Dagur - 04.01.1983, Blaðsíða 4

Dagur - 04.01.1983, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON, GYLFI KRISTJÁNSSON OG ÞORKELL BJÖRNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Skynsamlegar aðgerðir í efnahagsmálum í áramótagrein sem Steingrímur Hermanns- son, formaður Framsóknarflokksins ritaði í Tímann, sagði hann m.a. að í meira en 40 ár virtist dýrtíðin hafa verið forystumönnum þjóðarinnar helsta áhyggjuefnið og kæmi það m.a. í ljós þegar litið væri á áramótagreinar síðustu áratuga. „Verðbólguna höfum við þó þolað öll þessi ár og reyndar meira en það, því lífskjörin hafa jafnt og þétt farið batnandi. Er nokkur furða þótt ýmsir skelli við skollaeyrum og finnist fátt um þegar á verðbólguna er minnst. Öll þessi ár hafa jafnframt einkennst af þeirri viðleitni ríkisstjórna að forða þjóðinni undan atvinnu- leysi og öðrum skakkaföllum dýrtíðarinnar um leið og menn hafa keppst við að auka fram- leiðsluna og hagvöxtinn. En það er mikill munur á dýrtíð fyrri ára og nú. Áður var verðbólgan mæld í einstafa tölu, nú í tugum. Það er einnig mikill munur á því að búa við verðbólgu við vaxandi framleiðslu og hagvöxt eða við samdrátt þjóðartekna eins og nú er“. Síðan sagði Steingrímur: „ Þótt furðu vel hafi tekist að halda fullri atvinnu og bæta lífskjörin þrátt fyrir verðbólgu, hygg ég að tími sé kom- inn til þess að staldra við og láta glauminn þagna. Við langvarandi 60% verðbólgu efast ég mjög um að nokkurri ríkisstjórn muni tak- ast að koma í veg fyrir hin alvarlegustu böl verðbólgunnar, atvinnuleysi og erlenda skuldasöfnun. “ Steingrímur Hermannsson minntist síðan á það meginmarkmið ríkisstjórnarinnar að forða atvinnuleysi, en kvaðst sannfærður um að ekki yrði við slíkt ráðið til lengdar, ef ekki drægi fljótlega úr verðbólgu. Hann ræddi síð- an um mismunandi aðferðir til að ráða niður- lögum verðbólgunnar, annars vegar leið íhaldsstjórna sem leiddi af sér gífurlegt atvinnuleysi og hins vegar skipulega hjöðnun og niðurtalningu verðbólgu. Steingrímur sagði síðan: „Það sannaðist 1981 að sú leið var vel fær. En það hefur einnig sannast að til þess að var- anlegur árangur náist er nauðsynlegt að skrefin verði fleiri en núverandi ríkisstjórn hef- ur borið gæfu til að stíga. Við það hættuástand sem nú er verður ekki hjá því komist að lög- binda slíkar aðgerðir til lengri tíma. Jafnframt er eins og nú er ástatt, óhjákvæmilegt að breyta vísitölukerfinu þannig að verulega dragi úr víxlverkunum verðlags og launa. Ef um það næst ekki samstaða, kann að reynast nauðsynlegt að afnema með öllu vísitölubind- ingu í okkar efnahagslífi, á öllum sviðum. Það mun þó reynast þungbært í 60% verðbólgu. Við skulum vona að á nýju ári náist breið samstaða um skynsamlegar aðgerðir í efna- hagsmálum, samstaða um hjöðnun verðbólgu án atvinnuleysis." „Hér voru nemendur sem töldu sig stuðningsmenn allra flokka og flokksbrota“ — Spjallað við Jón Sigurðsson, skólastjóra Samvinnuskólans á Bifröst „Mikill tími fer í félagslífið hjá öllum nemendunum“ — segir Þórír Aðalsteinsson formaður Skólafélags Samvinnuskólans „Samvinnuskólinn er við- skipta- og félagsmálaskóli. Það er misskilningur sem gætir víða að hann sé aðeins viðskipta- skóli, en hann er hvort tveggja. Það eru til fleiri viðskiptaskólar hér á landi en það er algjör sér- staða þessa skóla að hann er jafnframt félagsmálaskóli. Það eru margir sem segja að það sé einkennilegt að hafa verslunar- skóla uppi í sveit þar sem engin verslun er nálæg, og verslunar- skóli ætti að vera í