Dagur - 28.03.1984, Side 5
28. mars 1984 - DAGUR - 5
t
Minning
Guðmundur Jörundsson
varðstjóri
f. 8.9.1918 -d. 20.3.1984.
Það er ætíð erfitt að skilja þegar
dauðinn ber að dyrum. Samt er
hann hið eina sem við eigum víst
þegar við komum í þennan heim.
Spurningar kunna að koma upp
en svörin verða fá. Við skiljum
ekki tilgang allra hluta, en
lærum, að það er æðri máttur,
sem stýrir og stjórnar.
Enda þótt við vitum að vinur
okkar á meðal gangi ekki heill,
þá eigum við erfitt með að sætta
okkur við, að fáeinir dagar geti
orðið til þess að breyta öllu og
láta hlýtt og traust handtak heyra
minningunni til.
Okkur starfsfélögunum í
Slökkviliði Akureyrar bárust þau
válegu tíðindi, að vinnufélagi
okkar og vinur Guðmundur Jör-
undsson hefði látist í Borgarspít-
alanum 20. mars sl. eftir stutta en
erfiða legu.
Fyrstu viðbrögð við slíkum
fregnum eru ólýsanleg. í gegnum
hugann líða á augabragði atburð-
ir liðinna ára og samverustunda.
Gleymdir atburðir verða allt í
einu ljósir og allar hugsanir
tengjast þeim sem genginn er.
Það var gott að hafa Guðmund
sér við hlið, þegar barist var við
eldinn, versta óvin slökkviliðs-
mannsins. Þar fór saman traust
og ósérhlífni. Seint gleymast þær
stundir, þegar barist var við stór-
elda í „Gamla hótelinu", íbúðar-
bragga á Gleráreyrum í grenj-
andi stórhríð og ekki hvað síst
þegar eldur eyddi verksmiðjum
SÍS árið 1969 í vonskuveðri og
frosthörku. Þar stóð Guðmundur
sem klettur og þrautseigja hans
og seigla átti sér fáar hliðstæður.
Guðmundur Jörundsson var
fæddur á Akureyri 8. september
1918. Foreldrar hans voru hjónin
Engilráð Sigurðardóttir og Jör-
undur Guðmundsson. Ársgamall
flutti hann með foreldrum sínum
til Hríseyjar og átti þar sín
bernskuár. Um fermingu fluttist
Guðmundur aftur til Akureyrar
með fjölskyldu sinni og bjó þar
alla tíð síðan.
Hann stundaði sjómennsku
með föður sínum og sótti vertíðir
suður. Síðar gerðist hann bif-
reiðastjóri hjá Georg Jónssyni,
Bifreiðastöð Akureyrar og
Brauðgerð KEA.
Þann 15. janúar 1953 voru
ráðnir fimm menn til þess að
ganga vaktir á Slökkvistöð Akur-
eyrar og skyldu þeir vera bæjar-
búum til taks ef eldsvoða bæri að
höndum. Auk þess skyldu þeir
annast viðhald á öllum tækjum
stöðvarinnar. Guðmundur var
einn þessara fimmmenninga, sem
völdust til starfans en hann hafði
áður starfað lengi í slökkviliðinu.
Nýjungar teljast ætíð marka
tímamót og svo var einnig í sögu
Akureyrar þegar þessir menn
voru ráðnir til starfa. Bæjarbúum
var annt um að þarna væru
traustir menn, vinnusamir og
ósérhlífnir. Allir þessir þættir
voru Guðmundi Jörundssyni í
eðli bornir.
Enn var Guðmundur í hlut-
verki brautryðjandans, þegar
hann og tveir starfsfélagar hans
voru gerðir að varðstjórum 1.
apríl 1973.
Eftirlifandi eiginkonu sinni
Vilborgu Guðmundsdóttur giftist
Guðmundur 6. maí 1944. Eign-
uðust þau fjögur börn, Hönnu
Guðrúnu, sem þau misstu þriggja
ára, Jörund rakara í Reykjavík,
Sveinbjörn lögreglumann á Ak-
ureyri og Þórhöllu Laufeyju
nema í Myndlistaskólanum.
Með Guðmundi Jörundssyni er
genginn traustur og heilsteyptur
maður. Hann. var sérstakt snyrti-
menni, svo orð fór af, óþreytandi
í því að laga og fegra í kringum
sig.
Hann mátti ekki til þess
hugsa að ekki væru allir hlutir í
lagi og á réttum stað og voru það
kostir, sem slökkviliðsmaðurinn
nýtur góðs af, þegar tíminn skipt-
ir máli. Guðmundur var alvöru-
gefinn og hugsaði mikið um
innsta eðli hlutanna. Hann var
skapríkur og sagði sína skoðun
umbúðalaust. Hann var bóngóð-
ur og vildi hvers manns vanda
leysa ætti hann þess nokkurn
kost.
Það er höggvið stórt skarð í
raðir slökkviliðsmanna á Akur-
eyri þegar Guðmundur er ekki
lengur okkar á meðal. Þar lifir
nú minningin ein, þakklát minn-
ing fyrir allar samverustundir. En
stærst er skarðið hjá fjölskyldu
hans, sem nú horfir á eftir ástrík-
um eiginmanni, föður, tengda-
föður og afa. Við starfsfélagar
hans vottum þeim öllum okkar
innilegustu samúð og biðjum al-
góðan Guð að styrkja þau og
blessa.
Starfsfélagar á
Slökkvistöö Akureyrar.
Bændur athugið
Eigum nælon samfestinga,
mjög hentuga til búverkanna
Stærðir 44-58. Verð frá kr. 1.098.-
Póstsendum
Útboð
Stjórn verkamannabústaða á Dalvík óskar eftir tilboð-
um í að byggja átta íbúða fjölbýlishús við Karlsrauða-
torg 26 Dalvík.
Lokið er við að steypa grunn hússins. Útboðsgögn verða
afhent á skrifstofu byggingarfulltrúa Dalvíkur og á Teikni-
stofu Hauks Haraldssonar sf., Kaupangi, Akureyri gegn
3.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu bæjarstjóra Dalvíkur 16.
apríl 1984 kl. 11.00.
Stjórn verkamannabústaða á Dalvík.
Góðir eiginmenn
sofa heima
Sýning Laugaborg fimmtudag 29. mars kl. 21.00
Sýning Grenivík föstudag 30. mars ki. 21.00.
Sýning Ljósvetningabúð
laugardag 31. mars kl. 21.00.
Ungmennafélag Skriðuhrepps.
Manstu í fyrra?
Stendur í nokkra daga
Sporthú^idhf
Fatamarkaður
Fatnaður á fínu verði
í Brekkugötu 3 (áður Cesar)
gengið inn um portið
kl. 13-18
alla daga
nema
laugardaga
10-12
Urvalsvörur + Mikið tyrir lítið