Dagur - 25.03.1983, Blaðsíða 4

Dagur - 25.03.1983, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 100 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 12 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: EIRÍKUR ST. EIRlKSSON, GYLFI KRISTJÁNSSON, ÓLAFUR JÓHANNSSON (SAUÐÁRKRÓKI) OG ÞORKELL BJÖRNSSON (HÚSAVlK) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKV/EMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Við höfum allt að vinna Miðstjórnarfundur SUF var haldin í lok febrú- ar. Fyrir fundinn var gefin út skýrsla sem gaf glögga mynd af starfsemi SUF og þingsins sem haldið var á Húnavöllum sl. haust. í for- mála að þessari skýrslu kvartar formaður SUF undan þeirri deyfð er virðist ríkja í röðum ungra framsóknarmanna víða um land. Einnig talar hann um að stefna beri að því að endur- vekja þau FUF-félög sem til eru og jafnframt að stofna þurfi ný. Það virðist því kominn tími til að ungir framsóknarmenn vakni af sínum þyrnirósarsvefni og taki til við að koma sínum stefnu- og áhugamálum á framfæri. Ýmsar nefndir hafa starfað á vegum SUF og má þar nefna t.d. utanríkisnefnd, félagsmála- nefnd, stjórnarskrárnefnd og efnahagsmála- nefnd. Einnig voru á þinginu á Húnavöllum samdar ályktanir í ýmsum málaflokkum s.s. stjórnmálum, húsnæðismálum og fíkniefna- málum. Ungt fólk hefur mikið talað fyrir friði og þingið undirstrikaði nauðsyn þess að af- vopnunarviðræðum á alþjóðavettvangi verði haldið áfram og lýsti yfir ánægju sinni með frumkvæði þingmanna Framsóknarflokksins að umræðu um gagnkvæma afvopnun risa- veldanna á N.-Atlantshafi. Þingið lýsti yfir stuðningi við friðarhreyfingar sem vinna að gagnkvæmri afvopnun. Húsnæðismál eru mál sem liggja þungt á ungu fólki í dag. Allir vita hversu erfitt er að koma sér upp þaki yfir höfuðið. 19. þing SUF telur einkum eftirfarandi umbætur nauðsyn- legar: 1. Að lánshlutfallið milli byggingarsjóðs ríkisins og byggingarsjóðs verkamanna verði jafnað og þar með tryggð réttlátari skipting þeirra fjármuna sem til ráðstöfunar eru. 2. Að lán úr byggingarsjóði ríkisins verði tvöfölduð að raungildi þannig að lánshlutfall til þeirra sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn verði hækkað. Samfara því verði lánstími lengdur. 3. Að sama lánsfjárhæð verði veitt til kaupa eða bygginga á nýju. Þannig tryggjum við nýt- ingu húsnæðis og þjónustu stofnana best. 3. Að sveitarstjórnir tryggi að lóðaframboð á hverjum tíma verði nægjanlegt. Þó húsnæðismálin séu mikilvæg eru mörg önnur mál það einnig og má þar nefna atvinnumál, því það byggir enginn sem ekki hefur atvinnu. Nú fyrir skömmu var stofnað FUF-félag hér fyrir Akureyri og nágrenni, FUFAN. Þetta fé- lag þarf að efla, því ungt fólk hér á einnig sín áhugamál. Til þess að geta haft áhrif á fram- vindu mála þarf öflugt félag, en félagar verða að vera minnugir þess að félagið er aðeins þeir sjálfir og séu þeir virkir verður félagið það einnig. Ungir framsóknarmenn, nýtum þau félög sem við höfum eða stofnum ný, verkefnin eru næg. Við höfum allt að vinna. ám Ívar Sigmundsson (lengst til hægri) með skíðakennurunum Guðmundi Péturssyni, Vilhelm Jónssyni, Guðmundi Sig- urbjömssyni og Karli Frímannssyni. Mynd: ESE „Eg trúi ekki öðru en páskamir verði góðir“ - segir ívar Sigmundsson forstöðumaður Skíðastaða Það verður víst ekki sagt að veðurguðirnir hafi dekrað við Akur- eyringa í vetur. Lengi vel var nánast enginn snjór í Hlíðarfjalli og eftir að úr því rættist hefur verið leiðindatíð í Fjallinu, oft hávaða- rok og umhleypingasamt. En nú er sjálfur hápunktur skíðavertíð- arinnar framundan, páskarnir. Hvernig veðríð verður þá veit eng- inn en víst er að margir munu liggja á bæn næstu daga og biðja um gott veður. Um páskana í fyrra var glampasól og hörkufæri alla dagana en samkvæmt upplýsingum ívars Sigmundssonar forstöðu- manns Skíðastaða hefur enn ekki komið það sem kallað er alvöru- skíðadagur það sem af er þessum vetri og Ivar trúir ekki öðru en að páskarnir verði góðir. - Rekstur Skíðastaða hefur gengið með afbrigðum illa í vetur. Snjór hefur verið lítill og veður leiðinlegt og það hefur ekki kom- ið