Dagur - 15.03.1983, Síða 12
LiMUM BORÐA
RENNUM SKALAR
Formaður Ferðamálafélags Akureyrar:
„Akureyringar gjalda
hótelskortsins“
„Hótelmálin eru auðvitaö það
mál sem brýnast er að leysa og
veldur okkar mestu áhyggjum,,
sagði Gunnar Karlsson, er við
ræddum við hann um móttöku
ferðamanna í sumar, en Gunn-
ar er formaður Ferðamálaráðs
Akureyrar.
„Bætt aðstaða á flugvellinum
hér sem óhjákvæmilega veldur
aukningu á ferðamönnum hér í
gegn veldur því að það er uggur í
okkur vegna ástandsins í hótel-
málunum. Það er þegar Ijóst að
það verður eitthvað um leiguflug
hingað erlendis frá og við Akur-
eyringar getum að mjög takmörk-
urðu leyti nýtt okkur þá möguleika
sem skapast við það vegna þess
hvernig ástandið er.
Við neyðumst til að sjá á eftir
þessu fólki út fyrir bæinn, t.d. til
Húsavíkur, í Mývatnssveit eða í
gistingu á Stóru-Tjörnum. Það
hefur sýnt sig sl. sumar að við get-
um ekki tekið á móti neinni aukn-
ingu hvað varðar móttöku á
ferðafólki."
- Nú hefur það lengi verið rætt
hversu bágborin hótelmálin eru
hér á Akureyri án þess að nokkuð
hafi gerst í þeim málum. Er fyrir-
sjáanleg einhver breyting þar á?
„Það er fremur þungt hljóðið í
mönnum eins og er þótt það sé
unnið að þessum málum. Það má
segja að Akureyringar séu farnir
að súpa seyðið af því hvernig
haldið hefur verið á þessum mái-
um undanfarin ár og við eigum
eftir að finna meira fyrir þessu,
það er Ijóst.“
Gamlar bækur
á góðu verði
- á 2000 titla bókamarkaði á Akureyri
Karlakór Akur-
eyrar með
skyndihappdrætti
í tilefni af því að Karlakór Ak-
ureyrar hefur þekkst boð Kóra-
sambands Noregs um þátttöku
í söngmóti í Álasundi dagana
3.-5. júní næstkomandi hefur
kórinn, vegna fjármögnunar
þessarar ferðar, sótt um og
fengið leyfi Dómsmálaráðu-
neytisins til reksturs skyndi-
happdrættis á sínum vegum.
Vinningar eru 44 talsins og allir
veglegir þó ekki séu heilir bílar
eða hús í verðlaun. Miðafjöldi er
takmarkaður og því meiri mögu-
leikar á vinningi.
A næstu dögum munu kórmenn
eða aðrir á þeirra vegum ganga í
hús og bjóða happdrættismiða til
sölu og væntum við þess að bæjar-
búar taki sölumönnum vel og
stuðli að því að þessi vinabæjar-
heimsókn verði möguleg.Heildar-
verðmæti vinninga er kr. 100.000.
Rafvæðing
dreifbýlis
Á mánudag var samþykkt á Al-
þingi þingsályktunartillaga
þingmanna Frainsóknarflokks-
ins um rafvæðingu dreifbýlis og
að henni verði lokið á næsta
ári.
Tillagan hjóðar svo: Alþingi
ályktar að fela ríkisstjórninni að
vinna að því að á árinu 1984 verði
lokið rafvæðingu í sveitum og
verði miðað við jarðir með allt að
6 km meðalfjarlægð frá samveitu.
Jafnframt verði gerð áætlun um
lausn á raforkumálum þeirra býla
sem samkvæmt framangreindri
áætlun verða ekki tengd sam-
veitu.________________
Björn ráðinn
yfirlögreglu-
þjónn
Björn Mikaelsson lögreglu-
þjónn á Akureyri hefur verið
skipaður i stöðu yfirlögreglu-
þjóns á Sauðárkróki. Margir
umsækjendur voru um stöðuna
víðsvegar af landinu. Björn
hefur undanfarin ár verið í lög-
regluliði Akureyrar, og hefur
m.a. annast umferðafræðslu í
skólum á Eyjafjarðarsvæðinu.
