Dagur - 16.07.1984, Qupperneq 6
6-DAGUR-16. júlí 1984
1. deild:
Staftan í l. detld íslandsinótsins í knatt-
spyrnu er nú þessi el'tir leiki helgarinnar:
KA - ÍBK 4-2
UBK - KR 3-3
Akranes - Þór 3-2
Valur - Víkingur 3-0
Þróttur - Fram 3-2
Akrancs 11 9 1 1 20:7 28
ÍBK 11 6 3 2 13:9 21
Þróttur 11 3 6 2 12:10 15
Valur 11 3 4 4 11:10 13
KA 11 3 4 4 16:17 13
Víkingur 11 3 4 4 15:18 13
Fram 11 3 2 6 13:15 11
UBK 11 2 5 4 10:12 11
l>ór 11 3 2 6 14:17 11
KR 11 2 5 4 11:19 11
2. deild:
Staðan í 2. deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu eftir leiki helgarinnar:
Viðir - ÍBV frcstað
Njarðvík - Völsungur 1:0
ÍBÍ - UMFS 4:2
Tindastóll - FH 2:4
Einherji - KS frestað
FII 10 7 2 1 22:9 23
Völsungur 10 5 2 3 15:12 17
UMFN 10 5 1 4 9:7 16
ÍBÍ 10 4 3 3 17:15 15
UMFS 10 4 2 4 16:13 14
Víðir 9 4 2 3 12:14 14
ÍBV 9 3 4 2 12:10 13
KS 9 3 3 3 11:11 12
Tindastóll 10 2 1 7 12:24 7
Einherji 9 0 2 7 7:18 2
3. deild b:
Aðcins einn leikur í b-riðli 3. deildar ís-
landsmótsins í knattspyrnu í vikunni og
staðan nú þessi:
Magni - Leiftur 2:4
HSÞ-b - Austri frestað
Huginn - Þróttur N frestað
Leiftur 8 6 2 0 22:6 20
Magni 8 3 2 3 13:11 11
HSÞ-b 7 3 2 2 9:10 11
Þróftur N 6 2 3 1 12:9 9
Austri 6 2 3 1 8:7 9
Huginn 6 0 3 3 10:19 3
Valur 7 0 I 6 7:20 1
4. deild d
Staðan í d-riðli 4. deildar eftir leiki helgar-
innar er þessi:
Reynir - Skytturnar 3:1
Svarfdælir - Geislinn 5:1
Skyttumar - Geislinn 1:0
Reynir 6 5 1 0 21:4 16
Skytturnar 6 3 0 3 15:13 9
Svarfdælir 5 2 1 2 13:15 7
Geislinn 5 1 0 4 4:11 3
Hvöt 4 1 0 3 3:13 3
4. deild e:
Ekkert var leikið í e-riðli um helgina vegna
Landsmóts UMFÍ og staðan því óbreytt.
Vorboðinn - Árroðinn frestað
Vaskur - Æskan frestað
Tjörnes 5 4 0 1 14:2 12
Vaskur 5 3 11 12:8 10
Árroðinn 5 2 2 1 8:8 8
Vorboðinn 5 113 8:15 4
Æskan 4 0 0 4 4:13 0
1. deild kvenna:
Ekkert var leikið um helgina, en næstu
leikir verða um næstu helgi á KA og Þórs-
velli.
Þór 3 3 0 0 6:0 9
KA 3 111 3:2 4
Súlan 3 10 2 1:4 3
Höttur 3 0 12 1:5 1
Kristián meistari á Húsavík
Meistaramót Golfklúbbs
Húsavíkur fór fram um helgina
í góðu veðri og tóku milli 25 og
30 keppendur þátt í mótinu
sem tókst mjög vel.
Yfirburðasigurvegari í 1.
flokki varð Kristján Ö. Hjálm-
arsson á 306 höggum, næstur
honum kom Skúli Skúlason á 320
höggum og í þriðja sæti varð
Axel Reynisson með 324 högg. í
2. flokki sigraði Pálmi Þorsteins-
son, í öðru sæti varð Skarphéð-
inn Ómarsson og Baldur Karls-
son þriðji. Björn St. Haraldsson
sigraði í 3. flokki, Kristinn Lúð-
víksson annar og Jón Guðlaugs-
son þriðji. í kvennaflokki varð
Sigríður Ólafsdóttir efst, Arn-
heiður Jónsdóttir önnur og Sól-
veig Skúladóttir þriðja. Þá var
einnig keppt í piltaflokki þar sem
Örvar Þ. Sveinsson sigraði en
næstir komu Sigþór Skúlason og
Hörður Harðarson.
