Dagur - 03.08.1983, Page 6
Hún kom til Akureyrar í síðustu viku, nýja Esjan í sinni
fyrstu ferð hringferð um landið. Það voru margir sem
höfðu áhuga á að skoða hið nýja fley þar sem það lá
bundið við bryggju Utgerðarfélags Akureyringa. Það
vakti athygli hversu hátt skipið er. Það kemur til af því,
að hugsað er fyrst og fremst um að vel fari um allan
varning um borð. Lestun og losun fer öll fram um rúm-
góðar lúgur á hliðum skipsins og skut og er mögulegt að
aka þungum tækjum um borð um skutopið, þ.e.a.s.
þeim tækjum sem ekki er hægt að koma um borð með
35 tonna krana sem er á skipinu.
En mönnum bar saman um að ekki væri skipið fallegt
á að horfa, enda ekkert skemmtiferðaskip. En það eru
einmitt þau sem eru byggð með það fyrir augum að vera
falleg. Samt er nýja Esjan með yfirbragð, sem virtist
heilla menn.
Síðar þennan dag sem Esjan stansaði á Akureyri var
almenningi gefinn kostur á að skoða skipið. Blaða-
maður Dags brá sér um borð og ræddi við skipsstjóra,
hönnuð skipsins, vélstjóra, háseta og umboðsmann
Ríkisskips á Akureyri.
Esja hin nýja.
komm - en ekki er h
Bogi Einarsson skipsstjóri í brúnni.
Gott skip
„Þetta er gott skip og lætur vel
að stjórn,“ sagði Bogi Einars-
son, skipsstjóri á hinni nýju
Esju, er blaðamaður hitti hann
í brúnni.
Bogi útskýrði allt og tíundaði
kosti hins glæsilega skips. Nóg
var af tækjum sem þurfti að fylgj-
ast með. „En þetta er allt til að
létta okkur störfin um borð.
Hérna er allt það fullkomnasta
sem völ er á í dag, enda má segja
að skipið sigli sér sjálft, við þurf-
um aðeins að fylgjast með og
grípa inn í ef eitthvað bilar,“ seg-
ir Bogi.
- Hverjar eru helstu breyting-
arnar frá þeirri gömlu?
„Helstu breytingarnar eru að
öll vinnuaðstaða er miklu betri.
Það gera þessar stóru hleðslulúg-
ur sem á skipinu eru, bæði á hlið-
um og skut. Öll vinna á að geta
verið stórvirkari og auðveldara
fyrir menn að vinna við lestun og
losun, því krani skipsins er afar
stór. Hann tekur 35 tonn sem
auðveldar alla þungaflutninga
frá því sem áður var.
- Hvað um farþegaflutninga
sem voru miklir á árum áður?
„Farþegaflutningar hafa
minnkað verulega frá því sem var
fyrir nokkrum árum, en í skipinu
eru tveir tveggja manna klefar
fyrir farþega. Aðaláherslan er
lögð á vöruflutningana," segir
Bogi Einarsson skipsstjóri á nýju
Esju og við óskum honum og
hans mönnum til hamingju með
glæsilegt skip.
Alls staðar koma
Ríkisskip við
„Það er draumur allra að
skipaútgerðin eignist 3 svona
skip,“ sagði Jón Samúelsson,
umboðsmaður Ríkisskipa á
Akureyri, í samtali við Dag.
„Tilkoma þessa skips breytir
öllu, því eftirspurn hefur farið
stórlega vaxandi og því hægt að
bjóða upp á stóraukna þjónustu
jafnframt betri vörumeðferð,"
segir Jón.
Það má segja að skip Skipaút-
gerðarinnar komi tvisvar í viku
hverri á 30 hafnir á landinu. Alls
sigla skipin á 53 hafnir. Fferðir
skipanna til Akureyrar eru um
100 á ári, svo það er ekki svo lítil
þjónusta sem þau veita. Skipaút-
gerðin hefur tekið að miklu leyti
að sér alla flutninga út á land
fyrir stærri skipafélögin, þannig
að þau flytja vöruna utanlands
frá til Reykjavíkur en síðan taka
Ríkisskip við og flytja varninginn
vítt og breitt um landið. Það er
sama hvort búa 15 manns á
staðnum eða 15.000 manns, alls
staðar koma Ríkisskip við,“ segir
Jón Samúelsson.
Hann er umboðsntaður Ríkisskipa
á Akureyri, Jón Samúelsson.
„Ter
veitu
„Eg er búinn að vera á sjó síð-
an ég var 14 ára, það var 1965
að ég var vikadrengur í vél á
gamla Goðafossi,“ segir 2.
vélstjóri á Esjunni Magnús
Helgason.
Það var að heyra á öllu að
Magnús kann tökin á tækninni.
Hann rakti nöfn og númer á öllu.
En það verður að segjast eins og
er að það fór inn um annað eyrað
og út um hitt hjá blaðamanni sem
þekkti hvorki haus né sporð á
þeim búnaði sem var á yfirráða-
Líður best í vélardyninum. Magnús Helgason byrjaði 14 ára á sjó.
6 - DAGUR - 3. ágúst 1983