Dagur - 25.03.1983, Blaðsíða 12

Dagur - 25.03.1983, Blaðsíða 12
ÍM» i)r áiið 1945 Bruni í Eyjafirði 16. ágúst Síðastliðinn laugardag kom upp eldur i bæjar- húsum á Völlum í Saurbæjarhreppi hér í Eyjafirði. Fólk var á engjum allfjarri bænum og varð eldsins þvi ekki vart fyrr en hann var orðinn svo magnaður að lítt var við ráðið. Slökkvilið Akureyrar var kvatt til hjálpar en komst ekki á vettvang fyrr en um seinan til þess að bjarga bæjarhúsun- um, en fjósi og hlöðu var bjargað frá bruna. Björgun innan- stokksmuna varð ekki við komið að neinu ráði, þó mun nokkuð hafa bjargast úr baðstofu. Bóndinn á Völlum, Sig- urvin Jóhannsson og fólk hans mun hafa orðið fyrir tilfinn- anlegu tjóni. Lengsta flugið 23. ágúst Catalina flugbátur Flugfélags íslands flaug til Skotlands í gær með farþega. Þaðan verður handið í dag til Kaupinannahafnar. Þetta er lengsta farþegaflug sem ís- lensk flugvél hefur farið í. Flugstjóri er Jóhannes Snorra- son, aðstoðar flugmaður Magnús Guðmundsson en áhöfnin alls fimm menn. Flugfélagið hefur nú fengið tvær flugvélar til innanlandsferða. Eru það Grumman-flugbát- ur og Norseman flugbátur. Hnupl og óknyttir síldveiðisjómanna í Grímsey 30. ágúst. Kristján Eggertsson í Grimsey sendi blaðinu eftirfarandi frásögn um hnupl og óknytti síldveiðisjó- manna, er gengið hafa á land í Grímsey nú fyrir skemmstu: Löngum hefir verið talið að samgönguleysi og einangrun stæði Grímseyingum fyrir þrifum. Heima-elningsháttur- inn rynni þeim í merg og bein, sem fjarri búa straumum menningarinnar. Nokkkuð er hæft í þessu, og oft er samgöngutregðan við meginlandið bagaleg, þegar nauðsynjar brestur, sjúk- dóma ber að eða menn þurfa heiman ýmsra erinda. Tekur það á stundum furðulangan tíma að komast heim aftur. Laugardaginn 4. þ.m. var mikill hluti íslenska veiðiflotans samankominn hér við eyna. Talin voru, um það leyti, 160 skip. Skipverjar gengu á land í stórhópum og áttu ýmis skipti við eyjarbúa. Veitt var eftirtekt aðkomumanni, sem bar ofurlitinn kassa fram bryggjuna. Kom í ljós að í kass- anum voru hnifar af sömu gerð og notuð er við fiskflökun. Var komumaður spurður hvar hann hefði fengið. Hann kvaðst keypt hafa í'kaupfélaginu. Orðaskipti urðu um þetta og svo lauk, að með hnífakassann var farið upp í geymsluklefa frystihússins og honum lokað. En þetta kom fyrir ekki. Litlu siðar voru hnífarnir horfnir úr kassan- um og nokkur sporjárn úr öðrum kassa. Þegar sjómenn vildu gripa til tækja sinna næst, varð mörg- um leit úr. Einn fann aldrei færið sitt. Það var horfið með öllu. Aðrir héldu að visu færunum, en önglar voru skornir af. Einn fann hvergi nýju bússurnar sínar, en i stað þeirra aðrar rosknar og reyndar. Allmargt skipa var hér við eyna fimmtudaginn 16. þ.m. og þá sem áður ráðist til landgöngu. Vindrafstöðvar snerust, því að snörp gola var á. Nokkrir komumenn hverfðust um eina þeirra. Kastað var að henni þvi, er hendi var næst. Við það kvisuðust blöðin og komu brotin niður vist fjarri. - Að því loknu sýndu komumenn á sér fararsnið. En sjónarvott- ar komu þá til og vildu hafa afskipti af. Hinum fannst ekki mikið að orðið, en þó lauk svo að bætur voru greiddar. Bygging er í smíðum hér í Sandvíkinni. í gærmorgun, þeg- ar verkamenn hófu vinnu, komust þeir að raun um, að gengið hafði verið örna sinna hér og þar um bygginguna. Skipamenn eru farnir um sinn. En nú spyr maður mann: Var menningin í fylgd með þeim? Er hún svona? í Smiðju um páskana. Um páskana spila eftirtaldir úrvals jazzlistamenn dinnerjazz í Smiðju frá skírdagskvöidi til og með annars í páskum: Árni Scheving, Páimi Gunnarsson, Birgir Karlsson og Steingrímur Óli Sigurðsson. Psoriasis- og exemissjúklingar á Akureyri hugleiða félagsstofnun: „Nauðsynlegt að fá göngudeild á Akureyri" - Við höfum lengi haft hug á að stofna félag hér á Akureyri en okkur hefur