Dagur - 03.12.1982, Blaðsíða 2
„Allir
eru
útí
að
spáí6
Kristján hríngdi frá Húsavík:
Ég hef gert dálítið af því mér til
gamans að setja saman ljóð, og
hafði ekki ætlað mér að láta þau
koma fyrir sjónir annarra. Svo
fór þó samt og hefði betur ekki
orðið. Sá sem ljóð mín sá tjáði
mér nefnilega vinsamlegast að
ég bryti allar hefðbundnar regl-
ur varðandi ljóðhætti, braghætti
og hvað eina sem hann kallaði
það nú.
Ég get ekki sagt annað en að
ég hafi orðið klumsa, því ég hélt
að stuðlar og höfuðstafir væru
það eina sem skiptu verulegu
máli. Ein vfsan sem sett var út á
er þannig:
Allir eru úti að spá,
enginn situr heima.
Ég ætla út íglugga að gá,
út um heima oggeyma.
Nú vi! ég fá að vita hvort þetta
litla erindi sem er aðeins eitt úr
langri röð í sérstökum flokki,
brýtur einhverjar reglur í ljóða-
gerð. Ég hef séð að Dagur er
með ljóðaþátt og gæti ekki sá er
hann annast skorið úr þessu fyrir
mig.
Jolamerici
ftamtiðarinn
lcomið út
%cm nti er k.imin
aðinn. 1
Jrtiamcrkið cr gcrt af i
nrcn." a Syn' m>'n‘JI'''^ma
prcntað , Prcntvcrk,
Bjðrnuonar. Mcrkincrut,
' r,mcrk)am,iV.t.HÍ,nni
«1,1,0,, R[>
r-'ststnfunn, í Akurcyri
•<K<*ð, af solu mcrkisins rcr
AFCRHÐUM
MEÐ STUTTUM
fwirvara
l‘v°ll«daíur,
B^JOfSISONj
Vökyadaeiur
00 ventla
Kngsmvalldeforbun.
^ar nylig utnevnf-
L®lf H. Mullor
póithó/f 1394
R®ykiavik
mssss: ssr
•crigspens/on elc. om á h.
órslo anledmng Telelnn
09w »>•«>«*&<%
|gynvalldM„6unde,
Elnfaldar
Myndin sem birtist í Degi.
Ekki leggja
á gangstéttar
íbúi á Eyrinni hringdi og bað
Lesendahornið að fara þess á
leit við eigendur bifreiða á Eyr-
inni (og eflaust víðar) að leggja
þeim ekki upp á gangstéttir, en
viðmælandi Lesendahornsins
sagði að þá væri eðlilega ekki
hægt að bera sand á þær. Hann
sagði að starfsmenn bæjarins
hefðu borið sand á miðjar göt-
urnar en það gæti tæplega talist
heppilegt að fólk væri á miðjum
götunum. Þessari ábendingu
íbúans er hér með komið á fram-
færi.
Var myndin birt tíl
Húsmóðir í Lundahverfi símaði:
í hvaða tilgangi var birt mynd af
þvotti á svölum fjölbýlishúss í
Lundahverfi? Var það gert til að
lítillækka okkur sem verðum að
þurrka þvott úti á svölum? Ég
vona að svo hafi ekki verið, en
sumir segja að hverfið líti út eins
og fátækrahverfi vegna þess að
við verðum að nota svalirnar
fyrir þvottinn.
Við sem búum í þessum hús-
um höfum litla sem enga að-
stöðu til að þurrka þvottinn á
annan hátt. Það er líka dýrt að
þurrka þvottinn í þurrkara og
fer illa með þvottinn. Og ég vil
líka bæta því við að ef íbúar
þessa lands sýndu aldrei af sér þá
hluti sem ógeðfelldari væru en
að þurrka þvott á svölum - ja, þá
væri heimurinn í lagi.
Vantar
stóla
og
bekki
Ein úr Þorpinu hringdi:
Ég tek undir þau orð að það
þyrfti að koma pósthús og
apótek í Sunnuhlíð, en ég tel að
þar þyrftu líka að vera
hjólastólar. Um daginn fór ég
þangað með aldraða tengda-
móður mína og eftir þá ferð
komst ég að þeirri niðurstöðu að
það vanti sæti á gangana. Fólk
myndi fagna þvf ef það gæti sest
niður og hvílt sig, sérstaklega á
þetta við um aldrað fólk.
