Dagur - 18.05.1983, Blaðsíða 9
Bjöm Árnason þjálfarí Þórs.
fifi
33
Við vinnum
segir þjálfari Þórsara
„Þú mátt hafa það eftir mér
að við vinnum Skagamenn í
fyrsta leik okkar í 1. deildinni
að þessu sinni,“ sagði Bjöm
Árnason þjálfari Þórs á Akur-
eyri er við spurðum hann
hvernig honum litist á Skaga-
menn sem mótherja í fyrsta
leiknum. Ekki vildi Bjöm þó
spá um úrslitin nánar en sagði
að Skagamenn yrðu lagðir.
Þessi leikur, sem háður verð-
ur á Þórsvelli kl. 20.00 á
fimmtudagskvöld verður fyrsti
leikurinn þar sem Björn stjórnar
liði í 1. deild. Hann er þó
enginn nýgræðingur í þjálfun-
inni, hefur þjálfað yngri flokka
mikið, þá var hann í tvö sumur
með Víking í Ólafsvík og síðan
tvö sumur með Götu-liðið í
Færeyjum.
Björn er margreyndur leik-
maður sjálfur, lék sem bakvörð-
ur hér á árum áður með KR og
þótti harður viðureignar.
íslandsmótið í knattspyrnu að hefjast:
Þór mætir Skaga-
mönnum í Þorpinu
íslandsmótið í knattspymu
1983 hefst nú í vikunni með
leikjum í 1. og 2. deild og
reyndar hefst keppnin í 3. deild
um næstu helgi. Keppni 4.
deildar hefst svo um mánaða-
mótin.
Mótabók KSÍ er ekki komin
út, en samkvæmt upplýsingum
Páls Júlíussonar framkvæmda-
stjóra KSÍ er fyrsti leikur Þórs í 1.
deild annað kvöld á Þórsvelli kl.
20.00.
KA leikur sinn fyrsta leik á
útivelli í Sandgerði á föstudags-
kvöld kl. 20.00 gegn Reyni. Fyrsti
heimaleikur KA verður svo 31.
maí er Fylkismenn koma í
heimsókn.
Völsungar og KS-menn eiga
bæði heimaleiki fyrst í 2. deild-
inni. Völsungur fær Víði úr Garði
í heimsókn á föstudagskvöld og
sama kvöld leika Siglfirðingar
sinn fyrsta leik í 2. deild í 15 ár er
þeir fá FH í heimsókn.
í 3. deiidinni á Magni heimaleik
gegn HSÞ-b á föstudagskvöld, en
HSÞ-b á fyrst heimaleik 28. maí
gegn Val frá Reyðarfirði. Tinda-
stóll mætir Sindra úti á sunnudag
en á fyrst heimaleik 4. júní.
KA leikur í Sandgerði:
„Ætlum að
sigra Reyni“
— segir Guðjón Guðjónsson
„Við ætlum okkur sigur í
fyrsta leiknum gegn Reyni í
Sandgerði á föstudagskvöldið,
það kemur ekkert annað til
greina,“ sagði Guðjón Guð-
jónsson, hinn knái bakvörður í
KA-liðinu er við ræddum við
hann um leik Reynis og KA í 2.
„Astandið alveg hryllilegt"
„Þetta er alveg hryllilegt
ástand, það er ekki hægt að
segja annað,“ sagði Frímann
Gunnlaugsson formaður vall-
arnefndar Golfklúbbs Akur-
eyrar er Dagur ræddi við hann
um ástand golfvallarins að
laðri.
Kylfingar á Akureyri eru orðnir
óþolinmóðir eftir að komast í
golf, en nokkuð er í að þeir geti
farið að skunda um völlinn sinn.
Á sama tíma eru mót á suðvestur-
horninu komin í fullan gang og
t.d. er opið mót í Eyjum um
næstu helgi.
„Við þurfum a.m.k. hálfan
mánuð í góðri tíð til þess að þetta
verði gott hjá okkur,“ sagði
Frímann. „Reyndar er lítið eða
ekkert frost í jörðu þannig að við
þurfum aðeins að fá hita og
sunnanrok til þess að þetta lagist
og getum ekkert gert nema vona
það besta.“
En þótt ástandið sé slæmt á
Akureyri er það hátíð miðað við Sauðárkróki og Siglufirði, því
veílina á Húsavík, Ólafsfirði, miður.
deildinni sem verður fyrsti
leikur liðanna í deildinni.
