóvember 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.