Dagur - 12.10.1983, Qupperneq 7
Hlutverk Alþingis að leiða
þjóð okkar til farsældar
- sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands við setningu 106. löggjafarþingsins
Alþingi íslendinga, 106. lög-
gjafarþingið, var sett við hátíð-
lega athöfn á mánudag, 10.
október. Þegar Yigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands,
hafði lesið forsetabréf um setn-
ingu þingsins sagði hún meðal
annars:
„Okkur hefur verið gert ljóst,
háttvirtir alþingismenn, að við
lifum þessar stundir á erfiðari
tímum en lengi hafa þekkst í
landi okkar. Víst er að við ís-
lendingar hver og einn viljum allt
af mörkum leggja til að þjóðar-
bú okkar standi með þeirri reisn,
sem við höfum viljað gefa því á
undangengnum árum. Síðan lýð-
veldið var endurreist hefur eng-
inn Islendingur það ég veit geng-
ið að verkum sínum með hang-
andi hendi né talið ástæðu til að
biðja afsökunar aðrar þjóðir á at-
höfnum okkar, þar sem við höf-
um af auðæfum okkar, auk huga
og handa, sitthvað til mála að
leggja og reyndar mikla gjöf að
gefa.
Hlutverk Alþingis er alla daga
að leiða þjóð okkar til farsældar.
Stundum þarf Ieiðbeinandinn að
tyfta, en það er aðalsmerki hvers
uppalanda að beita aga af nokk-
urri mildi svo að sá, sem nýtur
forsjár, finni hlýju og velvild sem
veitt er til velfarnaðar. Aldrei
má draga myndina upp í svo
dökkum litum að sköpunarkraft-
ur og þróttur verði drepinn í
dróma. Ávani blindar fólk, slag-
orð blinda fólk, ekki síst séu þau
einatt af neikvæðum toga. Fjár-
hagur, hvort sem hann er of rýr
eða of rúmur, getur einnig slegið
fólk blindu, í fyrra tilfellinu oft til
uppgjafar.
Við íslendingar erum sterk og
starfsöm þjóð, auðug að kröftum
og skapandi á öllum sviðum. Sé
aftur á móti ekki annað brýnt
fyrir okkur en að við séum komin
á vonarvöl og ráðum ekki við
okkar mál, er hætta á að við vill-
umst inn í vítahring óttans - ótt-
ans við framtíðina. Þá lokast öll
sund. Því munum við horfast í
augu við erfiðleikana og sigrast á
þeim.
Hvenær sem harðnar á dalnum
verður að veita hugarauðgi lands-
manna verðugan byr, rækta
hverja rót þjóðarjurtar okkar á
þann veg að henni finnst að sér
hlúið. Megi það jafnan reynast
gæfa þjóðkjörinna fulltrúa á Al-
þingi íslendinga. Þá þarf ekki að
ugga um ísland.“
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands setur 106. löggjafarþingið.
Rætt við fjóra þingmenn í Norðurlandskjördæmi eystra
Guðmundur Bjarnason:
„A von á
mál-
efnalegu
þingi“
„Þingið sem framundan er
leggst þokkalega í mig,“
sagði Guðmundur Bjarnason
alþingismaður Framsóknar-
flokksins úr Norðurlands-
kjördæmi eystra er við rædd-
um við hann.
„Ég býst við að stjórnarand-
staðan hafi ýmislegt að segja við
stjórnarliðana, en ég vænti þess
að þær aðgerðir sem stjórnin
hefur staðið að sýni þegar þánn
árangur að menn sjái að til ein-
hvers er barist. Ég á von á mál-
efnalegu þingi þótt það geti orð-
ið róstursamt á köflum."
- Hvað kemur aðallega til
með að einkenna þinghald
fyrstu vikurnar?
„Það verða örugglega um-
ræður um efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar sem verða
aðalmálið. Þá verður mikið rætt
um fjárlög og eins um lánsfjár-
áætlun og lánsfjárlög sem mein-
ingin er að leggja fram fljótlega.
