Dagur - 04.04.1984, Page 4
4 - DAGUR - 4. apríl 1964
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Árásirnar á
samvinnumenn
Undanfarið hefur samvinnuhreyfingin orðið fyrir
hatrömmum árásum nokkurra einkareksturs- og
sérgróðamanna. Mest hefur borið á þessu í
Morgunblaðinu, að sjálfsögðu, sem sér rautt
þegar samvinnurekstur er annars vegar. Einnig
hafa liðsoddar frjálshyggjunnar og einkagróð-
ans verið leiddir til að vitna um svokallaðar
skattaívilnanir samvinnurekstrar í tveimur sjón-
varpsþáttum. Hefur marga furðað á því hvers
vegna síbyljuáróðrinum um skattafríðindi sam-
vinnufyrirtækja er svo mjög haldið á lofti einmitt
um þessar mundir. Ekki er langt að leita
svarsins. Undanfarið hefur verið til umræðu og
afgreiðslu á Alþingi frumvarp til laga sem að
áhti fróðra manna ívilnar hlutafélögum stórlega
hvað varðar skattfríðindi af greiddum arði til eig-
enda þeirra. Moldviðrinu sem þyrlað hefur verið
upp var ætlað að leiða athygli landsmanna frá
þessu frumvarpi, sem nú er orðið að lögum.
Þegar einkarekstrarmenn tala um skatta-
hlunnindi samvinnufyrirtækja gagnvart einka-
rekstri gera þeir sig seka um það æ ofan í æ að
jafna saman ósambærilegum hlutum. Þetta
hlýtur að vera gert með vilja til að kasta ryki í
augu fólks, því varla er hægt að ætla þessum
mönnum þá einfeldni að þeir skilji ekki hvernig
þessum málum er háttað. Annars vegar bera
þeir saman þann arð sem samvinnufélög veita
félagsmönnum sínum í formi vöruverðslækkunar
og hins vegar arði af hlutafjáreign í hlutafé-
lögum. Reginmunur er á þessu tvennu og nær-
tækasta leiðin sem einkareksturinn og kaup-
mannaverslanirnar geta farið til að ná jafnræði
að þessu leyti er einfaldlega að veita viðskipta-
mönnum sínum afslátt á vöruverði, eins og
kaupfélögin gera. Sá arður sem viðskiptamönn-
unum yrði þannig greiddur með lægra vöruverði,
yrði ekki skattlagður hjá einkarekstrinum frekar
en samvinnurekstrinum.
Yfirleitt skjóta þessir gagnrýnendur samvinnu
hreyfingarinnar langt yfir markið í áróðri sínum.
Samvinnumenn verða þó engu að síður að sam-
eina krafta sína gegn þeim öflum sem vilja sam-
vinnuhreyfinguna feiga og beita til þess öllum
brögðum að gera hana tortryggilega. Nú þegar
mikið ríður á að öflug atvinnuuppbygging hefjist
út um allt land er þörfin fyrir samvinnu og sam-
stillt átak óvenju mikil. Óþrjótandi verkefni eru
framundan í íslensku atvinnulífi, sem samvinnu-
hreyfingin ekki aðeins á að, heldur verður að
taka öflugan þátt í. Hún verður hér eftir sem
hingað til að setja mikinn svip á atvinnuupp-
bygginguna, öllum landsmönnum til góða, hvar
sem þeir búa á landinu.
„Bjartara yfr
en oft aour“
- segir Kristján Ólafsson um atvinnu-
ástandið á Dalvík
„Mér finnst þessi neikvæði
fréttaflutningur vera farinn að
ganga út í öfgar og ég tel ekki
að hann geri neinum gagn,“
sagði Kristján Ólafsson, útibús-
stjóri og bæjarfulltrúi á
Dalvík, vegna frásagna af
skýrslu Fjórðungssambands
Norðlendinga um ástand í fisk-
veiðimálum og byggingariðn-
aði. „Það virðist allt gert tU að
sverta ástandið og ég vU nefna
að hér á Dalvík er bjartara yfir
í atvinnumálum en verið hefur
um nokkurt skeið.“
Kristján sagði að í áðurnefndri
skýrslu hafi komið fram að einn
togari Dalvíkinga hafi verið
bundinn við bryggju frá því fyrir
jól. Sagt .var frá þessum þætti
skýrslunnar í Degi 28. mars sl.
Rétt væri hins vegar að Baldur
hafi farið á veiðar 20. janúar og
Dalborg á rækju í febrúar, eftir
að hafa farið einn þorsktúr.
Kristján sagði að Dalborgin
hefði aflað mjög vel á rækjunni
og rækjuvinnslan hefði farið í
gang 19. mars og þar ynnu nú
hátt í 30 manns. „Það er ekkert
atvinnuleysi hér og allir hafa nóg
að gera. Lægð var í fiskveiðunum
um áramót, eins og svo oft á
þeim tíma, en útlitið er bjartara
en það hefur verið oft áður.