fundist réttara að bíða þangað til nógu margir væru reiðubúnir að ráðast í þessa félagsstofnun. En nú finnst okkur sem sagt við hafa beðið nógu lengi og stefnum að félagsstofnun innan skamms, sagði Hjörtur Fjeldsted í sam- tali við Dag, en Hjörtur er einn af forsvarsmönnum psoriasis- og exemsjúklinga á Akureyri. Psoriasis- og exemsjúklingar hafa fyrir nokkru stofnað með sér landssamtök en mikið skortir á að hagsmuna þessa fólks hafi verið gætt heima í héraði. Engin göngu- deild fyrir sjúklinga með um- rædda sjúkdóma er utan höfuð- borgarsvæðisins og því hafa við- komandi þurft að takast á hendur kostnaðarsöm ferðalög til Reykjavíkur til að fara í eftirmeð- ferð sem að öllu jöfnu ætti að sinna í heimahögunum. Til að Tryggingarstofnun ríkisins greiði kostnað við slíkar eftirmeðferðir þarf viðkomandi að fara a.m.k. þrisvar sinnum á ári í meðferð eða láta senda sig á milli sjúkrahúsa. Akureyringur þyrfti þess vegna fyrst að láta leggja sig inn á sjúkrahúsið hér til málamynda og láta síðan senda sig suður. - Þetta er mikið ófremdar- ástand og sjúkrahúsið hér er í það miklu fjársvelti að ekki þykir lík- legt að göngudeild verði að öllu óbreyttu sett á stofn hér. Þessu verðum við að breyta og meðal annars þess vegna er þessi félags- stofnun nauðsyn, sagði Hjörtur Fjeldsted. - Er vitað um kostnað við slíka göngudeild hér? - Það er talið að göngudeildin þyrfti a.m.k. 60-80 fermetra rými í tengslum við sjúkrahúsið og síð- an þyrfti að koma upp geislaað- stöðu, baðaðstöðu og öðru því um líku en kostnaðurinn bara við tækjakaupin hleypur á tugum þúsunda króna. En ég bendi á að þetta er ákaflega góð fjárfesting fyrir ríki og bæ því að það er dýrt að senda fólk alltaf til Reykjavík- ur í meðferð og láta það taka •sjúkrarými þar. Dagur á sjúkra- húsi kostar jú mikið meira en dag- verið með sjúkdóminn á Akur- eyri. Vægilega áætlað. - Hvernig hefur þér gengið að lifa með þennan sjúkdóm? - Ég fékk sjúkdóminn ekki fyrr en ég var orðinn fullorðinn maður, ætli það séu ekki svona 16-17 ár síðan, en þetta er ógur- Hjörtur Fjeldsted með blað psoríasissamtakanna. Mynd: ESE BWSJgg ur á besta lúxushóteli. Annars má það líka vel koma fram að starfs- fólk húðsjúkdómadeildar Lands- spítalans hefur reynst okkur ákaf- lega vel og Jón Guðgeirsson, yfir- læknir deildarinnar hefur lýst því yfir að hann ætli að vera okkur innan handar varðandi félags- stofnunina. - Hafið þið nokkra hugmynd um hvað margir þjást af þessum sjúkdómum hér á Akureyri t.d.? - Það hefur verið skotið á það að allt að 4% íbúa á Eyjafjarðar- svæðinu og í Þingeyjarsýslum séu með þennan sjúkdóm og þá eru exemsjúklingarnir ekki taldir með. Psoriasis er arfgengur blóð- sjúkdómur, efnaskiptasjúkdómur sem er mismunandi algengur á landinu - t.d. tiltölulega sjaldgæf- ur í Skagafirði og Húnavatnssýsl- um, en miðað við fyrrgreindar forsendur gætu um 520 manns lega hvimleiður sjúkdómur. Fyrir utan þau óþægindi og vanlíðan sem þetta ógeð veldur manni þá eru það samskiptin við annað fólk sem eru verst. Það kemur illa við fólk sem heldur margt að psoriasis sé smitandi - sem er rangt og ég t.a.m. veigra mér við og fer ekki í sundlaugarnar eða fækka fötum innan um annað fólk. Ég á skiln- ingsríka fjölskyldu þannig að sjúkdómurinn breytti ekki lífi mínu mikið en þetta er samt ógur- lega hvimleiður og þreytandi sjúkdómur. Ég veit aldrei hvenær hann blossar upp - það þarf ekki annað en kvef, kulda eða ein- hvern vírussjúkdóm til þess að allt fari úr böndum, sagði Hjörtur Fjeldsted en þeir sem hafa áhuga - á að taka þátt í félagsstofnuninni geta haft samband við hann í síma 21797 á daginn og 22549 á kvöldin og um helgar. Sumarlínan ’83 Ný sending af sokkum, leistum ogr sokkabuxum í öllum regnbogans litum fyrir alla aldurshópa Það besta er ódýrast

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.