Reykjavík, enda er viðskiptalífið fjörugast þar, eða á Akureyri því að þar er mjög mikilvæg viðskipta- miðstöð. Þá gleyma menn því að þetta er félagsmálaskóli. Og allir þeir sem ég hef rætt við um málefni Samvinnuskólans hafa verið sammála um að það er ekki hægt að stunda félags- málafræðsluna með góðum ár- angri nema í heimavistar- skóla,“ sagði Jón Sigurðsson, skólastjóri Samvinnuskólans að Bifröst, í samtali við Dag. Hvaða réttindi gefur Sam- vinnuskólinn? „Eftir tveggja ára nám í Sam- vinnuskólanum er Samvinnu- skólapróf tekið. Samvinnuskóla- prófið veitir þríþætt réttindi. í fyrsta lagi veitir það rétt til að hefja nám við Framhaldsdeild Samvinnuskólans og stefna að stúdentsprófi. í öðru lagi er það viðurkennt af öllum framhalds- skólum að menn geti komið þar inn á þriðja ár eftir nám hérna. Menn hafa reyndar til dæmis farið héðan í verslunarháskóla í Dan- mörku. í þriðja lagi er Samvinnu- skólapróf metið og viðurkennt sem próf í verslunar- og skrif- stofustörfum, stjórnun, bók- færslu og öðru þess háttar. Auka- lega fylgja þvf réttindi Æskulýðs- ráðs ríkisins til að starfa sem leið- beinandi á félagsmálanámskeið- um á vegum þess.“ Styttri kennslutími Nú er starfsár Samvinnuskólans einna styst allra skóla á landinu. Hvernig farið þið að því að hafa starfsárið svo stutt? „Við kennum um 20% styttri tíma í vikum talið en flestir aðrir skólar en í staðinn kennum við 20% meira á viku meðan starfað er. Og þá á ég aðeins við reglulega bekkjarkennslu, en ekki allt fé- lagslífið. Þetta er gert vegna þess hve dýrt það er fyrir nemendur að standa undir fæðiskostnaði mötu- neytis o.fl. Auk þess er mikill fjöldi námskeiða, heimavinna, verkefni, málfundir og margt fleira. Og félagslífið er hluti námsins enda gefnar einkunnir fyrir það út af fyrri sig.“ Hver eru inntökuskilyrðin í Samvinnuskólann ? „Grunnskólapróf, eða sam- bærileg menntun, er auðvitað frumskilyrði. Auk þess er starfs- reynsla metin mikils. En meðal umsækjenda eru margir sem hafa aflað sér meiri menntunar en grunnskóla nemur. Og þar sem umsækjendur eru fjórum til fimm sinnum fleiri en að komast hljót- um við að krefjast góðrar skóla- menntunar eða starfsreynslu. Það hefur alltaf verið þannig í Sam- vinnuskólanum að starfsreynsla hefur verið metin að jöfnu við próf úr öðrum skólum.“ Framhaldsdeild Hvernig starfar Framhaldsdeild Samvinnuskólans í Reykjavík? „Tilgangur Framhaldsdeildar- innar er að gefa Samvinnuskóla- nemum kost á því að fara lengra í námi, til dæmis til háskóla. Þar eru því kenndar þær greinar sem þarf til stúdentspróf en eru ekki kenndar á Bifröst, auk verslunar- greina. Má geta þess að nemend- ur úr Framhaldsdeildinni hafa náð mjög góðum árangri í háskóla og einkunnir þeirra verið með þeim allra hæstu. Og núna er svo komið að allir þeir sem kenna verslunargreinar við Framhalds- deildina eru Samvinnuskólastúd- entar. Þetta finnst mér mjög ánægjulegt og gott vegna þess að þá vita kennararnir vel hvað nem- endurnir hafa að baki er þeir koma til náms í Framhaldsdeild- inni.“ Hver er aldur nemenda í skól- anum? „Það hefur alltaf verið mjög mikil dreifing í aldri nemenda í skólanum. Meðalaldurinn hefur oft verið í kringum 19 ár í fyrsta bekk. Það er augljóst að hér eru aldrei nemendur yngri en þeir sem náð hafa grunnskólaprófi og svo eru hér menn fram um 30 ára aldur og núna síðastliðið vor lauk 39 ára gamall maður námi hér og það eru fleiri dæmi slíks. Þetta kemur til af því að menn sækja um skólavist af mismunandi forsend- um og ástæðum.