Dagur - 25.01.1985, Blaðsíða 11
25. janúar 1985 - DAGUR - 11
bezta. ‘Þar var átveizla stór, þar
var ólgandi bjór“, matur borinn
á borö í trogum og etið meö sjálf-
skeiðingum en engir gaflar not-
aðir; var drukkið fast, en engin
urðu veizluspjöll. Þrjú kvæði
voru flutt við þetta tækifæri og
haldnar margar ræður og mörg
minni drukkin.
Fyrir skemmtisamkomu þess-
ari stóðu kaupmaður J.V. Hav-
steen á Oddeyri og bakari H.
Schiöth á Akureyri.“
Þetta hefur verið fínt þorra-
blót, því þar hafa blótað ekki
ómerkari menn en sr. Matthías
Jochumsson, Oddur Thoraren-
sen, lyfsali, og Stefán á Möðru-
völlum, síðar skólameistari á Ak-
ureyri. Það hefur nefnilega varð-
veist prentaður borðsálmur frá
þessu blóti og er texti forsíðunn-
ar þannig:
„Einn materialistiskur og þó
spiritualistiskur Borðsálmur fyrir
fólkið. Kyrjaður við þorrablót
1893. Gengur undir þeirri há-
lystuglegu meloduntu: ‘Hann
Arni stóð stæltur á þingi.’
Ekki er rúm til að birta öll er-
indi sálmsins hér, en þrjú þau
fyrstu eru þannig:
Æ, borðið nú blessaðir, drengir!
og brytjið ei alltofsmátt;
það er ei svo opt ykkur svengir;
svei mjer! ætuð þið hangikjöt hrátt.
Æ! bergið nú sol’tið á bjórnum,
þið bragðið hann ekki svo títt.
Freyju og Bacchusi fórnum,
finnst ei kvennfólk og okkar jafnfrítt.
(stungið út).
Má jeg bjóða ykkur hangikjöt, herrar!
heitt og kalt eptir hvers eins smekk;
fyr en mjöður og munngát þverrar
mína kollu jeg fylli og drekk.
Enhvað skal nú bjóða ykkur, stúlkur?
máske svið eða blóðmör og flot;
mjer sagði einn sunnlenzkur túlkur,
að það sviplega læknaði öll skot.
Heyrðu! viltu ekki hella á aptur
og heilsa upp á þjóðskáldið vort;
hann í heiminn var settur og skaptur
til þess sæjum vjer mann, er gæti ort.
Hann er ungur og forn þó í anda
og vjer eigum ei andmeiri sál,
vjer skulum því allir upp standa;
skáldsins Mattías' drekkum nú skál.
(stungið út).
Þorrablót að Varðgjá
Til sveita hafa lengi tíðkast al-
menn þorrablót, ætluð öllum
íbúum viðkomandi sveitar og
jafnvel þeim sem ættir eiga þang-
að að rekja, eða hafa einhvern
tíma búið þar. Héraðsbúar munu
hafa orðið fyrstir til að upphefja
slíkan sið, en ekki leið á löngu
þar til hann var innleiddur í Öng-
ulsstaðahreppi, enda hafa
löngum búið þar gleðinnar menn.
Um þetta segir svo í bréfi sem
Árni Björnsson hefur birt, en
ekki mun vera vitað um höfund
að:
„í Öngulsstaðahreppi var
fyrsta þorrablót haldið á
Varðgjá 1904 og þótti þá merk-
isviðburður. Árið 1905 eða 1906
var svo haldið þorrablót á Syðra-
Laugalandi í sama hreppi og eitt
eða tvö slík á sama bæ einhverj-
um árum þar á eftir og svo var
þessum sið haldið áfram og voru
blót haldin á æðimörgum bæjum,
þar sem húsrými var gott. Þó liðu
stundum ár svo ekki var
‘blótað’, en sjaldan mörg. Eftir
að húsmæðraskólinn var byggður
á Laugalandi, voru þorrablót þar
í marga vetur, en seinna tók fé-
lagsheimilið við, og eru nú haldin
þorrablót þar flesta ef ekki alla
vetur, síðan það var byggt.
Þorrablót hafa verið haldin hér
víða í sveitum um áratugi, en
hvenær þau voru haldin fyrst í
öðrum hreppum veit ég ekki.“
Með glöðu geði
fyrir góða vini
Það er best að slá botninn í þess-
ar þorrablótahugleiðingar með
frásögn Þorgerðar Sigurgeirs-
dóttur, sem birtist í 4. hefti af
Aldnir hafa orðið. Þar segir hún
frá baðstofunni á Öngulsstöðum,
sem þótti álitleg til samkomu-
halds. Þar voru m.a. haldnar
þrjár „Framsóknar-skemmtanir"
og loks þorrablót, en frá því segir
Þorgerður á þessa leið:
„En árið 1935 vorum við Hall-
dór minn beðin að taka að okkur
að halda þorrablót hér heima á
Öngulsstöðum. Áttum við að sjá
um allan undirbúning og þessa
samkomu að öllu leyti, og taka
svo ákveðið gjald af hverjum og
einum, sem kæmi til blótsins. Það
varð úr að við féllumst á þetta, en
í félagi við okkur voru Kristinn
mágur minn á Öngulsstöðum og
Guðný kona hans.
