Dagur - 25.01.1985, Page 3
25. janúar 1985 - DAGUR - 3
Valdi
Gott
að míga
Já svona var það nú og fyrst
svona er komið er best að gera
þessa blöndu að vísna-blöndu.
Einhverju sinni fór Sigmundur
Benediktsson frá Vatnsenda í
Eyjafirði með flugvél til Reykja-
víkur. Nú, það er ekki að orð-
lengja það, en á leiðinni fór Sig-
mundur á klósettið í flugvélinni.
Um leið tilkynnti flugstjórinn, að
nú væri vélin að fara yfir Skaga-
fjörð. Þá orti Sigmundur:
Loksins þetta gat ég gert,
gusu að senda slynga.
Mér þykir það nú mikilsvert,
að míga á Skagfirðinga.
Ekki pössuðu
tmnumar
nú par vel
Kona nokkur austan af fjörðum
fékk sér falskar tennur hjá tann-
lækni á Akureyri ekki alls fyrir
löngu. En tennurnar pössuðu
ekki par vel og þurfti frúin að láta
lagfæra þær. Þegar hún kom til
tannlæknisins mælti hún fram
þessa vísu, en var heldur
smámælt:
Þó ég gangi frjáls og frí
fjarri sorg og pínum.
Kem ég enn með kjaftinn í
kápuvasa mínum.
Blaðarmnm
busastétt
Páll nokkur Helgason er góður
hagyrðingur. Sá hinn sami hefur
ekki mikið dáiæti á blaða-
mönnum, telur þá mestu bögu-
bósa í meðferð á íslensku máli.
Páll hefur því oft á tíðum sent
sínar athugasemdir í ýmsa þætti
um íslenskt mál, oftast til Gísla
Jónssonar. Þetta er heiðarleg til-
raun hjá Páli, til að reyna að
koma vitinu fyrir okkur blaða-
menn, en dugir sjálfsagt skammt,
ef marka má vísu Páls:
Blaðamanna busa stétt
brestur vit og snilli
íslenskt mál að orða rétt
og öðlast þjóðar hylli.
svarar
fyrir sig
í síðustu Blöndu birtust nokkrar
mergjaðar vísur eftir Kristján
frá Djúpalæk, sem hann orti í
kerskni á „setuliðsárum" sínum,
en „setulið" var nefnt verka-
mannalið Kaupfélags Eyfirðinga.
Kristján orti margar skemmtileg-
ar vísur á þessum árum, um
vinnufélaga sína, og sluppu
fæstir. Ein vísan í síðasta þætti
var um Valda á Hallgilsstöðum
og hljóðaði þannig:
Heima ætti höfuðstór
í hálfvitanna röðum.
Vindi blásinn viskusljór
Valdi á Hallgilsstöðum.
En Valdi svaraði fyrir sig, eins og
hans er vani. Um Kristján orti
hann þessar vísur:
Höfuðlítill, herðamjór,
handalangur, fótastór.
Bringuþunnur Braga-Þór
bögglast á þér lífsins skór.
Skælist ótt þín skáldaflík
skinlaus er þinn máni.
Dæmalaus þín dramatík
Djúpalækjar-Stjáni.
Líkir
brœður
Bræðurnir Tómas og Sigurgeir
Jónssynir voru bílstjórar á Bif-
röst á setuliðsárum Kristjáns og
óku þá m.a. fyrir setuliðið. Ein-
hverju sinni var verið að aka möl
frá Gleráreyrum, en þá gerði af-
takaveður, rigningu og rok. Bað
þá verkstjórinn Tómas fyrir þau
skilaboð til „setuliðsmannanna",
sem unnu við að moka mölinni á
bílana, að það væri best að hætta
þessu vegna veðurs. En Tómas
kom þessu þannig til skila, að
það lægi svo mikið á mölinni, að
mannskapurinn yrði að halda
áfram við moksturinn, þrátt fyrir
slæmt veður. Pað skal tekið fram,
að umræddir bræður eru ekki alls
óskyldir mér, því annar þeirra er
faðir minn. En þessa áráttu, að
hagræða svona orðum í skilaboð-
um, því lygi getur þetta ekki
talist, hafa þeir ekki frá mér, svo
mikið er víst! En hvað um það.
Á meðan Kristján puðaði við
malarmoksturinn gerði hann
þessa vísu um Tomma Tomm:
Enginn skyldi Tomma trúa,
tötrum klæddur lítilmenni.
Eðlishvöt hans er að ljúga,
ástríðan að þjóna henni.
Og um Geira Tomm kom þessi
vísa:
Ekki má ég gleyma Geira,
grey skinninu, punktur, komma.
Ekki þarf að yrkja meira,
af því hann er bróðir Tomma.
NY MIÐSTOÐ
STRANDFLUTNINGA
EIMSK3PS
Klettsskáli við Köllunarklettsveg er miðstöð strandflutninga Eimskips. Þar er
vörumóttaka og vöruafhending fyrir Reykjavík og nágrenni ásamt allri afgreiðslu
pappíra og fylgiskjala. Vöruafgreiðsla Herjólfs er einnig í Klettsskála.
Strandflutningaskip okkar, Mánafoss og Reykjafoss, hafa hvort um sig mikla
flutningsgetu og eru búin mikilvirkum tækjum til gámaflutninga.
Fastar áætlunarferðir til hafna innanlands og utan opna nýja möguleika. Með
einingaflutningum má betur samræma heildarflutning, stytta flutningstíma og
bæta vörumeðferð, jafnt fyrir innflytjendur sem útflytjendur. Sem sagt; bein tengsl
við alþjóðlegt flutningakerfi.
Innanlandsáætlun:
Reykjavík alla mánudaga
ísafjörður þriðjud. og laugard.
Akureyri miðvikudaga
Húsavík annan hvern fimmtudag
Allar nánari upplýsingar veitir
Norðurlandadeild Eimskips, sími 27100.
Siglufjörður annan hvern fimmtud.
Sauðárkrókur annan hvern fimmtud.
Patreksfjörður annan hvern laugard.
Reyðarfjörður annan hvern föstud.
Vestmannaeyjar daglega.
Vöruafgreiðsla Klettsskála
Sími 686464
Opið kl. 8-17 alla virka daga.
Vörumóttaka í Sundahöfn er óbreytt.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
I
O)
3
<