“ Ákaflega líflegt félagslíf Nú er Samvinnuskólinn þekktur fyrir mikið félagslíf. Hvernig er félagslífinu háttað? „Það er ákaflega líflegt og mikið og allir taka þátt í því. Þótt einhver vildi draga sig í hlé held ég að það væri ákaflega erfitt að losna við að taka þátt í félagslíf- inu. Auðvitað er fólk mismunandi áberandi en allir eru þátttakend- ur. Þegar ég byrjaði hér hélt ég að svo kröftugt félagsstarf væri óþekkt. En þetta byrjaði allt saman á fyrstu dögum skólastarfs- ins eins og ekkert væri sjálfsagð- ara. Embættismenn sem kosnir höfðu verið veturinn áður hófu vinnu og undirbúning samstundis, án þess að skólastjóri eða félags- málakennari þyrftu nokuð að ýta á þá. Þetta stendur auðvitað allt á gömlum merg og skipulagningin og framkvæmdin er öll í höndum nemenda. Félagsmálakennari er hér á staðnum nemendum til halds og trausts. Til hans geta nemendur alltaf leitað um aðstoð. Félagsmálakennari og skólastjóri fylgjast alltaf með félagslífinu og vinna að skipulagningu í samráði við nemendur. Hér er að sumu leyti ágæt aðstaða fyrir félagslíf, svo sem setustofa, sjónvarpsað- staða, vinnustofa fyrir ljósmynda- klúbb og margt fleira. Hins vegar er hér ekki góð geymsluaðstaða fyrir klúbbana og ýmislegt mætti bæta.“ Nú er björgunarsveit hér á staðnum. Gætir þú sagt okkur eitthvað frá henni? „Já, björgunarsveitin hér er deild í björgunarsveit héraðsins og af hálfu björgunarsveitar hér- aðsins eru hér heimamenn sem eru aðilar að þessu starfi nemend- anna. Þetta á við ef yrði almenn leit í héraðinu. Hins vegar er björgunarsveitin hér ef eitthvað kæmi fyrir hjá nemendum t.d. í fjallgöngu eða íþróttum. Björg- unarsveitin á grundvallarbúnað og núna í jólafríinu mun félags- málakennarinn festa kaup á frek- ari búnaði vegna slysa o.fl.“ Yistarreglur Hvernig er vistarreglum framfylgt? „Vistarreglumar eru birtar f Handbók Samvinnuskólans. Þeim er framfylgt með því að skipað er svokallað Vistarráð úr röðum nemenda og því falið að sjá um að reglurnar séu virtar. Það hefur reynst mjög vel að hafa mál nemendanna í þeirra eigin höndum, enda er þetta fullorðið fólk. Hér í eina tíð var ekki Vist- arráð, en þá voru vistarreglurnar allt öðru vísi. Þá fengu menn ekki að fara af staðnum alveg fram að jólum. Þá var vistunum líka lokað innbyrðis í karlavistir og kvenna- vistir og fleira þess háttar. Fyrir átta eða níu árum var fallið frá þessu. Þá var tekið upp annakerfi þannig að menn geta farið til læknis, keypt sér föt og skemmt sér á þriggja vikna fresti. Einnig voru vistirnar opnaðar innbyrðis en þar á móti kom Vistarráð til sögunnar og það á að halda skipan á málum og tilteknar mjög ein- faldar reglur. Það er reynt, eins og fyrirrennari minn, Haukur Ingi- bergsson sagði, að hafa þessar reglur þannig að hér geti fólk lifað eins eðlilegu lífi og hægt er, miðað við það að þessi skóli er eins og togari úti á rúmsjó, 3 vikur í hverri veiðiferð. Það verða að vera einhverjar reglur um borð þangað til komið er að landi aftur.“ Félagslífíð er nám Hver eru áhrif félagslífs á námið? „í fyrsta lagi er félagslífið nám. Hvað sem lfður öðrum skóium er hérna ekki eiginleg samkeppni milli félagslífs og náms. félagslífið er nám og það eru gefnar ein- kunnir fyrir félagslífið. Hér er kennari sem vinnur við að leið- beina og efla félagslífið. Hinu er náttúrlega ekki að leyna að sumum finnst þessi hluti námsins miklu skemmtilegri en aðrir hlut- ar þess. Eins finnst einhverjum áhugaverðara að læra bóklegu greinarnar og slær þá slöku við félagslífið. Þetta er einfaldlega