Dagur - 30.11.1982, Side 12

Dagur - 30.11.1982, Side 12
RAFGEYMAR í BfLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA VEUIÐ RÉTT MERKI Vinna kola fyrir USA- markað Þórshöfn 26. nóv. Næg atvinna er hér á Þórshöfn en hér er nú verið að vinna kola sem veiddur var í sumar. Hann var veiddur í sumar og haus- aður og heilfrystur, en frekari vinna við hann fer fram þegar eyður myndast í fiskvinnslunni hér. Búið er að vinna um 3000 kassa af kolanum og ég reikna með að annað eins sé eftir. Kolinn fer á Bandaríkjamarkað og það er mjög gott að geta unnið hann svona eftir hendinni. í>að fæst einnig ágætt verð fyrir þennan fisk og afskipanir eru örar. Togarinn Rauðinúpur er í slipp á Akureyri og verður þar fram- undir jól. Stakfellið hefur hins- vegar aflað ágætlega að undan- förnu. Afli línubáta hefur verið lítill, um 4 tonn þegar best hefur Iátið. JJ. Svo getur farið að togarinn Guðsteinn, sem legið hefur bundinn við bryggju ■ nokkra mánuði, verði keyptur norður og gerður út frá verstöð við Eyjafjörð - e.t.v. Akureyri. Það eru Akureyringarnir Þor- steinn Vilhelmsson, skipstjóri, og Þorsteinn Baldvinsson, skipaverkfræðingur, sem eru. að athuga hvort þeir geti fengið togarann keyptan. Að sögn Þorsteins Baldvinssonar mun það skýrast fyrir miðjan næsta mánuð hvort af kaupunum verður. Guðsteinn er um 700 tonn að stærð. Togarinn stöðvast þar sem útgerð hans átti við umtalsverða rekstrarerfiðleika að etja. Athug- un hefur farið fram á því hvort hægt sé að mæla skipið niður, en Þorsteinn sagði að niðurstaðan væri neikvæð. Eins og málum er háttað í dag þarf 24 manna áhöfn um borð í skip á stærð við Guð- stein en 16 um borð í togara af minni gerðinni. Þorsteinn sagði að nú væri í gangi athugun á fjölda skipsmanna um borð í togurun- um, en hann sagði að eins og mál- um væri háttað í dag væri útilokað að greiða 24 mönnum nægjanlega gott kaup. Afleiðingin væru sú að bestu mennirnir færu um borð í þá togara sem byðu upp á bátakjara- samningana. Þetta atriði sagði Þorsteinn að vægi mjög þungt hvað varðar hugsanleg kaup þeirra félaga á Guðsteini. Vígsluathöfn hjá FSA Á laugardag fór fram formleg vígsla nýbyggingar Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri sem tekin hefur verið í notkun að hluta. Jafnframt var sjúkrahús- inu afhent Systrasel en þar er nú fullbúin hjúkrunardeild. Gera má ráð fyrir að hún taki til starfa á næstu mánuðum en heimild er fengin til að ráða starfsfólk. Þá verður fjölgun á starfsfólki FSA sem nemur 57- 58 stöðugildum. Kom þetta fram í ræðu Svavars Gests- sonar, heilbrigðismálaráðhera, við vígsluathöfnina. Athöfnin hófst með því að blás- arar frá tónlistarskólanum léku og síðan flutti séra Birgir Snæbjörns- son bæn og blessunarorð. Gunnar Ragnars, stjórnarformaður sjúkrahússins, ræddi málefni stofnunarinnar almennt. í máli hans kom fram að sótthreinsunar-. deild, skurðdeild og svæfingar- deild sem fluttar eru í nýbygging- una hafa nú fimmfalt meira rými en áður. Einnig eru gjörgæslu- deild, augndeild og heyrnadeild fluttar í nýbygginguna en slysa- deild og bæklunarlækningadeild verða í húsnæði sem losnar við flutninga hinna deildanna, auk kvensjúkdómadeildar. Þá