Ákveðið hefur verið í samráði
við stjórn Félags íslenskra
bókaútgefenda að frumkvæði
bókaútgáfunnar Skjaldborgar
og bókaverslunarinnar Eddu á
Akureyri að efna til bókamark-
aðar á Akureyri sem hefst
næstkomandi föstudag, 18.
mars og stendur til 31. mars.
Að sögn Svavars Ottesen hjá
Skjaldborg taka allar stærstu
bókaútgáfur á landinu þátt í
markaðnum og verða titlar í
kringum 2 þúsund talsins. Verðið
á bókunum verður mjög við-
ráðanlegt og lægsta verð sem er á
barnabókum er kr. 4.95 sem varla
þykir mikið fyrir bók í dag. Mest-
ur hluti bókanna sem verða á
markaðnum fæst ekki lengur í
bókabúðum.
Fimm tónlistarkcnnarar úr S-
Þingeyjarsýslu munu halda tón-
leika víða um Norðurland í vet-
ur og er ætlunin að ferðast
næsta vor um Austur- og
Suðurland.
Píanóleikararnir Björn Óla-
son, John Robert Redford og
Ragnar L. Þorgrímsson ásamt Úl-
rik Ólasyni, organleikara, og
Guðmundi Norðdahl, klarinett-
leikara, munu flytja fjölbreytta
Samskonar bókamarkaðir hafa
verið haldnir í Reykjavík árlega
undanfarin ár og notið gífurlegra
vinsælda. Nú gefst Norðlending-
um kostur á að eignast bækur á
góðum kjörum og sumar nýlegar,
en til gamans má geta þess að um
20 þúsund eintök verða þarna til
sölu og miðað við að bókin sé að
jafnaði hálft kíló verða á mark-
aðnum 10 tonn af bókum, þó það
sé nú reyndar langt frá því að vera
réttur mælikvarði á menningar-
starfsemi sem bókaútgáfa er.
Bókamarkaðurinn verður í
Hafnarstræti 91, þar sem hús-
gagnaverslunin Einir var áður til
húsa og hefst eins og fyrr segir
n.k. föstudag klukkan 13 ogverð-
ur opinn alla daga frá 13 til 22.
léttklassíska tónlist og þekkt
tónverk. Á efnisskránni eru verk
eftir fjölda tónskálda, m.a. Bach,
Mozart, Beethoven og Brahms.
Fyrstu tónleikarnir voru í
Grímsey laugardaginn 12. mars
og á Siglufirði sunnudaginn 13.
mars í Siglufjarðarkirkju. Síðar er
ætlunin að halda tónleika í Þing-
eyjarsýslum og víðar á Norður-
landi.
Tónlistarkennararnir fimm f.v.: John Robert Redford, Úlrik Ólason, Guð-
mundur Norðdahl, Ragnar L. Þorgrímsson og Björn Ólason.
Tónlistarkennarar
halda tónleika
Frá fundi leikhúsfólksins.
Fundað um leik-
list á Norðurlandi
Laugardaginn 26. mars boðuðu
Menningarsamtök Norðlend-
inga til sameiginlegs fundar
leikfélaga á Norðurlandi. 12
fulltrúar leikfélaga mættu á
fundinn.
Kristinn G. Jóhannsson for-
maður Menningarsamtaka Norð-
lendinga bauð þátttakendur vel-
komna og kvaðst vonast til að
fundur þessi yrði vísir að góðu
samstarfi leikfélaganna. Theódór
Júlíusson, starfsmaður samtak-
anna tók í sama streng og bauðst
til að vera tengiliður nánari sam-
skipta. Signý Pálsdóttir leikhús-
stjóri L.A. rakti þróun L.A. frá
áhugaleikfélagi yfir í atvinnuleik-
hús, en gat þess að Leikfélagi Ak-
ureyrar er umhugað um að halda
tengslunum við áhugaleikfélögin
á Norðurlandi og veita þeim þá
aðstoð sem mögulegt er. Má þar
nefna útvegun leikstjóra og ann-
arra leiðbeinenda, námskeiða-
hald eins og leikfélagið gekkst
fyrir sl. haust með þátttöku 60
áhugamanna frá leikfélögunum
norðan heiða, lán á búningum,
leikmunum, .handritum o.fl. Gat
hún þess að í rauninni sinnir
Bandalag íslenskra leikfélaga
mörgum þessum þörfum en Leik-
félag Akureyrar væri reiðubúið
að verða líka að liði.