dæmi um sérhæfingu einstaklings- ins eftir áhuga og aðstæðum." Eru menn hér úr öllum stjórn- málahópum? „Skólafélagið gekkst fyrir skoðanakönnun í fyrra um þetta og það kom í ljós að hér voru nemendur sem töldu sig stuðn- ingsmenn allra flokka og flokks- brota. Ég veit ekki annað en að þetta sé svona ennþá. En ég verð líka að viðurkenna að ég veit ekki um stjórnmálaskoðanir nemenda frekar en kennara og starfsfólks, nema þeirra sem eru opinskáir. Ég hef aldrei spurt um þetta sér- staklega enda ekki í verkahring mínurn." Nú er þessi skóli eign Sam- vinnuhreyfingarinnar. Er hér stundaður áróðurmeð Samvinnu- hreyfingunni? „Hér er verið að veita fólki þekkingu á starfsháttum og ein- kennum samvinnufélaga og hér er verið að kenna fólki að nýta sér þá þekkingu. Það er hins vegar erfitt að reka áróður fyrir því t.d. að at- kvæðisréttur í félagi eigi að vera jafn frekar en ójafn. Það fyrir- brigði er varla tekið upp hér sér- staklega því það er heimspekilegt vandamál. Því er einfaldlega sleg- ið föstu að í samvinnufélögum er atkvæðisréttur allra jafn og í hlutafélögum jafn hlutunum, svo að eitt einkenni sé nefnt. Ef þetta er aðlaðandi einkenni samvinnu- formsins þá er það auðvitað gott og ég tel að svo sé.“ „Skólafélag Samvinnuskólans er félag allra nemenda Sam- vinnuskólans. Tilgangur félags- ins er að efla félagslegan þroska nemenda og það gerir félagið meðal annars með því að sjá nemendum fyrir heilbrigðu skemmtana- og félagslífi. Inn- an Skólafélagsins eru starf- ræktir 14 klúbbar svo og ýmsar nefndir og ráð. í klúbbastarfinu ættu allir nemendur að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Þessir klúbbar eru: íþrótta- klúbbur, Björgunarsveitin Glanni, Útvarpsklúbbur, Leiklistarklúbbur, Listaklúbb- ur, Dansklúbbur, Tónlistar- klúbbur, Skólahljómsveit, Skólakór, Ljósmyndaklúbbur, Blaðamannaklúbbur, Kvik- myndaklúbbur, Bridgeklúbbur og Skákklúbbur. í klúbbana geta nemendur gengið, eins marga og þeir vilja og ekki er óalgengt að nemendur séu virk- ir meðlimir í 3-4 klúbbum eða jafnvel fleirum. Það kostar peninga að starfrækja klúbb- ana og til að standa undir þeim kostnaði greiða nemendur Skólafélagsgjald sem stjóm Skólafélagsins ákveður í byrjun hvers skólaárs. Síðan gera for- menn klúbbanna fjárhagsáætl- un fyrir veturinn hver fyrir sinn klúbb. Á gmndvelli þeirra áætl- ana sker stjórn Skólafélagsins niður eða eykur við fjármagn til klúbbanna og leggur fram fjár- hagsáætlun fyrir Skólafélagið í heild,“ sagði Þórir Aðalsteins- son, formaður skólafélags Samvinnuskólans, í samtali við Dag. Kosið í öll embætti Hvernig erkosningum háttað? „Það er kosið með lýðræðis- legri kosningu í öll embætti innan Skólafélagsins. Á vorkjörfundi kjósa 1. bekkingar nemendur úr sínum röðum í stjórn Skólafélags- ins, formenn klúbbanna og önnur embætti sem nemendur síðan gegna veturinn sem þeir eru í 2. bekk. Á skólafélagsfundum er kosið í ýmsar nefndir og á haust- kjörfundi eru 1. bekkingar kosnir í embætti." Hvernig er félagslífinu stjórnað? „í hverri viku er haldinn fundur með formönnum klúbbanna og stjórn Skólafélagsins. Á þessum fundum greina formenn klúbbana frá fyrirhuguðu starfi f sínum Þórir Aðalsteinsson. klúbbum fyrir næstu viku og gerð er dagskrá fyrir vikuna þar sem reynt er að láta starf klúbbanna: skarast sem minnst því nemendur eru flestir í mörgum klúbbum og geta ekki verið á 2 stöðum í einu. Stjórn Skólafélagsins ákveður samskipti við ýmsa hópa, t.d. skóla og íþróttafélög sem koma í heimsókn til okkar og keppa við okkur í íþróttum eða þá heim- sóknir okkar til þeirra. Við höfum samráð við félagsmálakennara um allt sem við gerum í félags- starfinu en hans hlutverk er að leiðbeina okkur og gefa okkur góð ráð.