Dagur - 03.12.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 03.12.1982, Blaðsíða 12
mmr Akureyrí, föstudagur 3. desember 1982 rBAUTINN - SMIÐJAN' Á Bauta: Fyrst um sinn afgreiðum við Salatbarinn eingöngu föstudaga-sunnudaga, bæði í hádeginu og á kvöldin. * Hafið þið prófað okkar vinsælu Bauta- og Smiðjuhamborgara. gömlum Degi árið 1949 Allir á völlinn 10. ágúst. Vikulegir knattspymuleikir KA - Þór! Og svona verður það áfram hvernig sem blæs. Komið bara og sjáið í . kvöld - kostar ekkert — nema skósólana, raddböndin og taugamar. Það veitir ekká af að „heppa" á drengina (þetta er nú stundum eins og gömul vél að fara í gang) og fyrir utan völlinn er þetta ennþá a.m.k. aðallega taugastríð. Tveir leikir eru búnir, flestir mættu til leiks og allir á vellin- um gerðu eitthvað, misjafnlega fallegt og fáir ljótt en úr- sht hafa ekki fengist. Endaði fyrri leikur með 1:1 marki, síðari leikur með 2:2 mörkum. En verður áframhaldið svona em þetta fyrr en varir orðnir viðburðaríkir leikir. Og áreiðanlega er æfingin piltunum holl, ístra og stirðleiki í hðamótum láta ekki lengi bíða eftir sér á shkum velsæld- artímum er við lifum nú á í þessum bæ. Áfram því og fleiri í framboði til leiks með hverri keppni. Og „bestu stæði" em aUtaf th boða fyrir góða áhorfendur. Góð afrek 24. ágúst. Meðal keppenda á Meistaramóti íslands í frjálsum íþróttum vom stúlkur frá Akureyri sem vöktu mikla athygh fyrir íþróttaafrek. Anna Sveinbjörnsdóttir setti þar íslandsmet í kúluvarpi, kastaði 9,13 m og María Guðmundsdóttir sló íslandsmet í hástökki. Hún stökk 1.32 m. Hvort tveggja em góð afrek og þegar þess er gætt að stúlkurnar hafa aðeins æft nokkrar vikur undanfarið má búast við að þær nái fljótlega betri árangri. Anna og María eru báðar úr Knattspyrnufélagi Akureyrar. Stærsti maður veraldar 7. október. Nýlega hafa borist hingað fréttir af Jóhanni Svarfdælingi sem talinn er stærsti maður veraldar. Jóhann er ráðinn hjá stærsta fjölleikafirma heims, Ringling Bors. og Barnum og Baili í Bandaríkjunum. Hefur hann að undanförnu verið á ferðalagi með fjölleikasýningum fé- lagsins um Kaliforníu og sunnanverð Bandaríkin. í bréfum lætur Jóhann vel af vistinni þar vestra. Eldur í hóteli 16. nóvember. Rétt fyrir hádegi á mánudaginn kom upp eldur í miðstöðvarklefa í kjaUara Hótels Norðurlands hér í bæ. Miðstöð hússins er olíukynnt og er þess getið tU að ör- yggisbúnaður hafi bhað vegna rafmagnstruflana er vart var við rétt áður og of mikU olía hafi mnnið inn á ketUinn en þá hafi myndast gas er síðan kviknaði í. . . Vildi kaupa Nýja bíó 14. desember. Fyrir nokkm spurðist bæjarstjórnin fyrir um það hjá eiganda Nýja bíó hér í bæ hvort eignir félags- ins væru falar tU kaups. Stjórn bíósins hefur nú svarað fyrirspum bæjarins á þá leið að hún hafi ekki fyrirhugað sölu á eignunum, en hinsvegar telur hún sig fúsa að taka tU athugunar tilboð frá bænum ef það bærist henni í hendur. Á bæjarráðsfundi nú nýlega var mál þetta tekið tU umræðu og var þar samþykkt að gera félaginu boð um að kaupa ÖU hlutabréf þess fyrir 900 þúsund krónur enda tak- ist samkomulág um greiðsluskilmála. Svör bíósins við þessu boði hafa ekki borist að því er séð verður af fundar- gerðum bæjarráðs og bæjarstjórnar. 