Dagur - 01.02.1983, Blaðsíða 6
Haraldur Sigurftsson aðstoðar ein nemanda sinn vift stökk yfir „hest“.
Mikið og glæsi-
legt mannvirki
Árið 1973 skipaði bæjarstjórn Akureyrar byggingarncfnd sem skyldi vinna
aft því að byggja íþróttahús sem nýttist fyrir skóla, íþróttafélög og almenn-
ing svo og fyrir hverskonar aðra starfsemi, sem slíkt hús gæti rúmaft, eins
og liljómleika, vörusýningar, leiklist, íþróttamót o.fl.
Byggingai'nefndin tók til starfa 3. ágúst 1973 og var þú þannig skipuft:
Hermaun Sigtryggsson, form., ísak J. Guðmann, ritari, Tryggvi Gíslason,
Ilaraldur M. Sigurðsson og Gísli Bragi Hjartarson. Árift 1978 tók Óðinn
Árnason sæti Gísla Braga sem þá var orftinn framkvæmdastjóri fyrir verk-
taka, sem annaðist byggingu íþróttahallarinnar. Framkvæmdir vift
íþróttahöllina hófust í júní 1977.
Áfangar: Árift 1977 var unnið aft útgreftri og jarðvegsskiptum i lóft og
grunni. 1978 var lokift vift aft steypa kjallara. 1980 var lokift við aft steypa
upp fyrstu og aftra hæð og stafna. 1981 var íþróttahöllin gerð fokheld. Inn-
réttingasmíði og múrverk hafift. 1982 gengið aft mestu frá sal og hluta af
búníngskiefum. Eftir er aft ganga frá kjallara, aðalinngangi að sunnan,
kaffiteriu, norður og suðurálmum aft sunnan og norftan á efri hæð.
Ilúslýsing: Stærð: Grunnflötur hallarinnar er 2919 fm, grunnflötur gólfa
5909 fm, íþróttahöllin er alls 32179 fm.
Rými: Aðalsalur hallarinnar er 27x45 m., scm hægt vcrftur aft skipta í
þrennt. Til hliftar vift salinn eru annars vegar áhaldageymsiur og sena. Á
cfri hæft þeim megin er rými til ýmissa afnota, m.a. gistiaðstaða fyrir aft-
komuhópa en hinsvegar eru búningsklefar, böð, kennarahcrbergi, dóm-
araherbergi, sjúkraherbergi og þvottahús. Einnig verftur þeim megin salur
fyrir heilsurækt.
Vift enda aftalsalar að sunnan og norðan eru minni æfingasalir, sem hægt
cr aft opna inn í aðalsal og fæst vift það 65 m. hlaupabraut. Vift austurhlið
salar, yfir búningsklcfum, er áhorfendasvæfti fyrir 800 manns, en síftar er
gert ráft fyrir bekkjum þar fyrir framan fyrir 600 manns, sem dragast fram á
salargólfið. Á efri hæð austan aftalsalur er kullislofa fyrir 180 manns, fata-
geymsla og snyrtingar. í suðurenda á sömu hæft er aftalinngangur ásanit
forstofu og litlum sal og i norðurenda eru tvö fundarherbergi. í kjallara
verftur salur fyrir lyftingar og 25 m. skotbukki. Tveir búningsklefar og böft
cru I kjallara. Þá er í kjalluru hita-, rafmagns- og loftræstiútbúnaður
ásamt geymsluin. Á jarðhæð í norðausturálmu er inngangur fyrir iðkcndur
íþrótta, þar er einnig daglcg afgreiðslu og aðstafta starfsfólks. Aðulinn-
gangur inn á áhorfendasvæftift og kafTistofuna er aft sunnan.
Lóft er alls 18000 fm. Bflastæði verfta austun og sunnan vift Iþróttahöll-
ina fyrir um 200 bíla.
Eftir því sem íþróttahöllin kemst í notkun tekur íþróttaráð við rekstri
hcnnur. I íþróttaráði eru: Knútur Ottcrstcdt, form., PálJ Stefánsson,
Hreíðar Jónsson, Gísli Lórenzson og Einar Pálmi Árnason.
Byrjunarerfiðleikar sem
þarf að yfirstíga
- segir Hermann Sigtryggsson, formaður bygginganefndar hallarinnar
búningsklefum og anddyrinu.
Eins og þetta er núna er hætt við
að fólk komi þarna inn einungis til
þess að fylgjast með hvað er um
að vera og því eru okkar kennarar
ekki vanir. Það er ýmislegt svona í
hinum daglega rekstri sem hægt er
að laga á einfaldan hátt. Ég get
ekki séð en að þetta lofi góðu allt
saman.“
- Nú kvarta íþróttakennararn-
ir í húsinu undan því hvernig er að
íþróttakennslunni búið í húsinu
hvað varðar tækjakost.