“ Gott og heilbrigt félagslíf Hvernig er félagslífið ? „Það er virkilega gott og um- fram alit heilbrigt. Ekkert áfengi eða aðrirvímugjafareru hérhafð- ir um hönd enda varðar slíkt skil- yrðislausri brottvikningu úr skóla og fer ekki saman með kröftugu félagslífi og erfiðu námi. Við búum fjarri þéttbýli og komumst ekki á aðrar skemmtanir en þær sem við stöndum sjálf fyrir og þess vegna er félagslífið hérna svona fjölbreytilegt og mikið. Skólafélagið stendur fyrir 3 stór- hátíðum: Fullveldisfagnaði, Af- mælishátíð, sem er sameiginleg afmælisveisla allra í skólanum, og sönglagakeppninni Bifrovision. Klúbbarnir eru á stanslausu spani allan veturinn, starfandi eru mál- fundafélög og alls kyns önnur fé- lög og haldnar eru kvöldvökur á laugardagskvöldum og þá leikur skólahljómsveitin fyrir dansi." Eru allir nemendur virkir í fé- lagslífi? „Já, nemendur reyna nær undantekningarlaust að nýta sér þá möguleika sem þetta mikla fé- lagslíf í skólanum hefur upp á að bjóða. Námið er að vísu erfitt og tímafrekt og það eru lestímar alla daga nema sunnudaga frá kl. 16 til 18.30 en allar frístundir eru not- aðar til félags- og tómstunda- starfa.“ Eru íþróttir mikið stundaðar á Bifröst? „íþróttaaðstaðan hér er nú vægast sagt bágborin. Við höfum lítinn íþróttasal en nýtum hann þó vel. Tímar eru skipulagðir í saln- um á kvöldin og mest kapp er lagt á körfubolta, blak og hnit en einn- ig frjálsar íþróttir, borðtennis og líkamsrækt. En knattspyrna er stunduð úti á sparkvelli." Er einhver blaðaútgáfa á Bifröst? „Já, þar má fyrst nefna blað Skólafélagsins sem heitir Vefar- inn. Vefarinn kemur út 2svar á vetri og í blaðinu eru sögur, grein- ar, viðtöl og ljóð, allt eftir nem- endur og blaðið er unnið á staðnum. Fréttablað er gefið út einu sinni í viku og flytur það fréttir úr félagsstarfinu og af mál- efnum skólans. Blaðamanna- klúbburinn gefur út Þefarann 5-6 sinnum á vetri en í því blaði eru skopsögur, grín og slúðursögur. Nemendur2. bekkjar gefaút jóla- blað Samvinnuskólans sem gefið er út í 6 þúsundum eintaka og dreift um allt land. Og loks má nefna blað, eða öllu heldur bók, sem gefin er út á vorin og heitir Ecco - Homo. í þeirri bók eru skopteikningar af nýútskrifuðum nemendum og pistill í léttum dúr um skólagöngu þeirra hér á Bifröst." Nemendur ánægðir Hver eru viðbrögð nemenda til skólans? „Nemendur eru yfir höfuð ánægðir með þennan skóla, leggja hart að sér í námi, hafa gaman af því sem hér er verið að gera og námsleiði er í algjöru lágmarki. Enda væri annað ósanngjarnt gagnvart þeim fjölmörgu sem sækja um skólavist og fá ekki inni. En ekki bara vegna þess heldur líka að Samvinnuskólinn er ein- stök menntastofnun. Hér eru kennd hagnýt fræði og í félagslíf- inu læra nemendur hluti sem þeir þurfa virkilega á að halda og hafa mikið gagn af. Skólinn setur nem- endum sínum að vísu strangar reglur en þær reglur virða nem- endur og fara eftir þeim í hví- vetna.“ Er erfitt að vera formaður Skólafélagsins? „Það er ekki erfiðara starf en t.d. störf formanna í klúbbunum. Á þeim hvílir mikil vinna svo og á öðrum nemendum sem gegna ýmsum embættum innan Skóla- félagsins. Það fer mikill tími í fé- lagslífið hjá öllum nemendum skólans og þannig skal það líka vera.“ 4 - DAGUR - 4. janúar 1983 4. janúar 1983 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.