Dagur - 16.07.1984, Qupperneq 8
8-DAGUR-16. júlí 1984
Þórsarar oheppnir
að ná ekki stigi
- Töpuðu fyrir Akurnesingum 3?
,,Þeir voru töluvert betri í fyrri
hálfleik,“ sagði Nói Björnsson
fyrirliði Þórs í knattspyrnu eft-
ir leik þerra gegn Akurnesing-
um í 1. deild á laugardag.
„Jafntefli hefði verið sann-
gjörn úrslit í leiknum, því í síð-
ari hálfleiknum náðum við upp
mjög góðri baráttu og áttum
miklu meira í leiknum en
þeir.“
Strax á 5. mín. leiksins náðu
Akurnesingar forustunni með
marki frá Árna Sveinssyni eftir
að tveir Skagamenn komust inn
fyrir vörn Þórs og Þorsteinn
Olafsson kom engum vörnum
við. Þetta mark í upphafi leiks
kom eins og köld vatnsgusa á
leikmenn Þórs, en þeir létu þó
ekki slá sig út af laginu og strax
2 mín. síðar höfðu þeir jafnað
metin. Eftir góða sókn upp hægri
kant átti Jónas Róbertsson mjög
góða sendingu fyrir mark Akur-
nesinga á stöngina fjær þar sem
Kristján skallaði boltann út í
teiginn og Nói Björnsson skoraði
af vítapunkti með föstu skoti.
„Við fengum síðan á okkur tvö
klúðursmörk seint í fyrri hálf-
leiknum," sagði Nói, „fyrst skor-
aði Sigþór Ómarsson með skalla
og síðan bætti Hörður Jóhannes-
son við öðru marki eftir varn-
armistök hjá okkur.“ Staðan í
leikhléi því 3:1 Akurnesingum í
vil. Þórsarar náðu strax góðum
tökum á leiknum í síðari hálfleik
og voru mun meira með boltann,
en vörn Akurnesinga var sterk og
varðist vel.
Um miðjan síðari hálfleikinn
náðu Þórsarar þó að minnka
muninn þegar Óskar Gunnarsson
skoraði gott mark með skalla eft-
ir sendingu frá Jónasi Róberts-
isyni, en stuttu áður höfðu Ak-
urnesingar bjargað á marklínu.
Að sögn Nóa fengu Akurnesing-
ar aðeins eitt tækifæri í síðari
hálfleiknum, slíkir voru yfirburð-
ur Þórsara. Bjarni Sveinbjörns-
son fékk síðan tækifæri til að
tryggja Þór jafntefli í leiknum
þegar hann komst einn inn fyrir
vörn Akurnesinga, en nafni hans
í Skagamarkinu varði vel, og
sluppu því heimamenn með
skrekkinn og öll stigin þar sem
mörkin urðu ekki fleiri í
leiknum.
Jónas Róbertsson. Sendingar hans
gáfu tvö mörk gegn Akurnesingum.
„Við vorum óheppnir að ná
ekki að minnsta kosti jafntefli í
leiknum," sagði Bjarni Svein-
björnsson. „Það var lélegt að
skora ekki úr þessu færi sem ég
fékk í síðari hálfleiknum, það var
algert dauðafæri," bætti hann
við. Að sögn Nóa lék liðið vel í
síðari hálfleiknum, en enginn
skar sig sérstaklega úr fyrir góðan
leik, heldur barðist liðið sem ein
heild.
Jón og Logi
til Þýskalands
Þaö mun nú vera ákveðið að
tveir af efnilegustu leik-
mönnum KA-liðsins í hand-
knattleik, Jón Kristjánsson og
Logi Einarsson muni fara til
Þýskalands í byrjun september
þar sem þeir munu stunda
æfingar hjá liði Essen sem AI-
freð Gíslason leikur með.
Á Þórsvelli léku í yngri flokki
kvenna Þór og Valur og lauk
þeim leik með sigri Vals 4:2. Sig-
ríður Pálsdóttir skoraði bæði
mörk Þórs í leiknum. Þetta var
fyrsti leikur Þórs á íslandsmót-
inu, KA er ekki með lið í þessum
flokki.
3., 4. og 5. flokkur KA léku á
Húsavík s.l. fimmtudag, úrslit
urðu: 3. fl. Völsungur-KA 1:3
mörk KA skoruðu Jóhannes,
Ágúst og Arnar.
4. fl. Völsungur-KA 0:8 mörk-
in Skafti 3, Eiður 2, Björn 2 og
Stefán 1. 5. fl. Völsungur-KA
1:2 mörk KA Jón og Kristján.
í gær léku síðan sömu flokkar
KA gegn KS á KA-velli. 3. fl.
KA-KS 11:0 mörkin Ágúst 3,
Jóhannes 2, Arnar 2 og Kristján,
Jónas, Bjarni og Árni 1 mark
hver.
Það er fyrir tilstilli Alfreðs sem
þetta er mögulegt. Leikmennirn-
ir munu búa hjá honum meðan á
dvöl þeirra í Þýskalandi stendur.