Kvótinn nú er um 10% minni en
afli okkar í fyrra, 5 þúsund lestir
í stað 5.500 lesta í fyrra, og get-
um við sjálfsagt sæmilega við
unað.
Varðandi byggingariðnaðinn
er nóg að gera á þeim vettvangi
á næstunni. Það dró úr í kringum
áramótin en bæjarfélagið hefui
með ýmsu móti reynt að stuðla
að því að skapa iðnaðarmönnum
atvinnu.
Nú er búið að bjóða út
verkamannabústaði og hafist
verður handa við byggingu versl-
unarhúss KEA í vor. Þá verður
einnig byrjað á þjónustuhúsi í
vor þar sem verður áhaldahús
fyrir bæinn, aðstaða fyrir lög-
reglu og Rarik. Þá má geta þess
að miklar hafnarframkvæmdir
verða í sumar og á að reka niður
stálþil. Framkvæmt verður fyrir
10 milljónir króna,“ sagði Krist-
ján Ólafsson. - HS.
Ályktanir Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar
Á aðalfundi Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar 29. og 30.
mars var gerð breyting á lögum
Búnaðarsambandsins þannig
að nú hafa starfandi sérgreina-
félög á sambandssvæðinu rétt
til að senda fuUtrúa á aðalfund
þess með fullum réttindum.
Þá var samþykkt áskorun til
sýslunefndar Eyjafjarðarsýslu
þar sem óskað er eftir undan-
þágu frá sauðfjárböðun þar til
í ljós kæmi að nauðsyn væri á
slíkri framkvæmd. Einnig
ályktaði fundurinn um fyrir-
hugaða fóðurstöð fyrir loðdýr
sem í byggingu er á Dalvík.
Taldi fundurinn að nauðsyn-
legt væri að standa vel að
þeirri framkvæmd og að tryggt
verði að ekkert verði notað I
fóðrið frá riðuveiku fé. Þá
taldi fundurinn einnig að æski-
legt væri að öllu riðuveiku fé á
svæðinu væri slátrað á einu
sláturhúsi þ.e. á Dalvík.
Hér fara á eftir ályktanir aöal-
fundarins:
„Aðalfundur Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar haldinn 29. og
30. mars 1984, t.elur að hrinda
beri tafarlaust í framkvæmd til-
lögu síðasta aðalfundar Stéttar-
sambands bænda um fyrirkomu-
lag innheimtu kjarnfóðurgjalds
og gjaldið verði að hámarki kr.
1.500 pr/tonn svo að nokkur
jöfnuður náist.
Eðlilegt má telja að það mis-
rétti sem ríkt hefur í þessu efni
verði leiðrétt með endur-
greiðslum til kjarnfóðurkaup-
enda. Því skorar fundurinn á
landbúnaðarráðherra að veita
þessu máli brautargengi."
Breytíng á lögum um
Stéttarsamband bænda
„Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar haldinn að Lauga-
borg 29. og 30. mars 1984 telur
að með tilliti til breyttra að-
stæðna í landbúnaði sé mjög
tímabært að taka lög Stéttar-
sambands bænda til endur-
skoðunar.“
Greinargerð: Fundurinn legg-
ur áherslu á, að Stéttarsamband
bænda verði framvegis sem í upp-
hafi sameiginlegur vettvangur
allra þeirra sem búvörufram-
leiðslu stunda.
Nýjar búgreinar hafa nú öðlast
aukna hlutdeild í íslenskum land-
búnaði og margar stofnað sín sér-
greinafélög til eigin hagsmuna-
gæslu. Miður er ef þessir aðilar
telja ekki hagsmuna sinna gætt
innan núverandi skipulags Stétt-
arsambandsins.
Bendir fundurinn því á, að
fulltrúa á Stéttarsambandsfund
mætti kjósa að hluta eftir núver-
andi fyrirkomulagi, en hins vegar
í gegnum búgreina- eða afurða-
sölufélög sem þá hefðu fulltrúa-
fjölda í hlutfalli við umfang við-
komandi búgreinar.“
Breyting
á mjólkursölusvæðum
„Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar haldinn að Lauga-
borg 29. og 30. mars 1984 skorar
á Framleiðsluráð landbúnaðarins
að endurskoða nú þegar skipt-
ingu landsins í mjólkursölusvæði.
Þær forsendur sem voru fyrir
núverandi skipan eru ekki lengur
fyrir hendi. Því er eðlilegt að
breyta núverandi svæðaskiptingu
og koma á meiri verkaskiptingu
á milli mjólkursamlaga."
Samræma uppgjör
vinnslustöðva
„Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar haldinn að Lauga-
borg 29. og 30. mars 1984 telur
að samræma þurfi uppgjör
vinnslustöðva landbúnaðarins við
bændur.“
Greinargerð: Óviðunandi er
að uppgjöri vinnslustöðva sé hag-
að þannig að verðbreyting og
ógreiddar verðbætur lána séu
færðar til gjalda áður en fullt
grundvallarverð er greitt til
bænda. Ekki er óeðlilegt að
vinnslustöðvar megi gera upp
með tapi samkv. skattalögum.