tekur til starfs rannsóknastofa í meina- fræðum en tæki vantar ennþá til þeirrar deildar. Við þessar breyt- ingar fjölgar legurýmum um sam- tals 31, þar af 10 í ícvensjúkdóma- deild. Auk þess bætast við með Séra Birgir Snæbjömsson bað starfseminni í nýbyggingu FSA blessunar við vígsluathöfnina á laugardag. Mynd: H.Sv. tilkomu hjúkrunardeildar í Systraseli 20 legurými fyrir sjúkt aldrað fólk. Gunnar Ragnars sagði að rekstu sjúkrahússins væri erfiður og sjálfsagt mætti margt færa til betri vegar. Hann gat þess að sjúklingar sjúkrahússins yrðu um 5 þúsund í ár og heildarlegudaga- fjöldi um 50 þúsund. Hver sjúk- lingur er því að meðaltali 10 daga á sjúkrahúsinu en um 70% þeirra eru sjö daga eða skemur. Hann sagði að afköstin á sjúkrahúsinu væru hvað mest sem þekktust í landinu og kostnaður á hvern sjúkling með því lægsta sem þekktist. Svavar Gestsson fagnaði sér- staklega tilkomu hjúkrunardeild- ar og bæklunarlækningadeildar sem hann sagði að myndi nýtast öllum landsmönnum. Hann gat þess að rekstur sjúkrahússins kostaði um 120 milljónir á ári sem væri jafnmikið og kostnaður við að reisa nýbygginguna. Þá sagði Svavar að rekstrarkostnaður sjúkrahúss eins og FSA væri á við kostnað af 10 heilbrigðisráðu- neytum og að um 10% af þjóðar- framleiðslu færu til heilbrigðis- mála. Einnig töluðu Stefán Stefáns- son sem rakti byggingarsögu hússins, Jón Kristinsson sem af- henti Systrasel fyrir hönd fram- kvæmdanefndar, Sigríður Haf- stað afhenti sónartæki frá kven- félögum við Eyjafjörð og Val- gerður Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, flutti ávarp. Gagnfræoaskóli Akureyrar: Kennarar óánægðir „Þú leggur fyrir mig mjög erf- iða spurningu, vilt þú doka við augnablik,“ sagði Ólafur Búi Gunnlaugsson kennari við Gagnfræðaskóla Akureyrar er við spurðum hann fyrir helgina hvort kennarar við þann skóla væru í mótmælaaðgerðum. Að vörmu spori kom Ólafur Búi síðan í símann aftur og sagði: „Svarið við spurningu þinni er nei.“ Síðan gaf hann okkur samband við Bernharð Har- aldsson skólastjóra og við lögð- um sömu spurningu fyrir hann. „Því er ekki að leyna að við höf- um verið óánægðir með afgreiðslu Fjármálaráðuneytis og launa- deildar á umsömdum launum fyrir unna vinnu samkvæmt kjara- samningum," sagði Bernharð. „Það hefur orðið óeðlilegur drátt- ur að okkar mati á því að fullar greiðslur fyrir unna vinnu hafi borist til okkar. Þetta á við um Iaunaflokkamun, yfirvinnu og þess háttar.“ Nokkuð hefur verið um það að foreldrar barna í Gagnfræðaskóla Akureyrar hafi kvartað undan því að börn þeirra hafi verið send heim þegar þau áttu að vera í kennslu í skólanum. Við spurðum Bernharð hvort kennarar við skólann væru að þrýsta á launa- deild Fjármálaráðuneytisins með því að fella niður kennslu og senda börnin heim. „Nei, við þrýstum ekki á það með þessum aðgerðum. Við höf- um ótal sinnum haft samband við Menntamálaráðuneytið og ekki síður Iaunadeildina en það hefur hvorki gengið né rekið. Við höfð- um samband við fjármálaráð- herra í síðustu viku og við vænt- um bréfs frá honum og skýringa.