Ekki er að efa gagn það sem hinir
ungu leikmenn munu hafa af því
að fylgjast með og taka þátt í æf-
ingum hjá einu af bestu hand-
knattleiksliðum í heimi. Jón er
talinn eitt mesta efnið í íslensk-
4. fl. KA-KS 11:0 mörkin
Björn 6, Stefán 2, Atli 2 og Skafti
1.
5. fl. KA-KS 12:0 mörkin Karl
K. 3, Karl P. 3, Jón Egill 3,
Sveinn 2 og Kristján 1 mark.
Þór hélt með sína flokka til
Blönduóss í gær og urðu úrslit
þannig:
3. fl. Hvöt-Þór 0:9 mörk Þórs
Sigurpáll 6, Ólafur, Jóhann og
Ásgrímur 1 mark hver.
4. fl. Hvöt-Þór 1:8 mörk Þórs
Páll 3, Sævar 2 og Sverrir, Axel
og Heiðar sitt markið hver.
5. fl. Hvöt-Þór 0:7 mörkin
Steindór 3, Ingólfur 2, Rúnar 1
og Mikael 1 mark.
Leikjum í þessum flokkum í
Norðurlandsriðli er að ljúka og
virðist ljóst að Þór sigrar í 3.
flokki, KA í 4. flokki, en í 5.
flokki er allt í járnum og marka-
tala ræður að öllum líkindum úr-
slitum milli KA og Þórs.
Jón Kristjnnsson. Logi Einarsson.
um handknattleik í dag, hörku-
skytta, og Logi er bráðefnilegur
hornamaður sem tók miklum
framförum sfðastliðinn vetur.
Sjálfur kvaðst Alfreð ekki vera á
heimleið alveg strax, en allt
bendir þó til þess að innan alltof
langs tíma muni hann á ný klæð-
ast KA-skyrtunni.
Sem kunnugt er hefur KA ráð-
ið þjálfara fyrir liðið á komandi
keppnistímabili, Helga Ragnars-
son, og munu æfingar fljótlega
hefjast. Helgi hefur langa reynslu
að baki sem þjálfari bæði innan-
lands og utan og væntir KA mik-
ils af starfi hans.
Stjórn handknattleiksdeildar
hefur unnið mikið starf í sumar
til undirbúnings vetrinum og líta
KA-menn með hóflegri bjartsýni
fram á veginn. Menn velta því
ávallt fyrir sér hvort nýir leik-
menn séu að koma en formaður
handknattleiksdeildar Jóhann
Karl Sigurðsson sagði, „við
kaupum enga menn“. Ljóst er
þó að Friðjón Jónsson mun leika
með, en hann er nú kominn heim
frá Danmörku þar sem hann lék
í fyrra og varð Danmerkurmeist-
ari í 3. deild. Þá eru einnig miklar
líkur til að járnkarlinn úr knatt-
spyrnunni, Mark Duffield verði
með liðinu, en hann lék áður
með Gróttu og er sterkur línu-
maður og harður í horn að taka í
vörn.
Yngri flokkar:
íslandsmót
- Úrslit um helgina
Minning
Hallgrímur Jónsson
Fæddur 7. júlí 1907 - Dáinn 6. júlí 1984
„Sólin til fjalla fljótt
fer að sjóndeildarhring“
Hallgr. Pétursson.
Hallgrímur Jónsson Helgamagra-
stræti 3 hér í bæ er látinn. Hann
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 6. júlí s.L, þá degi mið-
ur en 77 ára að aldri.
Undanfarin ár hefur hann átt
við mikla vanheilsu að stríða og
oft þjáðst tímum saman, en haft
bærilega líðan á milli og verið þá
hress og glaður og gert að gamni
sínu. Og þá litið einbeittum frels-
issvip fold feðra vorra og mæðra
og tighað land sitt og þjóð eins og
sannur íslendingur.
Hallgrímur var góður starfs-
maður, traustur og farsæll,
glaður, kurteis og hreinskilinn.
Hann hefur um langt árabil,
eða frá 1942 verið starfsmaður
Mjólkursamlags Kaupfélags Ey-
firðinga, til þess er hann á árinu
1977 lét af störfum, eftir nærfellt
35 ára starf á sama stað. Sýnir
það ljóslega stefnufestu hans og
hve vel hann undi starfinu.Af því
má marka að þar gekk að starfi
maður heils hugar og ákveðinn.
Á þessum langa starfstíma í sam-
laginu ávann hann sér full rétt-
indi sem mjólkurfræðingur þótt
aldrei færi hann í neinn skóla.
Hallgrímur vann allmikið að gerð
og lögun osta. Ég finn glöggt ost-
bragð á tungunni þegar mér
koma í hug ostarnir sem lagaðir
voru þar. Hvílíkt dýrðarbragð og
heilsufæða, enda rómaðir um allt
land, svo sem og aðrar afurðir
frá þeirri góðu stofnun. Víst er
og að gæðastimpillinn hefur einn-
ig borist út fyrir landssteinana.