Þá skyldi maður ætla að þeir að-
ilar sem hafa verið að krefjast
þinghalds í sumar hafi einhvern
boðskap fram að færa og komi
honum á framfæri,“ sagði
Guðmundur.
„Það má
búast
við
líflegum
umræðum“
- Það má búast við lífleg-
um umræðum á þessu þingi,
en ég vona að þær verði mál-
efnalegar og lausar við til-
gangslaust karp,“ sagði Lárus
Jónsson, alþingismaður, í
samtali við Dag.
Aðalmál þingsins næstu vik-
urnar verður eflaust tengt efna-
hagsmálunum; í framhaldi af
bráðabirgðalögunum, fjárlaga-
frumvarpi og lánsfjáráætlun,"
sagði Lárus. „Eflaust verða
einnig umræður um álmálið og
það bráðabirgðasamkomulag
sem þar hefur náðst. Einnig
reikna ég með umræðum um
friðarmál og varnarbúnað
Evrópulanda, sem hefur verið
umdeilt atriði að undanfömu.
Hvað okkur norðanmenn varð-
ar skipta atvinnumálin mestu og
þau verða í brennidepli,“ sagði
Lárus Jónsson í lok samtalsins.
Kolbrún Jónsdóttir:
„Starfið
leggst
vel
í mig“
„Starfið á Alþingi leggst vel í
mig þótt það séu margir hlutir
sem ég þarf að koma mér inn
í og læra á,“ sagði Kolbrún
Jónsdóttir, en hún tekur nú
sæti á Alþingi í fyrsta sinn, og
situr þar fyrir Bandalag jafn-
aðarmanna.
„Við höfum að undanförnu
reynt að starfa eins mikið og
okkur hefur verið unnt og þann-
ig reynt að undirbúa okkur sem
best fyrir þingið. Frá 15. ágúst
má segja að ég hafi verið fyrir
sunnan, nema rétt stöku sinnum
að ég hef skotist heim, og einnig
hef ég ferðast talsvert um kjör-
dærnið."
- Hvað telur þú að komi til
með að einkenna þinghald
fyrstu vikurnar?
„Ég held að það verði um-
ræður um fjárlögin og bráða-
birgðalög ríkisstjórnarinnar
koma örugglega til afgreiðslu
þingsins fljótlega og það verða
miklar umræður um þau. Þessi
lög eru mjög umdeild, sérstak-
lega lögbinding samningsréttar-
ins,“ sagði Kolbrún.
Steingrímur Sigfússon:
„Sennilega
enginn
gleði-
boðskapur“
„Það leggst ágætlega í mig að
hefja störf á Alþingi, ég er
auðvitað nýliði og maður veit
varla nema að takmörkuðu
leyti að hverju maður gengur
hvað starflð á þinginu varðar
en ég hef reynt að undirbúa
mig og kynna mér það eftir
bestu getu,“ sagði Steingrím-
ur Sigfússon sem tekur nú
sæti á Alþingi sem þingmaður
Norðurlands-eystra fyrir Al-
þýðubandalag.
„Ég held að ástandið í
þjóðmálunum og aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar komi til með að
setja mestan svip á þingið fyrstu
vikur þess, kaupmáttarskerð-
ingin og bráðabirgðalögin um
afnám samningsréttar. Það ligg-
ur í hlutarins eðli að það verði
mikið rætt. Þá kæmi það mér
ekki á óvart að umræður yrðu
um þá uppákomu að þing hefur
ekki komið saman í um 6 mán-
uði.
Mér skilst að þetta sé mjög
óvenjulegt og ég tel það eðlilegt
að Iöggjafarsamkoman ræði
þetta mál og hvað beri að gera í
framhaldi af því. Svo koma
þessi hefðbundnu mál eins og
fjárlögin sem verða án efa fyrir-
ferðarmikill og sennilega verður
það enginn gleðiboðskapur sem
þar birtist mönnum.“
Bréf til bæjar-
stjórnar Akureyrar
Bréf til bæjarstjórnar Akureyrar.