Starfssvið væntanlegra samtaka
gæti verið upplýsingamiðlun um
verkefnaval og leikstjóraval, svo
það rækist ekki á. Skipti á leik-
myndum milli félaga, sameiginleg
námskeið, leiklistarhátíðir, gagn-
kvæm aðstoð við leikferðir í sam-
bandi við kynningu og móttöku
o.fl.
Fundarmenn þáðu boð L.A.
um að sjá „Bréfberann frá Arles“
og kvöddust með góð fyrirheit um
nánari samvinnu.
I
C JL J
# Fræðingarog
fjölmiðlamenn
Eftirfarandi klausa eftir Vig-
fús B. Jónsson á Laxamýri,
fjórða mann á lista Sjálf-
stæðis í Norðurlandi eystra,
birtist í Morgunblaðinu ný-
lega: „Það er Ijóst að við jöfn-
un kosningaréttarins breytist
hlutfall dreifbýliskjördæm-
anna þeim mjög f óhag gagn-
vart Reykjavíkursvæðinu
hvað tölu þingmanna snertir.
Úti í dreifbýiiskjördæmunum
hafa margir þungar áhyggjur
af þessu og er það þeim ekki
láandi. Hins vegar finnst mér
það meira en lítið furðulegt
undir þeim kringumstæðum
sem fyrir hendi eru að fræð-
ingar og fjölmiðlamenn úr
Reykjavík skuli renna út eins
og heitar lummur í þingsæti
dreifbýliskjördæmanna bara
ef þeim dettur í hug að koma
sér á þing. Hvaða ástæður
liggja þessu að baki er ekki
gott að segja. Varla er það
fyrir það að dreifbýlismenn
telji sig hafa of marga fulltrúa
á þingi. Hitt er kannski sönnu
nær að þessir menn koma
almenningi kunnuglega fyrir
sjónir, kunna góð skil á áróð-
urstækni og auk þess sumir
svo heppnir að geta flaggað
því að vera fæddir og jafnvel
meira og minna uppaldir í við-
komandi kjördæmum.“ Marg-
ir hafa velt því fyrir sér hvern
Vigfús sé að bauna á með
þessum orðum. Varla Björn
Dagbjartsson sem er í næsta
sæti fyrir framan hann á fram-
boðslistanum?
• Fleiri
skemmti-
auglýsingar
Auglýsingar Innheimtudeild-
ar sjónvarpsins sem birst
hafa „sjónvarpsglápurum"
eru eitthvað það furðutegasta
efni sem boðið hefur verið
upp á hjá þeirri merku stofnun
sem sjónvarpið okkar er. Ailir
muna fjaðrafokið vegna „dilli-
bossanna“, síðan kom „geim-
stöðvarútfærslan“ og loks ein
auglýsing sem enginn skilur.
Er sú síðasta reyndar svo
furðuleg að manni verður
helst á að roðna og skammast
sín fyrir að þurfa að berja
þetta augum. - Tíminn mun
hafa fengið það útskýrt hvað
ýmis atriði í auglýsingunni og
„fígúrur" eiga að tákna og
ekki batnar ástandið við þær
útskýringar sem munu hafðar
eftir hönnuði auglýsingarinn-
ar, Rósu Ingólfsdóttur. Er ekki
kominn tími til að gefa ein-
hverjum skiljanlegum auglýs-
ingahönnuðum tækifæri?
Þetta er ekkert iila meint, það
er bara svo leiðinlegt fyrir
okkur með lágu greindarvísi-
töluna að skilja ekki einu sinni
auglýsingarnar.