7 dagar til jóla - pennastrikið ókomið 17. desember. í dag éru 7 dagar til jóla og nærri hálfur mánuður síðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins settist á valdastólana með miklu yfirlæti. Samt er „pennastrikið" ókomið enn, enda þótt dýrtíðin hafi aldrei verið geigvæn- legri en nú og afkoma útflutningsframleiðslunnar aldrei erfiðari en síðustu vikurnar. - Þjóðin spyr því: Hvar er „pennastrikið" sem öllu átti að koma til betri vegar, að sögn núverandi forsætisráðherra, er hann var að magna dýrtiðina með aðstoð hins landlausa lýðs kommúnista- flokksins á árunum 1944-1947? Málgögn Sjálfstæðis- flokksins hafa til þessa ekki sagt neitt um undramátt þessa leynivopns Ólafs Thors. X Óli G. Jóhannsson: „Með svolítið krakkalegu hugarfari“ — segir listamaðurinn um grafík- möppu sem var nýlega gefín út ÓIi G. Jóhannsson hefur nú gefíð út grafíkmöppu sem í eru 10 silkiþrykksmyndir. Mappan ber heitið „Áður fyrr . . .“ og er gefín út í 100 tölusettum ein- tökum. Dagur ræddi stuttlega við Óla og spurði fyrst um nafn- giftina. „Þessar myndir eru gerðar með hliðsjón af olíumálverkum sem urðu til fyrir hartnær tíu árum. Þessi málverk urðu svo- lítið söguleg, eða öllu heldur sýningin sem þau voru sýnd á. Það var í Norræna húsinu á samsýningu akureyrskra mynd- listarmanna. Sýningin fékk af- leita dóma eins og suma rekur ef til vill minni til og meðal ann- ars var það sagt um mig að ég kynni ekki að teikna og feldi það með rósaflúri. Málverkin fengu sem sagt mikla og fræga umfjöllun á sínum tíma.“ „Ertu ekkert ragur við að gefa þessar sömu myndir eða svipaðar út í grafík, eftir þá um- fjöllun sem þær fengu á sínum tíma?“ „Það er nú öðru nær, því ég er mjög stoltur af þessu tíma- bili. Á þessum árum var eigin- lega brotið blað í ferli mínum á þessari braut. Þessar myndir höfðuðu til fólksins, hins al- menna skoðanda, þó hinir lærðu hafi ekki farið um þær mjúkum höndum. Með aukinni þekkingu og reynslu datt svo þessi þráður út hjá mér. Útgáfan á þessum grafíkmyndum er í og með gerð fyrir sjálfan mig til að rifja upp gamlar stundir. Þá má geta þess að ég varð var við það á Kjar- valsstöðum þegar ég tók þátt í samsýningu þar í október að fólk spurði eftir þessum gömlu myndum - vildi þær jafnvel frekar en þennan realisma sem maður er að böðlast í núna.“ „Eru þessar myndir mjög óiíkar því sem þú hefur verið að vinna að upp á síðkastið?“ „Þær eru gjörólíkar og það má nú reyndar segja að þessar myndir séu ólíkar málverkun- um sem þær eru gerðar með hliðsjón af. Þær eru einfaldari í •o, uppbyggingu og aðeins svartar og hvítar. Meginhugmyndirnar koma þó fram.“ „Er eitthvað ákveðið þema í þessum myndum?,, „Margar af þessum myndum urðu upphaflega til þegar maður var allur í því að eignast börn. Þær voru gerðar að sumu leyti fyrir krakkana, með svo- lítið krakkalegu hugarfari. Mér þykir vænt um þetta tímabil og þar sem tækifæri gafst til að vinna þetta í grafík hjá Teikni- stofunni Stíl valdi ég nokkrar samstæðar myndir frá þessu tímabili og gekk frá þeim, teiknaði þær í svörtu og hvítu fyrir silkiþrykkið. “ o< >o 'BA■KHA4AHAN » Barnahúfur og vettlingar Loðfóðraðar nylon skíðalúffur á alla fjölskylduna Sokkabuxur fyrir börn og fullorðna Gjöf sem vermir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.