Ég vil byrja á því að þakka
bæjarstjórninni fyrir allt, sem
hún hefir vel gert bæjarbúum til
yndis og hagsauka. Og það er æði
margt.
Ég þakka fyrir allt, sem miðar
að fegrun bæjarins og einkum og
sér í lagi það, sem miðar að jafn-
rétti íbúanna og stuðlar að friði
og skilningi milli granna. Kirkjan
uppi á Brekkunni minnir líka
stöðugt á að með friði skulu
grannar ganga.
Ég þakka bæjarstjórninni fyrir
að hafa gjört íbúum bæjarins
skylt að gæta hunda sinna og
banna kanínuhald. Einnig fyrir
að láta eyða rottum og útrýma
sauðfé, kúm og hrossum af göt-
um bæjarins.
Eitt er þó ógert, sem ekki er
síður nauðsynlegt. Hér ganga
kettir um hvar sem þeim
þóknast. Hvers vegna er eigend-
um þeirra ekki gert skylt að gæta
þess að kettir þeirra geri ekki
spjöll í görðum granna sinna og
annarra?
Það er erfitt og leiðinlegt fyrir
þá sem vilja rækta garðinn sinn
að sjá þær jurtir, sem gróðursett-
ar voru í gær, liggja með skorpn-
ar rætur ofan á moldinni í dag og
jafnvel samdægurs.
Eins og flestum er kunnugt
hafa kettir þann háttinn á að
grafa holu og gera í hana þarfir
sínar og klóra svo yfir. Þess
vegna sækja þeir í blóma- og
matjurtabeð í görðum, því þar er
moldin létt og eftirlát. Þetta bitn-
ar mest á nágrönnum kattanna og
þeim, sem hirða garðinn sinn vel.
Þeir kettir, sem angra mig mest
eru ekki villikettir heldur þeir
sem eru þriflegir með band um
háls.
Mig svíður sárt að þetta skuli
vera kettir nágrannanna, sem ég
veit ekki til að ég hafi gjört neitt
til miska og veigra mér við að
kæra kettina, því væri heimilis-
köttur tekinn úr umferð mundi
barn fara að gráta. Þó er ég oft
svo gröm við þessa skaðvalda að
mér finnst að ég gæti stútað þeim
með eigin hendi, en læt þó nægja
að beina að þeim garðslöngunni
sem ber þó lítinn árangur, því
kettir koma aftur og aftur, þó
þeir séu hræddir á flótta.
Ef þessu fólki, sem endilega
vill hafa kött sér til yndisauka og
telur köttinn sinn einn af fjöl-
skyldunni, er eins annt um hann
og það segir, ætti því að vera
auðvelt að varðveita þetta eftir-
læti í eigin íbúð, svo það gjöri
ekki mér eða öðrum miska.
Margt dýrið má dvelja æfilangt í
þrengra búri en heilli íbúð.
Plöntu, sem köttur krafsar upp
er sjaldnast auðið lengri lífdaga
og ekki er mögulegt að bæta sér
tjónið eftir að plöntusölu er lokið
á vorin. Verða því þeir, sem fyrir
skaðanum lenda að horfa á eyður
í görðum sínum allt sumarið.
Ég á vini og kunningja, sem
hafa tjáð mér að þeir hafi sömu
reynslu af köttum nágranna
sinna. Að vísu hafa þeir ekki
beðið mig að kvarta fyrir sig, en
mundu áreiðanlega verða afar
fegnir ef þessi kvörtun mín yrði
tekin til greina og köttum gjört
óheimilt að valsa hér um garða
og eyðileggja.
Við erum stolt af okkar fagra
bæ. Ekki hvað síst af fuglalífi og
fögrum görðum. Nú hafa kettir
nær útrýmt fuglunum og ef held-
ur sem horfir gefast garðeigendur
hreinlega upp við að rækta garð-
inn sinn.