Á Sauðárkróki lauk ekki
keppni í meistaramóti þeirra um
helgina þar sem þátttaka var ekki
nægilega góð í öllum flokkum og
því ekki hægt að birta úrslit að
svo stöddu.
En Ólafsfirðingar héldu sitt
meistaramót um helgina. Þar var
aðeins keppt í meistaraflokki og
voru sjö þátttakendur í þeim
flokki. Sigurvegari varð Gestur
Sæmundsson á 160 höggum, í
öðru sæti varð Haukur Hilmars-
son á 168 höggum og í þriðja sæti
varð Jón Halldórsson með 172
högg. Leiknar voru 36 holur í
ágætis veðri, en nokkur þoka var
annað slagið og eins og Gestur
sagði „maður varð bara að skjóta
í áttina, en allar fóru þó kúlurnar
niður fyrir rest.“
„Tígerinn" á Tígerteigunum:
Sverrir Akureyrarmeistari
- Inga Magnúsdóttir í kvennaflokki og Örn Ólafsson í drengjaflokki.
ur ef hann leggur rækt við golfið.
Kristján Gylfason hirti silfrið,
kom inn á 353 höggum en Örn
var á 328. Þriðji var svo Sigur-
björn Þorgeirsson á 362 höggum.
Kjartan Bragason hafði uppi
tilþrif í 3. flokki tvo síðari dagana
og vann þá upp forskot Árna K.
Friðrikssonar og vel það. Árni
virtist vera kominn með tak á
bikarnum þegar mótið var hálfn-
að en hann sá ekki við Kjartani
sem lék við hvern sinn fingur.
Lokatölur 367 hjá Kjartani, 372
hjá Árna og 381 hjá Árna B.
Árnasyni hinum snjalla kylfingi
sem bætti sig sífellt er á mótið
leið og hefði sjálfsagt viijað hafa
þetta fimm daga mót!
Svo bregðast krosstré ... -
Þorbergur Ólafsson hinn vinsæli
kylfingur sem er sannkallað
augnayndi á golfvelli tók strax
forustuna í 2. flokki og átti 11
högg á næsta mann er mótið var
hálfnað. Hann mun hins vegar
hafa „tognað á auga“ og var ekki
svipur hjá sjón tvo síðari dagana.
Þá var Guðjón Sigurðsson hins
vegar kominn í banastuð, lék
mjög vel og halaði inn sigurinn.
Guðjón á 366 höggum, Jóhann P.
Andersen á 377, Magnús Gísla-
son á 378 og Þorbergur sat eftir í
4. sætinu, málið dautt.
Guðmundur Finnsson sem
sigraði í 1. fokki lék mjög vel.
Eftir tvo fyrstu dagana hafði
Gunnar Rafnsson forustuna, en
hann sá ekki við Guðmundi er
lengra kom fram í mótið frekar
en aðrir. Úrslitin þannig að Guð-
mundur Finnsson var á 339
höggum, Jón Steinbergsson
nokkuð óvænt að mati sumra á
349 í 2. sætinu og Þórður Svan-
bergsson þriðji á 351. Sannarlega
sviptingar miklar og keppni
þarna skemmtileg.
Fjölmargir aðilar lögðu sitt af
mörkum til þess að gera þetta fjöl-
mennasta Akureyrarmót frá upp-
hafi sem veglegast. Sjallinn gaf
verðlaun í meistaraflokk karla,
Alþýðubankinn í meistaraflokk
kvenna, Dagur í 1. flokk, Bíla-
leigan Geysir í 2. flokk, Ferða-
nesti í 3. flokk og Bílasalinn í
drengjaflokk.
Þá var keppt up fjölmörg auka-
verðlaun. Þau voru gefin af Sjall-
anum, Smiðjunni, Taki hf., Kótó,
Ásgeir Flórentssyni, Kaffi-
brennslu Akureyrar, Þengli
Valdimarssyni, ísbúðinni, Sana
og Flugleiðum. Verðlaunin voru
fyrir að vera næstur holu á par 3
holunum og sitthvað fleira en of
langt mál yrði að tíunda hér
hverjir tóku þau með sér heim.
