Dagur - 16.11.1983, Side 7
HVAR ER REYKURINN OG LYKTIN?
Það fara erfiðir dagar, vikur og mánuðir í hönd í
Krossanesverksmiðjunni. Loðnan er komin og það þýðir að á meðan
hennar nýtur við þá munu hjól verksmiðjunnar snúast nótt sem nýtan dag.
Unnið verður á vöktum allan sólarhringinn og starfsmenn eygja því aukna
tekjumöguleika það sem eftir lifir ársins. Ekki veitir víst af, eftir bara
dagvinnu sl. tvö ár. Það eru tvö ár síðan loðna var síðast brædd í
Krossanesi en starfsmenq þar hafa samt sem áður ekki setið
aðgerðalausir. Beinamjölsverksmiðjan hefur starfað af fullum krafti og
^ auk þess hefur verksmiðjan
verið endurbætt frá grunni, sett í hana mjög fullkomin stjórnunartæki sem
gera mönnum kleift að fylgjast með flestum framleiðsluþáttum frá einum
og sama staðnum. Þá hafa verið sett úpp mjög fullkomin mengunartæki í
verksmiðjunni, þannig að reykurinn margfrægi er nú alveg horfínn og
„peningalyktin“ er ekki „svipur hjá sjón“. Blaðamaður Dags lagði leið
sína í verksmiðjuna fyrsta framleiðsludaginn á loðnuvertíð og ræddi við
starfsmenn. Það var Hörður Hermannsson, verksmiðjustjóri sem tók að
sér leiðsögn um húsakynnin, en Hörður var fyrst spurður að því hvenær
, verksmiðjan hefði verið stofnuð.
„Þetta er það
sem allir hafa
beðið eftir“
- segir Hörður Hermannsson,
verksmiðjustjóri
Hörður Hermannsson, verksmiðjustjóri og Jón Kristjánsson, vaktformaður við nýja stjórnunarbúnaðinn.
- Það var á fyrsta áratug aldar-
innar að Norðmenn stofnuðu hér
síldarverksmiðju og eftir að
frystihúsið tók til starfa hefur
verið starfrækt hér síldar- og
beinamjölsverksmiðja. Reyndar
hefur lítið verið brætt hér af síld
síðustu áratugina en talsvert af
loðnu og síðustu árin áður en
loðnan hvarf þá voru brædd hér
árlega á milli 25 og 30 þúsund
tonn af loðnu á ári. Að vísu eitt-
hvað minna síðasta árið og auk
þess hefur beinamjölsverksmiðj-
an alltaf starfað.
- Og nú er loðnan komin
aftur?
- Já víst er það en þetta hefur
nú gengið ákaflega treglega það
sem af er vertíðinni. Það hefur
verið erfitt að eiga við loðnuna
en við höfum þó fengið 490 tonn
þessa fyrstu daga. Sæbjörgin VE
landaði 130 tonnum um helgina
og á mánudag landaði Skírnir
frá Akranesi hér 360 tonnum. í
nótt eigum við svo von á Grind-
víkingi með um 700 tonn, þannig
að það virðist sem svo að það sé
að rætast úr þessu.
- Hver er afkastageta verk-
smiðjunnar?
- Það hefur nú ekki reynt á
það ennþá en við reiknum með
því að það séu um 500 tonn á sól-
arhring.
- Og þið eruð lausir við reyk-
inn og „peningalyktina" marg-
frægu?
- Reykurinn er horfinn. Hon-
um er eytt með endurbrennslu
hér í verksmiðjunni en lyktin
hverfur aldrei alveg. Við höfum
tekið hér upp alveg nýtt kerfi, hið
fyrsta sinnar tegundar á landinu,
fengið frá Noregi og við vonum
að þetta verði til þess að stuðla
að aukinni sjálfvirkni og um leið
hagræðingu þegar verksmiðjan
verður í gangi allan sólarhring-
inn.
- Sparar þessi nýi búnaður
mannahald?
- Að einhverju leyti og það er
a.m.k. víst að við þurfum ekki að
bæta við mannskap á álags-
punktum, segir Hörður um leið
og hann útskýrir nánar hvernig
hin nýju tæki virka. M.a. hefur
verið komið upp heljarmikilli
stjórnstöð en þaðan verður eins
og áður segir hægt að fylgjast
með nærri því öllum þáttum
framleiðslunnar frá einum og
sama staðnum. Að sögn Harðar
er það aðeins sjálf löndunin og
móttaka á mjöli sem verður þar
útundan.
- Hvernig finnst ykkur að fá
loðnuna aftur? Er spenningur í
mannskapnum?