„Það var vitað mál strax í haust
þegar opnað var og fundur var
haldinn með kennurunum. Þeim
var sagt að tækin myndu koma
smátt og smátt í allan vetur. Við
fengum leyfi til að kaupa tæki sem
nú eru komin í húsið, en við vitum
ekki hvað má kaupa næst fyrr en
fjárhagsáætlun hefur verið af-
greidd. Fólkið verður að sætta sig
við það í vetur sem til er og það
sem nú er í húsinu af tækjum er
t.d. mun meira en í Skemmunni
þar sem öll íþróttakennsla tynr
Oddeyrarskóla fer fram.“
- Hver verða næstu verkefni
sem ráðist verður í innanhúss í
höllinni?
„Það er ekki ákveðið, en það
verður fundur nú í vikunni þar
sem tæknimenn koma með kostn-
aðaráætlanir um ýmislegt sem til
greina kemur að fara í næst. Það
sem við höfum áhuga á að gera
núna er að ljúka við að einangra
húsið, ljúka við búningsklefana
þannig að þeir verði 6 í stað 4 og
að ganga frá aðkomunni að áhorf-
endapöllunum bæði innanhúss og
utan. Þá má nefna að Ijúka við að-
stöðu fyrir lyftingamenn sem
verður í kjallaranum. Þá er eftir
að ljúka við að setja loftræst-
ingu, það er ekki nema hluti
hússins sem er kominn í samband
hvað það varðar. Það er svo ó-
talmargt sem hangir á spýtunni og
við höfum áhuga á að fara út í ef
fjármagn leyfir.“
- Finnst þér nokkuð að það
Myndir: - gk
hafi verið ráðist í of mikið, húsið
sé of stórt og of dýrt?
„Ekki finnst mér það hvað
varðar stærð salarins því það sýnir
sig að hann er alveg fullnýttur,
hver stund notuð. En það má allt-
af spyrja þeirrar spurningar hvort
það sé of mikið í kring um þetta
allt saman eins og kaffiterían,
hliðarsalir og annað slíkt. Annars
er reynslan sú að hliðarsalurinn
sem er kominn í gagnið og hýsir
þrektækin er fullnýttur. Hinn
hliðarsalurinn við enda aðalsalar-
ins er einnig tilbúinn og þar er
fyrirhugað að hafa létta leikfimi
fyrir litla hópa, júdó, borðtennis
og ýmislegt annað.
Niðri í kjallara er svo fyrirhug-
að að útbúa sal fyrir lyftinga-
menn, sal fyrir Skotfélag Akur-
eyrar, þar verða búningsklefar
böð og snyrtingar, geymslur og
fleira. Þá eru salir sem nýta má fyrir
félagsaðstöðu, ráðstefnur og
fleira í þeim dúr. Svo er það svæð-
ið á móti áhorfendum. Þar kemur
leiksvið og áhaldageymslur og þar
uppi verður gistiaðstaða sem er
nýjung í íþróttahúsum hér á
landi. Þar eru tveir 70 fermetra
salir. Við erum raunverulega að
byggja þarna fyrir aðkomufólk,
en þessa aðstöðu er þó skilyrðis-
laust hægt að nota sem fundarað-
stöðu, borðtennis og aðra félags-
lega aðstöðu fyrir bæjarmenn.“
- Núsagðirþúaðsalurinnværi
fullnýttur alla daga fyrir íþrótta-
kennslu. Hvenær þarf að fara að
huga að byggingu nýs íþróttahúss
þó ekki væri nema til þess að sinna
íþróttakennslunni í bænum?
„Það fer eftir því hvort við
missum Skemmuna, en við teljum
okkur alls ekki geta misst hana
fyrr en búið er að byggja íþrótta-
hús fyrir Oddeyrarskólann sem ég
teldi æskilegt að yrði næsta
skrefið. Leikfimikennsla í Barna-
skóla Akureyrar og Lundaskóla
er í gamla íþróttahúsinu við Laug-
argötu og einnig í mjög litlum sal í
kjallara Lundaskóla. En það er
fyrirhugað að byggja íþróttahús við
Lundaskóla eins og er við Glerár-
skólann.“
Það er ekki hægt að segja annaft en hann fari fallega yfir „hestinn“ þessi.
Hermann Sigtryggsson var, og
er reyndar enn, formaður bygg-
inganefndar íþróttahallarinn-
ar. Hann er einnig íþróttafull-
trúi Akureyrarbæjar og hefur
yfirumsjón með rekstri hallar-
innar sem framkvæmdastjóri
íþróttaráðs sem sér um rekstur
allra íþróttahúsa bæjarins. Við
spurðum Hermann fyrst að því
hvernig reynslan af nýju höll-
inni hafi verið þá mánuði sem
hún hefur verið starfrækt.
„Það hafa auðvitað komið upp
smá byrjunarerfiðleikar sem þarf
einungis tíma til að yfirstíga. Ég
fæ ekki betur séð en að húsið sinni
sínu hlutverki vel, bakinngangur-
inn er rúmur, fólkið fer í sína bún-
ingsklefa sem eru góðir og að því
að mér virðist gengur gegnum-
streymið í húsinu vel. Hitt er ann-
að mál hvort að kennararnir eru
ánægðir með að hafa þetta allt
svona opið eins og það er en því
má breyta með einföldum hætti
með því að loka salnum betur frá
Stúlkurnar úr Gagnfræftaskólanum létu ekki sitt eftir liggja og hömuðust við æflngar á dýnu undir stjóm Ásdísar Karelsdóttur.