Kynni mín af Hallgrími eru
ekki löng í árum talið. Við rák-
umst saman í störfum fyrir Iðju,
félag verksmiðjufólks á Akur-
eyri, þar sem hann hafði starfað
um langt árabil með stiórn og
trúnaðarráði félagsins. Ég aftur
á móti alger nýgræðingur, þótt
ekki væri ég með öllu ókunnur
félagsmálum.
Mér er í minni, hve vel og af
miklum hlýhug hann tók mér við
komu mína í þessi félagsstörf
Iðju. Bar ég þegar í stað til hans
mikið traust, sem jókst fremur en
hitt þau ár er við unnum þar að
sama marki. Þar í sveit okkar í
stjórn og trúnaðarráði Iðju kom
margt gott og vel hugsað frá Hall-
grími, yfirvegað af fullum heil-
indum og glöggskyggni þess
manns er vill öllum vel, og bestan
þó veg þess er efnum búinn fer
halloka fyrir óréttlæti heimsins,
þess er þarf stuðning og hvatn-
ingu til að halda í horfinu og
hrekjast ekki af leið.
Þannig var Hallgrímur. Félags-
málastörf voru honum mikið
hugðarefni og þar komu í ljós
góðir hæfileikar hans. Störf hans
öll til gagns Iðju þakkar stjórn og
trúnaðarráð af fyllstu einlægni og
metur að verðleikum alla velvild
hans í garð félagsins.
Hallgrímur er fæddur að Reist-
ará í Arnarneshreppi 7. júlí 1907.
Sonur hjónanna er bjuggu þar
þá, þeirra Jóns Júlíusar Asgríms-
sonar og konu hans Jónínu Guð-
rúnar Hallgrímsdóttur, og höfðu
fyrr eignast 2 dætur, Hallfríði og
Huldu. Nú hafði þeim bæst sonur
í búið.
Árið 1910 flyst fjölskyldan að
Baldursheimi í sömu sveit. Þar
eignast hjónin tvö börn í viðbót,
Aðalstein síðar bónda í Baldurs-
heimi og dóttur, Elínu Ásu sem
búsett er á Suðurnesjum. Úr
þessum systkinahópi hafði elsta
systirin dáið ung en systkinin 4
alist upp með foreldrum sínum,
unnið búinu heima og voru hið
mesta efnis- og dugnaðarfólk við
búskapinn.
Þá veiktust tvö systkinanna af
berklum. Hallgrímur fékk berkla
í bakið 18 ára að aldri og háði
baráttu við þann sjúkdóm í 4-5
ár, hlaut bót og náði heilsu. Syst-
irin Hulda veiktist og varð eigi
langlíf.
Þar er þá komið sögu að Hall-
grímur hefur sest að hér í bæ, fest
ráð sitt og eignast hana Ingi-
björgu Jóhannesdóttur, ættaða
úr Skagafirði, fengið starf sem
hann undi og tómstundastarf að
auki.
Ég vil votta Ingibjörgu, dætr-
unum þrem Jónínu, Heiðbjörtu
og Kristínu, börnum þeirra,
öðrum ættingjum og vinum sam-
úð mína með þeirri ósk að
minning góðs drengs megi lifa um
ókominár„„ __________
11. júlí 1984.
Höskuldur Stefánsson.
Húsavík:
Alhliða skotfæra-
þjónusta stofnuð
„Þetta er að fara í gang hjá
okkur, við bíðum eftir tækjum
en eigum von á þeim hvað af
hverju. Við vonumst til að
verða komnir af stað með
þetta um næstu mánaðamót,“
sagði Jóhannes H. Hauksson
á Húsavík en hann ásamt Osk-
ari Axelssyni og Jónasi Hall-
grímssyni hefur stofnað fyrir-
tækið Hiað s.f. Tilgangur fé-
lagsins er alhliða skotfæra-
þjónusta, svo sem hleðsla á
skotum og endurhleðsla.
Við hugsum okkur þessa þjón-
ustu fyrir veiðimenn og einnig
þá sem stunda skotfimi. Þetta
kemur til með að vera mun ódýr-
ara en áður var, þegar menn
þurftu að kaupa t.d. riffilskot og
henda síðan hylkjunum. Nú
tökum við á móti hylkjum og
hlöðum uppá nýtt og ég reikna
með að það sé um 50-60% ódýr-
ara.
Núna eru öll skotfæri keypt að
utan, en þessi þjónusta sem við
hyggjumst bjóða upp á er tilraun
til að flytja inn í Iandið frárri-
leiðslu sem ekki hefur verið fyrir
hendi áður. Ég tel það mjög
jákvætt, því það hefur lækkun á
vöruverði í för með sér.“
Jóhannes sagði að eitt riffilskot
kostaði út úr búð u.þ.b. 30
krónur, en þeir gætu boðið þau á
15-16 krónur. Taldi hann að fyrst
í stað myndu þeir þjóna sinni
heimabyggð en er fram líða
stundir á ekki neitt að vera í veg-
inum fyrir að þeir gætu þjónað
öllu landinu. Þó sagði Jóhannes
að þetta væri enn á tilraunastigi
og tíminn ætti eftir að leiða í Ijós
hver þróunin yrði. mþþ.