Þeir bræður, Halldór og
Kristinn, lögðu nú fljótlega leið
sína til Akureyrar til að kaupa til
þorrablótsins og þurfti mikið til,
svo ekki yrði skortur á mat og
drykk. Keyptu þeir heil krof af
geldum skepnum, mjög matar-
mikil og reyktu sum af þeim.
Ennfremur fengum við bæði nýtt
og saltað kjöt. Það barst í tal, að
eina tegund kjöts myndi þó
vanta, en það var pestarkjöt, sem
okkur var sagt að Bjarna banka-
stjóra þætti best, en hann var
einn af væntanlegum boðsgest-
um.
Við konurnar bjuggum til 500
laufabrauðskökur og auk þess
voru bökuð öll ósköp af flat-
brauði og hveitibrauði. Svo var
þessi sjálfsagði matur, svo sem
harðfiskur og hákarl, súrmatur,
kartöflur, uppstúfningur og
margt fleira. Til að skola þessu
niður var keypt ein tunna af öli
hjá Axel Schiöth á Akureyri og
var ölið drukkið með ljúfri lyst.
Hangikjötið höfðum við bæði
heitt og kalt.
Það komu 150 manns á þetta
þorrablót og flestir auðvitað úr
sveitinni. En auk sveitafólksins
var nokkrum boðið frá Akureyri
og man ég eftir þeim, því þeir
settu talsverðan svip á samkom-
una, allt kunnir menn, en þeir
voru þessir: Steingrímur læknir
Matthíasson, Bjarni bankastjóri,
Páll Einarsson og frú, Jón E. Sig-
urðsson og frú, Sigfús frá
Höfnum og frú, Páll Skúlason og
frú, Björgvin tónskáld og Vil-
hjálmur Þór. Samkomuna setti
Einar Árnason frá Eyrarlandi.
Það var mikil fyrirhöfn að
rýma húsnæðið til að koma þessu
þorrablóti fyrir, en það var gert
með glöðu geði fyrir góða vini.
Margar konur hjálpuðu okkur
við að bera á borð og vinna það
sem vinna þurfti á meðan á blót-
inu stóð. Gekk þetta allt sæmi-
lega vel og flestir Akureyringarn-
ir héldu ræður eða fluttu ávörp,
ásamt sr. Benjamín, sóknar-
presti, sem þar var að sjálfsögðu,
ásamt konu sinni. Sigfús frá
Höfnum minntist okkar, kvenn-
anna, lofsamlega.
Við höfðum engar vínveiting-
ar, en sumir gestirnir komu með
eitthvað með sér og neyttu þess,
en við veittum kaffi á eftir mat og
svo einnig síðar.
Mikið var sungið á meðan á
borðhaldinu stóð og einnig síðar.
Það mátti jafnvel heyra söng neð-
an úr kjallara og ofan af lofti,
misfagran að vísu, en söngur er
ætíð gleðigjafi. Helgi Stefánsson
frá Gröf stjórnaði söng hvar sem
hann var staddur. Það var ekkert
fyllerí, sem heitið gæti því nafni,
en sumir voru svona góðglaðir,
sem kallað er.“
Svo mörg voru þau orð Þor-
gerðar. Nú er bara að vita hvort
einhverjir verða góðglaðir á
þorrablóti Öngulsstaðahreppinga
í Freyvangi í ár?! - GS
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 30. janúar nk.
verða bæjarfulltrúarnir Sig-
urður Jóhannesson og Freyr
Ófeigsson til viðtals í fundar-
stofu bæjarráðs, Geislagötu
9, 2. hæð.
Bæjarstjóri.
11. sýning föstudag
25. janúar kl. 20.30.
12. sýning laugardag
26. janúar kl. 20.30.
Miðasala í Turninum í göngugötu
alla virka daga kl. 14-18.
Miðasala I leikhúsinu laugardaga
frá kl. 14 og alla sýningardaga
frá kl. 18.30 og fram að sýningu.
Sími 24073.
Leikfélag
Akureyrar
er gull
og gersemi“
Frá Vistheimilinu Sólborg:
Lausar stöður
í vaktavinnu
85% staða frá 1. febrúar.
80% staða frá 1. febrúar, afleysingar í 2-3 mán-
uði.
Upplýsingar í síma 21755 frá kl. 9-17 28. og 29.
janúar.
Forstöðumaður.
Vélstjóra og stýrimann
vana netaveiðum vantar á ms. Eyborgu EA 59
frá Hrísey.
Uppl. um borð í bátnum á daginn og í síma
24636 á kvöldin.
Ðorg hf. Hrísey.
SECURITAS
Óskum eftir að bæta við okkur öryggisvörðum
til næturvakta.
Upplýsingar í síma 26261 frá kl. 9-12.
Securitas hf.
Akureyrardeild.
Libelle kvenskó og stígvél,
einnig Ruggeri karlmannaspari- og götuskó.
iv sendta£ \
Vorum að taka upp sendingu
af kápum og jökkum
á góðu verði.
Á dömur.
i boVtt, peysut
\ Á hetta’.
\ peýSUT oj
)rum að taka upp
nokkrar gerðir
cyrtum og peysum