Piltar úr Iðnskólanum vora á fullri ferð við æfingar í þrektækjum í hliðarsal, en þar er aðstaða mjög góft,
Um 100 nemendur eru í
leikfimikennslu í einu
Þegar við lögðum leið okkar í
hina nýju glæsilegu íþróttahöll
á Akureyri einn morgun í síð-
ustu viku var líf og fjör í húsinu,
eins og mun vera þar alla daga.
í aðalsal hússins voru þau Asdis
Karelsdóttir og Haraldur Sig-
urðsson, fímleikakennarar,
með tugi nemenda úr Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og í hlið-
arsal var Hinrik Þórhallsson
með nemendur úr Iðnskólan-
um við æfíngar í þrektækjum.
Húsverðir í íþróttahöllinni eru
fjórir, þau Ingunn Kristjánsdóttir
og Gunnar Níelsson sem vinna
saman á vöktum og þau Gíslína
Óskarsdóttir og Aðalsteinn Sig-
urgeirsson sem eru saman á
vöktum. Um helgar sjá svo þeir
Gunnar og Aðalsteinn um að allt
gangi fyrir sig eins og vera ber. En
við hittum Gunnar Níelsson og
spurðum hann um daglegan rekst-
ur hússins.
„Það má segja að húsið sé þegar
orðið fullnýtt. Frá því klukkan
fimmtán mínútur yfir átta á
morgnana til fimmtán mínútur
yfir fjögur á daginn er leikfimi-
kennsla í salnum og eftir það fram
til fimmtán mínútur yfir ellefu á
kvöldin eru hér æfingar íþrótta-
félaga og annarra aðila. Þá er
hliðarsalurinn þar sem þrektækin
eru mikið notaður, bæði í sam-
bandi við þá kennslu sem hér fer
fram og einnig af bæjarbúum á
kvöldin.
Þeir skólar sem eru hér með
leikfimi eru Gagnfræðaskóli Ak-
ureyrar, Menntaskólinn, Iðnskól-
inn, Tækniskólinn og Vélskólinn
og það er oft þröngt á þingi hér
þegar allt er í fullum gangi. Það
má segja að þegar mest er hér í
salnum séu hér um 100 nemendur
í einu. Ég held að það sé ljóst að
húsið er fullnýtt og getur ekki
annað meiru.“
- Starf húsvarðanna felst í því
að sjá um að allt gangi snurðu-
laust fyrir sig í húsinu, þeir sjá
einnig um viðhald að einhverju
leyti og þá kemur það x þeirra hlut
að þrífa húsið á hverju kvöldi. Til
þess að þrífa alla helstu gólffleti'
hafa þeir vél eina mikla sem einn
maður ekur, og er sú vél sem kost-
aði 220 þúsund krónur mjög full-
komin og afkastamikil. Með
henni er kleyft að þrífa öll gólf á
um klukkustund.
- Haraldur Sigurðsson,
íþróttakennari við Gagnfræða-
skóla Akureyrar, er enginn ný-
græðingur í faginu. Hann hóf
kennslu við GA árið 1946 og
kenndi samfleytt í íþróttahúsinu
við Laugagötu allt þar til hann
flutti sig í nýju höllina í haust.
Haraldur var á fullri ferð með
nemendum sínum inn í sal, en gaf
sér þó tíma til að líta aðeins upp.
Við spurðum hann fyrst hvort að-
staðan í nýju höllinni væri ekki
frábrugðin því sem er í íþrótta
húsinu við Laugagötu.
„Því er ekki að leyna að þetta
húsnæði er gjörólíkt eins og gefur
að skilja. Gamla húsið er aðeins
16x8 metrar að stærð svo það
hljóta allir að sjá muninn. En
þetta gamla hús var prýðilegt og
gott að vera þar. Þar voru þó til
tæki til leikfimiskennslu sem er
ekki í þessu húsi ennþá þótt það
standi vonandi til bóta fljótlega.
Annars var oft þröngt á þingi í
gamla húsinu, t.d. þegar spilaður
var handbolti. Menn fóru unn-
vörpum úr axlarliðnum í þröng-
inni og ég var orðinn sérfræðingur
í að kippa þeim í liðinn.“
- Ásdís Kárelsdóttir, íþrótta-
kennari, tókísamastrengogHar-
aldur, og sérstaklega var hún ó-
ánægð með það hversu illa er búið
að kennslunni í nýju höllinni hvað
varðar tækjakost. „En þetta verð-
ur stórkostlegt þegar við höfum
fengið þau tæki í salinn sem nauð-
synleg eru,“ sagði hún.
Gunnar Níelsson á þvottavélinni góðu en með henni þrífa húsverðir alla gólffleti hússins á klukkustund á hverju
kvöldi.
6 - DAGUR -1. febrúar 1983
1. febrúar 1983 - DAGUR - 7