Þökkum til þeirra sem gáfu verð-
laun í mótið er hér með komið á
framfæri, frá Golfklúbbi Akur-
eyrar.
„Sverrir „Tíger“ Þor-
valdsson er Akureyr-
armeistari í golfí 1984,
en Akureyrarmótinu
Iauk nú um helgina.
Sverrir lék 72 holurnar
á „sínum teigum“ eða
„tígerteigunum“ á 322
höggum og vann örugg-
an sigur. I kvennaflokki
vann Inga Magnúsdóttir
og Örn Ólafsson varð
drengjameistari.
Alls mættu 74 keppendur til
leiks, og hvort sem lesendur trúa
því eða ekki þá slógu þessir kylf-
ingar alls 28.849 högg í mótinu.
Það hefur greinilega verið nóg að
gera hjá sumum!
Sverrir tók strax forustuna f
karlaflokknum og segja má að
sigri hans hafi aldrei verið ógnað.
Þeir kappar í m.fl. klúbbsins léku
á gulum teigum sem þýðir að par
valiar er 74. Um næstu sæti
var hins vegar nokkur barátta, en
þegar upp var staðið var Sigurður
H. Ringsted í 2. sæti á 331 höggi.
Jafnir í 3. - 4. sæti voru Þórhallur
Pálsson og Björn Axelsson sem
vann Þórhall í aukakeppni.
í kvennaflokki börðust þær
vinkonur Inga Magnúsdóttir og
Jónína Pálsdóttir um titilinn. Tvo
fyrstu dagana fylgdust þær að og
Inga átti eitt högg í forskot. A
fyrstu 9 holunum þriðja daginn
hirti Jónína hins vegar 8 högg af
Ingu og virtist vera að gera út um
málin en Inga svaraði með að
vinna 9 högg á síðari 9 holunum.
Átti hún því 2 högg er lokadagur-
inn hófst. Þá var spennan í há-
marki, Jónína jafnaði trekk í
trekk en þegar upp var staðið var
Inga á 351 höggi, Jónína á 354 og
þriðja varð Katrín Frímannsdótt-
ir sem hafði tekið fram kylfurnar
eftir nokkurra ára hvíld, og var
hún á 369 höggum. Skemmtileg
keppni hjá konunum.
Örn Ólafsson er drengjameist-
ari Golfklúbbs Akureyrar og hirti
hann þann titil með tilþrifum.
Hann lék skínandi vel pilturinn
og átti m.a. besta 9 holu hring
mótsins er hann kom inn á 35
höggum. Örn hefur ekki mikið
spilað í sumar og það segir allt
sem segja þarf um hvað hann get-
Elsti og yngsti. Jón G. Sólnes 74 ára og Þorleifur Karlsson 9 ára.
Mynd: gk-.
Þær voru kátar í mótslok Inga Magnúsdóttir og Jónína Pálsdóttir
eftir hina hörðu keppni.
-
16. júlí 1984- DAGUR-7
Umsjón: Þorleifur Ananíasson
3 íið af Norður-
landi í undanúrslit?
Já það er möguleiki á því að norðanmenn eigi þrjú af fjórum liðum í undanúrslitum í Bikarkeppni KSÍ, en
8 liða úrslitin fara fram nú í vikunni. Á þriðjudag leikur Þór gegn liði KR í Reykjavík, en á miðvikudags-
kvöldið verða síðan leikir Völsunga og Fram á Húsavík og leikur KA gegn Þrótti á Akureyri. Báðir leik-
irnir hefjast kl. 20.00. Enn er ekki Ijóst hverjir leika fjórða leikinn. Leik ÍBV og Akurnesinga úr 16 liða
úrslitum er enn ólokið, en vonast til að hann geti farið fram í kvöld. Sigurvegarjnn úr þeim leik mætir síðan
liði Breiðabliks í Kópavogi. Öll liðin héðan að norðan ættu að geta kornist áfram ef þeim tekst vel upp í
leikjum sínum í vikunni og gaman væri að fá bikarinn norður í ár, en aðeins einu sinni hefur það gerst. Það
var árið 1969 þegar lið IBA sigraði lið Skagamanna í úrslitaleik 3:2. Oftast hafa KR-ingar sigrað í keppn-
inni eða sjö sinnum, þannig að Þórsarar fá ef til vill erfiðasta andstæðinginn, en þeir geta þó huggað sig við
að allir sigrar KR voru á dögum rauða Ijónsins og KR hefur ekki sigrað síðan 1967.
