Dagur - 07.01.1985, Blaðsíða 8

Dagur - 07.01.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 7. janúar 1985 „Fiystiútgerðin virðist skila akaflega góðum tekjum - segir Jón Sigurðarson um fyrirhugaö nýtt útgerðarfélag á Akureyri - Meðallaun á Akureyrinni ein milljón króna? „Það er verið að athuga þetta mál af krafti en það verður vart fyrr en eftir 3 vikur sem niðurstaða fæst. Við erum með rekstrarráðgjafa i að kanna Banaslys á Raufarhöfn Banaslys varð í umferðinni á Raufarhöfn sl. fimmtudags- kvöld, þegar Oddný Guð- mundsdóttir, 77 ára, varð fyrir bfl í náttmyrkri. Oddný var þjóðkunn af marg- víslegum skrifum sínum, en þó einkum um íslenskt mál. Hún lést skömmu eftir slysið, eftir að læknir hafði verið sóttur til Kópa- skers, en hvorki læknir né hjúkr- unarkona voru á staðnum þegar atburðurinn gerðist. HS þetta mál. Ég get ekki sagt um það á þessu stigi hvort ég er bjartsýnn á þetta, enda góðra bænda siður að vera ekki með slíkar vangaveltur fyrr en búið er að leggja niður fyrir sér allar staðreyndir. Ef þetta reynist gerlegt og hagkvæmt verður þetta ekki framkvæmt nema nokkuð almennur áhugi verði meðal fyrirtækja og almenn- ings að gerast hluthafar í fyrir- tækinu.“ Þetta sagði Jón Sigurðarson, formaður atvinnumálanefndar, um hugmyndina að nýju útgerð- arfyrirtæki á Akureyri sem gerði út raðsmíðaskipin sem enn eru Beðið eftir flensunni - og bóluefninu Bóluefni gegn inflúensunni sem herjað hefur á íbúa Osló- borgar og nágrennis í desem- bermánuði sl. er nú þrotið hér á landi. Miðað við reynslu síðustu ára hefur það aðeins tekið inflúensu- faraldra um hálfan mánuð til þrjár vikur að berast hingað til lands eftir að vart hefur orðið við veikina á Norðurlöndum. In- flúensa sem hér um ræðir hefur þótt nokkuð svæsin og þvt' þótti rétt að bólusetja gamalt fólk og fólk sem á við hjarta- og lungna- sjúkdóma að stríða, hér á landi. Svo mikil var ásóknin í bólusetn- ingar að bóluefnið kláraðist á smá tíma í Reykjavík. Degi hefur nú borist fréttatil- kynning frá Ólafi H. Oddssyni, héraðslækni á Akureyri þar sem tekið er fram, vegna fjölda fyrir- spurna, að bóluefnið er nú í pöntun og er það væntanlegt eftir þrjár vikur. Þar sem um takmarkaðan fjölda skammta er að ræða er einungis ráðlegt að eldra fólk með hjarta- og lungna- sjúkdóma fái bólusetningu. Er þessu fólki bent á að hafa sam- band við heimilislækna en þeir munu síðan sjá um bólusetningu þegar þar að kemur. Vegna umræddra fyrirspurna og ótta fólks, skal tekið fram að enn sem komið er hefur ekkert tilfelli umræddrar inflúensu grein st hér á landi. - ESE Nýr möguleiki fyrir auglýsendur! Með útgáfu nýs blaðs á fimmtudögum hafa opnast fleiri möguleikar fyrir þá sem auglýsa í Degi. Aðeins 20% gjald verður reiknað fyrir allar auglýsingar er þar birtast, jafnt stórar sem smáar, enda hafi þær áður verið birtar í Degi og þurfi ekki að taka breytingum. dðgsbrot birtir dagskrá útvarps og sjón- varps og er dreift á hvert heimili á Akureyri og til áskrifenda Dags utan Akureyrar. Auglýsingadeild Dags veitir nánari upplýsing- ar. Sími 24222. dagsbrot kemur út í 8.000 eintökum. dagsbrot Sími 24222 Strandgötu 31 Akureyrí óseld hjá Slippstöðinni. Hug- myndin er sú að breyta skipunum í frystiskip og gera þau þannig út. „Það gildir um þetta að Guð bjargar þeim