Þess vegna skora ég á okkar
ágætu bæjarstjórn að sjá svo til
að kettir hætti að angra garðeig-
endur í bænum.
Með trausti og virðingu.
Óhress garðeigandi.
Mjólkurdagar ’83
Guðlaug fékk 20
litra af skafis
Guðlaug með ísbirgðimar.
- og Soff ía Jóns-
dóttir krækti
í ostabakka
og aðrar
mjólkurafurðir
Guðlaug Óskarsdótlir varð 20
lítrum af skafís ríkarí á
miðvikudaginn þegar afhent
voru verðlaun í getraunum,
sem efnt var til á „Mjólkur-
dögum“. Guðlaug giskaði á að
þar væri 551 íspinni í frysti-
kistu einni mikilli og það
reyndisí hárrétt.
Önnur getraun var einnig í
gangi og hún var Öllu erfiðari
viðfangs, því þátttakendur þurftu
að svara erfiðum spurningum.
Fyrst var spurt hvað hver íslend-
ingur þambaði marga lítra af
mjólk árið 1982. Rétt svar er 223
lítrar. Síðan var spurt hvað hver
íslendingur hefði borðað ntörg
kg af osti sama ár. Rétt svar er
8.3 kg: í þriðja og síðasta lagi var
spurt hvað mörg kg af osti væru í
heljarmiklu kæliborði sem var á
sýningunni. Rétt svar var 607 kg.
Því miður var enginn sýning-
argesta með rétt svör við öllum
spurningunum, en Soffía Jóns-
dóttir þótti fara svo nærri því
rétta, að hún var dæmdur óum-
deilanlegur sigurvegari. Fékk
hún að launum ostabakka ásamt
myndarlegu úrvali af mjólkuraf-
urðum. Þar að auki voru veitt 35
aukaverðlaun og mega verð-
launahafar búast við verðlaunun-
um heim á næstu dögum.
Úlfur Ragnarsson og Amór Karlsson í nýja gallerýinu
„tallerý“
Sunna
- Opnað í Sunnuhlíð
„Ég hef lengi haft í huga að
reyna að opna svona stað en
ekki komið því í verk fyrr en
nú,“ sagði Arnór Karlsson eig-
andi blómabúðarinnar Laufás
í verslunarmiðstöðinni Sunnu-
hlíð á Akureyri, en hann opn-
aði fyrir helgina „gallery“ sem
rekið er í tengslum við búðina.
„Ég vonast til að þessi aðstaða
hér geti orðið til þess að lífga upp
á lífið í bænum og hér eiga undir
myndlistarmenn t.d. að geta átt
athvarf, því ég leigi aðstöðuna til
að sýna hér út gegn vægu gjaldi.
Hér er þægileg aðstaða fyrir litlar
sýningar og þá fylgir einnig
vinnuaðstaða hér inn af.“
„Gallery Sunna“ eins og gall-
eryið heitir var opnað á hádegi sl.
fimmtudag og það er Úlfur Ragn-
arsson læknir og listmálari sem
fyrstur sýnir þar.
„Hér er mjög góð aðstaða til
sýninga," sagði Úlfur er við
spjölluðum við hann. „Birtan er
eðlileg því hún er lík því sem ger-
ist á heimilum fólks þar sem
myndir eiga að hanga uppi en
það hefur oft viljað brenna við að
birta hefur verið óeðlilega mikil
í sýningasölum.“
Úlfur sýnir um 50 málverk í
„Gallery Sunnu“ og er þetta hans
6. einkasýning en hann hefur
einnig tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum. í galleryinu eru
einnig til sýnis þurrblómaskreyt-
ingar unnar af Köru Jóhannes-
dóttur og keramikhlutir eftir ís-
lenska og franska listamenn.
„Gallery Sunna“ er opið frá kl.
13 virka daga til kl. 18 og laugar-
daga kl. 9-12.
6 - DAGUR - 12. október 1983
12. október 1983 - DAGUR - 7