“ - Nú er það staðreynd að þið hafið sent krakkana heim úr skólanum? „Það er alveg rétt. Við gerðum það á föstudaginn 19. þ.m. enda tókum við mikinn hluta þess dags til að undirbúa foreldradag sem hafði löngu verið ákveðinn á mánudag í síðustu viku. Síðan er mönnum heimilt að túlka það eins og þeir vilja. Hitt er annað mál að skólar hafa heimild samkvæmt reglugerð nr. 79 frá 1976 um starf- semi grunnskóla til að eyða ákveðnum dagafjölda á vetrinum í annað en kennslu og próf og það eru taldir upp í reglugerðinni nokkrir liðir og þar á meðal eru foreldradagar og annað þvíum- líkt. Þetta er því allt saman sam- kvæmt reglugerð um rekstur grunnskóla." - Þú neitar því sem sagt að hér sé um þrýstiaðgerðir kennara að ræða? „Þetta er allt saman samkvæmt reglum um grunnskóla. Við erum að nýta okkur heimildir innan ramma reglugerðar og laga. En eins og ég sagði áðan er mönnum síðan heimilt að túlka það eins og þeirvilja.“ # Smáfiskadráp Að undanförnu hefur farið fram töluverð umræða um smáffskadráp og hefur sitt sýnst hverjum. Skipstjórar mótmæla harðlega að þeir veiði smáfisk en Kristján Ragnarsson er á öðru máli. Og hver er svo sannleikur- inn? S&S ræddi við nokkra sjómenn (sem vildu ekki láta nafns síns getið - sögðu að þeir ætluðu sér að halda áfram á sjónum) og þeim kom saman um að því miður hefði Kristján Ragnarsson of mikið til síns máls. Það væri stað- reynd aðtogararnirfæru inn á friðuðu svæðin og þau sem hefði verið lokað vegna of mikiis smáfisks í aflanum. Sjómennirnir tóku það skýrt fram að þetta ætti ekki við um alla skípstjóra - en allt of marga. # Flugvélin sést sjaldan Flugvél Landhelgisgæslunn- ar sést sjaldan á miðunum enda er víst ekki til fé til kaupa á olíu. Varðskipin sjást enn sjaldnar, sögðu viðmælend- ur S&S, því það er víst ódýr- ara að hafa þau bundin við bryggju. Heimildarmenn S&S sögðu að þeir hefðu hvað eftir annað tekið þátt í þvf að moka smáfiski f sjóinn - og að þeir skipstjórar sem hæst hafa um sakleysi sitt hefðu sumir hverjir verið manna dúgleg- astir að skarka í friðuðum hólfum. # Verður Alþýðuhúsið... Það fór ánægjuleg tilfinníng um S&S þegar það frétti um viðbrögð verkalýðsfélaganna þegar sú hugmynd skaut upp kollinum að færa Félagi aldr- aðra Alþýðuhúsið að gjöf. Tæpast er hægt að hugsa sér höfðinglegri gjöf. Innan vé- banda Féalgs aldraðra er að finna fjölmarga sem hafa um árabil starfað meira eða minna innan hinna ýmsu verkalýðsfélaga og það má því segja að þau séu að styðja við bakið á gömlum félögum úr baráttunni ef þau ákveða öll að gefa húsið. Á því leikur enginn vafi að Félag aldraðra hefur meira en nóg með húsið að gera. Þar geta félagar þess dansað, spilað og gert næst- um hvað svo sem hugurinn girnist, en búið er að laga mikið til í Alþýðuhúsinu svo það hentar ágætlega fyrir starfsemi eins og þá sem fram fer á vegum Félags aldraðra. # Hverjireiga Alþýðuhúsið? Eftirtaidir aðilar eiga húsið (eignahlutföll í svigum): Verkaiýðsfélagið Eining (33,5%), fulltrúaráð verka- lýðsfélaganna (26,95%), Iðja, félag verksmiðjufólks (14,46%), Bílstjórafélag Akur- eyrar (8,66%), Félag málmiðn- aðarmanna (4,28%), Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri (3,11%) og Vél- stjórafélag Akureyrar (2,57%).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.