En það ætti ekki að láta staðar
numið þegar hjólastólar og
bekkir eru komnir. Ég á lítið
barn og þætti ákaflega þægilegt
er það væru litlar innkaupakerr-
ur við aðalinngangana. Til eru
kerrur sem eru þannig að hægt
er að koma litium börnum fyrir í
þeim, en slíkar kerrur gera það
að verkum að foreldrarnir eru
mun frjálsari að versla en.ella.
Maður þarf þá ekki að vera með
barnið á handleggnum. Flestir
koma í Sunnuhlíð á bílum og
geta ekki verið með barnavagn-
ana meðferðis.
Svo finnst mér það brenna við
að starfsfólkið leggi við inngang-
inn, en ég tel að það ætti að
banna bifreiðastöður við aðal-
innganginn. Ef þú værir að
koma með eldri manneskju í
Sunnuhlíð þá væri ákaflega
^ægilegt að geta rennt upp að
aðalhurðinni og hleypt viðkom-
andi út - haldið áfram og lagt á
bílastæði.
Bannað í lögum um Qölbýlis-
hús að hengja þvott út á svalfr
Húsmóðir í Lundarhverfi
hringdi:
Mig langar til að koma á fram-
færi hlut sem ég hef lengi verið
að velta fyrir mér hvers vegna
engum hefur dottið í hut að gera
athugasemd við.
Kveikjan að því að ég hringi
er mynd sem var í Degi í gær (23.
nóv.) af þvotti á snúru og undir
henni stóð „Þvottadagur í Lund-
arhverfi".
Hvernig í ósköpunum stendur
á því að engum hefur dottið í
hug að skrifa um þennan ósið að
hengja þvott út á svalir. Nú er
bannað í lögum um fjölbýlishús
að hengja þvott út á snúrur, og
mér finnst þetta hrikalega
ósmekklegt og er lengi búin að
berjast fyrir því að þetta sé ekki
gert. Ég veit að í Reykjavík er
þetta harðbannað og reyndar
sekt við því að gera þetta þótt ég
viti ekki hversu há hún er. Þetta
virðist mér hinsvegar vera dálít-
ið séreinkenni hér á Akureyri,
það er ævinlega þvottur úti á
snúrum á svölum fjölbýlishúsa. •
Þetta er mjög leiðinlegt. Það
eru þvottahús í öllum fjölbýlis-
húsum og ef fólk þarf endilega
að hengja þvott út þá er hægt að
hengja snúrurnar fyrir neðan
svalahandriðið þannig að hann
sjáist ekki allsstaðar að.
Af hverju
eru tækin
í Mið-
bænum
„Hlíðhverfingur“ skrifar:
Hvað er nú að vefjast fyrir
bæjarverkstjórn og þeim sem
eiga að sjá um að moka göturnar
okkar hér í bænum? Ég las um
það í fyrra að götumokunar-
deildinni væri tækja vant, en er
ástandið svo slæmt að ekki sé
hægt að ráða við fyrstu snjóa
sem reyndar eru ekkert nema
nafnið?
Hvers vegna er verið að ham-
ast með tækin niður í miðbæ og
jar í kring þar sem aldrei kemur
snjór að ráði? Ætli það væri ekki
nær að fara með þau upp á
Brekku, svo ég tali nú ekki um
út í Hlíðahverfi, og reyna að
koma götunum þar í ökufært
ástand.
Það hefur hreinlega sett að
mér hroll þegar ég hugsa til þess
hvernig ástandið verður þegar
gerir alvöru snjókomu, fyrst
ekki er hægt að ráða við þetta föl
sem nú er.
Verksmiðjuútsala
Utsala á ullarvörum. Margt eigulegt í tískufatnaði
á tækifærisverði og fjölmargt fleira, hentugt til jólagjafa.
Opið nk. mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 9.00-18.00.
/
Utflutningslager ullariðnaðar
(Gamla Þórshamarsbúðin)
IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS
ÁAKUREYRI
2 - DAGUR — 3. desember 1982