„Þó verður þessi leikur erfiður,
eins og útileikirnir verða allir í
sumar,“ sagði Guðjón. „Deildin
hjá okkur verður erfið í sumar
enda er hún sterkari en undan-
farin ár að mínu mati. Við höfum
æft vel og erum mjög ánægðir
með Kissing þjálfara, hann er
með góðar og skemmtilegar æf-
ingar og það er hugur í mann-
skapnum að standa sig vel í
sumar.“
Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum dögum, en á henni sést að skála Golf-
klúbbs Akureyrar að Jaðri og er snjór yfir öllu.
„Erum að leita
ao vemnum
- Ástand knattspyrnuvallanna á Siglufirði
og Húsavík slænrt fyrir leiki helgarinnar
„Þetta er mikið bras hjá okk-
ur og ég hreiniega sé ekki í
dag hvort það verður hægt að
spila á vellinum hjá okkur á
föstudagskvöldið“ sagði Run-
ólfur Birgisson formaður
Knattspyrnufélags Siglufjarð-
ar er við ræddum við hann í
fyrradag og spurðum um
ástand knattspyrnuvallarins
þar.
Siglufirðingar eiga heimaleik
gegn FH á föstudagskvöld en
sá leikur átti upphaflega að vera
á laugardag. „Þaö má segja að
við séum að leita að vellinum.
við höfum ekki séð í liann síðan
kaflanum í febrúar en
munum reyna að ýta af honum
og skafa klakann af fyrir leikinn
við FH“ sagði Runólfur.
„Það veröur hægt að leika hér
eftir ýmsar tilfteringar" sagði
Hafliði Jósteinsson sem mun
sjá um íþróttaskrif fyrir Dag á
Húsavík í sumar, „Þaö er búið
að ryðja völlinn tvívegis og það
verður reynt að gera allt eins
gott hér og hægt er fyrir föst-
udaginn er Víðismcnn koma í
heimsókn."
- Hafliði sagði aö núklir
snjóruðningar væru við völlinn
og myndu áhorfendur væntan-
lega fylgjast með ieiknum á
föstudag ofan af þessum ruðning-
um. Um grasvöllinn sagöi hann
aö ekkert benti til þess að hægt
yrði að ieika á honum fyrr en
undir mánaðamót júní/júlí.
Klíkuskapur Lyft-
ingasambandsins
- Árangur ræður ekki þegar landsliðið er valið
„Þú mátt hafa það eftir mér
að við Garðar ætlum ekki að
láta bjóða okkur þetta, ég
sýni samstöðu með bróður
mínum og ef Lyftingasam-
bandið Iagfærir þetta ekki þá
tökum við ekki þátt í Norður-
landamótinu,“ sagði lyftinga-
maðurinn Gylfi Gíslason er
Dagur ræddi við hann í gær.
Eins og sagt var frá í Degi s.l.
mánudag náðu þeir tvíbura-
bræður Garðar og Gylfi Gísla-
synir að tryggja sæti sín í
íslenska landsliðinu sem tekur
þátt í Norðurlandamótinu í
Laugardalshöll í lok mánaðar-
ins, Gylfi í 100 kg flokki og
Garðar í 90 kg flokki.
Garðar hefur að undanförnu
lyft meiru en Guðmundur Sig-
urðsson sem er nýbyrjaður
keppni aftur eftir nokkurt hlé,
og átti Garðar því að vera
sjálfkjörinn í liðið á undan
Guðmundi.
En svo fór ekki, því forráða-
menn Lyftingasambandsins
virðast hafa eitthvað annað að
leiðarljósi er þeir velja landslið
sitt en árangur einstakra manna.
Liggur beinast við að ætla að
hreinn klíkuskapur ráði ferð-
inni. Lyftingasambandið ákvað
nefnilega að Guðmundur skyldi
keppa í 90 kg flokki en Garðar í
100 kg flokki ásamt Gylfa
bróður sínum.
Þessu vill Garðar að vonum
ekki una en vonar að Lyftinga-
sambandið endurskoði þetta
„val“ sitt. Ef það verður ekki
gert munu tvíburabræðurnir
ekki verða í landsliði íslands á
NM í Laugardalshöll að sögn
Gylfa.
Skíðamót
á Sigló
Þótt sumarið sé komið er það
varla nema á almanakinu hér
á Norðurlandi, enda ætla Sigl-
fírðingar að gangast fyrir
skíðamóti við Hól á sunnudag-
inn.
Hér er svokallað Skarðsmót á
ferðinni og verður keppt í göngu
kvenna 15 ára og eldri og í þrem-
ur flokkum karla, 15-34 ára, 35-
49 ára og 50 ára og eldri.
í svigi verður keppt í karla- og
kvennaflokkum 31-40 ára, 41-50
ára og 51 árs og eldri. Þátttöku-
tilkynningar berist til Ásgríms
Sigurbjömssonar s. 71228 og
71755 (heima).
18. maí 1983-DAGUR-9