- Þetta er auðvitað það sem
allir hafa beðið eftir. Eigendurnir
hafa beðið eftir loðnunni til þess
að fá tækifæri til að greiða þessi
nýju tæki niður og mannskapur-
inn er ánægður með að fá góða
törn núna. Við munum vinna á
vöktum allan sólarhringinn ef ein-
hver loðna verður að ráði, sem
þýðir að mennirnir munu vinna
16 tíma annan daginn og átta
tíma þann næsta eða 12 tíma að
meðaltali á dag.
- Hvað reiknið þið með að
törnin standi lengi?
- Það veit enginn en við reikn-
um ekkert frekar með því að hér
verði loðnubræðsla eftir áramót.
Það fer allt eftir loðnunni sjálfri.
Eftir því hvernig hún hagar sér.
Ef vel gengur verður kannski
loðnubræðsla hér í janúar. Það
verður bara að koma í ljós, sagði
Hörður Hermannsson, en undir
hans stjórn starfa nú um 20
manns. Allir óðfúsir að takast á
við loðnuna og skapa verðmæti
fyrir þjóðarbúið.
„Þetta
fer til
blessaðra
bændanna“
- Rætt við
Gunnar Ólafsson
og Jón Kristjánsson
I heljarmikilli skemmu við hlið
verksmiðjunar voru þeir
Gunnar Olafsson og Jón Krist-
jánsson að leggja síðustu hönd
á hringrás framleiðslunnar.
Þeir voru að pakka mjölinu í
50 kg sekki sem þeir síðan
hentu á þar til gert bretti.
- Ó nei, það fer nú ekki til
Japan þetta mjöl. Þetta er
bændamjöl og fer beint til bless-
aðra bændanna, sögðu þeir er
undirritaður reyndi að geta sér til
um áfangastað framleiðslunnar.
Að sögn þeirra Gunnars og
Jóns þá eru þeir báðir á sjötugs-
aldri. Gunnar hafði unnið þarna
í ein átta ár, en Jón lengur en
hann mundi í fljótu bragði.
Upphaflega var það beinamjöl
sem rann í sekkina hjá þeim
þennan dag en nú sögðu þeir að
mjölið væri farið að blandast.
Blessuð loðnan væri komin í
spilið.
Hörður við hluta nýja búnaðarins. Þar er reyknum eytt með endurbrennslu.
Bjöm Gunnarsson - Hefúr unnið í Krossanesi í bráðum 50 ár.
Myndir: ESE.
Gunnar Ólafsson og Jón Kristjánsson (við stýrið).
Frá skipi til lands. Það er Skírnir AK sem var að landa en loðnan fer eftir
leiðslunni í land.
„Loðnan er alltof smá“
Sá starfsmaður sem unnið hef-
ur hvað lengst í Krossanesi er
Björn Gunnarsson. Karlarnir
segja í gríni að hann hljóti að
vera fæddur þarna í verksmiðj-
unni, en Björn segir svo ekki
vera.
- Ég er búinn að vinna hérna
að meira eða minna leyti síðan
1934. Þá voru Norðmennirnir
hérna en verksmiðjan var lögð
niður 1939. Þá varð ég að leita
mér að annarri atvinnu en þegar
bærinn keypti verksmiðjuna,
1945 að ég held, þá byrjaði ég hér
að nýju og hef unnið í Krossanesi
síðan, segir Björn í viðtali við
Dag.
Þegar hann er spurður að því
hvernig hann kunni við sig, segir
hann: - Ég kann vel við það
núna. Orðinn 65 ára og okkur
þessum gömlu mönnum þykir
best að fást við störf sem við
þekkjum. Þetta starf þekki ég út
og inn og því get ég gert því við-
hlítandi skil, segir Björn sem í
upphafi ferils síns hjá verksmiðj-
unum vann sem „altmuglig-
mann“ hjá Norsurunum og síðar
sem bílstjóri í 30 ár. Er blaða-
maður Dags ræddi við hann
stjórnaði hann hakkavél sem
hakkaði úrgangsfisk niður í hæfi-
lega stærð fyrir verksmiðjuna „að
bíta í“.
- Hvernig líst þér á að loðnan
skuli vera komin aftur Björn?
Björn við hakkvélina.
- Það er ekki slæmt að fá loðn-
una aftur en mér líst illa á hvað
hún er smá. Hún er þetta 12-14
cm en það er alitof smátt til að
drepa. Þarna er hugsanlega verið
að drepa niður framtíðina en
þetta er auðvitað nokkuð sem
enginn ræður við á loðnuveiðum.
- Þú ert ekkert kominn að því
að setjast í helgan stein?
- Ætli það. Ég er ekki óvanur
vinnu, þannig að ég held eitthvað
áfram, sagði Björn um leið og
hann sneri sér aftur að hakkavél-
inni.
6 - DAGUR - 16. nóvember 1983
16. nóvember 1983 - DAGUR - 7