sem bjarga sér sjálf- ir og Akureyringar verða að reyna að bjarga atvinnumálum sínum sjálfir. Það er mjög athygl- isvert í þessu sambandi að laun á þessum frystiskipum eru afskap- lega há og að því leyti yrði þetta mjög æskilegt fyrirtæki. Ég held ég megi segja að meðallaunin á Akureyrinni í fyrra hafi verið ein milljón króna og það er greini- lega ekki sama hver vinnustaður- inn er, þegar laun eru annars vegar. Þessi frystiútgerð virðist því geta skilað ákaflega góðum tekjum og það er stór kostur við hana, ákaflega stór kostur,“ sagði Jón. Hann sagði að ef af þessu yrði mætti hugsa sér að útgerð skip- anna hæfist á næsta sumri. HS Minning: Kristin Bjarnadóttir Fædd 17. janúar 1909 Söknuður og þakklæti var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég heyrði að húsmóðirin Kristín Bjarnadóttir, Þingvailastræti 18, Akureyri væri látin. Hún lést þ. 8. nóv. sl. í Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri, eftir erfitt sjúkdómsstríð. Kristín var fædd á Seyðisfirði, dóttir hjónanna Sólveigar Einars- dóttur og Bjarna Jónssonar bankastjóra. Kristín giftist árið 1933 Sigurði O. Björnssyni prentsmiðjueiganda og bókaút- gefanda, miklum sómamanni sem látinn er fyrir nokkrum árum. Þau hjónin áttu mikiu barnaláni að fagna. Börnin urðu 7 og einnig ólu þau upp barna- barn sitt, Sólveigu. Börnin eru: Geir, Bjarni, Sólveig, Ingibjörg, Ragnar, Oddur og Þór. Öll eru þau vel menntuð og mætir þjóð- félagsþegnar. Já hlutverk húsmóðurinnar með þennan barnahóp var stórt, en það leysti hún af einstakri trúmennsku og eljusemi. Ég nefni hana húsmóður, þar sem ég álít það vandasamasta og mest krefjandi starf allra tíma. Kristín var falleg kona. Hún var vel gefin, hafði yndi af tónlist, mikill mannvinur, trygg, góður stjórnandi og ávallt tilbúin að leysa hvers manns vanda. Heimilið var orðlagt fyrir mynd- arskap og mikinn gestagang. Þeir eru margir munnbitarnir sem skólafólk á Akureyri hefur borð- að í Þingvallastrætinu. Ég var svo heppin að vera ein af þessum skólakrökkum. Ég var skólasystir Ingibjargar. Fermingarvorið mitt fyrir 30 árum fluttist fjölskylda mín til Keflavíkur. Þá var það, að Krist- ín spurði mig hvort ég vildi vera hjá sér í vist um sumarið. Ég tók því og hef ávallt síðan borið mik- Dáin 8. nóvember 1984 ið traust og virðingu fyrir þessari konu. Mér var tekið sem einni úr fjölskyldunni. Fyrst var ég vinnu- kona í Þingvallastrætinu en eftir miðjan júní, fluttist fjölskyldan í sumarbústað sinn Selland í Fnjóskadal. Þar var mikill gesta- gangur og allir alltaf velkomnir. Minnisstætt er mér þegar Ferðaskrifstofa Akureyrar stóð fyrir ferðum upp á Vaðlaheiði til að ferðalangarnir gætu skoðað sólsetur á Jónsmessunótt. Lang- ferðabílarnir óku svo með fólkið í Selland, þar sem öllum var gefið kaffi. Ógleymanlegar voru kvöld- vökurnar við arineldinn í Sel- landi, þar sem var sungið, farið í Ieiki o.fl. Þessu stjórnaði frú Kristín eins og henni einni var lagið. Um leið og ég kveð Kristínu hinstu kveðju og óska henni guðs blessunar, vil ég senda börnum hennar og öllum öðrum vanda- mönnum innilegar samúðar- kveðjur. Ég kveð þig, kæra hús- móðir með þakklæti fyrir það veganesti sem ég fór með frá þér. Blessuð sé minning þín. Eydís B. Eyjólfsdóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.