En hvað segja leikmenn sjálfir um möguleika sinna liða?
Bjarni Sveinbjörnsson:
Njáll Eiðsson: 1 Helgi Helgason:
„Við stefnun að sjálfsögðu að sigri gegn KR-
ingum á þriðjudaginn. Okkur hefur ekki
gengið neitt ver að leika á útivöllum í sumar
og kunnað vel við okkur á Laugardalsvellin-
um. Þessi leikur verður hins vegar á KR-vell-
inum og held ég að það gæti orðið verra,“
sagði Bjarni Sveinbjörnsson leikmaður Þórs.
„Þetta verður örugglega ekki eins létt og í
deildarleiknum fyrr í sumar þegar við sigr-
uðum þá auðveldlega fyrir sunnan. Bæði
þjálfarinn okkar Þorsteinn Ólafsson og Óli
Þór Magnússon hafa leikið í úrslitaleikjum í
Bikarkeppninni, þá með liði Keflvíkinga.
Við munum stefna að sigri í Bikarkeppninni
í ár og ættum að hafa möguleika til þess að
sigra, ekkert síður en þau lið sem eftir eru í
keppninni, en það þýðir ekki að hugsa um
meira en einn leik í einu og fyrst er að sigra
KR,“ sagði Bjarni að lokum.
„Þetta verður mjög erfiður leikur, Þróttarar
eru úr leik í baráttunni um íslandsmeistara-
titilinn og munu því leggja alla áherslu á
bikarinn. Undanfarið hefur það lið sem slær
Víking út úr keppninni hreppt bikarinn og
Þróttur sló Víking út í síðustu umferð. En ef'
við náum upp jafn góðri baráttu og í leiknum
gegn ÍBK, eru möguleikar okkar góðir.
Þróttarar náðu jafntefli hér í deildarleiknum
í sumar, en við áttum að sigra í þeim leik.
Nei, ég hef aldrei leikið úrslitaleik í Bika-
rkeppninni, Gústaf Baldvinsson hefur leikið
tvo úrslitaleiki með ÍBV og varð Bikar-
meistari 1981, en við hinir höfum aldrei
komist það langt. Það er draumurinn að
fá að spila úrslitaleik í Bikarkeppninni,
en fyrst þarf að sigra Þrótt á miðviku-
dagskvöldið og áhorfendui geta hjálpað
okkur mikið með góðum stuðningi sínum á
leiknum."
„Við erum meira en hálfnaðir í titilinn,“
sagði hinn eldhressi Helgi Helgason leik-
maður og þjálfari hjá Völsungi. „Nú þegar
höfum við slegið út úr keppninni lið Leifturs,
Tindastóls, KS og Víking Ólafsvík. Við gæt-
um unnið 1. deildarlið Fram ef við náum að
sýna toppleik, en það verður örugglega mjög
erfitt. Eg hef ekki séð Frammarana í sumar,
en kannast við leikmenn liðsins og hvernig
þeir leika. Maður þekkir þessa karla. Það
hefur enginn úr okkar liði leikið í úrslitaleik
Bikarkeppni KSÍ. Kristján Olgeirsson komst
næst því árið 1982 þegar hann lék með Ak-
urnesingum og þeir komust í úrslit gegn
ÍBK, en hann var í leikbanni í úrslita-
leiknum. Áhorfendur okkar hafa sótt völlinn
vel í sumar og verið okkur mikill styrkur í
heimaleikjunum, stuðningur þeirra hefur
mikið að segja, ekki síst í leik sem þessum
gegn Fram,“ sagði Helgi að lokum.
••• Mjolkursamlag KEA
900 Akureyri Simi96-21400
a
markað-
7 -< £ 1
100% hreinn
appelsínusafi
frá Flórida
Engum sykri,
litarefnum, rotvarnar-
efnum, né öðrum
aukaefnum er bætt í
i mre wd & r ípr ifffe j
vá t . f/ ' i
■ li i \\ + ir, \ %
I hverjum líter af safa eru u.þ.b. 2.4 kg
® af Flórida appelsínum