einn einasti góðviðrisdagur það sem af er vetrinum, segir Ivar og tekur fram að þegar hann tali um góðviðrisdag þá eigi hann við logn, sól og frost og 1500 til 1800 manns í Fjallinu. - Við verðum bara að vona að þetta fari að lagast því annars mun það hafa slæmar afleiðingar í för með sér. Það fer allt í hnút hér þegar veðráttan leikur okkur svona og afleiðinganna gætir einnig í verslunum bæjarins, hjá sérleyfishöfum og öðrum sem eiga sitt undir ferðamönnum. Við eigum núna von á fyrsta helgar- ferðarhópnum sem kemur hingað gagngert til að fara á skíði og það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að við þyrftum að bíða fram yfir miðjan mars eftir slíkum skíðamönnum. Það versta við þetta er annars það að þetta dregur óhjákvæmilega úr vilja bæjaryfirvalda til að byggja upp aðstöðuna hér og mátti þó alls ekki draga úr honum fyrir, segir ívar og bætir því við að Akureyri sé nú að dragast aftur úr hvað varðar skíðaaðstöðu og það for- ystuhlutverk sem Akureyri hafði sé ekki lengur fyrir hendi. Því má bæta við að það eru ekki bara veðurguðirnir sem valda forráðamönnum Skíðastaða erf- iðleikum. Nýlega brann stjórn- stöð fyrir efri lyftuna til grunna en sem betur fer bæta tryggingarnar tjónið. Ný stjórnstöð hefur verið pöntuð frá Austurríki og er von á henni fljótlega. Mörg stórmót í Hlíðarfjalli - En hvað er framundan í Hlíð- arfjalli það sem eftir lifir skíða- vertíðarinnar? - Það eru þá páskarnir fyrst og hið svokallaða Flugleiðamót. Það byrjar á skírdag með keppni fyrir 15 ára og yngri en á laugardag verður parakeppni 12 ára og yngri. Þessi parakeppni erfólgin í því að tveir keppendur renna sér niður tvær samsíða brautir og sá sigrar sem fyrr kemur í mark en hinn er úr leik. Nú á páskadag verður svo Páskatrimm Flugleiða haldið í þriðja sinn en þessi trimmkeppni hefur notið mikilla vinsælda undanfarin tvö ár. Það voru 160 keppendur í göngunni í fyrra og við vonumst eftir því að þeir verði ekki færri nú. Flugleiðir gefa verðlaun á þessum mótum og verður dregið úr nöfnum þátttak- enda. Þeir heppnu fá flugferðir að launum og það eiga því allir þátt- takendur jafna möguleika. Það má taka það fram varðandi páskadagskrána að lyfturnar verða opnar alla dagana frá 9.30 til 18 en verði breytingar frá þess- um opnunartímum þá verður það kynnt sérstaklega. Nú og svo verður ýmislegt um að vera í bænum. Sundlaugin og skemmti- staðirnir verða opnir og ég held að hugmyndin sé sú að leikfélagið verði með leiksýningu. Þá má geta þess að Ferðaskrifstofa Ak- j ureyrar mun gangast fyrir smá- hringferð um Eyjafjörð á laugar- daginn og er hugmyndin sú ef vel viðrar að aka með rútu út á Ár- skógssand, taka ferjuna út í Hrís- ey þar sem snædd verður Gallo- waysteik í Hrísalundi en síðan verður haldið til Grenivíkur, í Laufás og síðan ekið sem leið ligg- ur til Akureyrar. Að sögn ívars rekur síðan hver viðburðurinn annan eftir páska en 7. til 10. apríl verður Unglinga- meistaramót íslands haldið í Hlíðarfjalli. Búist er við 160 til 170 þátttakendum á mótið en KEA styrkir framkvæmd þessa móts á margvíslegan hátt. Andrésar andar-leikarnir verða 20. til 23. apríl en þar er búist við 450 þátttakendum á aldrinum 12 ára og yngri. Um 100 börn frá Ak- ureyri taka þátt í mótinu og von- ast er til þess að fjögur börn frá Noregi verði einnig meðal þátt- takenda. Fjögur íslensk börn sem sigruðu á Andrésar andar-leikun- um í fyrra eru nýkomin frá Kongs- berg í Noregi og er vonast eftir gestum í staðinn en norsk börn hafa áður komið til Akureyrar á þessa leika. Öll börnin munu gista í Lundarskóla á meðan á mótinu stendur en Sanitas styrkir þetta mót mjög myndarlega. Fyrir lok skíðavertíðarinnar verður svo haldið skíðakennara- námskeið í Fjallinu og að sögn ívars er það bæði fyrir þá sem þeg- ar eru skíðakennarar og eins þá sem áhuga hafa á að leiðbeinal almenningi í skíðaíþróttinni. Námskeiðið verður haldið dagana 25. til 29. apríl en kennari verður Magnús Guðmundsson sem um 30 ára skeið hefur verið skíða- kennari í Sun Valley í Bandaríkj- unum. 4 - DAGUR - 25. mars 1983

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.